Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Kynning hafín á tillögum um heimild til að breyta sparisjóðum í hlutafélög Stofnfjáreigendur eiga 15% af eigin fé sparisjóða Kirkjuþing Sameiningu prófasts- dæmaá Vestfjörð- ; um hafnað Samkvæmt tillögum, sem eru til umræðu um breytingu sparisjóða í hlutafélög, fá stofnfj áreigendur sjóðanna hlutafé sem gagn^jald fyrir stofnfjárhluti sína. I grein Omars Friðrikssonar kemur fram að alls eru 25 sparisjóðir á Islandi í dag og eru stofnfjáreigendurnir á fímmta þúsund talsins. Nemur stofnfé þeirra 15% af eigin fé sparisjóðanna. VERÐI tillögur í frumvarpsdrög- um, sem nú eru til kynningar og umræðu meðal sparisjóðanna, lög- festar verður sparisjóðum heimilt að breyta rekstrarformi sínu í hlutafélög. Guðmundur Hauksson, formaður Sambands íslenskra sparisjóða, sem sæti á í nefnd við- skiptaráðherra sem samdi um- rædd drög, er þeirrar skoðunar að þessar tillögur geti orðið spari- sjóðunum mikil lyftistöng. Megintilgangurinn með þessum tillögum er að auka möguleika sparisjóðanna á að auka við eigið fé sitt og styrkja stöðu sína á markaðinum. Guðmundur leggur áherslu á að þessar hugmyndir hafi enn ekki verið mikið ræddar meðal fulltrúa sparisjóðanna og fram þurfi að fara ítarleg umræða um þær áður en séð verður hver endanleg nið- urstaða verður, en hann sagðist gera sér vonir um að það myndi skýrast á næstu vikum. Valgerður Sverrisdóttir við- skiptaráðherra hefur sagt að uppi séu hugmyndir um að gera spari- sjóðum kleift að breyta rekstrar- formi sínu í hlutafélög og fyrirhug- að sé að breyta lögum um spari- sjóði, sem hún sagðist vona að yrði gert á þessum vetri. Á fimmta þúsund stofnfjár- eigendur sparisjóða AIls eru 25 sparisjóðir starfandi í dag, sem reka fjölda útibúa víðs vegar um landið, eiga eignarhluti í dótturfélögum og hafa með sér samband m.a. í Sparisjóðabanka íslands, sem er viðskiptabanki sparisjóðanna. Mikil umræða hef- ur farið fram um eignarform spari- sjóðanna, sem talið er torvelda sjóðunum að auka eigið fé sitt og standa á ýmsan hátt í vegi fyrir þátttöku þeirra í hagræðingu og þróun á íslenskum fjármagns- markaði. Einstaklingar og lögaðilar sem hafa tekið þátt í stofnun sparisjóð- anna með því að leggja þeim til stofnfé eru skilgreindir sem stofn- fjáraðilar sjóðanna skv. lögum um viðskiptabanka og sparisjóði frá 1996. Eru þá gefin út stofnfjárbréf fyrir skráðum stofnfjárhlut við- komandi en samkvæmt lögunum mega stofnfjáreigendur í spari- sjóði aldrei vera færri en 30. Stofnfjáreigendur sparisjóðanna í landinu eru nú á fímmta þúsund talsins. Er þar bæði um að ræða einstaklinga og lögaðila, og hefur þeim fjölgað umtalsvert á undan- fömum árum. Grundvallarmunur er á stofn- fjárbréfi í sparisjóði og hlutabréfa- eign. Innborgun á stofnfé í spari- sjóði skapar eiganda þess ekki rétt til hlutdeildar í eigin fé sparisjóðs með sama hætti og þegar um hlutafélag er að ræða eða á uppsöfnuðum hagnaði sparisjóðsins. Stofnfjáreigendur sparisjóðanna bera ekki persónulega ábyrgð á skuldbindingum sparisjóðs um- fram stofnfé sitt nema þeir hafi tekið á sig frekari ábyrgð með sér- stökum löggerningum og þeir hafa ekki rétt til ágóðahlutar af rekstrarafgangi sparisjóðs umfram það sem mælt er fyrir um í lögum. Þeir