Morgunblaðið - 05.11.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2000 41
FRETTIR
Sumarliði Ásgeirsson matreiðslumcistari á Fimm fiskum.
Eigendaskipti
á Knudsen
EIGENDASKIPTI urðu á veit-
ingastaðnum Knudsen í Stykkis-
hólmi þegar hjónin Sumarliði Ás-
geirsson matreiðslumeistari og
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir kenn-
ari keyptu staðinn af Gunnari Sig-
valdasyni veitingamanni.
Eigendur hafa skipt um nafn á
veitingastaðnum og heitir hann nú
Fimm fiskar og segir í fréttatil-
kynningu að boðið sé upp á fjöl-
skylduvænan stað þar sem fólk geti
auðveldlega farið út að borða með
börnum sínum. Veitingastaðurinn
Fimm fiskar verður opinn í hádeg-
inu og eitt fyrsta verkefnið er að fá
nýjan pizzuofn og verða pizzur á
boðstólum frá kl. 17 til 21 alla daga.
Allur ágóði af basarnum rennur til líknarmála.
Basar Barð-
strend-
ingafélagsins
KVENNADEILD Barðstrendinga-
félagsins verður með sinn árlega
basar og kaffisölu sunnudaginn 5.
nóvember í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14. Húsið verður opnað
kl. 14.
Á basarnum verður m.a. ýmiss
konar handavinna og heimabak-
aðar kökur af ýmsum gerðum.
Efnt verður til happdrættis og
eru margir vinningar í boði. Ein-
göngu er dregið úr seldum mið-
----*-*-♦---
Fræðslu-
fundur
Beinverndar
NÆSTI fræðslufundur Beinverndar
á Suðurlandi verður haldinn á Hótel
Selfossi mánudaginn 6. nóvember kl.
20.
Geir Friðgeirsson, barnalæknir á
Selfossi, flytur erindi um vöxt og
beinvernd og Halldóra Björnsdóttir,
íþróttafræðingur og starfsmaður
Beinverndar, segir frá starfseminni.
Erindi um
hjónaband
manna og
huldukvenna
FÉLAG þjóðfræðinga á ísl-
andi heldur aðalfund sinn
mánudaginn 6. nóvember kl.
20 í Skólabæ við Suðurgötu.
Að loknum venjulegum aðal-
fundarstörfum mun John
Lindow flytja erindi um
skandinavískar sagnir um
brúðkaup og hjónaband
manna og huldukvenna.
John Lindow hefur verið
prófessor við Kaliforníuhá-
skóla í Berkeley um langt ára-
bil. Rannsóknir hans hafa
einkum beinst að norrænni
goðafræði og þjóðfræðum.
Hann var m.a. annar ritstjóra
bókarinnar „Old Norse-Ice-
landic Literature" sem kom
út árið 1985 og hann fjallaði
um goðið Baldur í bók sinni
„Murder and Vengeance am-
ong the Gods“ sem var gefin
út í Helsinki árið 1997. John
Lindow dvelst nú hér á landi
sem Fulbrightkennari og
kennir þjóðfræði við Háskóla
íslands.
Umhirða
grænna
svæða
NÁMSKEIÐ um umhirðu grænna
svæða í þéttbýli verður haldið
fimmtudaginn 9. nóvember kl. 10 til
17 í Þinghús kaffi í Hveragerði. Það
eru Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykj-
um í Ölfusi og Samtök umhverfis- og
garðyrkjustjóra sem standa að nám-
skeiðinu.
Fjölmörg erindi verða haldin, m.a.
um umhirðuáætlanir sveitarfélaga,
hirðingarstig svæða í Mosfellsbæ,
útboð á umhirðuverkum, eftirlit með
gæðakröfum, umhirðu á útivistar-
svæði Garðyrkjuskólans og störf
skrúgarðyrkjufyrirtækja í umhirðu-
verkefnum hjá sveitarfélögum. Gert
er ráð fyrir góðum tíma í hópastarf,
þar sem hver hópur ræðir fyrirfram
ákveðið málefni og síðan verða um-
ræður um niðurstöður hópanna.
Hægt er að nálgast dagskrá nám-
skeiðsins á heimasíðu skólans;
www.reykir.is
Opið hús
Sjávargrund 10a - 1 hæð, Garðabæ
Glæsileg 3ja herb. íbúð í nýlegu húsi ásamt herbergi í kjallara og
stæði í bílageymslu. íbúðin er með parketi á gólfum. Frábært úti-
vista svæði með útg. úr stofu. Til sýnis í dag, sunnud., frá kl. 14-16.
ÖEIGNA
NAUST
Síml: 551 8000
Fax: 551 1160
Vitastíg 12
Fréttir á Netinu mbl.is
ALLTAF= GITTHV?k£J A/ÝT7
Frábærlega vel staðsett samtals 956 fm atvinnuhúsnæði sem skiptist í 70 fm kjallara, 2 x 320 fm
súlulaust rými á 1. og 2. hæð auk 240 fm skemmu. Gríðarlega mikið athafnasvæði. 3.610 fm lóð.
Háar innkeyrsludyr. Mikil lofthæð. Hugsanlegur byggingaréttur. Lóðin liggur að Sæbraut og hefur
mikið auglýsingagildi.
Glæsileg raðhus
við Suðurtún 1-35
Útsýni frá byggingarstað á ÁLFTANESI
: __ . .
m ■ - ■ rHr
Mynd Þorlákur ó Einarsson
Afar vel staðsett raðhús á einni hæð með inn-
byggðum bílskúr. Um er að ræða tvær stærðir
húsa, 145 fm og 115 fm, og eru ýmist þrjú
eða fjögur hús í lengju. Húsin afhendast fok-
held að innan, fullbúin að utan um nk. ára-
mót. Lóð verður grjófjöfnuð. Endahús: Verð
13,4 millj., miðjuhús 12,4 millj.
Frábær staðsetning í fallegri nátt-
úruperlu fyrir fólk sem vill njóta
ótivistar.
Teikningar á skrifstofu.
FASTEiQNA <f
MARKAÐUR1NN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500 FAX 570 4505
V.__________________________/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.