Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Refsikafli laga um
nytjastofna ónýtur?
FULLYRT var á Alþingi í gær að
refsikafli laga um umgengni um
nytjastofna sjávar hefði enga þýð-
ingu, en fram kom í svari sjávar-
útvegsráðherra við fyrirspurn að
frá því lögin voru sett árið 1996
hefðu þrír aðilar sætt opinberri
ákæru en enginn refsidómur fallið
fyrir brot á þeirri grein laganna að
skylt sé að hirða og koma með all-
an afla að landi.
Jóhann Ársælsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, spurði sjávar-
útvegsráðherra hve margir skip-
stjórnarmenn og útgerðir hefðu
sætt ákæru fyrir brot á umræddri
lagagrein og hve margir skip-
stjórnarmenn og útgerðir hefðu
verið dæmd til refsingar fyrir brot
á greininni.
Þá spurði hann hve oft Fiski-
stofa hefði beitt heimild laganna
um að taka eða láta taka upp veið-
arfæri sem ekki hefði verið vitjað
með eðlilegum hætti og hve oft
fiskistofa hefði krafið eigendur
veiðarfæra, sem dregin hefðu verið
úr sjó, um kostnað sem af því hlyt-
ist.
Ekki kunnugt um
neina refsidóma
í svari Árna M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra kom fram
að sautján aðilar hefðu verið
kærðir til lögreglu fyrir að kasta
fiski í sjóinn og þrír þeirra sætt
ákæru af hálfu ákæruvaldsins.
Ekki væri kunnugt um neina
refsidóma. Þá hefði Fiskistofa í
einu tilviki látið draga veiðarfæri
upp og í einu tilviki krafið eig-
anda um kostnað.
Jóhann sagðist hafa orðið fyrir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhann Ársælsson bar fram tvær fyrirspurnir á Alþingi í gær.
ALÞINGI
miklu áfalli við að heyra þessar
upplýsingar og sagði ljóst að lög
sem verið hafa í gildi frá 1996
virkuðu ekki neitt og refsikaflinn
væri ónýtur og hefði enga þýðingu.
Samkvæmt lögunum varða brot
gegn ákvæðum laganna sektum,
hvort sem þau eru framin af ásetn-
ingi eða gáleysi, og sé um stórfelld
eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða
skulu þau að auki varða fangelsi
allt að sex árum.
Rætt um Schengen og fíkniefni
Samvinna við
önnur lönd for-
senda árangurs
FÍKNIEFNAMÁLIN voru ofar-
lega á baugi á Alþingi í gær en Sól-
veig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra svaraði þá tveimur
fyrirspurnum sem tengdust inn-
flutningi fíkniefna og fíkniefnanotk-
un. Fram kom m.a. í máli Sólveigar
að sérstakar aðgerðir væru í bígerð
á Keflavíkurflugvelli og átak hjá
tollayfirvöldum vegna ólöglegs inn-
flutnings á eiturlyfjum. „Ég leyfi
mér að fullyrða að aldrei áðui1 hefur
lögreglan náð jafnmiklum árangri í
baráttu við fíkniefnin og undanfarin
ár,“ sagði hún.
Sólveig benti á að lögreglan hefði
aldrei lagt hald á jafnmikið magn
fíkniefna og að undanförnu, aldrei
hefðu fleiri verið ákærðir og dæmd-
ir til jafnþungra refsinga. „Nú þeg-
ar hefur sýnt sig áþreifanlega að
þessi brotastarfsemi teygir sig út
fyrir landsteinana og samvinna við
lögregluna í Evrópuríkjunum er
ekki bará gagnleg heldur alger for-
senda í mörgum málum,“ sagði hún
m.a. í svari sínu við fyrirspurn
Steingríms J. Sigfússonar, Vinstri-
hreyfingunni - grænu framboði, um
gildistöku Schengen-samkomulags-
ins.
Steingrímur hafði gagnrýnt sam-
komulagið og bent á að persónuyf-
irlit á landamærum yrði úr sögunni
þegar það tekur gildi hér á landi en
fram kom í máii Sólveigar að það á
að gerast 25. mai’s á næsta ári.
