Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 1
245. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Heimsókn Albright til Norður-Kóreu
Eldflaugatil-
raunum hætt?
Pyongyang. AP, Reuters.
KIM Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu,
gaf í gær Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, pers-
ónulegt heit um að Norður-Kóreu-
menn myndu ekki senda á loft aðra
langdraega eldflaug, að því er banda-
rískir embættismenn greindu frá.
Albright sagðist hafa tekið orð
Kims alvarlega, en hann lét þau falla
er þau voru stödd á fimleikasýningu
í Pyongyang á mánudagskvöld. Er
hina langdrægu flaug N-Kóreu-
manna af gerðinni Taepo Dong I gat
að líta í kvikmynd sem sýnd var á
stórum skjá á leikvanginum tjáði
Kim Albright, að þetta hefði verið í
fyrsta sinn sem slíkri flaug var skot-
ið á loft, og hið síðasta.
Aðspurð á blaðamannafundi,
hvort hún túlkaði þessi orð Kims
sem loforð um að N-Kóreumenn
hættu öllum tilraunum með lang-
drægar eldflaugar sem borið geta
kjamorkuvopn, sagði Albright: „Eg
tek því sem hann sagði þannig, að
honum sé alvara með að ná árangri í
að leysa hin ýmsu vandamál [í sam-
skiptum N-Kóreu og Bandaríkj-
anna].“
Erindrekar beggja ríkisstjóma
vildu ekkert frekar segja um orða-
skipti Kims og Albright, sem rædd-
ust við í sex klukkutíma. Þannig
varð ekki ljóst hvort heit Kims næði
til allra gerða eldflauga sem hægt
væri að beita í hernaði gegn öðmm
löndum. Albright tilkynnti, að hátt-
settir embættismenn frá báðum
löndum myndu í næstu viku halda
áfram viðræðum um eldflaugamálin.
Clinton metur sjálfur hvort
hann eigi erindi til N-Kóreu
Albright sagðist myndu gefa Bill
Clinton Bandaríkjaforseta skýrslu
um heimsókn sína og það yrði undir
mati hans á afrakstri hennar komið
hvort tímabært væri að hann færi í
opinbera heimsókn til N-Kóreu áður
en hann léti af embætti í janúar nk.
AP
Kim Jong-il, leiðtogi N-Kóreu, skálar við Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, við lok tfmamótaheimsóknar hennar í gær.
Andstæðingar herforingjastjórnarinnar flykkjast til að taka þátt í götumótmælum gegn henni í Abidjan í gær.
Umdeildar forsetakosningar á Fflabeinsströndinni
Tveir lýsa sig rétt-
kjörinn forseta
Abidjan. Reuters, AFP.
TIL götumótmæla kom í borgum
Fílabeinsstrandarinnar í gær, eftir
að herforingjastjórn landsins lýsti
leiðtoga hennar, Robert Guei hers-
höfðingja, sigurvegara forsetakosn-
inga sem fram fóru á sunnudag.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar og
helsti keppinautur Gueis, Laurent
Gbagbo, gerði einnig tilkall til sigurs-
ins.
Innanríkisráðuneytið tilkynnti að
yfirkjörstjóm landsins hefði verið
leyst upp vegna þess að hún hefði
ekki staðið sig sem skyldi við skipu-
lagningu kosninganna.
Ráðuneytið sagði að hershöfðing-
inn hefði verið kjörinn forseti með
52% atkvæðanna og Gbagbo, leiðtogi
„Alþýðufylkingarinnar" (FPI), hefði
fengið 41%. Stjórnarandstaðan hafn-
aði þessum tölum og sagði að Gbagbo
hefði sigrað með 62% atkvæðanna
gegn 34%.
Niðurstaða talningar í þeim fáu
kjördæmum þar sem tölur voru gerð-
ar opinberar bentu til að Gbagbo nyti
góðs forskots. Lýsti hann sig rétt-
kjörinn forseta í kjölfar tilkynningar-
innar um meintan sigur Gueis. Hvatti
hann stuðningsmenn sína til að sam-
einast í mótmælum unz Guei viður-
kenndi ósigur sinn og léti af völdum.
