Morgunblaðið - 08.11.2000, Side 49
MORGUNB LAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000
KIRKJUSTARF
Vélindabakflæði -
hjálpar skurðaðgerð?
Vélindabakflæði er
algengur kvilK í eM
hluta meltingarvegar.
Algengustu einkennin
eru brjóstsviði og nábít-
ur. Rúmlega 40% lands-
manna flnna fyrir ein-
kennum bakflæðis af og
til, og 12.500 manns
hafa það mikil einkenni
að það háir þeim í dag-
legulífi
Vélindabakflæði get-
ur verið á vægu stigi,
þ.e. einkenni sjaldnar
en tvisvar í viku, og þá
geta breytingar á mat-
aræði og lífsstíl nægt til
að bæta líðan viðkomandi. Bakflæði
getur einnig verið slæmt, 2 sinnum í
viku og jafnvel oft á dag, þannig að
líðan sjúldingsins er afleit og lífsgæði
veruleg skero.
Alvarlegir fylgikvillar bakflæðis
eru m.a. svæsin bólga, þrengsli í vél-
inda, sár og frumubreytingar, sem
taldar eru forstigsbreytingar krabba-
meins, í neðri hluta vélinda. Þessa
fylgikvilla fær fólk venjulega eftir
mikið bakflæði í áraraðir. Með því að
greina og meðhöndla véhndabakflæði
er, í flestum tilvikum, hægt að koma í
veg fyrir þessa fylgikvilla.
Sögulegnr bakgrunnur
Fyrsta árangursríka meðferðin við
vélindabakflæði varð til 1956, þegar
dr. Nissen gerði aðgerð á ungum
manni með mikið bakflæði og
þrengsli í vélinda. Fleiri svipaðar að-
gerðir fylgdu í kjölfarið. Næstu 2 ára-
tugina var aðgerð eina meðferðin sem
var í boði fyrir sjúklinga með slæmt
bakflæði. Þetta voru stórar aðgerðir,
gerðar um stóran holskurð á kvið eða
um vinstra brjósthol, en ái-angurinn
almennt góður. Með tilkomu nýrri
lyfja hefur meðferð breyst síðustu ár-
in. Rannsóknir hafa aukið mjög skiln-
ing manna á sjúkdómnum, meingerð
hans og virkni meðferðar, og enn
fremur bætt forsendur fyrir vali á
mismunandi meðferðarmöguleikum.
Arið 1990 var byrjað að gera aðgerðir
við véhndabakflæði um kviðsjá (smá-
göt á kviði). Aðgerðin sjálf (inni í
kviðnum) er sú sama og ef gerður er
holskurður, en með því
að opna ekki kviðinn er
inngripið miklu minna
fyrir sjúklinginn. Hann
hefur mun minni eftir-
köst eða verki, getur
farið að drekka og
borða að kveldi aðgerð-
ardags og er mun fljót-
ari að_ ná fyrri starfs-
getu. í dag er aðgerð
um kviðsjá það sem
sjúkUngum er boðið
upp á, ef þörf krefur.
Aðgerð fyrir hverja?
Aðgerð er nánast
aldrei fyrsta meðferð-
arúrræðið. Áður en að aðgerð kemur
þarf að rannsaka sjúkling og meta
svörun hans við lyfjameðferð. Með
magaspeglun, sýrustigs- og þrýst-
ingsmælingu í vélinda er hægt að
Bakflæði
Miklar framfarir, segir
Margrét Oddsdóttir,
hafa orðið í greiningu á
vélindabakflæði og með-
ferðarmöguleikum.
greina vélindabakflæði, meta áhættu
á fyigikvillum og árangur meðferðar.
Aðgerð er rétt að íhuga ef sjúkling-
ur hefur bakflæði, sem leitt hefur eða
mun líklega leiða til, alvarlegra fylgi-
kvilla eins og þrengsla, sárs og
frumubreytinga í véUnda. Ef sjúkl-
ingur hefur einkenni, sem lyfin ná
ekki að halda niðri, eða er með óþol
fyrir lyfjunum, þá er skurðaðgerð úr-
ræði. Rétt er að kynna þennan kost
fyrir ungu fólki sem þarf að taka
sýruhemjandi lyf ævilangt.
