Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNBNGAR MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 41 byrjaði að hossa sér með bflnum og þetta var eins og í besta Tívolfi. Alitaf var gaman að koma á Brekkustíginn til Óla, hann gaf mér alltaf kökur og gos og jafnvel nammi (en hann var svo heimilislegur alltaf) og svo lagðist ég upp í sófa og horfði á Strumpana eða eitthvað annað skemmtinlegt á myndbandi. Það var tvennt sem ég hafði eftir Óla og það var að geta legið upp í sófa og haft það gott og hitt er að þegar ég myndi kaupa minn fyrsta bfl yrði hann rauður (eins og Óli átti) - og hann varð rauður. Það er gott að fara til baka aftur í tímann, þegar blákaldur raunveru- leikinn lætur manni líða svona illa. Elsku pabbi, amma og Biggi. Ykkar sorg er ólýsanleg og yfir- þyrmandi, tveir svona nánir ástvinir á svona skömmum tíma. Ég bið góð- an Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Hjarta mitt og hugur minn er hjá ykkur. Þið eigið þrjá góða engla sem gæta ykkar (afi, Óli og Jói). Þín frænka, Heiða Steinarsdóttir. Kveðja frá áhöfnum björgunarbáta Við sem komum að björgunarmál- um á sjó höfum löngum gert okkur grein fyrir því hversu mikilvægt það er að hafa góða bakhjarla við stjórn- völinn í landi. Það vekur hjá okkur öryggistilfinningu að vita af því að fagmenn vaka yfir okkur þegar lagt er í útköll sem oft á tíðum geta orðið löng og ströng. Einn þeirra manna sem lengi var ein af okkar stoðum og styttum á þessu sviði var hann Óli á Skyldunni eins og hann var oftast kallaður af félögunum. Ólafur Ársælsson starfaði um ára- raðir sem varðstjóri á Tilkynninga- skyldu íslenskra skipa og Sjóbjörg- unarmiðstöð Slysavamafélagsins, þaðan sem stjórnun flestra aðgerða björgunarbáta félagsins á sér stað. Ahafnir bátanna hafa notið þeirrar fagmennsku sem einkennt hefur starfsmenn „Skyldunnar" þegar á hefur yeynt. Slíkur fagmaður var hann Óli. Menntun hans sem skip- stjórnarmanns, reynsla sem sjó- manns ásamt öguðu en tillitssömu viðmóti gerðu allt samstarf við hann sem árangursríkast en jafnframt ánægjulegt þótt oft væri alvara á ferð. Prúðmennska og hógværð ein- kenndu ávallt hann Óla í öllum sam- skiptum. Hann hafði sínar skoðanir á slysavarna- og öryggismálum. Þar var ekki komið að tómum kofunum, enda áttu margir sem þessi málefni láta sig varða langar gagnlegar sam- ræður við hann. Var það oft yfir kaffibolla þegar stund var milli stríða á „Skyldunni". Með framkomu sinni, fagmennsku og vinarþeli ávann hann sér djúpa virðingu, traust og vináttu okkar allra. Við kveðjum þig með söknuði, fé- lagi, og vottum aðstandendum þínum samúð okkar. Áhafnir björgunarbáta Slysavarnafélagsins. Mig langar að kveðja góðan vin og vinnufélaga til margra ára, Ólaf Guð- jón Arsælsson. Ólafur hefur nú að loknum erfið- um veikindum kvatt þennan heim. Það var ekki að heyra á honum fyrir tveim vikum að hann ætlaði að láta í minni pokann fyrir þeim sjúkdómi sem hann barðist svo hetjulega við. Ólafur var á margan hátt einstakur maður, ef það ætti að lýsa honum í einu orði kemur strax upp í hugann orðið ljúfmenni. En það segir ekki allt, hann var fyrst og fremst já- kvæður, heiðarlegur og umfram allt traustur félagi sem trúði á að það góða hefði alltaf yfirhöndina