Morgunblaðið - 22.10.2000, Síða 28

Morgunblaðið - 22.10.2000, Síða 28
28 B SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ írska hljómsveitin U2 hefur notið fádæma vinsælda þá tvo áratugi sem hún hefur verið starfandi. Arnar Eggert Thoroddsen rekur sögu sveitarinnar í tilefni af útgáfu tíundu breiðskífunnar, All That You Can’t Leave Behind, sem út kemur 30. október. Kevin Westenberg U2 í dag: Adam Clayton, Bono, Larry Mullen jnr. og The Edge. F ÞAÐ hefði ekki verið fyrir myndbandið við lagið „Where the Streets Have No Name“, hvar Bono, söngvari U2, hleypur æstur um uppi á hótelþaki í Los Angel- es, sæti ég líklega ekki seint á síðkvöldi, bogr- andi yfir sögu sveitarinnar. Ég trúi stað- fastlega að ég hafi orðið fyrir vitrun er ég sá -'rnyndbandið, eins kjánalega og það kann að hljóma. Ailtént hef ég aldrei litið til baka eftir það, féll sæll og glaður í faðm tónlistargyðjunn- ar og hef verið þar síðan. Þetta var árið 1987, U2 nýbúnir að gefa út plötuna The Joshua Tree, og voni þeir um þetta leyti helsta rokksveit heims. Ólíkt mörg- um fyrirrennurum sínum voru U2 á þessum tímapunkti enn ólgandi hugsjónamenn, sem sást hvað skýrast í augum hins sjarmerandi söngvara Bono, sem virtist búa yfir óslökkv- andi orku og ástríðu. Ég og þúsundir annarra ungmenna vorum sem töfrum slegin. Þessi hljómsveit hafði eitthvað við sig sem allar aðrar virtist skorta. Dyflinni, 1976 Rætur U2 liggja í korktöflu sem hangir uppi á vegg í Mount Temple-skólanum í Dyflinni. Þar hengdi ungur og áhugasamur trommuleik- ari, Larry Mullen að nafni, upp snepil sem lýsti eftir fólki sem vildi stofna með honum rokk- hljómsveit. Nokkrum dögum síðar stóð hljóm- sveitin Feedback inni í eldhúsi hjá Larry, til- búinn í gírinn. Ásamt Larry voru samankomnir þeir Paul Hewson (síðar Bono Vox, enn síðar Bono) söngvari, Adam Clayton bassaleikari, Dave Evans (síðar The Edge) gítarleikari og Dick Evans, bróðir Dave, einnig gítarleikari. Larry minnist þess í dag að Bono hugðist ekki verða söngvari þarha í blábyrjun. „Bono ætlaði að vera gítar- leikari en það var ekki hægt þar sem -*"hann var alvég glataður á gítarinn. Þannig að við buðum honum að syngja í staðinn. En hann gat það náttúrulega ekki heldur.“ Ári síðar breyttu þeir nafni sveitar- innar í The Hype en stuttu eftir það hætti Dick í hljómsveitinni. Við brotthvarf hans fékk hljómsveitin loks sitt endanlega nafn, U2. Síðasta gítarhetjan Það fór ekki á milli mála, fyrstu ár- in sem U2 starfaði, að fyrir þeim var þetta spuming um heimsyfirráð eða 'clauða. Þeir ætluðu að slá í gegn hvað sem það kostaði og voru reiðubúnir að leggja á sig miklar fórnir og vinnu til að ná þessu markmiði sínu. Þeir sem sóttu tónleikastaði Dyflinnarborgar reglubundið undir lok áttunda ára- tugarins urðu vitni að orkupökkuðum keyrsluhljómleikum þar sem Bono, forvígismaður af guðs náð, gaf sig all- an hvert kvöldið á fætur öðru. Þessi einurð skilaði þeim að lokum samn- ingi við „litla“ útgáfurisann Island, en áður höfðu þeir gefið út tvær smáskíf- ur á vegum CBS-útgáfunnar. Fyrsta breiðskífan, Boy, kom svo út fyrir réttum tuttugu árum. A henni er að finna hrátt og pönk- skotið rokk, skilgetið afkvæmi síð- '%)önksbylgjunnar. U2 höfðu þó náð að móta sinn eigin hljóm sem rann nokk- uð auðveldlega úr greipum skilgrein- ingarsinna. Munaði þar mestu um skerandi og melódískan, næstum því ójarðneskan, gítarhljóm The Edge sem þykir einstakur innan rokkgítarfræða. The Edge hefur vegna þessa oft verið nefndur til sem síðasta gítarhetjan. Rammpólitfskt U2 voru byrjaðir að safna saman kjarna eiðs- varinna aðdáenda. Hljómsveitin þótti hafa til að bera sterkan og svipmikinn „persónuleika“, það geislaði af henni mikil trúfesta og bræðra- lagsandi, eiginleikar sem helst var hægt að tengja við Bítlana forðum daga. Þessi staðfesta meðlima beindist einnig að utanaðkomandi íslutum, allir meðlimir, fyrir utan Adam, voru miklir trúmenn og sveitin öll var rammpólitísk. Bono átti harla erfitt með að halda munninum á sér saman ef einhver aðkallandi