geta hins vegar notið arðs af nafnverði stofnfjárhlutarins, sem er heimilt að endurmeta árlega um sem nemur verðlagsbreytingum á hverju ári. Hafa nýtt sér heimild til að auka stofnfé á seinustu árum Samkvæmt lögum um sparisjóði skulu stofnfjáreigendur eiga jafn- an hlut og atkvæðisrétt í sparisjóði nema samþykktir heimili annað. Þó er einstökum stofnfjáreigend- um aldrei heimilt að fara með meira en 5% af heildaratkvæða- magni í sparisjóði, nema þar sem sveitarfélag er eini stofnfjáreig- andi sparisjóðs. Sparisjóðirnir geta aukið stofnfé sitt með hliðstæðri ákvörðun og þegar hlutafélag ákveður að auka sitt hlutafé. Hafa sparisjóðir nýtt sér það í talsverðum mæli á und- anförnum árum, skv. upplýsingum blaðsins. Fái hlutafé sem gagngjald fyrir stofnfjárhlut í frumvarpsdrögunum er lagt til að farin verði sú leið við breytingu á sparisjóði í hlutafélag að stofn- fjáreigendur fái eingöngu hlutafé í hlutafélaginu sem gagngjald fyrir stofnfjárhluti sína. Skal samanlagt hlutafé sem stofnfjáreigendur fá í sparisjóðnum nema sama hlutfalli af hlutafé hans eftir breytinguna og endurmetið stofnfé hans nemur af áætluðu markaðsvirði spari- sjóðsins, skv. mati óháðra aðila. í umræðu um hugs- anlega breytingu spari- sjóða í hlutafélög á und- anförnum misserum hefur verið óvissa um hvernig fara eigi með eigið fé sparisjóðanna sem ekki er eign stofnfjáreigenda. Nefnd við- skiptaráðherra leggur til í frum- varpsdrögunum að sú leið verði farin að sá hluti hlutafjár spari- sjóðs sem ekki gengur til stofnfjáreigenda verði eign sjálfs- eignarstofnunar, sem sett yrði á stofn. Samkvæmt upplýsingum um rekstur og efnahag sparisjóðanna sem lagðar voru fram á aðalfundi Sambands sparisjóða sl. föstudag var samanlagt eigið fé sparisjóð- anna í landinu 10.651 milljón kr. um seinustu áramót. Að meðaltali nemur stofnfé sparisjóðanna um 15% af bókfærðu eigin fé þeirra. Sparisjóðirnir eru mjög mis- munandi að stærð og uppbygg- ingu. Er hlutfall stofnfjár af eigin fé sparisjóðanna einnig mjög mis- munandi eftir einstökum sjóðum eða allt frá 0,2% til 66% af eigin fé sparisjóðanna. Eru dæmi þess að sumir sjóðanna séu með sáralítið stofnfé þótt eiginfjárstaða þeirra sé mjög traust. I frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir að sjálfseignarstofnanir sparisjóðanna sem stofna á ef til- lögurnar verða að lögum, verði eigendur þess hluta hlutafjárins sem ekki gengur til stofnfjáreig- endanna. Jafnframt er gert ráð fyrir að allir þeir einstaklingar sem voru stofnfjáreigendur í spari- sjóðnum þegar honum er breytt í hlutafélag myndi fulltrúaráð stofn- unarinnar og kjósi henni stjórn. Einnig er lagt til að eingöngu verði heimilt að verja hagnaði af starfsemi sjálfseignarstofnunar, úthluta fjármunum hennar eða ráðstafa eignum til menningar og líknarmála. Er þetta sambærilegt fyrirkomulag og fylgt hefur verið í samþykktum spari- sjóða, þar sem kveðið er á um að við slit á starfsemi sparisjóðs skuli þeir fjármunir sem stofnfjáreigendur eiga ekki endurkröfurétt á, renna til menningar- og líknarmála á starfssvæði viðkomandi sparisjóðs. Danskar og norskar fyrirmyndir til umræðu Af samtölum við forsvarsmenn sparisjóða má ráða að umræðan um breytt rekstrarfyrirkomulag sparisjóðanna hefur ekki