Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 33
32 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 33 plmrgnwMnMlí STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. VÆNDIÁ ÍSLANDI? SL. FIMMTUDAG skrifaði Rannveig Jónsdóttir fram- haldsskólakennari grein hér í Morgunblaðið þar sem hún rifjaði upp umræður sem urðu á ráðstefn- unni Konur og lýðræði fyrir u.þ.b. ári og vöktu mikla athygli og sagði: „Forsögu málsins má rekja til fyrri hluta október árið 1999 þegar ráð- stefnan Konur og lýðræði var haldin í Reykjavík að tilstuðlan ríkisstjórnar íslands. Þar vakti mesta athygli um- ræðan um hina hættulegu og niður- lægjandi verzlun með manneskjur sem sendar eru í gróðaskyni á milli landa til starfa við klám og vændi. Um svipað leyti fór hópur kvenna í vettvangskönnun á nektardansstað- ina sjö í Reykjavík en sá fyrsti var opnaður í ársbyrjun 1995.“ I grein sinni sl. fimmtudag ítrekaði Rannveig Jónsdóttir síðan nokkrar spurningar til dómsmálaráðherra um „rannsókn á starfsemi nektardans- staðanna og hvaða aðilar erlendir og innlendir græddu á hugsanlegu vændi tengdu þessari starfsemi.“ í Morgunblaðinu sl. laugardag svaraði Ingvi Hrafn Oskarsson, að- stoðarmaður dómsmálaráðherra, spurningum Rannveigar Jónsdóttur og sagði: „Um leið og umræða um starfsemi nektardansstaða og mögu- legt vændi kom upp brást ráðherra við og kallaði eftir tillögum frá fag- aðilum um hvernig mögulegt væri að gera rannsókn á viðfangsefninu. Sú rannsóknarvinna hefur nú staðið yfir í nokkra mánuði eins og áður sagði en það er klárt að vændi er afar vand- meðfarið rannsóknarviðfangsefni. Athæfið er ólöglegt og því dulið - fáir vilja viðurkenna þátttöku, hvorki að þeir bjóði slíka þjónustu né hafi þegið hana. Þá eru fyrirliggjandi opinþerar upplýsingar af skornum skammti...! rannsókninni hefur verið leitast við að kanna hvort vændi sé stundað meðal ungs fólks og hvað knýi það til þess að afla fjármagns með þeim hætti. Leitast hefur verið við að draga upp mynd af aðstæðum þess- ara ungmenna. Þá hefur athygli beinzt að starfsemi nektardansstaða með það að markmiði að varpa ljósi á hugsanlegt vændi í tengslum við starfsemina...Eg tel ekki fráleitt að ætla að þessi rannsókn veiti okkur skarpari sýn á eðli og útþreiðslu vændis á Islandi þó að of snemmt sé nú að fullyrða nokkuð þar um. Ég tel líka mikilvægt að geta þess að sam- hliða þessari rannsókn er nú á vegum dómsmálaráðuneytisins unnið að ít- arlegri skýrslu um samanburð á laga- umhverfi á íslandi og annars staðar varðandi löggjöf og eftirlit með klámi, vændi o.fl.“ Það er ljóst, að Islendingum mun bregða í brún ef í ljós kemur við ofan- greinda rannsókn að vændi sé stund- að á íslandi. Erlendir löggæzlumenn, sem hing- að hafa komið, hafa varað íslenzk stjórnvöld við því, að reynslan alls staðar sé sú, að í kjölfar starfsemi nektardansstaða sigli eitulyfjanotk- un og vændi. Það er þakkarvert, að nokkur hóp- ur íslenzkra kvenna hefur tekið hönd- um saman um að vekja athygli á þessu vandamáli og það er jafnframt