að lok- um. Ég átti þess kost að starfa með Óla í tengslum við Tilkynningaskylduna í 13 ár, hann var á vöktum hjá skyld- unni en ég starfaði hjá björgunar- deildinni og við unnum oft saman, bæði að venjubundnum daglegum störfum og einnig þegar aðgerðir fóru í gang vegna slysa eða leitar á sjó og við strendurnar. Þegar eitt- hvað gerist á sjó, sem þarfnast taf- arlausra viðbragða, skiptir miklu að hafa úrræðagóða og trausta menn í landi, menn sem hafa reynslu af sjó- mennsku og þeim aðstæðum sem þeir vinna við. Þetta hafði Óli til að bera, það var ávallt gott að vinna með honum í erfiðum verkefnum þar sem reynir ekki síst á samstarf margra ef vel á að fara. Segja má um Ólaf að vinnan og Slysavarnafélagið auk samstarfsmanna hans hafi verið honum allt. Hann var alltaf með í leik og starfi og tók þátt í öllum ferðum og félagslífi með starfsfélögunum og það var eftirtektarvert hvað hann naut hvers augnabliks á góðum stundum. Óli hafði mjög gaman af að ferðast til fjarlægra landa og kynn- ast ólíkri menningu framandi þjóða. Þó að hann byggi lengst af einn hafði maður það aldrei á tilfinningunni að hann væri einmana, hann átti fjölda vina sem hann hafði kynnst á lífsieið- inni og hann hélt góðu sambandi við fyrrum skóla- og skipsfélaga. Öfugt við flesta held ég að Óli hafi átt fáa kunningja en þess fleiri vini. Ég kveð nú þennan einstaka mann sem kenndi okkur, sem þekktum hann, að vera sátt við það sem við er- um og það sem okkur var best gefið. í annað sinn á skömmum tíma hef- ur verið höggvið stórt skarð í fjöl- skylduna en bróðir Ólafs, Jóhann Heiðar, lést einnig fyrir aldur fram fyrir um mánuði síðan. Eftirlifandi móður hans, Jónínu Jónsdóttur Brunnan, bræðrum hans og fjölskyldum þeirra vil ég færa mínar innilegustu samúðarkveðjur og megi Guð veita ykkur huggun og styrk. Þór Magnússon. Fyrir tæpum tíu árum kynntist ég Ólafi Ársælssyni er við unnum sam- an sumarlangt hjá Slysavarnafélagi íslands. Nokkrum árum seinna unn- um við Óli saman í þrjú ár á sama vinnustað. Okkur varð strax vel til vina, við áttum sameiginlegt áhuga- mál sem er öi-yggismál íslenskra sjó- manna. Óli var starfsmaður Tilkynn- ingaskyldunnar um árabil, en hún hafði aðsetur í Slysavarnafélagshús- inu á Grandagarði frá upphafi þar til nýlega að hún var flutt burtu, en þá flutti Óli ekki með. Við stofnun Tilkynningaskyldunn- ar 1968 var tvímælalaust stigið eitt stærsta skrefið í öryggismálum sjó- manna frá upphafi, en starfsmenn hennar fylgjast með og eru meira og minna í sambandi við íslenska flot- ann allan sólarhringinn, alla daga ársins. Hjá Óla var vinnan hans lifi- brauð og aðaláhugamál. Hann var nákvæmur og vandvirkur við vinnu sína og fljótur að leysa úr hvers kyns vandamálum sem upp komu. Ég tók fljótlega eftir því hversu glöggur hann var að koma auga á hluti sem ekki voru eins og þeir áttu að vera. Fumlaust og í réttri röð gerði hann það sem gera þurfti og þar með var málið afgreitt. Hann var gæddur jafnaðargeði sem nýttist vel við vandasamt starf og ekki síður í sam- skiptum við fólk, s.s. sjómenn og slysavamafólk víðs vegar um landið. Óli hafði gaman af að ferðast, víða lágu leiðir hans bæði erlendis og hér innanlands. Sumarbústað átti hann með fjölskyldu sinni stutt frá