Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 19
LANDIÐ
..
—
. : • > V
i
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Frá fundi í Hyrnunni í Borgarnesi um umferðarslys vegna lausagöngu búQár á vegsvæðum.
Borgfírðingar ræddu lausagöngu búfjár á fundi
Ekið hefur verið á
50 kindur á árinu
Borgarnesi - Haldinn var nýverið í
Borgamesi sameiginlegur fundur
oddvita í Borgarfirði, fulltrúa Vega-
gerðarinnar, lögreglunnar í Borgar-
nesi og Umferðarráðs um umferðar-
slys vegna lausagöngu búfjár á
vegsvæðum í héraðinu og skort á
girðingum og viðhaldi þeirra. Sam-
þykkti fundurinn tvær ályktanir til
samgöngumálaráðherra.
Skorað var á samgönguráðherra
að beita sér íyrir því að vegurinn um
Holtavörðuheiði að sunnanverðu, þar
sem er ógirtur afréttur, verði girtur
af á næsta ári. Þarna er um 11 km
langan vegarkafla að ræða en á hon-
um hefur verið ekið á um 20 kindur á
ári, sem er um þriðjungur þess heild-
arfjölda sem lendir fyrir bílum í um-
dæmi lögreglunnar í Borgamesi ár-
lega.
Þá beindi fundurinn því einnig til
samgönguráðherra að Vegagerðinni
verði gert skylt að girða meðfram
þjóðvegi nr. 1, Vesturlandsvegi, frá
Hvalfjaröargöngum að Holtavörðu-
heiði, svo og meðfram öðrum vegum í
umdæminu þar sem umferð er 300
bílar á dag eða meira að meðaltali yfir
sumartímann og að Vegagerðin haldi
þeim girðingum síðan við.
Theodór Þórðarson lögregluvarð-
stjóri í Borgamesi greindi frá því að
alls hefði verið ekið á rúmlega fimm-
tíu kindur í umdæmi Lögreglunnar í
Borgamesi það sem af væri árinu.
Hefði lögreglan lagt mikla vinnu í að
reyna að koma í veg fyrir lausagögnu
búfjár á vegsvæðum og alls væra
komnar 208 bókanir varðandi lausa-
gönguna á þessu ári. Segja mætti að
girðingar væra orðnar hrossheldar
meðfram helstu akvegum í héraðinu
og aðeins hefði verið ekið á eitt hross
á árinu og eitt árið 1999. Hins vegar
væri ljóst að gera þyrfti stórátak í
girðingarmálum í héraðinu til að
draga úr lausagöngu kinda.
Bættar girðingar
árangursrík slysavörn
Hvatti Theodór sveitarstjómar-
menn til að nýta sér heimildir í lögum
til að banna lausagögnu búfjár með-
fram vegum. Þá benti hann á að nú
væra lögreglusamþykktir fyrir lög-
sagnaramdæmið til endurskoðunar
og þar gæfist færi á að taka á lausa-
göngunni. Benti Theodór á að bættar
girðingar meðfram vegum í héraðinu
væri ein árangursríkasta slysavömin
sem að hægt væri að hugsa sér.
I greinargerð Jenna R. Ólasonar
fulltrúa Vegagerðarinnar í Borgar-
nesi kom fram að Vegagerðin hefði
tímabundið tekið yfir viðhald girð-
inga á afmörkuðum svæðum með-
fram þjóðveginum frá Hvalfjarðar-
göngum og norður að Holtavörðu-
heiði. Þá hefði verið lagt út í tveggja
mánaða smölunarátak til að kanna
hvernig best væri að halda vegsvæð-
um hreinum af fé og einnig til að
kanna hvaðan féð kæmi og hveijir
ættu það. Smalað hefði verið á annað
þúsund fjár á tímabilinu, Idndur lita-
merktar og féð flutt inn fyrir girðing-
ar eða á afrétt. Sagði Jenni að Ijóst
væri að það kostaði milljónir að koma
þessum málum í gott lag en með sam-
stilltu átaki væri hægt að vinna bug á
lausagöngu búfjár á vegsvæðum.
Fram kom hjá sveitarstjómar-
mönnum að lög um girðingar væra að
þeirra mati óréttlát og ekki væri
hægt að ætlast til þess að bændur
kostuðu einir viðhald girðinga með-
fram þjóðvegum.
Lögfræðingur Vegagerðarinnar,
Stefán Erlendsson, ræddi um girð-
ingalögin og breytingar á vegalögum
og benti á möguleika sveitarfélaga til
að óska eftir því að Vegagerðin ann-
aðist og kostaði viðhald girðinga með-
fram þjóðvegum. Þá ræddi Stefán um
ábyrgð þeirra sem ættu fé og þeirra
sem girtu og héldu við girðingum.