ljóst af grein aðstoðarmanns dóms- málaráðherra, að nú stendur yfir um- fangsmikil vinna við rannsókn máls- ins. Þegar vandinn hefur verið kort- lagður með þessum hætti er tilefni til að hefjast handa um að sporna gegn þessari þróun. Það er okkur Islend- ingum kappsmál, að þessi starfsemi skjóti ekki rótum hér á landi. UMRÆÐUR UM MATARÆÐI UMRÆÐUR um mataræði eru að aukast mikið og eru af hinu góða. Þær sýna vaxandi skilning al- mennings á því, að beint samband getur verið á milli mataræðis fólks og heilsufars þess. Nýjasta dæmi um þessar umræð- ur er málþing, sem Náttúrulækn- ingafélag Islands efndi til í síðustu viku, þar sem varpað var fram þeirri spurningu hvort sykur væri hættu- laus orkugjafi eða skaðvaldur. Skoðanir þeirra sem töluðu á mál- þinginu voru skiptar urn þessa spurningu. Jón Bragi Bjarnason líf- efnafræðingur sagði að stóraukin sykurneyzla á þessai'i öld hefði haldizt í hendur við skuggalega aukningu ýmissa sjúkdóma, svo sem sykursýki, offitu og kransæðasjúk- dóma. Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, gerði að umtalsefni harnaaf- mæli nútímans, þar sem börnin færu gjarnan á „sykurfyllerí" eins og hann komst að orði og sagði, að flestir myndu kannast við þær ger- breytingar sem gætu orðið á börn- um við mikið sykurát. Anna Sigríður Olafsdóttir nær- ingarfræðingur tók ekki jafnsterkt til orða en sagði ljóst að sykur- neyzla íslendinga væri meiri en æskilegt gæti talizt. Sykur væri munaður sem hægt væri að leyfa sér í hæfilegu magni. Þorbjörg Haf- steinsdóttir hjúkrunarfræðingur lýsti þeirri skoðun, að fræða þyrfti börn um skaðleg áhrif óhóflegrar sykurneyzlu. Umræður sem þessar eru mikil- vægur þáttur í að vekja fólk til vit- undar um mataræði sitt. Hins vegar veldur það hinum almenna borgara vandræðum hvað hann fær misvís- andi ráðleggingar frá hinum ýmsu sérfræðingum um það, hvað telst hollt og óhollt. Það vekur upp spurningar um hvort ráðgjöfin sé al- mennt ekki byggð á nægilega traustum grunni rannsókna og þekkingar. Líklega þarf að stórauka kennslu og fræðslu í skólum um mataræði al- mennt. Það getur að vísu verið erfitt ef fræðimenn greinir á um grund- vallaratriði varðandi hollustu mat- væla. En engu að síður er það bezta leiðin til þess að hafa á löngum tíma varanleg áhrif á mataræði Islend- inga og er um leið eitthvert bezta forvarnarstarf sem hægt er að vinna í þágu bættrar heilsu landsmanna. Öryrkjum fjölgar stöðugt, en tæplega 10.000 öryrkjar fengu greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins á síðasta ári 43% öryrkja fá engar greiðslur úr lífeyrissjoðum Öryrkjar fengu á síðasta ári samtals 5,8 milljarða í tryggingabætur frá Trygginga- stofnun. Lífeyrissjóðirnir greiddu hins vegar samtals tæplega 2,7 milljarða í ör- orkulífeyri. Um 43% allra öryrkja fá engar greiðslur úr lífeyrissjóðum og bygg,ja því afkomu sína fyrst og fremst á bótum al- mannatrygginga, sem hafa ekki haldið í við almenna launaþróun á síðustu árum. Egill Qlafsson skoðaði kjör öryrkja á Islandi. Öryrkjabandalagið höfðaði mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur vegna tengingar örorkubóta við tekjur maka. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar- lögmaður flutti málið gegn Tryggingastofnun fyrir hönd stefnanda og sést hér á tali við forystumenn Öryrlqabandalagsins. Kau laun pmátti a verk ir lí aka feyriss rla 19: preiðslr B7-199 ia c 9 >g lágmarl • : ÍRÍ CS- IDU I - 1 , loU Ka jpmá ttarvíéitala ágma kslai na ve rkaka la — 14U i A I # I „ i loU % 2 lzU 110 - wT i— 100 Kau pmátl i-—' arvísiiala lífeyrisc reiðsl na me ð ein jreiðí u A 'O yu ’8 7 '8 8 ’8 9 ’9 0 ’91 '92 '9 3 ’9 4 ’9 5 ’9 6 ’f >7 '9 8 '9 I 9 S EGAR talað er um ör- yrkja er nauðsynlegt að hafa í huga að öryrkjar eru fjölbreyttur hópur og ekki eru kjör allra þau sömu. Staða þeirra sem hafa orðið ör- yrkjar á miðjum aldri er ólík þeirra sem hafa verið öryrkjar frá fæðingu og aldrei komist út á vinnumarkaðinn. Fyri-nefndi hóp- urinn hefur yfírleitt verið á vinn- umarkaði og fær því greiðslur úr lífeyrissjóði. Þeir sem hafa verið fatlaðir frá fæðingu njóta ekki slíkra greiðslna, en stór hluti þeirra er hins vegar inni á stofn- unum og nýtur þar umönnunar. Þá má ekki gleyma að hluti ör- yrkja er á vinnumarkaði. Árið 1997 höfðu 38% öryrkja atvinnutekjur og námu meðalatvinnutekjur þeiiTa 36.500 kr. á mánuði eða svipaðri upphæð og örorkulífeyrir og tekjutrygging námu á þeim tíma. Flestir öryrkjar sem eru á vinnumarkaðinum eru í hlutastarfí. í grein sem birtist í Morgun- blaðinu fyrr í þessum mánuði er komist að þeirri niðurstöðu að elli- lífeyrir og tekjuti'ygging hafí ekki haldið í við hækkun launavísitölu. Kaupmáttur launa hafi hækkað um 26,3% frá árinu 1995 til dagsins í dag á meðan kaupmáttur tekju- tryggingar og ellilífeyris hafi hækkað um 14,8%. Kaupmáttur örorkulífeyris og tekjutryggingar hefur hækkað um sömu tölu. f Staðtölum Tryggingastofnunar fyrir árið 1999 er hækkun lífeyris- greiðslna borinn saman við lágmarkslaun verkakarla. Lág- markslaun verkakarla hækkuðu frá 1995-1999 um 42% á meðan líf- eyrir og tekjutrygging hækkuðu samtals um 21,5%. Jón Sæmundur Sigurjónsson, hagfræðingur hjá heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu, segir að taka verði tillit til þess að á þessu tímabili hafi verið gerðar margvís- legar breytingar á reglum sem bæti stöðu öryrkja umfram hækk- un helstu bótaflokka. T.d. hafi ver- ið dregið úr tekjutengingu við tekjur maka öiyrkja, bifreiða- styrkjum til hreyfihamlaðra hafi verið fjölgað og styrkirnir jafn- framt hækkað og niðurgreiðslur á tannlæknakostnaði örykja hafi verið auknai’. Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, segir að kaupmáttur öryi-kja sé almennt lakari í dag en hann var fyrir rúm- um áratug. Staðtölur Trygginga- stofnunar sýni að kaupmáttur þeirra slagi rétt upp í það sem hann var árið 1988. Hér sé þó ekki tekið tillit til þess hve hefðbundinn kaupmáttarútreikningur sé blekkj- andi þegar um kaupmátt öryrkja sé að ræða vegna þess að útgjöld eins og símkostnaður, lyf og hús- næðiskostnaður vegi mun