einskorð- ast við þá leið sem lögð er til í frumvarpsdrögum nefndar við- skiptaráðherra. Hafa einkum tvær fyrirmyndir, frá Noregi og Dan- mörku, verið hafðar að þeim hug- myndum sem ræddar hafa verið. Nefnd viðskiptaráðherra leggur til að farin verði sambærileg leið og í Danmörku en undir lok níunda áratugarins var dönskum sparisjóðum heimilað með laga- breytingu að breyta rekstrarformi sínu í hlutafélög. Munu alls um 10 danskir sparisjóðir hafa breytt rekstrarformi sínu í hlutafélög síð- an lögunum var breytt og voru það einkum stærri sparisjóðirnir en 70-80 sparisjóðir hafa á hinn bóg- inn ekki nýtt sér þessa heimild, skv. upplýsingum blaðsins. Norðmenn vildu hins vegar við- halda eðli sparisjóðanna eins og það hafði verið í gegnum tíðina en samþykkt voru ný lög þar sem norskum sparisjóðum var heimilað að gefa út sérstök markaðsbréf, svonefnd „Grundfondsbeviser", sem metin hafa verið sem hluti af eigin fé sparisjóðanna. Norsku skírteinin veita ekki sama rétt til áhrifa á aðalfundum og stofnfjár- aðilar sjóðanna njóta. Engar tak- markanir eru hins vegar á framsali eða viðskiptum með þessi bréf, eru þau skráð í Kauphöllinni í Ósló og skapar eignarhald á bréfunum fjórðungs stjórnunaraðild að við- komandi sparisjóðum. Aðspurður af hverju nefndin leggi til þá leið sem sett er fram í frumvarpsdrögunum sagði Guð- mundur Hauksson að ýmis rök mætti færa með og á móti hverri tillögu sem til umræðu hefði verið. „Það er engin ein aðferð sem leysir alla hluti. Þessi leið sem við erum þarna að benda á hefur verið reynd í Danmörku og fleíri lönd- um. Ég tel að það sem fyrst og fremst liggur til grundvallar þess- ari leið er að sparisjóðirnir eru í dag í talsvert lokuðu umhverfi. Ef þeir þurfa að sækja sér meira eig- ið fé inn á markaðinn er það mín persónulega sannfæring að hluta- bréfaformið sé skynsamlegasta leiðin,“ sagði hann. „Hitt er svo annað mál að það fylgja þessari leið líka ákveðnir agnúar og því þurfa menn að fara í gegnum mjög ítarlega umræðu á meðal sparisjóðanna áður en við botnum þessa umræðu,“ sagði Guðmundur. Sparisjóðirnir eru mjög mis- munandi að uppbyggingu og stærð og var Guðmundur spurður hvort sú leið sem lögð er til í frumvarps- drögunum hentaði e.t.v. sumum sparisjóðum betur en öðrum. „Þetta hentar fyrst og fremst þeim aðilum sem ætla sér að leita eftir eigin fé út á markað. Hluta- bréfin eru markaðstækt form og það auðveldar möguleikann á að sækja fé inn á markaðinn en um leið gerir markaðurinn ákveðnar kröfur til þeirra aðila sem leita eftir fjármögnun með þeim hætti. Þannig má segja að í sumum til- vikum væri ef til vill auðveldara fyrir aðila að fara ein- hverjar aðrar leiðir en þá lenda þeir líka í ein- hverjum öðrum vanda- málum. Svo má ekki gleyma því að sparisjóðirnir starfa á grundvelli laga sem gefur þeim möguleika á að afla sér eigin fjár í gegnum stofnfjárskírteini og það eru ekki uppi hugmyndir um að sú leið verði neitt skert, þrátt fyrir að þessar tillögur yrðu samþykktar. Það er með öðrum orðum ekki ver- ið að taka neitt af sparisjóðum sem þeir hafa í dag, heldur er eingöngu verið að bjóða þeim upp á eitt nýtt form til viðbótar. Það er svo annað mál hvort þetta er fullnægjandi lausn fyrir sparisjóðina og það eig- um við eftir að