hitamál voru á döfinni. Árið 1981, ári eftir frumburðinn, kom út plat- an October, „hin erfiða önnur plata“ eins og gjaman er haft á orði á fagfundum gagnrýn- enda. Platan var þeim líka vissulega erfið í vinnslu. Hún var unnin á miklum hraða, undir mikilli pressu og eitthvað var andinn þeim fjarri á þessum tíma að sögn þeirra sjálfra. í ljósi þessa er útkoman með ólíkindum. Hér var komin ein . heiðarlegasta og lágstemmdasta plata U2, yl- Viýr og angurvær dimma leikur um lögin og hugleiðingar um trúna sitja sterkar í forgrunn- inum. í kjölfarið fór sveitin í langa hljómleika- ferð um Bandaríkin og heimsóttu þar hvem út- nára sem krummaskuð. Að sögn Bono vom þetta erfiðir tímar fyrir sveitina og þeir háðu mikið efastríð um hvort þeir ættu að halda þessu áiram eður ei. Sérhverjir tónleikar vora spilaðir líkt og um kveðjutónleika væri að ræða. Fáninn hvíti Vatnaskil urðu árið 1983 er þríðja platan, War, kom út. Lagasmíðamar vora sterkar og hvassar og textar Bono bæði áleitnir og beittir. Það er ekki annað hægt en að hrífast af barns- legri einlægninni og kraftinum sem drífur lög eins og „Two Hearts Beat as One“ og „New Year’s Day“ áfram og Bono gerði hinn hvim- leiða vandræðagang í N-írlandi að umtalsefni í laginu „Sunday Bloody Sunday“. U2 vora nú á allra vöram og þóttu vera ferskasta rokkband sem fram hafði komið í háa herrans tíð. Ákveðið var að mynda og hljóðrita nokkra tónleika sem haldnir vora í Bandaríkjunum í kjölfarið á útkomu plötunnar. Þetta var gefið út á stuttskífu (Mini-LP) og myndbandi undir heitinu Under a Blood Red Sky. Platan er ein þekktasta tónleikaskífa sögunnar, og það er ógleymanlegt öllum þeim sem á hafa horft er Bono lýsir því hátt og snjallt yfir að „Sunday Bloody Sunday“ sé EKKI byltingarlag áður en hann tekur að marsera fram og aftur um sviðið veifandi hvítum fána, tákni friðarins. Sannleik- urinn brann í augum þessa unga íra, sem stóð stoltur eins og stytta við alla þá málstaði sem hann gat hönd á fest. Þetta reiknilíkan frægðarinnar var þó ekki fýsilegt okkar mönnum til lengdar. Nýjar leið- ir, nýir möguleikar voru rétt handan við homið. Brian Eno Brian Eno er talinn upphafsmaður sveim- nálgunarinnar (e. ambient) við dægurtónlist. U2 leituðu á náðir Eno og félaga hans, Daniel Lanois, við gerð meistaraverksins The JJnfor- gettable Fire þar sem var heldur betur skipt um gír. I stað kröftugra og tilfinningahlaðinna bar- áttusöngva um ást og önnur mikilvæg málefni voru komin hæglát og dreymandi lög. Textamir orðnir mun sértækari, eins og t.d. í lögunum „Promenade" og „Elvis Presley and America11 og tihaunir með hljóma og lagasmíðar orðnar mjög svo „djúpar“. Pólitískar pælingar vora þó ennþá til staðar, í lögum eins og „Pride (in the Name of Love)“ og „Bad“. Listrænasta plata U2, og afar hetjulegt skref hjá sveitinni. I viss- um skilningi þeirra besta verk fyrr og síðar. Nú liðu heil þrjú ár að næstu plötu. U2-liðar vora þó allt annað en aðgerðalaush og mikill tími fór nú í góðgerða- og mannréttindastarf- semi hvers konar. Þeh, eða öllu heldur Bono, gerðust senuþjófar á Live Aid-tónleikunum ár- ið 1985 og sveitin fór í hljómleikaferðalag á veg- um Amnesty Intemational árið 1986. Á endanum settust menn þó niður og tóku til við að yrkja og semja. Sem fyrr voru það þeh Brian Eno og Daniel Lanois sem aðstoðuðu þá við gerð þeirrar plötu sem margh álíta vera rós í hnappagati hljómsveitarinnar. Sjálfsþæging og sanndreymi The Joshua Tree kom út árið 1987 og var hampað sem meistaraverki, jafnt á vígstöðvum aðdáenda sem gagnrýnenda. Lög eins og „With or Without You“, „Where the Streets Have no Name“ og „I Still Haven’t Found What I’m Looking for“ era sígild lög sem dynja í útvarp- inu enn þann dag í dag og lög eins og „Bullet the Blue Sky“, „Running to Stand Still“ og „Mothers of the Disappeared" hafa í dag ekki misst vott af því harmræna gildi sem umleikur þau svo sterkt. Hreint gífurlega heilsteypt verk og um þetta leyti voru U2 einfaldlega stærsta rokkhljómsveit heims. Eins og lög gera ráð fyrir