þyngra hjá öryrkjum en öðrum, að ekki sé talað um raunlækkun skattleysis- mai-ka, sem hafi meiri áhrif á kaupmátt öryrkja en annarra. Samkvæmt skýrslu um stöðu, aðbúnað og kjör öryrkja, sem unn- in var fyrir forsætisráðherra fyrir tveimur árum áttu 40% einhleypra öryrkja fasteign og 89% hjóna. Garðar segir að húsaleiga hafi hækkað mjög mikið á síðustu ár- um og þetta komi afar illa við hóp öryrkja sem sumir þurfi að greiða háa ieigu af tryggingabótum. Hækkun á húsnæðislið valdi því að margii' öiyrkjai’ séu mun verr settir í dag en þeir voru fyrir nokkrum árum. Það sé t.d. mikið hagsmunamál öryrkja að húsa- leigubætur verði skattfrjálsar. A aðalfundi Öryrkjabandalags- ins, sem haldinn var um síðustu helgi, var lögð áhersla á að bætur almannatrygginga yrðu hækkaðar til samræmis við bætur þjóða sem hafa sambærilegar þjóðartekjur. Jafnframt var hvatt til þess að dregið yrði úr tekjutengingu bóta. Umdeild tenging við tekjur maka Að undanförnu hefur mikið ver- ið rætt um tengingu tekna maka öryrkja við greiðslur frá Tryggingastofnun. Öryrkjabanda- lagið hefur barist gegn þessari tengingu og hefur raunar höfðað dómsmál til að fá þessa tengingu dæmda ólöglega. Þeir unnu málið að hluta til í héraðsdómi, en málið kemur til kasta hæstaréttai' í lok þessa árs. Þá hafa þingmenn Sam- fylkingarinnar lagt fram frumvarp á Alþingi um að dregið verði veru- lega úr þessari tengingu. Gagnrýni á tengingu tekna bóta- þega við tekjur maka varð til þess að árið 1998 var ákvæði um tekju- tengingu sett í lög, en áður var einungis kveðið á um þetta í reglu- gerð. Jafnframt var dregið úr tekjutengingu á þann hátt að frí- tekjumark var hækkað verulega. Samtals nam kostnaður við þessa breytingu 500 milljónum og náði hún til um 18.000 einstaklinga, jafnt öryrkja sem aldraðra. I dag er tekjutengingin með þeim hætti að fjölskyldutekjur ör- yrkja og maka hans fara að skerð- ast þegar þær eru 136 þúsund krónur á mánuði. Skerðingarprós- entan er 45% á bætur sem eru um- fram þetta mark. Tekjutrygging fellur niður þegar sameiginlegar tekjur hjóna hafa náð 270 þúsund krónum. Jón Sæmundur sagði að menn yrðu að hafa í huga að tekjuteng- ing í almannatryggingakerfinu hefði alla tíð verið til staðar frá því kerfinu var komið á fót árið 1936. Þegar tekjutrygging var tekin upp í almannatiyggingalögum árið 1971 hefði verið ákveðið að bætur öryrkja og ellilífeyrisþega skertust ef tekjur maka færu upp fyrir ákveðið mark. Frá 1998 hefðu tví- vegis verið stigin skref í þá átt að draga úr þessari tengingu. Jón Sæmundur sagði það sína ÖRYRKJUM hefur fjölgað mikið á síðustu árum samkvæmt tölum Tryggingastofnunar ríkisins. Ár- ið 1985 voru 3.456 öryrkjar hér á iandi, en 10 árum síðar voru þeir orðnir tvöfalt fleiri eða 7.175. I lok síðasta árs voru ör- yrkjar orðnir 8.673. Aukningin á siðasta ári nam 8,7%. Hafa þarf í huga að örorkustyrkþegum, þ.e. þeim sem eru nieð 50-75% ör- orku, fækkaði á síðasta ári úr 1.629 í 1.185'. Það má því draga þá ályktun að skilgreind örorka einhvers hóps öryrkja hafi verið