Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Mælst til þess að borgaryfirvöld hafni öllum tilboðum í byggingu knattspyrnuhúss í Grafarvogi Tillaga TSH og fleiri, sem fékk hæstu einkunn í útboðinu. Borgarstjóri hafnar leið einkaframkvæmdar Mat á útboðum vegna knattspyrnuhúss í Grafarvogi TSH/JB/ fsl. Nýsir/ Vægi Innsport Aðalv. ístak Eykt Rekstrarl. forsendur 15% 8,5 6,2 8,4 7,7 Gerð byggingar 30% 8,9 5,8 6,5 6,8 Tilboðsverö 55% 9,1 2,4 10,0 7,2 Heildareinkunn 9,0 4,0 8,7 7,2 Grafarvogur STARFSHÓPUR um knatt- spyrnuhús í Grafarvogi hefur mælst til þess við borgaryfir- völd að þau hafni öllum þeim fjórum tilboðum sem bárust í byggingu og rekstur knatt- spyrnuhúss í Grafarvogi, en framkvæmdin var boðin, sem einkaframkvæmd, í lokuðu út- boði. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri sagði að þessi niðurstaða hefði ekki komið sér á óvart og hún sæi í raun ekki hvernig einkafram- kvæmdir yfir höfuð gætu borgað sig fyrir Reykjavíkur- borg, þar sem borgaryfirvöld hefðu t.d. aðgang að mun hag- stæðari lánum en verktakar. Ingibjörg Sóh-ún sagði að starfshópurinn hefði jafn- framt iagt til að þeim aðilum sem skilað hefðu tveimur hag- stæðustu tilboðunum yrði boðið að taka þátt í samstarfs- útboði. Hún sagði að borgar- ráð hefði vísað málinu til Inn- kaupastofnunar, en að ráðið myndi fá málið aftur til skoð- unar á þriðjudaginn. Alls tóku fjórir hópar þátt í útboðinu: 1. TSH ehf., Járnbending ehf og Inn-sport ehf. 2. Nýsir hf og Istak hf. 3. Eyktehf. 4. ÍAVhf. Fyrsti og annar hópurinn skiluðu hagstæðustu tilboðun- um samkvæmt mati starfs- hópsins og var það reiknað út frá rekstrarlegum forsendum, gerð byggingarinnar og til- boðsverðinu sjálfu. Tilboð fyrsta hópsins var um 12% yf- ir kostnaðaráætlun, eða um 1.129 milljónir króna á nú- virði, tilboð annars hópsins hljóðaði upp á 1.040 milljónir króna á núvirði, sem er um 3% yfir kostnaðaráætlun. I útboðinu var gengið út frá ákveðnum forsendum og var sú mikilvægasta sú að húsið skyldi byggt sem einkafram- kæmd, þar sem borgin semdi um fjármögnun, byggingu og rekstur hússins og skuld- byndi sig til að leigja ákveðinn fjölda tíma á ári af rekstrarað- ilanum. í útboðsgögnum var einnig tekið fram að knatt- spyrnuhúsið ætti að vera lög- legt keppnishús með 20 metra lofthæð við miðjan völl og auk þess var þeim gert kleift að nýta byggingarreit við hlið hússins. Breyttar forsendur Ingibjörg Sóh-ún sagði að í samstarfsútboðinu yrði for- sendum breytt að því leyti að í stað þess að framkvæmdarað- ilinn eignaðist knattspymu- húsið eftir 25 ár myndi borg- arsjóður alfarið fjármagna það og borgin eignast það. Hún sagði að framkvæmdar- aðilinn gæti hins vegar eign- ast viðbygginguna, þar sem hann gæti rekið annars konar starfsemi, t.d. verslun eða verið með aðstöðu fyrir ann- ars konar íþróttastarfsemi. Upphaflega var reiknað með því að framkvæmdir myndu hefjast í haust en Ingibjörg sagði að þær myndu að öllum líkindum hefjast í vor. I skýrslu um mat á tilboð- unum, sem lögð var fyrir borgarráð í gær, segir: „Nið- urstaða starfshópsins er að hægt sé með góðu móti að rökstyðja að hafna beri tilboð- unum þar sem hagstæðasta tilboðið feli í sér meiri kostnað en hefðbundin byggingar- framkvæmd og rekstur myndi leiða til. Því beri annaðhvort að hefja undirbúning, hönnun og framkvæmd með hefð- bundnum hætti eða að leitast við að skapa grundvöll fyrir endurbótum á fyrirliggjandi tilboðum. Seinni kosturinn þykir álitlegri og er því lagt til að iyrirliggjandi tilboðum verði hafnað og að loknum til- skildum fresti verði þeim aðO- um sem áttu tvö hagstæðustu tilboðin boðið að taka þátt