Morgunblaðið - 08.11.2000, Síða 27

Morgunblaðið - 08.11.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 27 LISTIR Morgunblaðið/Jim Smart Frá kór- og organistanámskeiði í Skálholti á vegum söngmálastjóra þjóðkiriqunnar. Haukur Guðlaugs- son söngmála- stjóri heiðraður SÖNGMÁLASTJÓRI þjóðkirkjunn- ar, Haukur Guðlaugsson, var heiðraður fyrir nokkru á árlegu kóra- og organista- námskeiði emb- ættisins í Skál- holti. Organistar, kór- ar og söngfólk þökkuðu Hauki áratuga störf ______________hans og heiðr- Haukur uðu á ýmsan Guðlaugsson hátt og færðu honum gjafir að sögn Ingimars Pálssonar, eins þeirra sem þátt tóku í námskeiðinu. Haukur Guðlaugsson ráðgerir að láta af störfum á næsta ári og var námskeiðið því það síðasta sem hann heldur en það var hið 26. í röðinni á embættisferli hans. Haukur tók við embætti söngmála- sljóra þjóðkirkjunnar af Róbert Abraham Ottóssyni og hefur hann samhliða verið skólastjóri Tón- skóla þjóðkirkjunnar. Hlutverk hans er að mennta og leiðbeina organistum og söngfólki í kirkju- kórum landsins. Hefur verið tölvu- sett og gefið út mikið af nótna- bókum og ritum og sjálfur hefur Haukur verið óþreytandi að ferð- ast um landið til að leiðbeina og uppörva kóra og organista, segir Ingimar. Segir hann að góðan ár- angur í starfinu megi, auk Hauks, þakka hæfu samstarfsfólki hans. Fékk geisladiska með eigin hljóðritunum Eins og fyrr segir heiðruðu org- anistar, söngfólk, kór og hljóð- færaleikaramir Guðný Guðmunds- dóttir og Gunnar Kvaran Hauk á ýmsan hátt. Honum voru meðal annars færðir tveir geisladiskar með hljóðritunuin af orgelleik hans heima og erlendis en Máni Sigurjónsson organisti valdi upp- tökurnar. Aðeins er gefið út eitt eintak. Við afhendinguna sagði Máni hafa verið erfitt að velja úr öllum upptökum Hauks og margir úr röðum kórafólks og organista þökkuðu Hauki aðstoð og velvilja gegnum árin. Haukur þakkaði hlýhug og gjaf- ir viðstaddra og Grímhildi Braga- dóttur, eiginkonu sinni, sérstak- lega fyrir stuðning í starfi sínu. Á námskeiðinu söng Guðrún Tómas- dóttir einsöng við undirleik Fríðu Lárusdóttur, píanóleikara frá Akranesi, og siðan guðsþjóuustu í Skálholtskirkju þar sem biskup ís- lands, Karl Sigurbjörnsson prédik- aði. Tók tónlistarfólk víða af land- inu þátt í guðsþjónustunni og segir Ingimar hana hafa verið jafn vandaða og námskeiðið allt í heild sinni. Tónleik- um Trio Nordica frestað VEGNA veikinda getur ekki orðið af tónleikum Trio Nordica (skipað þeim Auði Hafsteins- dóttur, Bryndísi HöUu Gylfa- dóttur og Monu Sandström), sem vera áttu í TIBRA tónleika- röð Salarins mánudagskvöldið 13. nóvember næstkomandi. Tónleikunum verður frestað fram yfir áramót og er tónleika- gestum sem þegar hafa fest kaup á miðum bent á að hafa samband við Salinn í síma 570 0400. Aðsendar greinar á Netinu <§) mbl.is _ALL7y\f= &TTHWk& /\IÝ7~T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.