aukin. Samtals fjölgaði örorku- lífeyrisþegum og örorkustyrks- þegum á síðasta ári um 2,6%. Það er athyglisvert að 60,5% allra öryrkja eru konur. Reynd- ar er hlutfail öryrkja hærra meðal karla en kvenna í ald- urshópnum 16-24 ára, en í öðr- um aldurshópum hafa konurnar vinninginn. Geðsjúkum og bak- veikum fjölgar mest Sigurður Thorlacius, yfir- læknir Tryggingastofnunar, sagði að í upphafi þessa ára- tugar hefðu menn talið að mikil fjölgun öryrkja tengdist einkum auknu atvinnuleysi og erfiðleik- um í efnahagslífi landsmanna. En fjölgun öryrkja hefði haldið áfram á síðustu árum þrátt fyrir skoðun að ef ætti að ganga lengra í að draga úr tengingu við tekjur maka öryrkja og ellilífeyrisþega yrði um leið að horfa til annarra hópa öryrkja. Öryi-kjar sem ættu maka á vinnumarkaði hefðu það fjárhagslega mun betra en t.d. ógiftir öryrkjar og hjón þegar bæði væru bótaþegar. Jón Sæmundur sagði að það væri ekki rétt sem haldið hefði verið fram að bætur almanna- trygginga væru hvergi tengdar við tekjur maka nema á Islandi. Slíkar tengingar hefðu verið teknar upp j Danmörku fyrir þremur árum. I almannatryggingakerfinu í Svíþjóð og Noregi væru slíkar tengingar, en útfærðar með öðrum hætti en hér og Bretar ætluðu að taka upp slíkar tengingar á næsta ári. Garðar sagði að þótt svo kynni lítið atvinnuleysi og bætta stöðu efnahagsmála. Hann sagði að verið væri að skoða þessi mál sérstaklega á vegum Trygginga- stofnunar, en niðurstöður lægju ekki fyrir. Það lægi þó fyrir að fjölmennustu hópar öryrkja væru þeir sem ættu við geð- raskanir að stríða og bilað stoð- kerfi þ.e. bakveiki. Aukningin væri einnig mest í þessum hóp- um. Það vekti einnig athygli hvað örorka væri algeng meðal ungs fólks. Sigurður sagði að nýverið að vera að bætur öryrkja væru annars staðar eitthvað tengdar tekjum maka, væri hvergi í hinum siðaða heimi gengið jafnlangt í þeim efnum og hér. Öryrkjabanda- lagið gerði ekki athugasemd við að öryrkjar sem færu í sambúð væru sviptir heimilisuppbót og sérstakri heimilisuppbót, samtals 21 þúsund krónum, en það gerði alvarlega at- hugasemd við að gengið væri lengra og lögvernduð tekjuti-ygg- ing þeirra skert. Hann benti jafn- fram á að um % hlutar þeirra sem lentu í þessari skerðingu væru konur. Það væri því jafnréttismál í fleiri en einum skilningi að fá þessa skerðingu afnumda. Greiðslur Tryggingastofnunar til öi’yrkja eru byggðai- upp með sambærilegum hætti og lífeyris- greiðslur til eldri borgara. Öryrkj- hefði verið gerð sú breyting að skilgreind örorka væri nú ein- vörðungu metin út frá læknis- fræðilegu ástandi einstakl- ingsins, en áður var örorkuhugtakið einnig tengt tekjum. Hann sagði að þessi breyting hefði ollið tíinabundinni fjölgun öryrkja. Endurhæfing öryrkja efld Sigurður sagði að það væri mat sérfræðinga að ein af ástæð- um fyrir fjölgun öryrkja væri sú ar eiga rétt á örorkulífeyri sem er í dag 17.715 kr. á mánuði. í fyrra fengu 8.673 öryrkjar samtals greiddar 1.694 milljónir í örorkulí- feyri. Öryrkjar eiga einnig rétt á tekjutryggingu