í samstarfsútboði þar sem for- sögn um gerð knattspyrnu- húss væri í öllum aðalatriðum óbreytt, upplýsingar um væntanlega styrki vegna ann- arrar íþróttastarfsemi bættar og tímafrestir um síðari bygg- ingaráfanga rýmkaðir, auk þess sem sú breyting væri gerð að borgarsjóðui’ fjár- magnaði og eignaðist þann hluta mannvirkisins sem til- heyrir knattspyrnuhúsinu, en rekstur allur gæti verið á veg- um bjóðanda." Minnihlutinn í borgarstjörn Vilja nýja viðlegu Reykjavíkurhöfn SJÁLFSTÆÐISMENN í borgarstjórn Reykjavíkur telja brýnt að á næstu árum verði nýr viðlegukantur byggður utan við Ingólfsgarð og Sæbraut í Reykjavík. Segja þeir slíkan kant þjóna þeim tilgangi að skemmti- ferðaskip geti lagst að bryggju sem næst miðborg- inni sem þeir segja að verði í auknum mæli að leita annað. Að sögn Ingu Jónu Þórðar- dóttur, oddvita sjálfstæðis- manna, fer kostnaður eftir umfangi verksins, t.d því hversu ráðist yrði í mikla landfyllingu, en áætlað er að hann gæti orðið á bilinu 200 til 400 milljónir króna. Á fundi hafnarstjórnar 23. október, þar sem rætt var um fjárhags- og starfsáætlun næsta árs, lögðu sjálfstæðis- menn til að 4,2 milljónum króna yrði varið til rann- sókna og hönnunar á viðlegu- garði við Sæbraut/Ingólfs- garð í stað þess að leggja sömu upphæð í rannsóknir og hönnun í Eiðsvík eins og til- laga meirihlutans gerði ráð fyrir. Inga Jóna sagði á borgar- stjórnarfundi á fimmtudag að skemmtiferðaskip ættu æ erfiðara með að athafna sig við Miðbakkann í Reykjavík. Mótmæli vegna Hörðuvalla 4.490 skrifuðu á undirskriftalista Hafnarfjörður VIÐ upphaf bæjarstjórnar- fundar í Hafnarborg í Hafnar- firði seinnipartinn í gær af- henti Guðfinna Guðmunds- dóttir bæjarstjóm Hafnar- fjarðai’ undirskriftalista með nöfnum 4.490 íbúa Hafnar- fjarðar, sem með því vildu op- inberlega mótmæla íyrirhug- uðum byggingarframkvæmd- um á Hörðuvallasvæðinu. Valgerður Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar, tók við listunum fyrir hönd bæjar- stjómar og að því loknu tók Magnús Gunnarsson bæjar- stjóri til máls. Kvað hann bæj- aryfirvöld hafa haft áhuga á því um langan tíma að gera úr- bætur í skólamálum á þessu svæði. Ekki væri auðvelt verk- efni fyrir bæjaryfirvöld að taka ákvarðanir um þessa uppbyggingu, sér í lagi vegna þess að þau horfðu til þess að búa börnum í hverfinu svipað- ar aðstæður og börnum í öðr- um hverfum. Miklar breyting- ar væm á skólastarfi, m.a. með einsetningu grannskólanna. „Málið er þannig statt að ákveðnar hugmyndir era í gangi,“ sagði Magnús. „Það fór fram ákveðin samkeppni um byggingarframkvæmdir, þar sem gert er ráð fyrir leik- skóla, grannskóla, íþróttahúsi og sundlaug á svæðinu, sem er að meginhluta til sunnan við Sólvang, og leikskólinn aftur nær örlítið niður á Hörðuvell- ina sjálfa. Bæjaryfirvöld hafa áform í málinu og það er auð- vitað ykkur öllum kunnugt. Við tökum við þessum listum og skoðum málið. Það fær síð- an umfjöllun í bæjarstjóm," sagði Magnús. Morgunblaðið/Golli Valgerður Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar, tekur við undirskriftarlistum úr hendi Guðfinnu Guðmundsdóttur. Á milli þeirra stendur Magnús Gunnarsson bæjarstjóri. Skúlabakki: Hugmynd að uppfyllingu og viðlegukanti fyrir skemmtiferðparskip Borgin væri að missa við- skipti sem hún gæti haft af skipum og ferðamönnum og gæða myndu miðborgina lífi. Borgarfulltrúinn sagði brýnt að borgarstjórn tæki afstöðu til þessarar breytingar vegna vinnu við fjárhagsáætlun borgarinnar. Tillagan hlaut ekki stuðning í hafnarstjórn og óskaði hún eftir að breyt- ingartillagan yrði borin sér- staklega upp á borgarstjórn- arfundinum. