Morgunblaðið - 08.11.2000, Page 50

Morgunblaðið - 08.11.2000, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 *------------------------------ MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ STEINGRIMUR GUNNARSSON + Steingrímur Gunnarsson fæddist í Reykjavík 17. september 1932. Hann lést hinn 19. október siðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnar- fjarðarkirkju 27. október. Elsku bróðir minn. Nú ert þú farinn í þitt " síðasta ferðalag. Allt- af er erfitt að kveðj- ast og við stöndum eftir með söknuð í hjarta og tár í augum. Minningarnar eru margar og huggum við okkur við þær og að við eigum öll eftir að hittast aftur hjá Guði vorum og frelsara. Brosið þitt blíða, þín skemmtilega og góða lund, ástin og umhyggjan fyrir öllum í þinni fjölskyldu var á allra vitorði. Alltaf var hægt að leita til þín þegar með þurfti. Mömmu varst þú góður og elsk- andi sonur, og okkur Óla góður bróðir. Góður varstu mágur og frændi. Sem börn lékum við okkur ? oft í fjörunni í vesturbænum og þá þurftuð þið Sonný bróðir að drasl- ast með okkur Óla í eftirdragi. Það ^ ^ 5 ý' OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN ADALSTRÆIl íii • 101 Kl YKjAVÍK Davið Inger Ólafur Utjiirarstj. Otfar/irstj. Útfararstj. LÍKKISTÚ VINNUSTOFA EYVINDAR ÁRNASONAR hét víst að passa, en ykkur fórst það vel úr hendi. Sú pössun hef- ur haldist öll árin hjá þér. Eftir að ég giftist og fór út í heiminn var alltaf mikil til- hlökkun að komast heim í frí og þá urðu nú heldur fagnaðar- fundir. Þið Hjördís hélduð „fjölskyldu- gill“, þá var heldur glatt í Mávahrauni hjá ykkur, mikið talað og hlegið. Gleði okkar Gene var mikil þegar þið Hjördís komuð til Texas að heimsækja okkur, en dagarnir liðu allt of fljótt. Þegar Gene veiktist hringduð þið strax: „Hvað getum við gert?“ Enn var verið að passa. Trú þín á Guð og góða menn var mikil. Ef spurt var um líðan þína var svarið alltaf: „Þetta lagast," þótt sárþjáður værir. í september átti ég yndislega daga með ykkur öllum og síðasta ferðin okkar sam- an var að fara að Varmalandi í heimsókn til Irisar og Jóns. Borgarfjörðurinn skartaði sínu fegursta í yndislegu veðri. Hvað við nutum þess að vera saman og myndir teknar sem minning um góðan dag. Hjördís mín, þú hefur verið stoð hans og stytta í gegnum þessa erf- iðu mánuði, ást þín og umhyggja var óendanlega mikil. Þú og börn- in hans voruð hjá honum öllum stundum og umvöfðuð hann ást og styrk. Missir ykkar og okkar allra er meiri en orð geta lýst. Heim- koman hefur verið góð. Pabbi, Sonný, Raggi og Þorsteinn tengdafaðir þinn hafa tekið á móti þér er ég viss um. Ég fel í forsjá þína, guð faðir sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma, og pfa engla geyma, öll börnin þín svo blundi rótt. (Matth. Joch.) Hjördís mín, Iris, Sonný, Lára, Magga og Rabbi, tengdabörn og barnabörn, við sendum ykkur öll- um samúðarkveðjur. Elínborg (Lalla), Gene, Gunnar, Dóróthea, Helen, Tara og fjöl- skyldur. -» t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, UNA HALLDÓRSDÓTTIR frá ísafirði, Háaleitisbraut 40, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 5. nóvember. Þorgeir Hjörleifsson, Elísabet Þorgeirsdóttir, Arnaldur Máni Finnsson, Halldór Þorgeirsson, Sjöfn Heiða Steinsson, Berglind Halldórsdóttir, Hákon Atli Halldórsson. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími S51 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan V sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja V UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. BJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR + Björg Sæmunds- dóttir var fædd 29. ágúst 1913. Hún lést á sjúkrahúsi Pat- reksfjarðar 30. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Hólmfríður Kristó- fersdóttir og Sæ- mundur Ólafsson, bóndi f Litlu-Hlíð á Barðaströnd. Björg ólst upp í Litlu-Hlíð á Barðaströnd, hún var elst sinna systkina sem voru Guðrún Margrét, f. 10.6. 