Halldór Ásgi’ímsson utanrikisráð-
herra tók þátt í þessari umræðu í
gær og fullvissaði þingmenn um að
ekki myndi draga úr fíkniefnaeftir-
liti á Keflavíkm’flugvelli við gildis-
töku Schengen. Greindi hann m.a.
frá því að starfsemi lögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli hefði verið end-
urskipulögð og nýtt skipurit myndi
taka gildi um næstu áramót.
„Stöðugildi hafa verið færð milli
deilda í því skyni að efla þær, auk
þess sem það er í undirbúningi að
ráða nýja lögreglumenn til embætt-
isins,“ sagði Halldór.
Starfsemin endurskipulög'ð
Hann rifjaði einnig upp að starf-
semi fíkniefnadeildar Tollgæslunn-
ar á Keflavíkui-flugvelh hefði verið
endurskipulögð fyrir rúmu ári og
tollgæslumönnum þá fjölgað um
tvo.
Fram kom í svari dómsmála-
ráðherra við fyrirspurn Guðmundar
Árna Stefánssonar, Samfylkingu,
um fíkniefnanotkun í fangelsum, að
því miður væru dæmi um slíka
notkun en mun færri tilvik hefðu
hins vegar komið upp að undan-
förnu en áður, auk þess sem þar
væri varla um séríslenskt vandamál
að ræða.
Fíkniefnamálin ber aftur á góma
í sölum Alþingis í dag en þá fer
fram utandagskrárumræða um ein-
angrunarvistun fanga og fjárskort
fíkniefnalögreglunnar. Margrét
Frímannsdóttir, Samfylkingu, er
málshefjandi en dómsmálaráðherra
verður til andsvara.
Sjálfseignar-
stofnun um
fræðslu fatlaðra
Framtíð víkingaskipsins rædd á Alþingi
BJÖRN Bjamason menntamála-
ráðherra hefur skrifað Öryrkja-
bandalagi íslands og Þroskahjálp
bréf þar sem farið er fram á við-
ræður um stofnun sjálfseignar-
stofnunar sem taki við núverandi
verkefnum Fullorðinsfræðslu fatl-
aðra. Er gert ráð fyrir að tillögur
um næstu skref liggi fyrir innan
tíðar, að því er fram kom í máli
ráðherra á Alþingi í gær.
Ásta R. Jóhannesdóttir, Sam-
fylkingu, hafði lagt fram fyrir-
spurn til menntamálaráðherra um
fullorðinsfræðslu fatlaðra. í svari
Björns kom fram að fullorðins-
fræðslan stæði öllum fötluðum til
boða. Hins vegar hefði verið stefnt
að því innan ráðuneytisins að
skapa skýrari starfsgrundvöll fyrir
hana.
byrjun þessa árs og var hlutverk
hans að semja drög að skipulags-
skrá fyrir sjálfseignarstofnun sem
annist um og reki fullorðins-
fræðslu fyrir fatlaða á landinu öllu.
Sagði Björn að tillögur hópsins
fælu í sér að stofnaðilar yrðu Ör-
yrkjabandalagið og Þroskahjálp,
ásamt menntamálaráðuneytinu.
Ennfremur að hópurinn hefði
ályktað að ráðuneytið beitti sér
fyrir rekstrarframlagi til stofnun-
arinnar sem yrði eigi lægra en það
sem nú rynni til fullorðinsfræðsl-
unnar.
Björn sagði að til að þjóna öllu
landinu mætti t.d. koma upp sér-
stökum deiidum á landsbyggðinni
eða stofna til samstarfs við starf-
andi símenntunarmiðstöðvar sem
nú hefðu verið stofnaðar í öllum
Vilja
að ríkið
s
kaupi Is-
lending
BJÖRN Bjarnason menntaniála-
ráðherra sagði í fyrirspumatíma á
Alþingi ígær að ef eigandi lang-
skipsins Islendings vildi selja skipið
þyrfti að huga að því að kaupa það
til fslands. Björn sagði að ef af yrði
þyrfti að búa þannig um hnútana að
varðveisla þess yrði með reisn. Kom
fram í máli hans að eðlilegast væri
að rfldð fæli Sjúminjasafninu það til
varðveislu ef af kaupum yrði á veg-
um þess. Júhann Ársælsson, þing-
maður Samfylkingar, hafði spurt
menntamálaráðherra hvort; hann
hygðist beita sér fyrir því að íslend-
ingtir, skip Gunnars Marels Egg-
ertssonar, yrði varðveittur á Islandi.