Markmiðið með skurðaðgerð er að
stöðva bakflæði og fyrirbyggja alvar-
legar afleiðingar þess. Aðgerðin felst
í því að þrengja mótin á vélinda og
maga með því að vefja um þau efsta
hluta magans og laga þindarslit ef
það er til staðar. Þessar aðgerðir eru
yfirleitt gerðar um kviðsjá, þ.e. í
gegnum 5 göt á ofanverðum kvið og
taka þær 1-2 klukkutíma. Eftir að-
gerðina dvelja flestir í 2 daga á
sjúkrahúsinu. Þeir sem stunda erfið-
isvinnu geta flestir hafið störf eftir
u.þ.b. 1 mánuð frá aðgerð. Þeir sem
vinna skrifstofustörf og þeir sem geta
stjómað sínum tíma og vinnu sjálfir,
geta hafið störf að hluta eða öllu leyti
eftir 2-3 vikur.
Reikna má með góðum árangri af
aðgerð í yfir 90% tilfella. Sæmileg eða
léleg útkoma er hjá u.þ.b. 3-4% sjúkl-
inga, en algengustu ástæðurnar fyrir
lélegri útkomu er að viðgerðin gefi
sig, aðgerðin hafi tæknilega ekki ver-
ið rétt gerð, eða að greining eða
ákvörðun um aðgerð hafi ekki verið
rétt.
Fylgikvillar
Alvarlegir fylgikviilar véUndabak-
flæðis, í eða eftir aðgerð, eru sjald-
gæfir. Eftir aðgerðina þarf fólk að
vera á mjúku fæði í 3-7 vikur. Eftir 3
mánuði eru meira en 90% sjúklinga
farnir að borða allan mat í venjuleg-
um skömmtum. Hjá þeim, sem enn
eiga í einhverjum erfiðleikum með
kyngingu eftir 4-6 mánuði, er rétt að
fá röntgenmynd og speglun til að
skoða aðgerðarsvæðið. Eftir aðgerð
er ekki eins auðvelt að ropa og kasta
upp og fyrir aðgerð. Eftir aðgerð má
reikna með að loftgangur aukist í
nokkra mánuði, sérstaklega ef hann
hefur verið fyrir hendi fyrir aðgerð-
ina. Eftir u.þ.b. 6 mánuði hafa þau
einkenni yfirleitt rénað eða eru komin
í fyrra horf.
Vélindabakflæði er algengur sjúk-
dómur sem leiðir til skertra lífsgæða
hjá þeim sem hann hrjáir. Þessi kvilli
spannai- vítt svið hvað varðar ein-
kenni, alvarleika og tíðni einkenna og
fer ekki í manngreinarálit. Miklar
framfarir hafa orðið undanfarna ára-
tugi í greiningu á vélindabakflæði og
meðferðarmöguleikum, auk skUnings
á meingerð sjúkdómsins og gangi
hans. í dag er hægt með réttri með-
ferð að bæta líðan langflestra ef ekki
allra og koma í veg fyrir fylgikvilla
sem geta komið eftir mikið og lang-
varandi vélindabakflæði.
Höfundur er dósent og skurðlæknir.
V ond vinnubrögð
Á ALÞINGI mánu-
daginn 30. október sl.
ræddi þriðji þingmaður
Yesturlands, Jóhann
Ársælsson, löggæslu-
mál á svæðum sýslu-
manna á Akranesi og í
Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu. Opinberaði
þingmaðurinn þar m.a
þá skoðun sína að
stækka ætti lögsagnar-
umdæmi sýslumanns-
ins á Akranesi en
minnka að sama skapi
lögsagnarumdæmi
sýslumanns Mýra- og
B orgarfj ar ðarsýslu.
LöggæslumáUn sagði
hann í ólestri til margra ára! Hvar
hefur háttvirtur þingmaður aUð aldur
sinn undanfarin ár?
Fyrir réttu ári kannaði dómsmála-
ráðherra, Sólveig Pétursdóttir, vilja
hreppsnefnda sveitahreppanna fjög-
urra sunnan Skarðsheiðar gagnvart
þessu máU. Hann var á einn veg. Allh’
vildu áfram njóta þjónustu sýslu-
mannsembættisins í Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu
Lögregluembættin á báðum þess-
um svæðum hafa á að skipa reyndum
löggæslumönnum sem almenn
ánægja er með og hafa sinnt sínu
starfi vel. Milli embættanna er í gildi
samstarfssamningm- varðandi lög-
gæsluna og samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem ég hef er það á áætlun em-
bættanna að auka enn á samvinnu.
Eins og dómsmálaráð-
herra segir í svari sínu
tU þingmannsins hafa
engin vandamál komið
upp og samstarfið verið
gott. Hvaðan umræða
um samstarfsörðug-
leika er komin verður
Jóhann Ársælsson að
svara fyrir.
