Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hótelnýting eykst í Reykjavík en dregst saman á landsbyggðinni
Telja rekstrar-
grundvöll
víða brostinn
Meðalnýting á hótelum
í Reykjavík 1996-2000
I könnuninni taka þátt 9 hótel
% með samtals 1.046 herbergjum
80-------------—
70—------- 70
74 75
Meðalnýting á hótelum
á landsbyggðinni
1996-2000
I könnuninni taka þátt 10 hótel
með samtals 475 herbergjum
96 '97 '98 '99 ’99 '2000
J_
’96 '97 ’98 ’99
MIKLIR erfiðleikar eru í rekstri
hótela og gististaða á landsbyggðinni
og rekstrargrundvöllurinn víða
brostinn. Þetta er mat Þorleifs Jóns-
sonar, hagfræðings Samtaka ferða-
þjónustunnar. Til að mynda var nýt-
ing á landsbyggðarhótelum í október
innan við 14%. Þorleifur segir að útlit
sé fyrir að a.m.k. þrjú til fjögur lands-
byggðarhótel hætti starfsemi í vetur.
A sama tíma er mikil þörf á fleiri
hótelum í Reykjavík þar sem nýting-
in hefur aukist ár frá ári. 1996 var
meðalnýting á hótelum í Reykjavík
63% en 43% á landsbyggðinni. í fyrra
var hún 70% í Reykjavík en hafði fall-
ið niður í 39% á landsbyggðinni. Inni í
tölum frá landsbyggðinni eru hótel á
Akureyri og Keflavík og er nýtingin
enn lakari þegar einungis er litið til
hreinna landsbyggðarhótela.
I nóvember í fyrra var nýtingin í
Reykjavík að meðaltali 57,73%, sam-
kvæmt könnun Samtaka ferðaþjón-
ustunnar. Það sem af er nóvember-
mánuði hefur hún verið að sveiflast
frá 50% upp í 75% þannig að nýtingin
er að meðaltali áþekk frá því í fyrra. I
síðustu viku og um síðustu helgi var
mjög mikil nýting vegna þings Norð-
urlandaráðs sem hér var haldið.
Sveiflur af þessu tagi eru því ekki óal-
gengar. Hótelnýtingin í Reykjavík
það sem af er árinu er að meðaltali
70%. Mest var hún að meðaltali
91,27% í ágúst og var um 90% í júní
og júlí. Hún er tæp 80% í september
og minnst í janúar, 37,30%.
Mikið byggt úti á landi
en lítið í Reykjavflí
Þorleifur segir áhyggjuefni hve
mikið hefur dregið úr nýtingunni á
landsbyggðinni. Þar er hún 5% lakari
í október en á sama tíma í fyrra.
Heildarnýting á hótelum í landinu,
þ.e. fyrir utan Reykjavík, var að með-
altali 25% í október. Séu Akureyri og
Keflavík ekki meðtalin er nýtingin í
október hjá svokölluðum hreinum
landsbyggðarhótelum rúmlega 13%.
Nýtingin á landsbyggðarhótelum er
komin niður í 35-40% að meðaltali á
ári. „Rekstrargrundvöllurinn er
löngu fokinn. Þessi hótel eru að
ganga á eigið fé og ég veit að 3-4 hótel
skella í lás í vetur,“ segir Þorleifur.
Hann segir að þetta eigi sér eðli-
legar skýringai-. Búið sé að reisa fjöl-
mörg hótel á landsbyggðinni en á
sama tíma hafi nánast ekkert hótel
verið byggt í Reykjavík. Fjölgun
ferðamanna til landsins hefur verið
u.þ.b. 15% á ári undanfarin þrjú ár.
Væru hótelherbergi í Reykjavík
1.000 talsins þyrfti því að taka í notk-
un 150 herbergi á ári til að halda í
horfinu. Síðasta hótel sem hafi hafið
starfsemi í Reykjavík var Cab-Inn
sem opnað var 1997. Síðan hafi ekki
verið reist stórt hótel í borginni. Þor-
leifur segir að það vanti að lágmarki
200 herbergja, þriggja til fjögurra
stjömu hótel og stórt ráðstefnuhótel
með tilheyrandi aðstöðu sem væri
betur búið en þau hótel sem fyrir eru
í borginni og gæti höfðað til nýs
markaðar.
Útboð um
sjúkraflutninga
Niðurstaða
væntanleg í
næstu viku
NIÐURSTAÐA er ekki komin
vegna útboðs um rekstur
sjúkra- og áætlunarflugs á ís-
landi. Að sögn Péturs Péturs-
sonar hjá Ríkiskaupum er verið
að fara yfir tilboð og meta þau.
Gildistími tilboða var fimm vik-
ur og rennur hann út 27. nóv-
ember nk. Pétur segir að stefnt
hafi verið að því að ljúka málinu
sem allra fyrst en útboðið sé
flókið og umsagna þarf að leita
víða.
„Við eigum von á því að nið-
urstaða verði komin í næstu
viku,“ sagði Pétur. Sex flugfé-
lög lögðu inn tilboð í útboðinu
en tilboð voru opnuð 24. októ-
ber sl. Flugfélögin sem um
ræðir era Leiguflug ísleifs
Ottesen, íslandsflug, Flugfélag
íslands, Flugfélag Vestmanna-
eyja, Mýflug og Flugfélagið
Jórvík. Hægt var að bjóða í eitt
eða fleiri svæði og bauð
Islandsflug eitt félaga í þann
tilboðsvalmöguleika sem tekur
til allra svæða.