æsku- slóðunum í Homafirði og fór hann þangað þegar tækifæri gafst. í fyrra- vor hitti ég hann á Hornafirði er ég kom þangað á skipi mínu. Óli var strax kominn að skipshlið og ók með mig um staðinn og sagði mér sögu bæjarins og hvernig útgerðin hafði byggst þar upp. Hann þekkti hvern krók og kima eins og puttana á sér og hvernig staðurinn og Ósinn hafði breyst frá því hann byrjað að sækja sjóinn þar eystra. Ég heimsótti hann i sumar, en þá var á brattann að sækja hjá honum í baráttunni við ill- vígan sjúkdóm. Móttökurnar vom höfðinglegar, margt spjallað og þá dró hann upp ljósmyndir sem teknar höfðu verið á ferðalögum hans víðs vegar um heiminn og sagði frá ýms- um skemmtilegum uppákomum og atvikum. Það var stutt í brosið eins og ævinlega. Óli var fagurkeri, hafði safnað fal- legum hlutum og komið þeim fyrir á smekklegan hátt á heimili sínu. Kannski má segja að hann hafi verið heimsmaður á sinn hátt, en hógvær heimsmaður sem lét lítið fyrir sér fara. Hann var vinamargur og þótti gaman að bjóða vinum í mat. Hann sagði mér að stofnaður hefði verið óformlega fyrir nokkrum árum mat- arklúbbur, n.k. sælkeraklúbbur, og hefði Óli lifað lengur hefði ég sótt um inngöngu í þann klúbb. Við áttum það líka sameiginlegt að okkur þótti báðum afskaplega gott að borða góð- an mat. Við leiðarlok vil ég þakka Óla fyrir gott samstarf og vináttu frá fyrstu tíð. Aldraðri móður hans og öðrum aðstandendum votta ég samúð mína vegna fráfalls Óla og yngsta bróður hans sem lést fyrir nokkrum vikum. Páll Ægir Pétursson. Ég hef notið þeirra forréttinda að njóta vináttu Óla í rúman áratug. Ól- afur var einstök manneskja og reyndist hann mér traustur sem bjarg í þeim ólgusjó sem lífið er á stundum . Ef eitthvað bjátaði á þá gat ég alltaf leitað til hans. Eftir að hafa rætt við hann var eins og fargi væri af manni létt. Hann hafði ein- stakt lag á að sýna að það sem manni fannst vera óyfirstíganlegt vandamál var oft auðleyst mál þegar betur var að gáð. Oli dæmdi ekki annað fólk. Hann hafði þann einstaka eiginleika að taka fólki eins og það var og ræða við það af einlægni og hluttekningu bæði í gleði og sorg. Þess vegna átti hann trúnað margra og margir leituðu til hans þegar eitthvað bjátaði á. Óli var bæði gefandi og hlýr og með ein- dæmum hjálpsamur þannig að hann ávann sér verðskuldað traust þeirra sem kynntust honum. Óli var ekki aðeins traustur í öldu- dölum lífsins heldur var hann líka mikill fjörkálfur og húmoristi. Hann hélt ósjaldan matarboð fyrir vini sína þar sem sagðar voru miklar skemmtisögur og ósjaldan lágu gest- irnir í krampaköstum og grétu af hlátri. Veislurnar á Brekkustígnum eru ógleymanlegar þeim sem voru svo lánsamir að njóta gestrisni Óla. Við Óli ferðuðumst mikið saman á undanförnum árum. Hann skipu- lagði allar ferðir af mikilli nákvæmni og kynnti sér þau lönd og heimsálfur sem við ferðuðumst tíl. Hann var traustur á því sviði eins og öðrum. I baráttu sinni við krabbamein síðustu mánuðina var Óla ljóst að það færi að draga að hans hinstu för í þessu lífi. Hann tók því með sínu einstæða jafn- aðargeði. Eins og honum var líkt, þá undirbjó hann þá för eins vel og kost- ur var. Hann gekk frá sínum málum, þannig að ekki yrðu neinir lausir endai- fyrii- aðstandendur og vini