Morgunblaðið - 08.11.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 33
UMRÆÐAN
Samtaka um betri
næringu
MIKIÐ er fjallað um
næringarfræði í fjöl-
miðlum og stundum á
fólk erfitt með að leggja
mat á fréttirnar. Meiri
kennsla í næringar-
fræði á öllum skólastig-
um er nauðsynleg til
þess að fólk eigi auð-
veldara með að greina
milli þess sem er rétt og
rangt varðandi hollt
mataræði, og á milli að-
alatriða og aukaatriða.
Eg dáist samt oft að
heilbrigðri skynsemi
fólks þegar kemur að Inga
umgengninni við þenn- Þórsdóttir
an nauðsynlega lífs-
förunaut sem maturinn er. Það sem
skiptir mestu í dag er annars vegar
að þeir sem viija bæta upplýsingu á
sviði manneldismála snúi bökum
saman og stundi ekki hártoganir út
af aukaatriðum og hins vegar að við
leggjum meiri rækt við að rannsaka
samhengið milli mataræðis og heilsu.
Næringarfræðilegar rannsóknir sem
beinast að séríslenskum aðstæðum
færa okkur þekkingu til að bæta eig-
ið mataræði og einnig þekkingu sem
gefur umheiminum miídlvægar upp-
lýsingar.
Manneldisráð,
grænmeti og ávextir
Með stefnu sinni til bættrar heilsu
leggur Manneldisráð mikla áherslu á
að Islendingar þurfi að borða meira
af grænmeti og minna af sykri. I
fræðsluefni fi'á skrifstofu ráðsins er
lögð á þetta mikil áhersla. Starfs-
menn skrifstofunnar, næringarfræð-
ingarnir Hólmfríður Þorgeirsdóttir,
sem einnig er matvælafræðingur, og
doktor.Laufey Steingrímsdóttir for-
stöðumaður, hafa samið og sent slíkt
fræðsluefni í skóla, heilsugæslu og
víðar og er það mikið notað.
Manneldisráð berst hart fyrir því
að verð á grænmeti verði lækkað og
er það nú til athugunar hjá heilbrigð-
isráðuneyti og landbúnaðarráðu-
neyti. Mikið var fjallað um tolla á
grænmeti og ávöxtum á málþinginu
„Manneldi á nýrri öld“, sem var hald-
ið í Háskóla íslands síðastliðið vor. A
málþinginu var fjallað um málið frá
sjónarhóli hagfræðinnar og næring-
arfræðinnai' og þar kom einnig fram
að lækka mætti orkugjald til græn-
metisbænda og yrði þá íslenska
grænmetið ódýrara. Stefnt er að
minnkaðri sykurneyslu í einu af sjö
manneldismarkmiðum fyrir íslend-
inga, og það undirstrikar hversu
mikilvægt þetta er talið fyrir heilsu-
far þjóðarinnar. Mest af viðbættum
sykri í fæði okkar kemm- úr gos-
drykkjum og það þarf stórátak til að
minnka sykurneyslu, sérstaklega
meðal barna og unglinga. Koffein í
gosdrykkjum hefur líka slæm heilsu-
farsleg áhrif. Það hefur verið þekkt
lengi að viðbættur syk-
ur er ekki æskilegur
fyrir heilsuna og getur
stuðlað að offitu. Þetta
er vel þekkt meðal al-
mennings og er ekkert
sem var uppgötvað í
gær. Það er jafnframt
réttlætismál íýrir neyt-
endur að matvæli séu
vel merkt og getið sé
um á umbúðum hversu
mikinn viðbættan syk-
ur þau innihaldi.
Margt gott er í
stefnu Náttúrulækn-
ingafélags fslands. í er-
lendum félögum þeirra
sem aðhyllast neyslu
grænmetisfæðis, eða fæðis án kjöts
og fisks, má finna allmarga næring-
arfræðinga. Aldrei hefur heyrst um
að þeir sem aðhyllast svokallaða
náttúrulækningastefnu telji að
byggja beri hollt mataræði á dýrafitu
og próteinum. Heldm- á þriðja orku-
gjafa fæðunnar, kolvetnum. Þau eru
Heilsa
Næringarfræðin, segir
Inga Þórsdóttir,
er fyrst og fremst
í þágu neytandans og
heilsu hans.
aðalorkugjafi mannkyns, enda rækt-
un þeirra ódýrari og umhverfisvænni
en ræktun búpenings sem gefur af
sér mun meira af fitu og próteinum.
Kenningar eru til um að fyrir langa
löngu þegar maðurinn náði eingöngu
um 30 ára aldri hafi hann lifað á afar
próteinríku fæði, en þetta var áður
en jarðrækt hófst og lifað var á veið-
um villtra dýra og orkulitlum rótum
og blöðum jui-ta. Eg tek enga ábyrgð
á þessari kenningu, en set hana fram
til að minna menn á nytsemi orku-
gjafa úr jurtaríkinu. Þar ættu menn
sem aðhyllast hina gömlu náttúru-
lækningastefnu að vera sammála
mér. Við verðum líka að vara okkur á
að stilla ekki upp ágreiningi eða
missa umræðuna út í að rífast um
smáatriði. Skoða verður manneldis-
stefnu sérhvers lands í ljósi þeirra
hefða sem þar ríkja. Manneldisstefna
og -markmið ei-u sett fram til þess að
vinna að bættu mataræði heillar
þjóðar og þá er auðvitað tekið tillit til
þeirra hefða og venja sem fyrir eru
og ýtt undir þær sem eru jákvæðar
fyrir heilsuna en að öðru leyti reynt
að kenna fólki nýja siði.