Ríkharð Brynjúlfsson oddviti
Borgarfjarðarsveitar sagði að hug-
takið „lausaganga búfjár“ og notkun
þess í lögum og manna á milli, væri
alröng að hans mati. Búfé gengi laust
í afrétti og haga en það væri hins veg-
ar komið í aðhald og jafnvel í gildra
þegar það væri komið á afgirt veg-
svæðin.
Fram kom að hreppsnefnd Borg-
arfjarðarsveitar hefði í sumar sam-
þykkt bann við lausagöngu stórgripa
í sveitarfélaginu og væri það bann
komið í gildi.
Sóknarpresturinn á
Skagaströnd kveður
Skagaströnd - Séra Guðmundur
Karl Brynjarsson sóknarprestur á
Skagaströnd kvaddi söfnuði sína í
messu á sunnudag í Hólaneskirkju.
Að messu lokinni var haldið kveðju-
hóf í Fellsborg þar sem boðið var
upp á veislukaffi.
Séra Guðmundur hefur þjónað
þremur sóknum í þau rúmlega tvö ár
sem hann starfaði hér í Húnavatns-
sýslu: Skagastrandar-, Hofs- og
Höskulsstaðasókn. I vor bættust síð-
an fleiri sóknir við þegar lagt var nið-
ur prestsembætti í Bólstaðarhlíð.
Sr. Guðmundi var nýlega veitt
staða sem aðstoðarprestur í Hjalla-
sókn í Kópavogi og mun hann taka
við því embætti hinn 1. nóvember.
Guðmundur hefur notið mikilla vin-
sælda meðal sóknarbarna sinna,
enda notuðu margir tækifærið til að
kveðja hann og Kamillu Gísladóttur
konu hans á sunnudaginn.
Tveir guðfræðingar, Magnús
Magnússon og Þórður Guðmunds-
son, höfðu sótt um Skagastrandar-
prestakall þegar umsóknarfrestur
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Séra Guðmundur Karl Brynjars-
son og Kamilla Gísladóttir, eig-
inkona hans.
rann út Hinn 15. október síðast lið-
inn.
Valnefnd sem skera mun úr um
hvor þeirra fær starfið og stefnir að
því að koma saman um næstu helgi
til að ráða ráðum sínum.
Morgunblaðið/pþ
Ný brú á Grímsá
FYRIR stuttu var umferð hleypt
á nýja tvíbreiða brú yfir Grímsá
hjá Fossatúni í Borgarfirði. Leys-
ir þessi nýja brú af gamla sem
var einbreið og gat verið við-
sjárverð fhálku, þegar komið var
að henni norðan megin. Er þessi
brú á vegarkafla scm nýbúið er
að setja á bundið slitlag frá
Hnakkatjarnarlæk að Götuási.
Unnið er við að leggja nýjan veg
frá Andakílsá að Götuási sem lok-
ið verður við í september á næsta
ári.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Forsvarsmenn ráðstefnu- og skemmtihússins mættu á aukafundinn hjá
bæjarstjóm Vestmannaeyja.
Framkvæmdir stöðv-
aðar við ráðstefnuhús
Vestmannaeyjar - Hafist var handa
við að reisa skemmti- og ráðstefnu-
hús á vatnstankinum við Löngulá í
Vestmannaeyjum nýlega. Vel gekk
að reisa húsið og rauk það upp með
ógnarhraða.
Nú liggur fyrir úrskurður frá
úrskurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingamála að stöðva skyldi fram-
kvæmdir við byggingu hússins með-
an að kæramál um lögmæti
byggingaleyfis fyrir húsið er til með-
ferðar hjá úrskurðamefndinni.
Mikill hiti er í mörgum bæjarbúum
vegna þessa, bæði þeim sem era með
og á móti, m.a. hafa undirskriftalistar
um stuðning við bygginguna gengið
um bæinn og aukafundur var haldinn
í bæjarstjórn vegna þess. Málið er nú
til meðferðar úrskurðamefndar og
haft er eftir Hjalta Steinþórssyni,
framkvæmdastjóra nefndarinnar, að
þessi úrskurður væri bráðabirgða-
úrskurður sem gæti þýtt stöðvun
framkvæmda við bygginguna í ein-
hvern tíma, jafnvel nokkra mánuði.
Ámerískir tilboðsdagar
Við kynnum THER-A-PEDIC, bandarískar
heilsudýnur, sem unnið hafa til margra
verðlauna fyrir hönnun og gæði.
Komdu og leggðu þig!
www.lystadun.is