Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 27
Morgunblaðið/Fríða Björk
Ilona Anhava við verk eftir Kristján Guðmundsson á sýningunni sem nú
stendur yfir í Helsinki.
Völuspá ferðast
um Norðurland
Tónleikar
í Carnegie
Hall
SIGURÐUR Bragason barít-
onsöngvari og Ólafur Elíasson
píanóleikari verða með tón-
leika í einleikssal Camegie
Hall í New York annað kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20. Yfir-
skrift tónleikanna er Frá róm-
antík til rósturs.
A efnisskránni eru sönglög
eftir Pál ísólfsson, Jón Leifs,
P.I. Tchaikovsky og Modest
Mussorgsky.
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir Völuspá
eftir Þórarin Eldjárn í samstarfi við
Leikfélag Akureyrar um allt Norð-
urland dagana 25. október - 2. nóv-
ember.
Völuspá var frumsýnd í Möguleik-
húsinu á Listahátíð í Reykjavík í vor.
Verkið hæfir áhorfendum frá 9 ára
aldri og byggist á hinni fomu Völu-
spá. Það veitir áhorfendum sýn inn í
hugmyndaheim norrænu goðafræð-
innar og er komið víða við.
Sýningamar verða í grunnskóla
Blöndóss í dag kl. 10.30, fimmtudag í
Grunnskóla Sauðárkróks kl. 10.30 og
í Steinsstaðaskóla kl. 14. Á föstudag
er sýning á Hofsósi - og er það í
fyrsta sinn sem Möguleikhúsið sýnir
á Hofsósi. Á sunnudaginn eru tvær
sýningar í Samkomuhúsinu á Akur-
eyri, kl. 15 og 17. Á mánudaginn er
sýning kl. 9.45 í Glerárskóla og önn-
ur sýning sama daga í Hafralækjar-
skóla kl. 13. Nk. þriðjudag er sýning
kl. 10 í Grenivíkurskóla - og er það
einnig í fyrsta sinn sem Möguleik-
húsið heldur leiksýningu á Grenivík.
Leikferðinni lýkur 1. nóvember þeg-
ar Völuspá verður sýnd tvívegis í
Lundarskóla, kl. 9.20 og 11.
Kristján Guðmundsson í Finnlandi
Mikilvæg verk
og krefjandi
Á SÝNINGU í Galerie Anhava í
Helsinki stendur nú yfir sýning á
verkum Kristjáns Guðmundssonar,
Rögnu Róbertsdóttur og Karin
Sander. Kristján, sem sýnir í stærri
sal gallerísins, á flest verk á sýning-
unni og spanna þau talsvert langt
tímabil í ferli hans. Að sögn Ilonu An-
hava eiganda Galerie Anhava hefur
sýningin vakið mikla athygli í Finn-
landi enda virðast Finnar hafa áttað
sig á mikilvægi innleggs Kristjáns til
hugmyndalistar á Norðurlöndum.
„Nú er svo komið að öll stóru verk-
in á sýningunni eru seld og vel má
vera að allt seljist,“ sagði Ilona í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ég er því
ákaflega ánægð. Um er að ræða þrjá
kaupendur og þetta er svo sannar-
lega fréttnæmt því áhuginn á þessum
verkum er ekki bara fyrir hendi hér í
Finnlandi heldur einnig í Bandaríkj-
unum. Stór hluti verkanna fer þang-
að.“
„Verkin eru frá löngum tíma og
það þarf ákaflega vel upplýstan við-
skiptavin til að skilja hversu mikil-
væg þau eru,“ segir Ilona. „Þessi
verk eru svo tær að þau krefjast mik-
ils af áhorfandanum. Þetta eru ekki
verk sem heilla hinn almenna áhorf-
anda sem rekst inn af götunni. Sá
sem fjárfestir í þessum verkum verð-
ur að skilja mikilvægi þeirra í sögu
hugmyndalistarinnar. Þau verk sem
Kristján hefur skapað hafa mikla
þýðingu í þróun samtímalista og það
er því sérstaklega ánægjulegt að vita
til þess að héðan fara verkin íhend-
umar á söfnurum sem vita hvað þeir
eru að gera,“ sagði Ilona Anhava í
Helsinki.
SKÁKHÁTÍÐ í
KRINGLUNNI
í dag kl. 16.00
Nú er líf og fjör í skákinni enda
Ólympíuskákmótið í Istanbúl
framundan.
Lokaundirbúningur kvennaliðsins
fer fram í Kringlunni þar sem liðið
teflir við harðsvíraða sveit Alþingis.
Giæsilegir haust- og vetrarlitir LANCOME
eru nú komnir.
Ráðgjafi verður í versluninni t dag
og á morgun.
Komdu og littu á djúpa plómuliti
og létta silfurtóna.
pim
Lyf&heilsa
A P Ó T E K
Veglegir kaupaukar að hætti LANCÖME Austurveri, sfml 581 2101
X
SR\RISJÓÐURINN
-fyrirþigogþína
Tæknival
Karlaliðið verður á staðnum
og teflir við gesti og gangandi.
Tefldar verða netskákir við snillinga
erlendis. Skákmeistarar mæta
með tölvur og sýna fólki hvernig
þeir ferðast um gagnagrunna og
undirbúa sig þannig fyrir stórátök.
hönnunhf
Komdu í Kringluna og taktu skák!
Skáksamband íslands