Undirbúa sérframboð
til miðstjórnar ASÍ
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Guðmundsson frá Verkamannafélaginu Fram á Seyðisfirði gaf sér
tíma fyrir prjónaskap á þingi ASÍ í gær, eftir að hafa sett fram harða
gagnrýni úr ræðustóli á þingstörf og afgreiðslu laga.
ÞINGFULLTRÚAR stéttarfélaga
sem eiga beina aðild að ASÍ ætla að
bjóða fram fulltrúa þessara félaga í
miðstjórn Alþýðusambandsins gegn
tillögu kjörnefndar við kosningar til
miðstjórnar sem fram fara á ASÍ-
þinginu í dag.
Um er að ræða Félag leiðsögu-
manna, Félag ísl. hljómlistarmanna,
Flugfreyjufélagið, Flugvirkjafélagið
og Mjólkurfræðingafélag Islands
auk nokkurra sjómannafélaga sem
átt hafa beina aðild að ASI.
Mikil óánægja var meðal fulltrúa
þessara félaga í gær vegna þess að
kröfu þeirra um að fá fulltrúa í 15
manna miðstjórn hefur verið hafnað
af fulltrúum í kjörnefnd og öðram
forystumönnum stærri félaga og
landssambanda sem unnið hafa að
undanfömu að tilraunum til að ná
samkomulagi um uppstillingu í mið-
stjómina. Skv. heimildum blaðsins
var þessum félögum boðið að fá vara-
fulltrúa í miðstjóm en því var hafn-
að.
Á þriðja þúsund félagsmenn era
að baki þingfulltrúum félaganna sem
eiga beina aðild að ASI.
„Einir út á gaddinn“
Með samþykktum um ný lög Al-
þýðusambands íslands, ÁSÍ, fær
Bifreiðastjórafélagið Sleipnir ekki
lengur beina aðild að sambandinu
þar sem það telur félagið ekki upp-
fylla skilyrði nýrra laga sem lands-
samband eða landsfélag. „Við erum
komnir hér einir út á gaddinn, að
okkar mati,“ sagði Óskar Stefáns-
son, formaður Sleipnis, við Morgun-
blaðið á ASÍ-þinginu í gær.
Óskar mótmælti þessu í laga- og
skipulagsnefnd þingsins í gærmorg-
un og bar fram tillögu þess efnis að
lögunum yrði breytt þannig að félög
með beina aðild gætu áfram átt aðild
að ASÍ. Tillögu Oskars var hafnað á
þeim forsendum að hún hefði komið
of seint fram og hlaut því ekki efnis-
lega umfjöllun á þinginu.
Deilur um nýja brú á Eyvindará
Umhverfísráð vill
framkvæmdaleyfi
MEIRIHLUTI umhverfisráðs Aust-
ur-Héraðs samþykkti á fundi sínum í
gærkvöldi að gefið verði út fram-
kvæmdaleyfi íyrir nýrri brú á Ey-
vindará. Þar með er hafnað hug-
myndum um að leiða umferðina frá
Seyðisfirði fram hjá þéttbýlinu á Eg-
ilsstöðum.
Umhverfisráð klofnaði í afstöðu til
framkvæmdaleyfisins. Fulltrúi
minnihluta sveitarstjórnar lagði til að
afgreiðslu yrði fréstað og greiddi ann-
ar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins at-
kvæði með þeirri tillögu en hún var
felld með atkvæðum hins sjálfstæðis-
mannsins og tveggja fulltrúa Fram-
sóknarflokksins. Þrír síðamefndu
fulltrúamir stóðu síðan saman að af-
greiðslu málsins en þeir sem stóðu að
frestunartillögunni greiddu atkvæði á
móti. í bókun meirihluta umhverfis-
ráðs er vísað til þess að framkvæmdin
sé í samræmi við gildandi skipulag
svæðisins og úrskurð skipulagsstjóra
um mat á umhverfisáhrifum.
Dregið verði úr hraða
Samþykkt umhverfisráðs gengur
nú til bæjarstjómar sem tekur af-
stöðu til hennar á fundi í næstu viku.
Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið
út fyrr en eftir hann.
A mánudag var bæjarstjóm afhent
áskoran 125 íbúa sveitarfélagsins
þess efnis að ekki verði gefið út fram-
kvæmdaleyfi fyrr en íbúum sveitarfé-
lagsins hafi gefist tækifæri til þess að
gera athugasemdir við aðalskipulag
sveitarfélagsins sem er í vinnslu. Hef-
ur í því efni verið horft til mögulegrar
annarrar staðsetningai’ brúarinnar,
við svokallað Melshorn, og myndi þá
umferð verða beint fram hjá
þéttbýliskjamanum á Egilsstöðum.
Eyþór Elíasson, formaður um-
hverfisráðs, sagði í gærkvöldi að
áskoranirnar yrðu teknar fyrir í bæj-
arstjóm. Hins vegar hefði nefndin
fjallað um þau sjónarmið sem þar
koma fram og lagt fram hugmyndir
um Iækkun umferðarhraða, um að
umferð gangandi vegfarenda yfir
veginn yi’ði betur ti-yggð og að frá-
gangi vegarins yi’ði breytt.
Viðskíptablað
Sérblað um viðskiþti/atvinnulíf
Islendingar máttu þola tap
fyrir Pólverjum / B4
Handknattleiksmenn Hauka
eru óstöðvandi / B7
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.ls