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri lagði til að málinu yrði vísað til meðferð- ar við gerð fjárhagsáætlunar og var það samþykkt með átta atkvæðum meirihlutans. Tekist á um skipulagsmál við Vatnsenda og Elliðavatn í bæjarráði Kópavogs Kópavogslisti segir breyt- ingartillögur vera yfirklór Kópavogur KÓPAVOGSLISTINN segir breytingartillögur meirihluta Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks varðandi skipu- lag Vatnsendasvæðisins ekk- ert annað en yfirklór og leiktjöld til þess hönnuð að reyna að bjarga málflutningi meirihlutans í málinu. Á bæj- arráðsfundi á föstudaginn var tekist á um málið, en rneiri- hlutinn telur að tillögurnar séu til bóta fyrir svæðið. Á fundinum lögðu fulltrúar Kópavogslistans fram eftir- farandi bókun: „Breytingartil- lögur meirihluta Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks við skipulagshugmyndir á Vatns- enda sýna að þeir era orðnir hræddir við sterk viðbrögð frá öllum almenningi í málinu. Það er ástæða til að óska íbú- unum og öðram, sem mótmælt hafa, til hamingju með þann árangur." Fulltrúar Kópavogslistans gagnrýna einnig þau vinnu- brögð sem viðhöfð voru við kynningu á breytingartillög- unum. „Vinnubrögðin við kynn- ingu á nefndum breytingartil- lögum era slík, að jafnvel hjá þessum meirihluta hefur ekki sést annað eins. Málið er állt unnið í mikilli leynd og felum. Lagt er í kostnað sem aldrei fyrr við gerð myndefnis og tölvugrafík, til að reyna að selja afurðina. Formaður skipulagsnefndar laumast síð- an af fundi nefndarinnar án þess að segja nefndinni nokk- uð og kynnir hugmyndirnar á blaðamannafundi með bæjar- stjóra og formanni bæjarráðs. Allt þetta leikrit miðar aðeins að því að reyna að telja mönn- um trú um að tillögumar feli í sér einhverjar raunveralegar breytingar. Tillögur fela aðeins í sér smá lagfæringar Að mati fulltrúa Kópavogs- listans fela tillögumar aðeins í sér smá lagfæringar. „Eitt hús er tekið út af skipulagi milli vatns og vegar. Hætt er við fyrirhugaða leik- skólalóð. Hætt er við fótbolta- völl, sem staðsettur var á einkalóð. Og að lokum er vest- asti hluti F-reits, þar sem fyr- irhugaðar eru 6 og 5 hæða blokkir settur í frest og verður endurskoðað samhliða þeirri skipulagsvinnu sem hafin er á norðursvæði Vatnsendalands. Ekki er fallið frá neinum af meginforsendum skipulagsins og ekki er komið til móts við athugasemdir íbúa og annarra aðila. Því era tillögumar ekk- ert nema yfirklór og leiktjöld til þess hönnuð að reyna að bjarga málflutningi meirihlut- ans í Vatnsendamálum. Þeim málflutningi verður ekki bjargað og þó formaður bæj- arráðs dragi nú mjög í land í málfutningi sínum og tali um vikmörk í eignamámssáttinni og vilji allt í einu eiga gott samstarf við Reykjavíkurborg um sameiginleg málefni í kringum Elliðavatn stendur meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eftir ber- strípaður og rökþrota í mál- inu.“ Fulltrúar Kópavogslistans telja að Vatnsendamálum ljúki ekki fyrr en samþykkt verði skipulag, sem sé í sátt við menn og náttúra. Hringlandaháttur K-listans Fulltrúar meirihlutans gerðu lítið úr gagnrýni Kópa- vogslistans og létu bóka eftir- farandi: „Meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks þótti sjálfsagt að koma til móts við óskir Vatnsendabúa svo sem lofað hafði verið, enda eru þær breytingar, sem gerðar vora einmitt varðandi þau atriði, sem flestar athugasemdir voru gerðar við. Tillögur að breyttu skipulagi era til bóta fyrir svæðið. Meirihlutinn hef- ur ekkert að fela í þessu máli, en hringlandaháttur K-listans heldur áfram.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.