Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Golli Heimsganga kvenna HEIMSGANGA kvenna gegn ör- birgð og ofbeldi var farin í Reykja- vík í gær. Konur og einnig karlar söfnuðust saman við Hlemm þar sem Gospelsystur Reykjavíkur og Vox Peminae sungu undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Gengið var niður Laugaveg og að Ingólfs- torgi þar sem Guðlaug Teitsdóttir skólastjóri Einholtsskóla flutti ræðu. Að göngunni stóðu fjölmörg samtök kvenna og verkalýðsfélög. 2.545 börn á bið- lista hjá Leikskól- um Reykjavíkur ALLS eru 1.753 börn á aldrinum eins til fimm ára skráð á biðlista eftir leikskólavist hjá Reykja- víkurborg. Þá eru vannýtt 108 pláss á leikskólum borgarinnar fyrir hádegi og 330 eftir hádegi vegna skorts á starfsfólki. Þess- ar upplýsingar komu fram á fundi borgarráðs í gær en borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins spurðu á fundi fyrir hálfum mánuði um stöðuna hjá Leik- skólum Reykjavíkur. Stærsti hópurinn börn sem fædd eru í fyrra Auk barnanna 1.753 á biðlist- anum eru 569 börn á skrá sem ekki eru orðin ársgömul og 223 börn sem eiga lögheimili utan Reykjavíkur. AIls gera þetta 2.545 börn. Stærsti barnahópur- inn á biðlistanum eru böm fædd í fyrra eða 1.307 en 754 eru fædd árið 1998. Sótt er um heilsdagsvist fyrir 1.770 börn eða 70% af heildar- fjöldanum, og hálfsdagsvist fyrir 775 börn. Um 1.600 börn á bið- listanum eru annaðhvort í niður- greiddri dagvist hjá dagmæðr- um eða í annarri dagvist sem styrkt er af borgarsjóði. Yflr 400 pláss vannýtt Þá kemur fram í svari Ragn- hildar Erlu Bjarnadóttur, fjár- málastjóra Leikskóla Reykjavík- ur, að alls séu 438 pláss á leikskólunum vannýtt vegna skorts á starfsfólki. Vantar starfsmenn í 64 stöðugildi, eink- um eftir hádegi. Mest er af van- nýttum plássum í Vesturbæ og Grafarvogi. Þá hafa ekki allir foreldrar, sem fengu bréf varð- andi vistun barns í haust, fengið staðfesta dagsetningu um vist- un. Varðar það tæplega 100 börn og er þess vænst að mál þeirra leysist á næstu vikum. Viðurkenningar Jafnréttisráðs fyrir árið 2000 V eitt viðurkenning fy r- ir brautryðjendastörf Fleiri ungmenni fara í meðferð á V ogi en áður Morgunblaðið/Kristján Elín Lfndal, formaður Jafnréttisráðs, Svava Jakobsdóttir rithöfundur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Helga Kress prófessor, Bjamfríður Leósdóttir verkalýðsforkólfur, sr. Auður Eir Vilhjálmsdótt- ir og Páll Pétursson félagsmálaráðherra við afhendingu jafnréttisviður- kenninganna. Vigdís Finnbogadóttir gat ekki verið viðstödd. FLEIRI ungir vímuefnanotendur leituðu til Sjúkrahússins á Vogi fyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. 76 einstaklingar 18 ára og yngri leituðu sér hjálpar vegna vímuefnaneyslu á fyni hluta ársins, en 57 í fyrra. 177 yngri en 20 ára leit- uðu til SÁÁ á fyrstu sex mánuðum ársins en 143 í fyrra. Vörur SIF verðlaunaðar í Frakklandi DÓTTURFÉLAGI SÍF hf. í Frakk- landi, SÍF France, voru í gær veitt verðlaun fyrii- nokkrar af helstu framleiðsluvörum fyrirtækisins. Verðlaunin, „Saveur de l’année 2001“, eru þau virtustu sem veitt eru fyrir matvæli á frönskum markaði og hafa kannanir sýnt að í um 77% til- fella hafi þau áhrif á vöruval neyt- enda. M.a. hlaut félagið viðurkenn- ingu fyrir reyktan lax, laxaplokkfisk og útvatnaðan saltfisk. Að sögn Gunnars Arnar Kristjánssonar, for- stjóra SIF hf., hafa verðlaunin mikla þýðingu fyrir fyrirtækið, enda muni SÍF France merkja vörur sínar með verðlaunamerkinu til loka árs 2001. ■ SÍF France/B2 „Þessa tölulegu aukningu má að einhverju leyti skýra með því að þjónusta við vímuefnaneytendur hefur verið aukin. Þannig hefur hlut- fall þeirra sem eru stórneytendur amfetamíns og þeirra sem sprauta sig í æð minnkað