Rannsóknir
mikilvægar
Eitt af hlutverkum Manneldisráðs
er að fylgjast reglulega með matar-
æði þjóðarinnar og sníða leiðbeining-
ar um fæðuval meðal annai's eftir
niðurstöðum slíkra athugana. Nú er
nauðsynlegt að gera landskönnun á
mataræði Islendinga, sú síðasta var
gerð árið 1990 og niðurstöður hennar
því að mörgu leyti orðnar úreltar. Ný
rannsókn er bráðnauðsynleg, meðal
annars ef við ætlum að geta borið
okkur saman við aðrar þjóðir og ekki
síður til að meta og bæta okkar eigið
mataræði.
Rannsóknastofa í næringarfræði
við Háskóla íslands og Landspítala
hefur stundað rannsóknir meðal ann-
ars á næringu mæðra og ungra
barna. Sama rannsóknastofa hefur
skipulagt og stjórnað rannsókn á
næringarfræðilegum ástæðum þess
að nýgengi sykursýki af gerð 1, eða
barnasykursýki, er meira en helm-
ingi lægri hérlendis en meðal ná-
grannaþjóða okkar. Þær rannsóknir
hafa aðallega beinst að samanburði á
íslenskri og erlendri kúamjólk með
tilliti til áhrifa í líkamanum og holl-
ustugildis. Rannsóknaniðurstöður
hingað til benda sterklega til sér-
stöðu íslensku kúamjólkurinnar og í
síðastliðnum mánuði birtist grein um
þær í þekktu bandarísku vísinda-
tímariti. Brýnt er að halda þessum
rannsóknum áfram. Bæði þarf að
meta áhrif fleiri efna í kúamjólkinni
en hingað til hefur verið gert og
rannsaka aðra hugsanlega þætti
mataræðis sem tengjast tilkomu syk-
ursýki. Ef íslenska kúamjólkin hefur
sérstöðu er mjög líklegt að þeir eigin-
leikar hafi víðtækari heilsufarsleg
áhrif. Nú er útlit fyrir að rannsókn-
imar geti ekki haldið áfram þrátt
GRACE
Nvbýlave
ROSNER
Kvensíðbuxur
þrjár skálmalengdir
mikið úrval
Suðurlandsbraut 50, sfmi 533 0100,
(bláu húsin við Fákafen).
Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16.
fyrir mikinn áhuga íslensks almenn-
ings og erlendra aðila. Styrktaraðilar
sem hafa kostað hluta rannsóknanna
'í tvö og hálft ár, Tæknisjóður Rann-
sóknarráðs Islands og mjólkuriðnað-
urinn, treysta sér ekki til að styrkja
verkefnið áfram. Þetta er meðal ann-
ars vegna þess að hefð er fyrir því að
Tæknisjóður styrki verkefni rann-
sóknastofnana atvinnuveganna og
það er hreinlega ekki fé afgangs til
verkefna eins og þess sem hér um
ræðir. Ef sækja á um styrk til Tækni-
sjóðs er einnig skilyrði að iðnaðurinn
eða stofnanir hans leggi að minnsta
kosti jafnháa fjárhæð til, en það get-
ur í sjálfu sér verið ókostur þegar um
rannsókn eins og þessa er að ræða.
Því er mikilvægt að ríkissjóður styðji
rannsóknh-nar. Það er reyndar eina
leiðin til þess að íslenskir aðilar haldi
áfram næringarfræðilegum rann-
sóknum sem tengjast kúamjólk. Réði
næringarfræði mannsins yfir að-
stöðu og rannsóknastofnunum í ein-
hverri líkingu við ýmsar aðrar grein-
ar, eins og til dæmis landbúnaður eða
fiskiðnaður, væri málið auðleyst. Það
er erfitt að finna fjárhagslega bak-
hjarla þegai- um er að ræða vísinda-
grein sem gagnast fyrst og fremst al-
menningi. Næringarfræðin er fyrst
og fremst í þágu neytandans og
heilsu hans. Þess vegna er mikilvægt
að stuðla að vexti hennar.
Höfundur er prófessor í næringar-
fræði og fomiaður Manneldisráðs.
Frifnrm
M O N S O 0 N
M A K E U P
lifandi litir
HUSASKILTI
Vönduð ryðfrí húsaskilti
Fjölbreytt myndaval
Pantið tímanlega
til jólagjafa.
Dúndurtil
20% afsláttur
af öllum rúmum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Ein mesta selda heilsudýna í heiminum
Rekkjan hf.
Skipholti 35 • sími 588 1955
1Z0 milliénir
^ Aðeins 25 kr. röðin!
th!!!
Fyrir kl. 17 í daq.
v I K I N G A
l vm
Til mikils að vinna!
www.lotto.is