sem óskert nemur 31.313 kr. á mánuði. í fyrra fengu 7.251 öryrkjar samtals 2.311 mil- ljónir kr. í tekjutryggingu. Öryrkjar sem búa einir og njóta ekki fjárhagslegs hagræðis af sam- búð við aðra geta einnig fengið greidda heimilisuppbót og nemur hún í dag 14.564 kr. á mánuði. Á síðasta ári fengu 2.454 öryrkjar heimilisuppbót, þar af 1.618 óskerta. Samtals námu þessar greiðslur 384 milljónum í fyrra. Öryrkjar geta einnig fengið sér- staka heimilisuppbót. Aðeins þeir sem búa einir geta fengið þessar að hér væru ekki nægilega öflug endurhæfingarúrræði. Á síðasta ári hefði verið sett af stað vinna sem miðaði að því að auka end- urhæfingu öryrkja, sem sérstök matsnefnd teldi að ættu erindi í slíka endurhæfingu. Hann sagð- ist vonast eftir að þetta skilaði árangri, en lengri tími þyrfti að líða áður en ljóst væri hvort þetta skilaði tilætluðum árangri. Sigurður sagði að sama þróun hefði orðið á hinum Norðurlönd- unum. I Svíþjóð hefði öryrkjum fjölgað mikið fram undir 1990, en þá hefði verið sett af stað mjög öflug endurhæfing með það að markmiði að gera öryrkj- um kleift að fara aftur út á vinnumarkaðinn. Þá hefði ör- yrkjum fækkað verulega, en fjölgað aftur um miðjan ára- tuginn. Sigurður sagði að nýlega hefði komið út skýrsla í Svíþjóð um ástæður þessa og væri nið- urstaða hennar að endur- hæfingin væri ekki nægilega markviss og það þyrfti að auka hana. f skýrslunni kemur fram að fyrir hverja krónu sein al- mannatryggingar settu í endur- hæfingu kæmu sjö krónur til baka. Sigurður sagðist telja að yfirfæra mætti þessar tölur á ísland ef litið væri til kostnaðar Tryggingastofnunar og lífeyris- sjóðanna af örorku. greiðslur og skerðast þær ekki þó að viðkomandi fái húsaleigubætur og fjárhags aðstoð frá sveitarfé- lagi. Sérstök heimilisuppbót nem- ur nú 7.124 kr. á mánuði. Hana fengu 710 öryrkjar á síðasta ári, þar af 455 óskerta. Bæturnar námu samtals 55 milljónum króna. Þeir sem eru með 50-74% ör- orku fá greiddan örorkustyrk frá Tryggingastofnun. Á síðasta ári fengu 1.185 örorkustyrk frá stofn- uninni, samtals 215 milljónir. Þá eru ótaldar 632 milljónir sem greiddar voru í barnalífeyri vegna örorku foreldris til 2.440 einstakl- inga. Ennfremur voru greiddar 269 milljónir í uppbætur á örorkulífeyri, 48 milljónir í vasap- eninga til öryrkja, 124 milljónir í bensínstyrk og 82 milljónir í bíla- kaupastyrk. Samtals námu greiðslur Trygg- ingastofnunar til öiyi’kja 5.814 milljónum í fyri'a. Lífeyrissjóðirnir greiddu 2,7 milljarða til öryrkja Lífeyrissjóðirnir greiða samtals mun lægri upphæð til öryrkja en Tryggingastofnun. Á síðasta ári greiddu lífeyrissjóðirnii’ samtals tæplega 2,7 milljarða í örorkulíf- eyri. Auk þess gi-eiddu sjóðirnir 260 milljónir í barnalífeyri, en þom þeirrar upphæðar var greiddur vegna barna öryrkja, 18 ára og yngri. Lög um starfsemi lífeyrissjóða kveða á um viss lágmarksréttindi, en nokkrir sjóðir tryggja öryrkj- um viðbótarréttindi. Lífeyrissjóð- unum er skylt að gi'eiða öryrkjum bætur sem hafa að lágmarki orðið fyrir 