Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 1 5
Framkvæmdir við Reynisvatnsveg og mislæg gatnamót Vesturlands- og Víkurvegar hefjast 2001
Vegir og gatnamót
gerð fyrir 650 m.kr.
Vesturlandsvegur
FRAMKVÆMDIR við ný
mislæg gatnamót við Víkur-
veg, Vesturlandsveg og
Reynisvatnsveg hefjast á
næsta ári. Samkvæmt tillögu
að matsáætlun er heildar-
kostnaður verksins um 650
milljónir króna, en gert er
ráð fyrir að gatnamótin
verði byggð upp í fjórum
áföngum eftir því sem um-
ferð vex og þörf verður fyrir
afkastameiri gatnamót. Haf-
ist verður handa við fyrsta
áfangann strax á næsta ári,
en kostnaður við hann er um
390 milljónir króna, gera má
ráð fyrir að gatnamótin
verði tekin í notkun um árið
2002. Ekki er ráðgert að
ljúka þriðja og fjórða áfanga
gatnamótanna fyrr en eftir
árið 2008.
Mislægu gatnamótin verða
þannig að tvöföld brú mun
tengja Grafarvog og Grafar-
holt en umferð um Vestur-
landsveginn mun fara undir
brúna, framkvæmdin er
samstarfsverkefni Vegagerð-
arinnar og Reykjavíkurborg-
ar.
Fyrirhuguð mannvirki eni
ekki fyllilega í samræmi við
aðalskipulag Reykjavíkur.
Staðsetning brúnna yfir
Vesturlandsveg hefur færst
rúmlega 100 metra til norð-
austurs og hringtorgið á
Víkurveginum og rampar að
því taka töluvert svæði sem
ekki var sérstaklega gert
ráð fyrir á aðalskipulagsupp-
drætti. Veghelgunarsvæði
þarf því að færast til og
breytast. Borgarráð sam-
þykkti á fundi sínum í síð-
ustu viku að auglýsa breyt-
ingu á aðalskipulagi, með
fyrin'ara um niðurstöðu
mats á umhverfisáhrifum, til
þess að fyrirhugaðar fram-
kvæmdir samræmist aðal-
skipulagi.
Fyrsti áfangi
Reynisvatnsvegar
I fyrsta áfanga á árinu
2001 verður syðri brúin
byggð með einni akrein í
hvora átt. Víkurvegur verður
byggður með hringtorgi,
ljósagatnamótum og römp-
um og núverandi gatnamót-
um Víkurvegar við Vestur-
landsveg verður haldið með
tengingu að hringtorginu.
Þessi nýi kafli Víkurvegar
verður um 750 metra langur
frá tengingunni á Keldna-
holti að ljósagatnamótunum.
Samhliða fyrsta áfangan-
um mun Reykjavíkurborg
leggja fyrsta áfanga Reynis-
vatnsvegar í framhaldi Vík-
urvegar til austurs að Jóns-
geisla, næstu safngötu frá
íbúðarhverfum í Grafarholti.
f fyrstu verður Reynisvatns-
vegur tvær akreinar, en
hann mun verða breikkaður í
fjórar akreinar þegar þörf
krefur. Ráðgert er að gera
hringtorg við Jónsgeisla og
undirgöng fyrir gangandi
vegfai’endur. Aætlaður
kostnaður vegna fram-
kvæmdanna við Reynis-
vatnsveg er um 135 milljónir
króna.
í öðrum áfanga mislægu
gatnamótanna, sem sam-
kvæmt skýrslunni um tillögu
að matsáætlun er áætlað að
ráðast í árið 2003, verða nú-
verandi gatnamót Víkurveg-
ar við Vesturlandsveg lögð
niður. Ný aðrein verður gerð
frá Víkurvegi neðan við
hringtorgið að Vesturlands-
vegi fyrir umferð til suðurs
og ný frárein frá Vestur-
landsvegi að hringtorginu
fyrir umferð frá Mosfellsbæ.
Samkvæmt umferðarspám
verður þörf fyrir annan
áfanga á árinu 2003, en fjár-
veitingar hafa ekki verið
ákveðnar í vegaáætlun 2000
til 2004, en vegaáætlunin
verður endurskoðuð árið
2002.
Þriðji áfangi
árið 2008
Áætlað er að hefja fram-
kvæmdir við þriðja áfangann
árið 2008 og verður nyrðri
brúin þá byggð og Víkurveg-
ur breikkaður, þannig að það
verða tvær akreinar í hvora
átt frá hringtorginu á Víkur-
vegi að ljósagatnamótum við
Grafarholt. Vegrampi frá
Vesturlandsvegi og að ljósa-
gatnamótunum verður einn-
ig tvöfaldaður. I fjórða
áfanga verður gerð slaufa til
hægri af Víkurvegi fyrir um-
ferð, sem kemur norðvestur
yfir brúna og aðrein að Vest-
urlandsvegi til suðvesturs.
Við kynningu á drögum að
matsáætlun komu fram at-
hugasemdir frá Skipulag-
sstofnun, Náttúrvernd ríkis-
ins og Veiðimálastjóra.
Vegna framkvæmdarinnar
verða umhverfisþættir skoð-
aðir og er þar einkum um að
ræða náttúrfarsþætti, loft-
gæði og hljóðstig.
í námunda við fram-
kvæmdasvæðið rennur Úlf-
arsá, sem er á náttúruminja-
skrá, en gæta þarf
sérstakrar varúðar við alla
vinnu í námunda við ána til
að koma í veg fyrir óþarfa
jarðrask.
Yfirborðsvatn
í settjarnir
Hollustuvernd ríkisins
hefur bent á nauðsyn þess
að fjalla um vatnsverndar-
mál í tengslum við fram-
kvæmdina auk hættu á
mengun á framkvæmdatíma.
Veiðimálastjóri hefur gert
athugasemdir við afrennsli
af veginum í Úlfarsá. Til
þess að raska vatnsbúskap
Úlfarsár sem minnst er fyr-
irhugað að hreinsa yfir-
borðsvatn í settjörnum áður
en það rennur í ána. Gatna-
málastjóri vinnur að út-
færslu á þessum þætti í sam-
ráði við sænskt ráðgjafar-
fyrirtæki. Stefnt er að því að
gera fjórar settjarnir norðan
Víkurvegar og Reynisvatns-
vegar, sem afrennslisvatni af
vegum verður veitt í áður en
það rennur í Úlfarsá. í
tjörnunum verður fleytt ofan
af hugsanlegri olíubrák og
botnfelldur sandur og þung-
málmar.
Eins og kom fram að ofan
gerði veiðimálastjóri athuga-
semd við afrennsli, en hann
bendii' einnig á að fram-
kvæmdum verði hagað þann-
ig að þær trufli ekki veiði á
ánni yfir sumarið. Einnig vill
hann að haft verði samráð
við sérfræðinga Veiðimála-
stofnunar ef óvænt tilvik
koma upp varðandi hugsan-
leg áhrif framkvæmdarinnar
á Úlfarsá.
BOSS
HUGO BOSS
eterna
Benvenuto.
gardeur
strellson
BERTONI
LACOSTE
BELLINI
50 -70%
AFSLÁTTUR AF
MERKJAVÖRU
FRABÆRIR
UTIJAKKAR
■ ' .
* HeirrEL
UR ULL
KR. 12.900
outlet
SÍMI 568 951 2 SUÐ URLANDSBRAUT 54 BLÁU HÚSIN VIÐ HLIÐINA Á T0PPSKÓR