Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hugrnyndir um að breyta
Alþýðuhúsinu í hótel
Framkvæmt verður fyrir
1.477 milljónir við skóla
Morgunblaðið/RAX
Alþýðuhúsið á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis.
Miðborg
UPPI eru hugmyndir um að
breyta Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu 8 til 10 í hótel, en
eigandi hússins, sem er Al-
þýðuhús ehf., hefur undanfar-
in tvö ár fengið nokkur form-
leg og óformleg tilboð í húsið
þrátt fyrir að það hafi ekki
verið auglýst til sölu. Þetta
kom fram í samtali Morgun-
blaðsins við Óttar Yngvason,
stjórnarformann Alþýðuhúss
ehf.
„Húsinu yrði aldrei breytt í
hótel af okkur,“ sagði Óttar.
Það má eiginlega segja að
húsið hafi verið hálfpartin til
sölu í ein tvö ár án þess að
vera auglýst. Við höfum að
minnsta kosti verið að fá til-
boð í það öðru hvoru. Það eru
ýmsir að tala við okkur, en
maður veit ekki hvað verður
úr því.“
Leigusamningum
sagt upp
Húsið er um 2.000 fermetr-
ar og þar eru nú skrifstofur og
tveir skemmtistaðir, sem
staðsettir eru á jarðhæð, en
það eru nektardansstaðurinn
Club 7 og skemmtistaðurinn
Spotlight.
Óttar sagði að húsið, sem
var byggt í kringum 1930,
hefði upphaflega verið hannað
sem hótel, en að það myndi
tæplega standast nútímakröf-
ur sem gerðar væiu til hótel-
bygginga og því myndi þurfa
að breyta húsnæðinu töluvert
ef hefja ætti hótelrekstur þar.
Óttar sagði að nýlega hefði
öllum leigusamningum verið
sagt upp.
„Við höfum verið að leysa
leigusamninga, þannig að þeir
losna flestir á fyiri hluta
næsta árs, en sumir eru til
lengri tíma. Það er svo erfitt
að ræða hlutina með leigu-
samninga fasta langt fram í
tímann. Við sögðum því öllum
leigusamningum upp bæði til
þess að samræma losunar-
tíma og eins til að hafa samn-
ingana lausa með fyrirvara."
Óttar sagðist ekki geta gef-
ið upp hvaða aðilar það væru
sem hefðu lýst yfir áhuga á
húsnæðinu og að breyta því í
hótel, þar sem þær umræður
hefðu farið fram í fyllsta tnín-
aði.
Eins og kom fram hér að of-
an er húsið um 70 ára gamalt
og sagði Óttar að viðhald hefði
verið í lágmarki.
„Það er allt í lagi með húsið,
en það hefur ekkert verið
stórendurnýjað, enda kostar
það mikla peninga eftir svona
langan tíma.“
Ottar sagðist ekki vita ná-
kvæmlega hvað húsnæðið
væri metið á en samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins
er ekki ólíklegt að það sé met-
ið á um 200 milljónir króna
eða um 100 þúsund krónur
fermetrinn.
Reykjavík
1.477 milljónum króna verður
varið til framkvæmda við
grunnskóla borgarinnar á
næsta ári, samkvæmt þeirri
fjárhagsáætlun borgarinnar,
sem kynnt var í fyrradag. Að
mestu leyti er um að ræða
framkvæmdir til að tryggja að
takist að einsetja alla skóla
borgarinnar á árinu 2002.
Að sögn Guðmundar Pálma
Kristinssonar, forstöðumanns
byggingadeildar borgarverk-
fræðings, verður 24 milljónum
af framlaginu varið til upp-
gjörs vegna framkvæmda við
Austurbæjarskóla en þar er
verið að byggja fjórar kennslu-
stofur ofan á gömlu spennu-
stöðina milli Austurbæjar-
skóla og Vörðuskóla. Einnig
verður keyptur búnaður til
skólans og vinnuaðstaða kenn-
ara endurbætt.
Sex milljónum króna verður
vaiið til frumkönnunar vegna
uppbyggingar við Laugames-
skóla.
Einnig er gert ráð fyrir
framlagi til undirbúnings
byggingar fjölnotasalar og
nemendaeldhúss við Lang-
holteskóla.
Áfram verður haldið við
byggingu tveggja af nýjustu
skólum borgarinnar, Borga-
skóla og Víkurskóla. Fram-
kvæmdum við Borgaskóla á að
ljúka næsta haust. Við Víkur-
skóla verður haldið áfram við
uppsteypu en hluti almennra
kennslustofa verður tekinn í
notkun á næsta ári. Fullbúinn
verður Víkurskóli árið 2002.
