Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 08.11.2000, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000 i------------------------------ MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, Neðstabergi 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 9. nóvember kl. 15.00. Sölvi M. Egilsson, Einar M. Söivason, Hafdís Steina Árnadóttir, Svavar E. Sölvason, Heiða Sigrún Andrésdóttir, Lárus A. Sölvason, Daníel R. Sölvason og systkini. + Elskuleg eiginkona mín, tengdadóttir, móðir, tengdamóðir og amma, ODDNÝ EDDA SIGURJÓNSDÓTTIR, Laufási, Breiðdalsvík, sem lést sunnudaginn 5. nóvember, verður jarðsungin frá Eydalakirkju í Breiðdal, laugar- daginn 11. nóvember kl. 13.00. Bestu þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítala í Kópavogi. Baldur Pálsson, Hlíf Petra Magnúsdóttir, Elín Inga Baldursdóttir, Gunnar Valdimarsson, Hlíf Brynja Baldursdóttir, Eiríkur Már Hansson, Aðalbjörg Baldursdóttir, Páll Baldursson, Þórunn Björg Jóhannsdóttir, María Björg Gunnarsdóttir, Karitas Björt Óskarsdóttir, Marteinn Eiríksson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÓLAFUR BENEDIKTSSON, fyrrv. útsölustjóri ÁTVR, Akureyri, sem lést fimmtudaginn 2. nóvember, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 13.30. Sigríður I. Hallgrímsdóttir, Benedikt Ólafsson, Hallgrímur Ólafsson, Brynja Sigurmundsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Ingvi Jón Einarsson, Margrét Ólafsdóttir, Gunnar Pétursson, María Pétursdóttir og barnabörn. + Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EGILL BJÖRGÚLFSSON, Hlíðartúni 4a, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju fimmtu- daginn 9. nóvember kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlega bent á Barnaspítala Hringsins. Þórdís Tryggvadóttir, Sigríður Egilsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafsson, Helga Egilsdóttir, Björgúlfur Egilsson, Lísa Pálsdóttir, Tryggvi Egilsson, Elín Magnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Systir okkar og frænka, STEFANÍA K. BJARNADÓTTIR, Kópavogsbraut 1A, áður til heimilis f Skólagerði 65, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstu- daginn 10. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd systkina og annarra ættingja, Gréta Ingvarsdóttir. SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR + Sigrún Stefáns- dóttir fæddist að Arnardranga í Land- broti, Vestur-Skafta- fellssýslu, 17. júní 1930. Hún lést hinn 29. október síðastlið- inn að Amarholti. Sigrún var dóttir hjónanna Stefáns Þorlákssonar, f. 15. ágúst 1877, d. 31. des- ember 1967, og Mar- grétar Davíðsdóttur, f. 21. nóvember 1891, d. 26. febrúar 1966. Sigrún var yngst sjö systkina: 1) Pálína Margrét, f. 25. janúar 1913. 2) Ingibjörg, f. 4. janúar 1914, d. 10. september 1991. 3) Helga, f. 14. janúar 1915.4) Kat- rín, f. 15. mars 1920, d. 21. nóvem- ber 1982. 5) Þorlák- ur, f. 14. janúar 1924. Uppeldisbróðir, Karl Bjamason, f. 8. sept- ember 1918, d. 11. ágúst 1994. Sigrún giftist 15. ágúst 1957 Guðjóni Ingimundarsyni, f. 27. maf 1927 frá Mel- hól í Meðallandi Vestur-Skaftafells- sýslu og eignuðust þau tvö böm. 1) Steinunn, f. 4. mars 1957, maki Birgir Aðalsteinsson. 2) Stefán Ingi, f. 25. janúar 1968, maki Deborah Guðjónsson. Útför Sigrúnar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku mamma. Það er skrýtið til þess að hugsa að þú sért farin. Minningamar hrannast upp í hug- ann. Eg man svo vel þegar við fór- um niður í bæ þar sem þú varst að hreingera þrisvar í viku. Þraut- seigjunni og dugnaðinum í þér mun ég aldrei gleyma. Yfir vetrartímann þegar stundum blés hressilega og snjór var yfir öllu, tókstu ekki í mál að pabbi sækti okkur og fannst nú ekki mikið mál að taka strætó. Meira segja mér hraus stundum hugur við að fara út á stoppistöð. Mamma kvartaði aldrei yfir neinu. Snemma í æsku varð hún fyrir slysi sem varð til þess að hún var metin sem 75% öryrki. Segja