var haldið í gríðarinnar ferðalag heimshorna á milli og á því tímabili var ákveðið að búa til kvikmynd um Ameríkuævintýri sveitarinnar og gefa út tvöfalda plötu í því til- efni. Á plötunni og í samnefndri mynd, Rattle and Hum (1988), var óður sunginn til banda- rískra dægurmenningarhetja eins og Elvis Presley og Billie Holiday og meira að segja kíkti gamla blúsbrýnið B.B. King á strákana. Þetta verkefni er hugsanlega lægsti punktur- inn í sögu U2, of mikil sjálfsþæging á ferðinni, of lítið af tónlist. Á síðustu tónleikum þessa langa ferðalags, árið 1989, sagði Bono, þreyttur og ruglaður: „Við þurfum að fara koma okkur í burtu . . . til að eiga þess kost að njóta sann- dreymis á ný“. 10.000 flatbökur Sanndreymi U2 kom fram tveimur áram síð- ar í líki plötunnar Achtung Baby. U2 vissu greinilega að ef þeh ættu að lifa af, bæði í sköp- unarlegu og sölulegu tilliti, yrðu þeh að stokka spilin upp á nýtt. Og höndin sem þeir fengu gat vart verið betri. Á Achtung Baby ná þeh félag- ar að blanda samtímastraumum úr tölvu- og danstónlist saman við vöramerkishljóm U2 á farsælan hátt. Andlitslyfting sem gaf meðlimum nýjan neista fyrir nýjan áratug. U2 era, eins og fram hefur komið, nautsterkt tónleikaband og nú var heldur en ekki slegið upp shkus- tjöldum. Trabantar, tugur risaskjáa og 10.000 flatbökur vora meðal skemmtiatriðanna og Bono kastaði sér í hlutverk einskonar hhðfífls sem brá sér í margvíslega, merkingar- hlaðna búninga. Hviti fáninn og sann- leiksleitandi augnaráðið var horfið - í stað þess var komið póstmódemískt fjölleikahús, uppfullt af kaldhæðni, þar sem Bono gerði óspart grín að öfgunum sem fylgja því að vera rokk- stjarna, sem hann hafði sannarlega reynslu af frá fyrstu hendi. Árið 1993 var plötunni Zooropa hraðað á markaðinn og var það með vilja gert. Þetta var safn laga sem hafði verið að tínast til á yfirstandandi hljómleikaferðalagi og vildu sveitar- meðlimh koma þessu frá sér sem fyrst án þess að vera með of mikil læti. Platan er líklega best heppnaða seinni tíma verk sveitarinnar, hægt að spegla það svolítið í Unforgettable Fire-plötunni. Farið var með pæling- amar á Achtung Baby enn lengra, og er platan bæði myrk og dulúðug og eitt tihaunakenndasta verk U2 frá upphafi. Tónlistin hefur forgang Árið 1995 þótti mörgum sem með- limir U2 færa yfir strikið í þeirri við- leitni sinni að sanna fyrir alheimi að þeh væra alvöra „listamenn“. Á plöt- unni Original Soundtracks 1 mátti finna meðlimi sveitarinnar ásamt mönnum eins og Howie B, Brian Eno og Luci- ano Pavarotti, starfandi undir nafninu Pass- engers. Platan inniheldur tónlist við ímyndaðar kvikmyndh og hvorki féll hún í kramið hjá gagnrýnendum né aðdáendum. „Það era ákveðin mörk á milli listar og sjálfbhgingshátt- ar. Við fóram yfir þau mörk á Original Sound- tracks 1,“ á Larry Mullen að hafa sagt þurr- lega. Næsta „alvöra“plata kom svo út árið 1997 og ber heitið Pop. Heyrst hafði að U2 hygðust gera tæknórokksplötu í anda Prodigy og Chemical Brothers en einhver málamiðlun varð þó á því þar sem „hefðbundin“ U2-lög era þar einnig á kreiki. Pop er uppfull af grípandi melódíum og svölum lögum en engu að síður er eitthvert undhliggjandi þunnildi í öllu saman. Og þá er það tíunda platan, All That You Can’t Leave Behind. Skyldi „aftur til rokkrót- anna“-platan sem búið er að lofa í fjölda ára loks vera komin? Yfirlýsingar að undanförnu vhðast renna stoðum undir það. Brian Eno og Daniel Lanois era mættir á nýjan leik á bak við stjórnborðið, en þar voru þeh síðast er Acht- ungBaby var tekin upp. Bono er heldur ekkert að skafa utan af hlutunum frekar en hans er von og vísa og segh ástand poppheimsins bág- borið, U2 séu komnir til að sparka í rassa með óþvegnu rokki og róli. Ætlunin er svo að hefja tónleikaferðalag um heiminn í mars næstkomandi. Ólíkt því sem á undan hefur gengið verður fremur spilað á minni stöðum í þetta skiptið. „Við eram farnh að búa til tónlist á ný,“ segh Bono. „Það á að hafa forgang.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.