fara yfir með þeim á næstu vikum,“ sagði Guðmund- ur. Stofnfé 0,2 til 66% af eigin fé sparisjóða Hlutafélaga- form skynsam- asta leiðin KIRKJUÞING hafnar því að samein- uð verði grófastsdæmin tvö á Vest- fjörðum, ísafjarðarprófastsdæmi og Barðastrandarprófastsdæmi. Tillaga hafði komið frá biskupafundi um að prófastsdæmin yrðu sameinuð undir nafninu Vestfjarðaprófastsdæmi en því var hafnað m.a. vegna samgöngu- mála á svæðinu. Þá var ekki fallist á að sameina Tálknafjarðar- og Bíldudalspresta- köll en tillaga hafði komið fram um það frá biskupafundi. í nefndaráliti um málið segir: „Kirkjuþing árið 2000 ályktar að þjóðkirkjan hafi sérstakar skyldur við þær byggðir sem eiga undir högg að sækja. Aðstæður eru með þeim hætti í Bíldudalsprestakalli að kirkjuþing samþykkir þau tilmæli til biskups íslands að skipaður verði prestur til að þjóna kallinu," en þai’ hefur verið prestslaust um skeið. Kirkjuþing samþykkti að fresta stofnun nýrrar sóknar í Kópavogi, Lindasóknar, sem biskupafundur hafði einnig gert tillögu um. Er í nefndaráliti lagt til að málinu sé vísað til biskupafundar aftur tU nánari um- fjöllunar og nefndar um könnun á þörf á þjónustu í prestaköllum. Málið verði síðan lagt fyrir kirkjuþing á næsta ári. Tvær nýjar sóknir Kirkjuþing samþykkti hins vegar að stofna nýja sókn og nýtt presta- kall, Vallasókn og Vallaprestakall, í Kjalarnesprestakalli. Mörkin eni Iteykjanesbraut að vestan og norð- vestan að Kaldárselsvegi, Kaldársels- vegur og mörk Garðabæjar og Hafn- arfjarðar að norðan, austan og suðaustan og Ásbraut að sunnan og suðvestan. Einnig var samþykkt að stofna Grafarholtssókn og nýtt prestakall, Grafarholtsprestakall, í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Tekur það til nýs hverfis austan Vest- urlandsvegar og nær að mörkum MosfeUsbæjar að norðan og golfvell- inum í suður. Sóknirnar verða stofn- aðar í byijun næsta árs en prestaköU- in ekki fýrr en á miðju ári 2002 og 2003. Þá voru samþykktar tillögur bisk- upafundar um sameiningu nokkurra sókna úti á landi og flutning nokkurra annarra mUli prestakalla. Færast Melgraseyrar- og Nauteyrarsóknir undir HólmavUcurprestakall, Bólstað- arhlíðarprestakall sameinast Skaga- strandarprestakalli, Viðvíkur- og Hólasóknir færast til Hofsósspresta- kalls, Miðgarðasókn í Grímsey færist til Dalvíkurprestakalls og Laufáss- og GrenivUcursóknir sameinast. ------------------- Mánaðar- fangelsi fyrir ölvunarakstur REYKVÍKINGUR á fertugsaldri var í gær dæmdur í héraðsdómi Reykjavíkur í 30 daga fangelsi og sviptur ökuréttindum ævilangt. Maðurinn hefur ítrekað brotið gegn umferðarlögum. Þetta var í þriðja sinn sem manninum var refsað fyrir ölvunai’akstur en ekki liðu fimm ár milli brota hans. Fyrir þau brot missti hann ökuréttindin í rúmlega tvö ár auk þess sem hann varð að greiða fjársektir. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ennfremur annan Reykvíking í gær fyrir ölvunarakstur. Sá hlaut 100.000 króna sekt og var sviptur ökuréttind- um í tvö ár. Áfengismagn í blóði mannsins reyndist vera 0,58 prómill. í dómnum segir að maðurinn hafi ítrekað gerst sekur um ölvunarakst- ur auk annarra umferðarbrota, s.s. aksturs án réttinda. I I M 11 i H-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.