má með sanni að dugnaður hennar var meiri en margra sem þó voru heilir heilsu. Mamma var vinamörg og alltaf tilbúin að rétta hjálpar- hönd. Hún var ákveðin og hafði mikið langlundargeð. Stundum tókst mér þó strákpjakknum að reita hana til reiði vegna óþægðar minnar. Pabbi horfði á mig, hristi hausinn og sagði, núna er mamma þín reið. En þó hún reiddist var reiðin fljótlega búin og hún tók mig í fang sér og þurrkaði mín tárvot augu. Alltaf rétt fyrir jólin voru Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta hlutir sem ég hafði hlakkað til að gera síðan um haustið. Eitt var að fara með pabba og velja jólatré og baka piparkökukarla með mömmu. Við eyddum heilum degi í að búa til þessa karla. Mamma þurfti síðan að fela þá fyrir mér ef ég átti ekki að klára þá. Stundum tókst mér að finna þá en mamma einhvern veg- inn komst að því og setti þá á nýjan stað. Þegar ég var í gagnfræðaskóla man ég eftir því að eitt sinn var haldið partý ekki langt frá heimili okkar. Eitthvað dvaldist mér í þessu partýi. Veðrið var frekar vont og þegar klukkan var eitt um nótt var henni ekki farið að standa á sama. Hún hringdi í mömmu skóla- bróður míns til að athuga hvort hann væri kominn heim. Mamma hans sagði að hún hefði ekki miklar áhyggjur af drengjum, þeir skiluðu sér. Mamma var nú ekki par ánægð með það svar og mjög hneyksluð yfir kæruleysislegu svari hennar. Það er ekki sjálfsagt að hafa átt jafn yndislega móður og er ég þakklátur mínum góða Guði fyrir hana og fyrir pabba minn sem ég fæ að njóta samvista við næstu árin eða áratuginn. Ég er líka þakklátur því góða fólki sem annaðist hana í Arnar- holti. Það veitti henni alúð og hlýju. r Blómabwáin > öarðskom t v/ T“ossvo0skiúl<jMgai*ð * V Sími: 554 0500 Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista MOSAIK Murmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fœc: 587 1986 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. [Baldur Frederiksen lútfararstjóri, Ijsími 895 9199 V Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is J Jesús sagði: Ég er vegurinn sannleikurinn og lífið. Enginn kem- ur til föðurins nema fyrir mig. (Jóh. 14:6). Stefán Ingi Guðjónsson. Elsku mamma. Þú varst dugleg, bjartsýn, úrræðagóð og hjálpsöm. Þú hvattir mig áfram á erfiðu tíma- bili lífs míns. Þú varst mjög dríf- andi, og vildir láta hlutina ganga. Það var oft mikið um að vera fyrir jólin, mikið bakað. Ég man líka all- ar verslunarferðirnar sem við fór- um í saman. Alltaf voru vinkonur mínar velkomnar í heimsókn, og minnast þær ennþá hvað gaman var að koma til ykkar pabba. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauzt friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt (V. Briem.) Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég koma þakklæti til lækna, hjúkrun- arfræðinga, sjúkraliða og starfs- fólks Amarholts fyrir góða umönn- un og hjúkrun. Steinunn Guðjónsdóttir. Mig langar að minnast Sigrúnar frænku minnar, sem lést hinn 29. október síðastliðinn eftir langvar- andi og erfið veikindi. Sigrún var alltaf hrókur alls fagnaðar og er mér mjög minnis- stætt þegar ég og móðir mín feng- um okkur göngutúra yfir í Tungu- selið til Sigrúnar og Gauja, en þar var alltaf tekið á móti okkur opnum örmum, svo ekki sé minnst á allar þær kræsingar sem á boðstólum voru. Alveg var það sama hvort við komum í litla bústaðinn í Skamma- dal eða allar tjaldútilegurnar í Landmannalaugum, alltaf var Sig- rún kát og hress, og þannig vil ég minnast hennar. Alltaf mundi hún eftir frændfólki sínu á jólunum og vissi nákvæmlega hvað var á óskalistanum. Ég gæti haldið endalaust áfram að rifja upp allar þær yndislegu og ógleymanlegu stundir sem þú gafst mér og minni fjölskylu, elsku frænka, og þakka ég fyrir þær og mun geyma að eilífu. Inga Þóra. SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629 HEIMASÍÐA: www.granit.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.