Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 21
Samtök atvinnulífsins kynna sóknarfæri á evrópska efnahagssvæðinu
Morgunblaðið/Ásdís
íli
þáttur þessi samstarfsverkefni hafa
reynst í samningnum um hið
evrópska efnahagssvæði, og að það
hafi að hluta til verið vanmetið.
Porsteinn segir að upplýsingavef-
ur SA sé auðvitað ekki tæmandi sem
slíkur, en fólk geti aflað sér upplýs-
inga um hvað er í boði. í mörgum til-
fellum er síðan vísað á einhverjar af
þeim 13 upplýsingaskrifstofum um
Evrópumál sem finna má í Reykjavík
og tengla í Evrópusambandinu
sjálfu, þar sem fólk getur aflað sér
frekari upplýsinga. „Þetta er leiðar-
vísir um það hvernig þú átt að haga
þér í þessu samstarfi, frekar en að
vera tæmandi upplýsingabrunnur,"
segir Þorsteinn.
Fj öldi tækifæra í
samstarfsverkefnum
Davíð Stefánsson og Þorsteinn Brynjar Björnsson hafa haldið úti upp-
lýsingavef SA um sóknarfæri á evrópska efnahagssvæðinu.
SAMTÖK atvinnulífsins hafa undan-
farin misseri staðið fyrir viðamikilli
úttekt og uppfærslu á upplýsingum
um sóknarfæri á evrópska efnahags-
svæðinu, sem felast í þátttöku í á
fimmta tug samstarfsáætlana sem í
gangi eru á vegum framkvæmda-
stjómar Evrópusambandsins. Með
aðild íslendinga að EES opnaðist
fyrir þátttöku í þessum samstarfs-
áætlunum og verkefnum, og hefur sú
þátttaka reynst Islendingum happa-
drjúg, að sögn Davíðs Stefánssonar,
stjómsýslufræðings hjá Samtökum
atvinnulífsins.
Hann segir að samtökin hafi því
ákveðið að setja upp heildaryfirlit yf-
ir möguleika Islendinga á þátttöku í
þessum verkefnum, en hann vann yf-
irlitið fyrst árið 1997. Síðan hefur
Þorsteinn Brynjar Bjömsson séð um
að viðhalda upplýsingunum, sem
finna má á vefsíðu SA; www.sa.is.
Samstarfsáætlanimar hafa að
jafnaði ákveðinn gildistíma, oftast
frá fjóram til sjö ára, og þegar þær
renna sitt skeið á enda er árangur
þeirra metinn og nýjar áætlanir sett-
ar fram í sama málaflokki. Það þýðir
að árleg endurskoðun er nauðsynleg
til þess að upplýsingamar séu áreið-
anlegar.
„Skýringin á því að haldið er áfram
með þetta verkefni liggur ma. í því að
heimsóknir hafa verið fjölmargar á
vefinn. Þetta hefur verið með vin-
sælla efni á vefsíðu Samtaka atvinnu-
lífsins síðastliðið ár,“ segir Davíð.
Verðmæti samstarfsins liggur ekki
síst í nýrri þekkingu og reynslu
Á gmndvelli þessara samstarfs-
áætlana hafa talsverðir fjármunir
skilað sér inn í íslenskt samfélag,
m.a. inn í rannsókna- og vísindastarf,
fyrirtæki hafa myndað mikilvæg við-
skiptatengsl og fjöldi stúdenta hefur
átt kost á því að stunda nám erlendis.
„Við höfum lagt á það áherslu að
það sé meira en fjármunir sem koma
út úr þessu samstarfi, þótt ég telji að
íslendingum hafi vegnað vel þegar
litið er á peningahliðina. Verðmæti
þessa samstarfs liggur ekki síst í öfl-
un nýrrar þekkingar og reynslu."
Að sögn Davíðs hefur það komið
mörgum á óvart hversu mikilvægur
13:10
13:20
14:00
14:20
Brunnar hf.
lýstir
gjaldþrota
HÉRADSDÓMUR Reykjavík-
ur hefur staðfest að Brunnar
hf. hafi verið úr'skurðaðir gjald-
þrota. I Morgunpunktum
Kaupþings í fyrradag kemur þó
fram að þetta þurfi ekki endi-
lega að þýða að reksturinn
verði aflagður. Engu að síður
hefur verið ákveðið að taka fé-
lagið út úr Mark.is en talið er
að bréf félagsins séu nú verð-
laus. Ekki náðist í Jónas Jónas-
son, framkvæmdastjóra
Brunna, vegna þessa máls.
Brunnar hf. voru stofnaðir í
Grindavík árið 1994 af Kjartani
Ragnarssyni og framleiddi fyr-
irtækið_ fyrst og fremst kæli-
vörur. Árið 1997 stofnaði félag-
ið ásamt erlendum fjárfestum
fyrirtækið Brontec sem sér-
hæfði sig í framleiðslu á ís-
þykknivélum. Árið 1998 var
Brontec sameinað Brunnum og
áttu innlendir aðilar 70% hluta-
fjár en erlendir aðilar 30%.
Ljóst er að rekstur félagsins
gekk erfiðlega og var hlutafé
félagsins aukið snemma á
þessu ári þegar hópur íslenskra
hluthafa keypti hlutafé fyrir
fimmtíu milljónir króna.
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga stendur fyrir íslenska þekkingardeginum 10. nóvember nk. Markmiðið með þessum degi er
að vekja athygli á mikilvægi þekkingar sem auðtindar í aliri starfsemi fyrirtækja og stofnana. Á þekkingardeginum stendur félagið fyrir
ráðstefnu þar sem fjallað verður um stjórnun þekkingar og mannauðs frá ólíkum sjónarhólum. Meðal annars verður fjallað um eignarrétt
á hugverkum, hvernig breyta megi upplýsingum sem til eru innan fyrirtækja íhagnýta þekkingu og skoðað verður hversu mikilvæg
þessi óáþreifanlegu verðmæti eru fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Hápunktur dagsins verðurþegar íslensku þekkingarverðlaunin verða
afhent því fyrirtæki eða stofnun sem þykir skara fram úr á sviði þekkingarstjórnunar.
DAGSKRÁ ÍSLENSKA ÞEKKINGARDAGSINS 2000
12:30
13:00