Það era afskaplega
vond vinnubrögð, að
mínu mati, af hálfu
þriðja þingmanns Vest-
urlands, að hefja máls á
slíku í Álþingi og varpa
þar fram fyrirspurn
sem byggist á sögu-
sögnum. Slík vinnu-
brögð eru fyrir neðan allar hellur og
ekki til neins annars en vekja úlfúð og
óróa meðal starfsmanna. Þá er um-
ræða af þessum toga til þess fallin að
grafa undan tiltiú almennings á lög-
gæslunni á svæðinu.
Jóhann ræðir um höfðingja í héraði
og einhverja oddvita. Satt að segja
finnst mér óviðkunnanleg sú háttsemi
sem þingmaðurinn hefur sýnt í þess-
ari umræðu, ekki verður annað séð en
að hann tali í hálfkveðnum vísum.
Hver er þá raunveruleg ástæða
þessarar umræðu sem Jóhann Ár-
sælsson fer af stað með á Alþingi?
Kann að vera að eitthvað fleira
hangi á spýtunni?
Eiga ekki þingmenn okkar að vinna
að því að koma opinberum störfum í
auknum mæU frá höfuðborgai-svæð-
Löggæzla
Það eru afskaplega vond
vinnubrögð, segir
Helga Halldórsdóttir,
að varpa fram fyrir-
spurn sem byggist á
sögusögnum.
inu út á land? Er það yflrlýst stefna
þingmannsins og samfylkingarinnar
að reyna að plokka embættin frekar
milU sveitarfélaga hvers kjördæmis
og fela þannig aðgerðarleysi sitt
gagnvart tilfærslu starfa frá höfuð-
borgarsvæðinu?
Það er miklu frekar verðugt verk-
efni þingmannsins að efla góðan
vinnuanda innan umræddra embætta
og stuðla að enn betra samstarfi.
Að lokum þetta: Þessi mál hafa ver-
ið könnuð af hálfu dómsmála-
ráðherra, Sólveigai- Pétursdóttur, og
niðurstaðan sú að engra breytinga sé
þörf en að efla beri enn frekar gott
samstarf milU embættanna._
Þingmaðurinn Jóhann Ársælsson
ætti að taka hugarfar dómsmála-
ráðheiTa í þessu máU sér til fyrir-
myndar.
Höfundur er varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Vesturlandi.
Helga
Halldðrsdóttir
Safnaðarstarf
Fjölskyldu-
guðsþjónusta
SUNNUDAGINN 12. nóvember kl.
13:00 verður fjölskylduguðsþjónusta
í Dómkirkjunni. Börn á leikskólan-
um Dvergasteini ætla að flytja nokk-
ur lög, sem þau hafa verið að æfa.
Leikhópurinn Stopp mun sýna leik-
ritið Osýnilegi vinurinn, sem er
byggt á bók Kari Vinje, en sagan er
flestum að góðu kunn, sem sækja
kirkjuskóla Dómkirkjunnar. Þetta
leikrit er fyrir alla aldurshópa og er
flutt af leikurunum Eggerti Kaaber
og Katrínu Þorkelsdóttur. Bolli Pét-
ur Bollason leiðir stundina og þess
er vænst að foreldrar komi með
börnum sínum og njóti góðrar sam-
verustundar í helgu húsi. Verið vel-
komin.
F.h. Dómkirkjunnar,
Bolli Pétur Bollason, fræðari.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil börn sín.
Ferð eldri borgara í
Þjóðmenningarhús-
ið. Lagt af stað frá
kirkjunni kl. 14 og
komið til baka upp
úr kl. 16.30. TTT-
starf (10-12 ára) kl.
16.30.
Hallgrímskirkj a.
Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna
kl. 10-12. Bibh'ulest-
ur kl. 20 í umsjá sr.
Sigurðar Pálssonar.
Háteigskirkja.
Kvöldbænir og fyrir-
bænir í dag kl. 18.
Langholtskirkja.
Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12-
12.30. Orgelleikur og
sálmasöngur. Fyrir-
bænaefnum má
koma til sóknar-
prests og djákna.
Eftir kyrrðarstund-
ina er létt máltíð í
boði í safnaðarheim-
ili kirkjunnar. Opið
hús fyrir eldri borg-
ara kl. 11-16. Kaffi-
sopi, spjall, heilsup-
istill, létt hreyfing,
slökun og kristin íhugun. Við göng-
um til bænagjörðar í kirkjunni kl. 12.