meðal þeirra sem eru 24 ára og yngri þó að tilfellunum fjölgi. Með góðum vilja má því segja að ástandið sé óbreytt hvað þetta varðar,“ segir í frétt á heimasíðu SÁÁ. Fjöldi stórneytenda eykst Fram kemur á heimasíðunni að fjöldi einstaklinga sem eru stómeyt- endur amfetamíns og eru 25 ára og yngri eykst. Hlutfall þessara stór- neytenda vex þó ekki meðal þeirra ungu. Fjöldi einstaklinga sem sprautað hafa vímuefnum í æð og eru 25 ára og yngri vex meðan hlut- fall þeirra í aldurshópnum minnkar lítillega. Fjöldi stómeytenda kann- abisefna sem eru 25 ára og yngri eykst veralega og hlutfall þeirra meðal sjúklinganna sem era 24 ára og yngri eykst einnig. Árið 1999 komu 257 einstaklingar 19 ára og yngri til meðferðar á Sjúkrahúsið Vog. Af þeim vora 52% daglegir kannabisneytendur meðan einungis 3,5% þeirra notuðu áfengi daglega. Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir á Vogi, segir að mun fleiri ungmenni komi því í meðferð vegna kannabisefna en áfengis. SEX konur hlutu viðurkenningu Jafnréttisráðs íyrir árið 2000, en þær vora veittar við athöfn á Fiðlaranum á Akureyri síðdegis í gær, þegar 25 ár vora liðin frá kvennafrídeginum. Þær sem hlutu viðurkenninguna era sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Bjam- fríður Leósdóttir, Helga Kress, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, Svava Jak- obsdóttir og Vigdís Finnbogadótth-. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra afhenti viðurkenningarnar og sagði m.a. að nú hefði verið ákveðið að heiðra konur sem haft hefðu áhrif á jafnréttisbaráttuna, konur sem hefðu sýnt að konur geta, vilja og þora. Elín Líndal formaður Jafnréttis- ráðs sagði að ákveðið hefði verið að fara þessa leið nú í tilefni aldamóta, en frá árinu 1992 hefði ráðið árlega veitt viðurkenningar fyrir framtak í þjóðfélaginu sem stuðlað hefði að framgangi j afnréttis. Elín gerði stutta grein fyrir lífi og starfi þeirra kvenna sem viðurkenn- inguna hlutu. Auður Eir var fyi’st kvenna vígð til prests árið 1974, en hún hefur verið brautryðjandi á sviði kvennaguð- fræði hér á landi og hefur þar sýnt óbilandi kjark og mikilvægt fordæmi. Bjarnfríður Leósdóttir er þekktust fyrir kraftmikla baráttu að verka- lýðsmálum, ekki síst hagsmunum verkakvenna og átti hún m.a. sinn þátt í því að bónuskerfi var innleitt í frystihúsum. Helga Kress er ekki síst þekkt fyr- ir að hrista upp í viðteknum viðhorf- um til fornbókamenntanna og var fyrst til að fylgja veralega eftir kenn- ingunni um að höfundur Völuspár hafi verið kona og þá sagði Elín að hún hefði ratt brautina fyrir konur í hinu akademíska kai'Iaveldi og væri enn að. Um Ingibjörgu Sólrúnu sagði Elín að hún hefði vakið athygli sem afar skelegg og hæf stjórnmálakona og stjómandi og verið öðram konum hvatning til dáða. Svava Jakobsdóttir hefur hlotið viðurkenningar fyrir skrif sín, en í máli Elínar kom fram að hún hefði innleitt nýja tegund fem- inískra bókmennta á íslandi. Hún hefði með skrifum sínum og stjóm- málastarfi verið íslenskum konum hvatningtildáða. „Vigdís er án efa sú kona íslensk sem hefur hlotið mesta viðurkenn- ingu um allan heim fyrir störf sín og líklega hefur enginn karlmaður ís- lenskur notið jafn almennrar virðing- ar. Hún hefur verið íslenskum konum ómetanleg fyrirmynd," sagði Elín. ag í VERINU í dag er m.a. fjallað um hátt verð á saltfiski, spjallað við framkvæmdastjóra lcelandic Iberica á Spáni og komið við í kvíaeldi Sílungs hf. á Vatnsleysu- strönd. Einnig eru í blaðinu hefðbundnar upplýsingar um markaði og aflabrögð. Heimsmet og gull hjá Kristínu Rós / C1 Rivaldo bjargaði Börsungum I Leeds/C2 ► Teiknimyndasögur ► Myndir ► Þrautir ► Brandarar ► Sögur ► Pennavinir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.