1916; Árdís, f. 28.1.1918 og Sturla Hólm, f. 9.8.1922. Björg giftist Guðmundi Jóhanni frá Innri-Múla á Barðaströnd 24.1. 1936 og byijuðu bú- skap sama ár á Ytri- Múla og fluttu svo til Patreksfjarðar 1961. Börn hennar: Fríða Valdimars- dóttir, f. 15.8. 1931, maki hennar Örn Hólmar Sigfússon; Kristján Jóhann Jó- hannsson, f. 2.3. 1939, maki hans Jenný Óladóttir, og Sæmundur Hólm Jó- hannsson, f. 24.2. 1943, maki hans Hrafnhildur Guð- mundsdóttir. Útför Bjargar Sæmundsdóttur fer fram frá Patreksfjaröarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku góða mamma mín! Þetta fasta ávarp alla tíð, sem ég man. Það er svo margt sem mig langar að setja á blað, þú varst mér alltaf svo góð, ég á bágt með að sætta mig við að geta ekki hringt og heyrt röddina þína. Það var svo fast- ur punktur hjá okkur og þó langt væri á milli vorum við alltaf í sam- bandi. Mamma var mjög trúuð kona og kenndi mér svo margt um hana. Hún hlustaði á útvarp og bænastundin á kvöldin var alveg fastur liður. Henn- ar sterku bænir hafa oft eða alltaf hjálpað okkur börnunum og barna- börnunum, því svo hún vildi hún líka öllum vel. Hún lagði aldrei styggðar- yrði til neins sem ég vissi til. Hún var sérlega dugleg og vildi helst allt- af vera að gera eitthvað fyrir alla. Hún byrjaði búskap sinn á því að annast þá sem aldraðir voru og gerði það af rausn og kærleika og hafði alltaf stórt heimili. Pabbi og mamma bjuggu á Barða- strönd í mörg ár, ég segi að það sé fegursta sveit sem ég hef séð. Mömmu þótti líka alltaf jafn vænt um þá sveit og alla þar. Það voru sárar stundir fyrir okkur öll þegar pabbi hvarf og hún náði sér aldrei eftir það. En fjölskylda hennar á Patreksfirði studdi hana við að setja upp fallegt heimili sem hún naut sín á, sérstaklega þegar hún fékk gesti sem flesta, það var hennar stíll. Hafði svo gaman af því að gefa og vera veitandi. Við Öm þökkum allar yndislegar stundir og alveg sérstaklega þær í sumar. Eftir að þú fórst að vera svo lasin og þurftir að vera á sjúkrahúsi Patreksfjarðar, sagðir þú við mig: „Það eru allir svo góðir við mig og yndislegir". Fyrir það viljum við öll færa sérstakar þakkir til allra á sjúkrahúsinu. Einnig viljum við þakka öllu sambýlisfólki hennar á Kambi. Þú barst sérstakan kærleika til allra þar. Góða samferðarfólk, guð launi ykkur fyrir það sem þið gerðuð fyrir mömmu mína. Ég þakka þau ár sera ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margt að minnast svo margt sem um hugann fer. Þ6 þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð þín minning er ljós sem lifir oglýsir umókomnatíð. (Þórunn Sig.) Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Guð geymi þig, elsku mamma mín. Þín dóttir, Fríða. SVANFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR + Svanfríður Guðjónsdóttir fæddist í Höfnum 5. nóvember 1921. Hún lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 23. október siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 31. október. Ég sendi þér kæra kveðju, nó komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, égbiðaðþósofirrótt. Þó svíði sorg mitt þjarta, þásælteraðvitaafþví, þólaus ertór veikinda viðjum, þínverölderbjörtáný. (Þórunn Sig.) Svanfríður vinkona mín lést á Sjúkrahúsi Akraness 23. október síð- astliðinn. Formáli minn- ingargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálf- um. Ég var svo lánsöm að geta verið við dánarbeð hennar þar til yfir lauk. Fyrir rétt tæpri öld kom Svanfríð- ur sem ráðskona til Guðmundar á Tröðum í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Traðir voru næsti bær við Staðastað þar sem ég átti þá heima og þá hófust kynni okkar. Oft þurfti að vitja um silunganetin í Vatnsflóanum niðri við sjó og við túnfótinn á Tröðum. Þá var gott að hvíla sig hjá Svanfríði, fá sér kaffisopa og spjalla. Þar var vel tekið á móti manni og gaman að koma. Þar undi Svanfríður sér vel enda var hún þar í átta ár. Hún var einstakur dýravinur og hændi dýrin að sér. Svo liðu 30 