Sagði Júhann skipið hafa gert fræga
för vestur um haf nú nýlega í tilefni
landafundaársins.
Bjöm sagðist fyrir sitt lcyti ekki
afhuga þessum hugmyndum en vís-
aði siðan til þess að fyrir borgarráði
lægi fyrir tillaga frá fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins um að Reykjavik
leitaði eftir kaupum á Islendingi svo
að hægt væri að staðsetja það í nýju
menningarhúsi sem er í undirbún-
ingi. „Ef rfldð eignast þetta skip
lægi beinast við að beina því til Sjú-
minjasafnsins, sem er safn á vegum
ríkisins og annast varðveislu gam-
alla skipa, að annast skipið," sagði
ráðherra síðan. „Það em gi-einilega
mörg tækifæri uppi ef menn vilja að
þetta skip komi til landsins en af
minni hálfu hefur í sjálfu sér ekki
neitt ákveðið verið mútað í þeim efn-
um.“ Árni Johnsen, Sjálfstæðis-
flokki, fagnaði afstöðu ráðherrans
en þingmenn stjúrnarandstöðunn-
ar gagnrýndu hann fyrir að hafa
lítið hugað að þessu máli og hvöttu
margir til að ríkisstjúrnin kannaði
möguleika á kaupum á skipinu og
kæmi þannig í veg fyrir að það yrði
selt hæstbjúðanda í Banda-
rflqunum. Meðal annars benti
Rannveig Guðmundsdúttir, Sam-
fylkingu, á að þegar hefði komið
fram að skipið er til sölu. Þuríður
Backman, þingmaður VG, benti
jafnframt á að til stæði að koma
upp sögusafni um landnámstimann
í einum tanki Hitaveitunnar í
Öskjuhlíð. Sagði hún að það kynni
að vera verðugt samstarfsverkefni
ríkis, Reykjavíkurborgar og ann-
arra aðila að geyma skipið þar.
Björn sagði að ekkert mælti á múti
j>ví af sinni hálfu að skipið kæmi til
Islands, hvort sem það yrði á veg-
um ríkisins, Reykjavíkurborgar
eða annarra aðila. „Aftur á múti er
ljúst að menntamálaráðherra hefur
ekki umboð til þess að kaupa þetta
skip fyrir hönd ríkisins. En ef til
mín er leitað og ef þingmenn úska
þess að ég beiti mér sérstaklega í
þessu máli skal ég kanna hver
staða þess er og kynna mér afstöðu
skipstjúrans og eiganda skipsins.“
Sagðist Björn telja að kanna þyrfti
hvort ekki ætti fremur að nota
skipið til þess að kynna ísland frek-
ar í Vesturheimi. Vel yrði að huga
að því að nýta þá útrúlegu kosti
sem fælust í að eiga þetta skip.
Skipaði ráðherrann starfshóp í _____________
Alþingi
Dagskrá
FUNDUR hefst á Alþingi í dag kl.
10.30. Um 13.30 fer fram ut-
andagskrárumræða um einangr-
unarvistun fanga og Qárskort
fíkniefnalögreglunnar en dag-
skrá er annars þessi:
1. Brottför hersins og yfirtaka
fslendinga á rekstri Keflavík-
urflugvallar. Frh. fyrri um-
ræðu. (Atkvgr.).
2. Ófrjúsemisaðgerðir 1938-
1975,beiðni um skýrslu.
3. Starfsskýrsla Ríkisendur-
skoðunar 1999.
4. Skýrslur umboðsmanns Al-
þingis 1998 og 1999.
5. Innflutningur dýra. 1. um-
ræða. Jarðalög.l. umræða.
6. Skipulags- og byggingarlög.
1. umræða.
7. Tilnefning Eyjabakka sem
votlendissvæðis á skrá Rams-
ar-samningsins. Fyrri um-
ræða.
8. Jöfnun flutningskostnaðar á
sementi. 1. umræða.
9. Verðbréfaviðskipti. 1. um-
ræða.
10. Greiðsla kostnaðar við opin-
bert eftirlit með fjármála-
starfsemi. 1. umræða.
11. Ábyrgðarmenn. 1. umræða.