Samkvæmd óstaðfestum fréttum
létu að minnsta kosti níu manns lífið í
mótmælum gærdagsins. Talsmenn
FPI sögðu tvo mótmælendur í Abidj-
an hafa beðið bana er hermenn hófu
skothríð á þá. Stjómvöld lýstu yfir
útgöngubanni um kvöldið.
Fleiri Palestínumemi láta lífíð í óeirðum á sjálfstjórnarsvæðunum
Barak reynir áfram að
mynda ney ðar stj <5rn
Jerúsalem, Gazaborg, Moskvu. Reuters, AFP, AP.
TVEIR Palestínumenn létu lífið fyr-
ir byssukúlum ísraelskra hermanna í
óeirðum á sjálfstjórnarsvæðum Pal-
estínumanna í gær, er Ehud Barak,
forsætisráðherra ísraels, reyndi
áfram að fá hægrimenn til að mynda
með sér þjóðstjóm, þrátt fyrir að
sumir telji að myndun slíkrar stjórn-
ar myndi hafa endalok friðarumleit-
ana í för með sér.
Með Palestínumönnunum tveim-
ur, sem létu lífið í gær, og þeim
þriðja -13 ára dreng sem lézt af sár-
um sem hann hlaut í óeirðum um
helgina - er tala látinna í átökum
ísraela og Palestínumanna sl. vikur
komin upp í 138. Allir hinna látnu
nema átta voru Palestínumenn. Um
4.000 hafa særzt.
Mótmæli gegn ísraelum héldu
áfram af krafti í Jórdaníu, þar sem
lögregla beitti táragasi, þrýstivatns-
sprautum og kylfum á mótmælend-
ur, sem gerðu tilraun til að komast
fylktu liði yfir landamærin að Vest-
urbakkanum.
Barak sakaði Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, um að velja
„braut átaka í tilraun til að knýja
okkur til að gefa okkar mikilvægustu
hagsmuni eftir.“ Að sögn talsmanns
hans, Tayeb Abdel Rahim, lýsti Ara-
fat furðu sinni á þessum yfirlýsing-
um ísraelska forsætisráðherrans.
„Okkar fólk er aðeins að verja sig
gegn hernaðarvél ísraels,“ tjáði
Rahim AFP.
Hlé á viðræðum við hægrimenn
Barak lét þessi orð falla er hann
var að búa sig undir að hefja aðra
viðræðulotu við harðlínu-hægri-
manninn Ariel Sharon, leiðtoga Lik-
ud-flokksins, um myndun neyðar-
stjórnar í ísrael. Ekki varð af
neinum formlegum viðræðufundum í
gær og hvenær þeir næstu hefjast
var ekki orðið ljóst.
Kröfur Sharons, þar á meðal að
hafa í raun neitunarvald um hvort
aftur skyldu hafnar friðarsamninga-
viðræður við Palestínumenn, virtust
standa í Barak og hans mönnum.
Barak átti fyrr um daginn fundi
með leiðtogum annarra hugsanlegra
samstarfsflokka, en hinn áhrifamikli
Shas-flokkur rétttrúargyðinga, sem
á þriðja stærsta þingflokkinn á Isr-
aelsþingi, hafði þegar á mánudag
lýst því yfir að hann hefði engan
áhuga á nýju samstarfi við Barak.
Stjórn hans missti þingmeirihluta í
júlí í sumar og þykir honum mikið til
vinnandi að koma nýjum meirihluta
saman áður en þingið kemur saman
aftur hinn 30. október. Tillaga um
boðun nýrra kosninga verður ofar-
lega á dagskrá þingsins.
Annað tap
hjá Kasparov
HEIMSMEISTARINN GarríKasp-
arov tapaði í gær tíundu skákinni í
einvíginu við Vladimír Kramnik,
sem fram fer í Lundúnum, en þar
með hefur sá síðarnefndi náð
tveggja vinninga forskoti.
Að sögn Friðriks Ólafssonar stór-
meistara leiddi 23. leikur Kaspar-
ovs beint til taps en þá hafi hann
þegar verið kominn með verri
stöðu. „Mér finnst vanta upp á ein-
beitinguna hjá Kasparov og að
hann nái að ráða ferðinni. Það er
greinilega Kramnik sem ræður þvf
hvernig skákir þeir tefla,“ sagði
Friðrik. „Þetta er ekki sá Kasparov
sem maður þekkir bezt.“
■ Kramnik fór létt/11