ár. Þá hittumst við aft- ur á Skaganum þegar við fluttumst báðar þangað og endurnýjuðum vin- áttuna. Svanfríður var alla tíð heilsu- tæp og ágerðist það með árunum. Nú gat ég komið við hjá henni, glatt hana og rétt henni hjálparhönd. Þá var líka gaman að rifja upp samveru okkar í sveitinni. Svanfríður mín. Nú ert þú komin heim, heim til Steinars sonar þíns sem þú saknaðir svo sárt, heim eins og þú þráðir svo mjög. Aldrei heyrði ég þig kvarta. Nú ertu ekki lengur ein. „Nú gengur þú frammi fyrir Drottni á landi lífenda og laus við þjáningar og dauðans kvöl“. Innileg- ar þakkir til allra sem hjúkruðu þér á Sjúkrahúsi Akraness. Hvíl í friði og takk fyrir allt. Þín Ásdis Þorgrímsdóttir (Dida). Elsku hjartans amma mín og langamma! Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi. Hin ljófu og góðu kynni af alhug þakka þér. Þbm kærleikur í verki, var gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Þessi orð segja allt um þína ástúð, hlýju og kærleika sem þú sýndir mér og börnunum mínum alla tíð. Og þér leið alltaf best þegar þú varst að gera eitthvað fyrir aðra, halda matar- eða kaffiboð fyrir fjölskyld- una, eða fá gesti í heimsókn, og það fór enginn svangur frá þínum borð- um. Minningarnar hrannast upp og allar svo ljúfar og góðar. Þegar ég var lítil og kom vestur á hverju sumri með mömmu og pabba til ykkar afa, hvað það voru yndis- legar og ljúfar stundir sem ég átti með ykkur sem barn. Afi að spila við mig og fara í leiki með mér og kenna mér að búa til hrútshorn og fleira skemmtilegt. Á meðan varst þú sí- starfandi að elda góðan mat, og aldrei kom ég vestur án þess að koma að drekkhlöðnu borði af alls kyns góðgæti og drekka heitt kakó með. Þín er svo sárt saknað, elsku amma mín, að nístir inn að hjarta- rótum. Það fyrsta sem Ólöf, Palli og Fríða Sædís sögðu þegar þau fréttu um andlát þitt var: „Hvernig jól verða það eiginlega eftir þetta, eng- inn pakki frá langömmu með ullar- sokkum og vettlingum?" Þau afbáru bara ekki þá hugsun, og ef eitthvert barnanna minna átti afmæli, þá fengu hin tvö alltaf litla pakka með, svo þau yrðu ekki útundan. Þú varst engill í mannsmynd í okkar huga, elsku amma mín. Þú og afi voru þær yndislegustu manneskjur sem við höfum kynnst, bæði svo hjartahlý og góð við allt og alla, það var sama hvort það var fólk eða dýr sem átti í hlut. Ég veit að þú ert laus við allar þjáningar núna, og ég veit að afi og Sædís hafa tekið vel á móti þér. Nú eruð þið afi aftur saman að nýju sem þú hefur saknað svo sárt síðan hann dó. Það er óbærilegur sársauki að missa þig, elsku amma mín og lang- amma. Ó, guð minn ávallt gæti þín, ég gleymi aldrei þér. Þín að eilífu. Sylvía Bryndís og börn. Fallin er frá ein af alþýðuhetjum þessa lands. Ein af þeim hetjum sem kunnu að rækta garðinn sinn í þeim skilningi að hlúa að þeim sem á þurftu að halda. í garði Bjargar Sæmundsdóttur var fjölskyldan hennar aðalgróður og að þeim gróðri hlúði hún með hlýju og ástúð. Eins var með alla þá er hjá henni dvöldu um lengri eða skemmri tíma, allir nutu ástúðar hennar og um- hyggju. Gestrisni og myndarskapur Bjargar í öllu er laut að heimilis- haldi var annálað. Ræktarsemi Bjargar mun um langan aldur skila sér í afkomendum hennar. Að leið- arlokum viljum við þakka þér alla þá tryggð og umhyggju sem þú hef- ur sýnt okkur og börnum okkar. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Megi góður Guð styrkja alla fjölskyldu Bjargar í sorginni. Ágústa og Jónas. Ég vil þakka þér, elsku amma mín, fyrir allar þær góðu stundir og yndislegu minningar sem ég geymi í hjarta mínu. Elsku amma, það er svo sárt að missa þig en ég veit að þú ert í góð- um höndum þarna uppi hjá afa og Sædísi. Ég á nú samt eftir að sakna þess mikið að fá ekki bréf frá þér lengur og hosur og að geta ekki sent þér myndir, en ég veit að þú vakir yfir okkur öllum og þá líður mér vel. Takk fyrir allt og guð geymi þig. Þín Ólöf Eyrún.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.