Að henni lokinni er sameinast yfir
kærleiksmáltíð (kr. 500). Síðan er
spilað, hlustað á upplestur eða málað
á dúka og keramik. Eldri borgurum
sem komast ekki að öðrum kosti til
kirkjunnar er boðið upp á akstur að
heiman og heim þeim að kostnaðar-
lausu. Hafið samband við Svölu Sig-
ríði Thomsen djákna í síma 520-1314.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45-7.05. Kirkjuprakkarar (6-9 ára)
kl. 14.30. Fermingarfræðslan kl.
19.15. Unglingakvöld Laugarnes-
kirkju, Þróttheima og Blómavals kl.
20. (8. bekkur).
Neskirkja. Orgelandagt kl. 12. Jónas
Þórir organisti spinnur af fingrum
fram stef úr sálmum. Ritningarorð
ogbæn. Opið hús kl. 16. Kaffiveiting-
ar. Bænamessa kl. 18. Sr. Halldór
Reynisson.
Seltjarnarneskirkja. Kyi-rðar- og
bænastund kl. 12. Léttur málsverður
á eftir í safnaðarheimilinu. Starf fyr-
ir 11-12 ára börn kl. 17.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13-16. Hand-
mennt, spjall og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er
hægt að koma til presta safnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnað-
arheimilinu eftir stundina. Kirkju-
prakkarar. Starf fyrir 7-9 ára börn
kl. 16. TTT starf fyrir 10-12 ára kl.
17.15.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf
KFUM&K og Digraneskirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Kyrrðai’- og
bænastund kl. 12. Léttur hádegis-
verður í safnaðai’heimilinu eftir
stundina. Opið hús fyrir fullorðna til
kl. 15. Bæna- og þakkarefnum má
koma til Lilju djákna í síma 557-
3280. Látið einnig vita í sama síma ef
óskað er eftir keyrslu tU og f?a
kirkju. Starf fyrir 9-10 ára stúlkur
kl. 15-16. Biblíulestur kl. 17.30 í um-
sjón sr. Hreins Hjartarsonar. Helgi-
stund í Gerðubergi á fimmtudögum
kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Boðið er upp á léttan hádegis-
verð á vægu verði að lokinni stund-
inni. Allir velkomnir. KFUM fyrir
drengi 9-12 ára í dag kl. 16.30-17.30.
Kirkjukrakkar í Engjaskóla kl. 18-
19.
Iljallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl,
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Kópavogskirkja. Samvera 8-9 ára
bama í dag kl. 16.45-17.45 í safnað-
arheimilinu Borgum. TTT samvera
10-12 ára barna í dag kl. 17.45-18.45
í safnaðarheimilinu Borgum.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund
í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir
velkomnir. Léttur kvöldverður að
stund lokinni. Tekið á móti fyrir-
bænaefnum í kirkjunni og í síma 567-
0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 14-16.30. Helgistund,
spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr-
irbænir, léttur málsverður á eftir í
Ljósbroti, Strandbergi kl.13.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 18. Bænarefnum má
koma til sóknarprests, djákna og
starfsmanna kirkjunnar í síma 566-
7113 og 566-8028.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl.
12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samverustund í
Kirkjulundi kl. 12.25, súpa, salat og
brauð á vægu verði. Allir aldurshóp-
ar. Umsjón Ásta Sigurðardóttir.
Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19 og
lýkur í kirkjunni um kl. 22.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Klr
11 helgistund í Hraunbúðum. Allir
velkomnir. 12-12.20 kyrrðarstund.
Velkomið að koma bænarefnum til
prestanna. Kl. 20 opið hús fyrir ungl-
inga 8., 9. og 10. bekkjar. Utanlands-
ferð næsta sumar verður kynnt laus-
lega. Spjallað saman um síðustu
mótsferð.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. STN-starf
fyrir 6-9 ára í dag kl. 16.30 í umsjá
Vilborgar Jónsdóttur.
Ffladelfía. Súpa og brauð kl. 18.
Kennsla kl. 19, ki’akkaklúbbur, ungl-
ingafræðsla, gi’unnfræðsla, kennsla
fyrir enskumælandi og biblíulesturr
Allir velkomnir.
Boðunarkirkjan. I kvöld kl. 20 held-
ur áfram námskeið þar sem dr.
Steinþór Þórðarson kennir þátttak-
endum að merkja Biblíuna en eftir
slíkt námskeið verður Biblían að-
gengilegri og auðveldara að fletta
upp í henni. Allir velkomnir og a<\
gangur kostar ekkert.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ddmkirkjan í Reykjavík.