50% örorkutapi. Fyrstu árin eru greiðslur miðaðar við það starf sem viðkomandi gegndi áður en hann varð öryrki, en eftir 3-5 ár miðast greiðslur við almennt starf. Annað meginmai'kmið lífeyris- sjóðanna er að tryggja sjóðsfélaga fyrii' fjárhagslegum áföllum sem orsakast af varanlegi'i örorku. Þetta er gert með því að lífeyris- réttindi öryi'kja eru framreiknuð miðað við þau réttindi sem hann hefði unnið sér inn, miðað við óbreytt iðgjöld, þegar hann er 67 ára. Skilyrði er að viðkomandi hafi greitt til lífeyrissjóðanna í þrjú ár af síðustu fjórum, þar af í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 12. Ororkulífeyr- ir öryrkja sem ekki eiga rétt á framreikningi miðast við áunnin stig í lífeyrissjóði. Almennu lífeyrissjóðirnir greiða mun hærri örorkulífejTÍ en lífeyr- issjóðir ríkisins og sveitarfélag- anna. Á síðasta ári fóru 25,2% af öllum lífeyrisgreiðslum almennu lífeyrissjóðanna í að greiða örorku- lífeyi-i, en 4,4% opinbeiu lífeyris- sjóðanna. Ástæðan fyrir þessu er sú að örorkulífeyrisréttindi opin- f* beru lífeyrissjóðanna era mun verri en hinna. Örorkulífeyrisrétt- indi opinberra starfsmanna eru að- eins framreiknuð vegna orkutaps sem rekja má til starfs viðkom- andi. Þessu ákvæði hefur reyndar verið breytt í nýni deild Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins og nýj- um Lífeyrissjóði sveitarfélaga. Þar eru örorkulífeyrisréttindi sniðin að réttindum almennu lífeyrissjóð- anna. 43% öryrkja fá engar greiðslur úr lífeyrissjóðum Samkvæmt skýrslu forsætisráð- hen'a um kjör öryrkja, sem lögð var fram á Álþingi í fyrra, fá 43% ^ allra öi-yrkja engar greiðslur úr lífeyrissjóðum. Samkvæmt skýrsl- unni fengu 20% þeirra sem fengu einhverjar greiðslur úr líf- eyrissjóði árið 1997 innan við 10 þúsund krónur á mánuði og 42% fengu yfir 30 þúsund. Þorri þeirra sem fá örorkulífeyri fá hann á gi-undvelli framreiknings réttinda, að sögn Matthildar Her- mannsdóttur hjá Reiknistofu líf- eyrissjóðanna. Framreikningurinn miðast við iðgjaldagi'eiðslur. Þar sem iðgjöld voru fram til 1990 ein- ungis gi-eidd af dagvinnulaunum en ekki heildarlaunum nema líf- eyrisgi'eiðslur til öryrkja sem urðu fyrir örorku fyrir 10 árum almennt lægri upphæðum en til þeirra sem hafa oi'ðið fyi’ir örorku á síðustu árum. Um 4.000 öryrkjar fengu greiddan örorkulífeyri frá lífeyi'is- sjóðum sem eni í þjónustu hjá Reiknistofu lífeyrissjóðanna, en það eru allir lífeyrissjóðir verka- fólks á landsbyggðinni, lífeyiis- sjóðirnir Framsýn, Lífiðn, Samein- aði lífeyrissjóðurinn og Söfnunai'sjóður lífeyrisréttinda. Meðalgreiðslur til þessara lífeyris- þega á mánuði námu um 30.000 kr. Stærsti lífeyrissjóður landsins, Líf- eyrissjóður verslunarmanna, greiddi svipaða upphæð að meðal- tali á mánuði í örorkulífeyri til ör- yrkja á síðasta ári. Það verður að hafa í huga að þessar meðaltalstöl- ur segja ekki nema hálfa sögu vegna þess hversu breytilegt það er hvað öryrkjar fá frá lífeyris- sjóðunum. Oryrkjum fjölgaði um 8,7% í fyrra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.