400 fermetra viðbygging
við Álftamýrarskóla
Við Álftamýraskóla er gert
ráð fyrir framkvæmdum fyrir
um 100 m.kr. á næsta ári. Þeg-
ar hefur verið byggt í innigarði
við skólann 200 fermetra tölvu-
ver og bókasafn en eftir er að
Ijúka um 400 fermetra við-
byggingu milli skólahússins og
íþróttahússins. Þær fram-
lwæmdir kalla á að flutt verði
til ræsi sem liggur undir yfir-
borðinu þar á milli. Fram-
kvæmdir eiga að hefjast á
næsta ári og ljúka næsta
haust.
Við Árbæjarskóla verður
haldið áfram einu stærsta
verkefni ársins og varið til þess
152 m.kr. Lokið verður við
uppsteypu viðbyggingar, sem
hófst í fyn-a og lokið fullnaðar-
frágangi á tengigangi og og
samkomusal. Einnig verður
unnið við breytingar á 2. hæð í
eldra skólahúsinu. Ekki er
áætlað að framkvæmdum ljúki
fyrr en á árinu 2002.
Byggt milli
Hólabrekkuskóla og FB
Gert er ráð fyrir 160 m.kr.
framlögum til hönnunar og
byggingarframkvæmda vegna
viðbyggingar við Hólabrekku-
skóla á næsta ári. Byggt verð-
ur sunnan við skólahúsið, þ.e.
milli Hólabrekkuskólans og
Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Stefnt er að því að viðbygging-
in verði að mestu fullbúin
næsta haust.
Einnig verður varið fé til
hönnunar og framkvæmda
vegna viðbyggingar við Selás-
skóla og þar eins og í Álfta-
mýrarskóla þarf að ráðast í
framkvæmdir við flutning
ræsa og lagna áður en bygg-
ingaíramkvæmdh- geta hafist.
Þótt ekki sé gert ráð fyrir að
framkvæmdum ljúki fyrr en á
árinu 2002 er mögulegt að
unnt verði að einstja Selás-
skóla um áramót 2001-2002, að
sögn Guðmundar Pálma Krist-
inssonar.
Hlíðaskóli og Vesturhlíð-
arskóli sameinaðir?
Foldaskóli verður einnig
einsettur áiið 2002 en næsta ár
verður varið 50 m.kr. til að
hanna og hefja framkvæmdir
við viðbyggingu.
Einnig er gert ráð fyrii’ að
hönnuð verði og hafíst fram-
kvæmdir við viðbyggingu við
Hlíðaskóla en einsetning þess
skóla verður að veruleika áiið
2002. Við framkvæmdir þar
verður m.a. hugað að mögu-
leikum á því að flytja Vestur-
hh'ðarskóla, sem er sérskóli
fyrir heyrnarskert böm, inn í
Hlíðaskóla þótt endanleg
ákvörðun um það hafi ekki ver-
ið tekin. Guðmundur Pálmi
sagði að gert væri ráð fyrir að
auk viðbyggingar á lóðinni
þyrfti að ráðast í talsverðar
breytingar eða endm-skipu-
lagningu á eldra kennsluhús-
næði.
Sófatilboð!
„Jósefina11 og „Tennesse“ sófar á frábæru tilboði.
Seljum einnig nokkra sófa sem skemmst hafa í
flutningum á u.þ.b. 1/2 virðil! w/
„Josefma“
svefnsófi
2 manna svefnsófi með lúxus
springdýnu. Hér er engu til sparað
til að ná fram hámarks þægindum.
Fallegt áklæði úr 100% bómull.
Útdreginn stærð 140x191 sm.
„Tennesse" homsófi
ÉRMERKT HANDKLÆÐI & HÚFUR
Hellisgata 17 - 220 Hafnarfjörður
Sfmi 565 0122 Fax 565 0488
myndsaumur@myndsaumur.is
Netverslun: www.myndsaumur.is
Þar sem gæði og gott verð fara saman.
s^Tr»3'900"
Herrafrakkarkr. 12-900.
Flísjakkarkr.sm-
FHsskyrturkr. 4.900,
Katfwélkr. 1-490,-
llll l! iinr"rl,r A9°. J
Nýtt kortatimabil
Opið alla daga 12-18
aðeins kr. ■ markaðstorgið
_____________jhúsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
Fréttir á Netinu v^mbl.is
ALLTAf= eiTTHVAO HÝT7