að hnýta eftir brottför hans. Óli var lifandi vitni um það góða í manninum og hann lifir áfram í hjarta þeirra sem sem voru svo lánsamir að njóta vináttu hans. Ég kveð Óla fullur þakklætis fyrir allt sem hann gaf mér. Ég votta fjöl- skyldu og vinum Ólafs dýpstu hlut- tekningu í sorg þeirra. Geir Ragnarsson. Tuttugu ár virðast sem örskot þegar ég kveð þig núna, Óli minn. Kvöldið þegar ég sá þig fyrst stendur mér ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum og hefur alltaf gert, þegar þú bauðst nokkrum vinum til veislu á Brekkustíginn af þinni al- kunnu gestrisni. Þú vaktir strax for- vitni mína með þinni léttu lund og já- kvæðni og hvað þér var umhugað um að öllum liði vel. Þannig var það ekki bara þetta kvöld heldur allar götur síðan. Þú gafst mér hlutdeild í lífi þínu og fylgdist af áhuga með öllu sem ég tók mér fyrir hendur hverju sinni. Við töluðum mikið saman þetta fyrsta kvöld og komumst m.a. að því að vin- kona mín hún Sanna var náfrænka þín. Það þótti nú ekki verra. Litasjónvarp var ekki á hvers manns heimili á þessum árum, hvað þá myndbandstæki. En þetta áttir þú allt saman, Óli, enda ávallt fljótur að tileinka þér tækninýjungar. Ekki nóg með það heldur áttir þú ævin- týralegt safn af myndbandsspólum. Samanborið við þig á þessu sviði var maður enn þá á myrkustu miðöldum. Seinna naut ég góðs af þessu yfir- + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNDfS NIKULÁSDÓTTIR, Miðhúsum, Hvolhreppi, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, mánudaginn 23. október. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HALLDÓR JÓNSSON, Grettisgötu 12, Reykjavík, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 26. október kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjálfsbjörg Hrafnhildur Stella Eyjólfsdóttir, Guðmundína Margrét Sigurðardóttir, Eyjólfur Júlíus Sigurðsson, Margrét Hjálmarsdóttir, Sigurrós Halldórsdóttir, Helgi Eyvinds, Hulda Guðbjörg Halldórsdóttir, Magnús Guðmundsson, Hjördís Rósa Halldórsdóttir, Jón Atli Brynjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og bróðir, GUNNAR VALDIMAR HANNESSON, Seilugranda 3, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 27. október kl. 10.30. Sigurjóna Símonardóttir, Gróa Dagmar Gunnarsdóttir, Þórhallur Ólafsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Bergsveinn Jóhannesson, Ragnar Gunnarsson, Sveindís Danný Hermannsdóttir, Guðrún Björk Gunnarsdóttir, Jón Ingi Magnússon, Elísabet Harpa Steinarsdóttir, Ástþór Ragnarsson, Sigríður Steinarsdóttir, Einar Kr. Þórhallsson, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna. Eiginmaður minn, sonur, faðir okkar og afi, STEINGRÍMUR S. GUNNARSSON rennismiður, Mávahrauni 9, Hafnarfirði, andaðist fimmtudaginn 19. október. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 27. október kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja líknarstofnanir. minnast hans, er bent á Hjördís Þorsteinsdóttir, Dóróthea Ólafsdóttir, (ris Dóróthea Randversdóttir, Randver Randversson Lára Björk Steingrímsdóttir, Margrét Hildur Steingrímsdóttir, Rafnar Steingrímsson og barnabörn. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. sIni 896 8242 Svcrrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.