Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 20

Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Borgarafundur foreldra- og kennarafélags Síðuskóla um byggingu íþróttahúss og samkomusalar Morgunblaðið/Kristján Fjölmenni var á borgarafundi um byggingu íþróttahúss og samkomusalar við Síðuskóla. Verkefni sem nauð- synlegt er að fara í Elías Bi. Gíslason, formaður stjórnar foreldra- og kennarafélags Síðu- skóla, Olafur Thoroddsen skólastjóri og Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóladeildar Akureyrarbæjar. SKÓLANEFND Akureyrar sam- þykkti í liðinni viku að leggja til við bæjaryfirvöld að byggt verði íþrótta- hús ásamt samkomusal við Síðuskóla auk þess sem byggt verði íþróttahús við Giljaskóla. Bæjarráð mun fjalla um tillögur nefndarinnar á fundi sín- um í dag, fimmtudag og endanleg af- staða tekin til þeirra á fundi bæjar- stjórnar á þriðjudag í næstu viku en þá verður fjárhagsáætlun fyrir árið 2001 jafnframt tekin til seinni um- ræðu. Bygging fjölnotasals við Síðuskóla var efni borgarafundar sem stjóm foreldra og kennarafélags Síðuskóla efndi til á þriðjudagskvöld, en lengi hefur það verið baráttumál foreldra og starfsmanna skólans að ráðist verði í slíka byggingu. Aðstöðuleysi til íþróttaiðkunar og samkomuhalds hefur lengi verið háð skólastarfinu. Efnt var til undirskriftasöfnunar meðal foreldra og íbúa í hverfinu fyr- ir um ári og um 800 undirskriftir af- hentar bæjaryfirvöldum í kjölfar þess. Elías Bj. Gíslason, formaður stjómar foreldra- og kennarafélags Síðuskóla, sagði á fundinum í fyrra- kvöld að menn vildu knýja á um svör. „Viðbrögð við málaleitan okkar hafa verið rýr fram til þessa, eða allt þar til í síðustu viku með samþykkt skólanefndar. Það hefur mest farið fyrir bijóstið á okkur að hafa ekki fengið svör. Við gemm okkur grein fyrir að ekkert gerist í málinu á þessu ári og væntanlega ekki því næsta heldur, en við viljum fá að vita hvenær eitthvað gerist,“ sagði Eiías. Búið við þrengsli frá upphafi Ólafur Thoroddsen skólastjóri fór á fundinum yfir byggingarsögu skól- ans, en fyrstu íbúamir fluttu í Síðu- hverfi árið 1979. Fyrst var farið að ræða byggingu skóla þar árið 1982. Skólahald hófst árið 1984, en fyrsta álman við skólann var tekin í notkun haustið 1986. Skólinn hefur á þeim tíma smám saman verið að byggjast upp en ávallt búið við mikil þrengsli. Börn í 1. til 7. bekk stunda íþróttir í sal á Bjargi en eldri bömin í íþróttahúsi Glerárskóla. Öll börnin sækja sundkennslu í sundlaug við Glerárskóla. Ekki er rúm fyrir alla almenna kennslu í skólanum, þannig að notast er við lausar kennslustof- ur, húsnæði í Glerárkirkju og víðar. Skólinn telst nú fullbúin, nema hvað íþróttaaðstöðuna vantar. Ólafur tel- ur að á næstu 5 áram muni nemend- um skólans fækka og þá verði hægt að kenna öllum innan veggja hans. „Skólinn hefur starfað í 16 ár og okk- ur þykir nú orðið tímabært að fá stærstu kennslustofuna í notkun, þ.e. íþróttahúsið,“ sagði Ólafur, en hann benti á að því fylgdi margvís- legt óhagræði að hafa ekki slíkt hús- næði við skólann. Skóladagurinn væri lengri þar sem senda þyrfti bömin lengra til að stunda íþróttir og sund og þau hneigðust fremur til að skrópa í þessum tímum, erfiðara væri að útbúa stundatöflu, íþrótta- kennaramir væru einangraðir frá kennarahópnum og tómstundastarf skólans byrjaði seinna og væri lengra fram á kvöldið svo einhver dæmi séu tekin. Taldi Ólafur nauðsynlegt að við skólann yrði byggt hæfilega stórt íþróttahús sem innangengt væri úr inn í húsnæði skólans. Fer að komast á dagskrá Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóladeildar Akureyrarbæjar, sagði að bærinn hefði á síðustu áram ráð- ist í miklar framkvæmdir við grann- skólana og kæmi þar tvennt til. Ann- ars vegar eftir að ákvörðun var tekin um að allir skólar bæjarins yrðu ein- setnir, en því markmiði var náð árið 1998 og hins vegar í kjölfar ákvörð- unar um að þeir yrðu hverfisskólar. Það kallaði á nýbyggingar við Lund- arskóla, Oddeyrarskóla og Síðu- skóla. Kostnaður við þær nemur um 800 milljónum króna. „Það gefur auga leið að eitthvað verður undan að láta, þegar farið er í svo umfangsmiklar framkvæmdir,“ sagði Gunnar. Hann bætti við að samkvæmt forgangsröðun skóla- nefndar frá í síðustu viku varðandi framkvæmdir við grannskólana væri ekki spurning um að farið yrði í um- ræddar framkvæmdir, þó svo að enn væri ekki ljóst hvenær það yrði ná- kvæmlega, „en þetta fer að komast á dagskrá," sagði hann. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri sagði að síðustu daga hefði verið setið yfir skiptingu þeirra fjár- muna sem ætlaðir eru til fjárfestinga á næsta ári og myndi bæjarráð ganga frá skiptingunni á fundi í dag, fimmtudag. Þá kæmi í ljós hvert yrði svar við óskum íbúa í Síðuhverfi um byggingu við skólann. Tímabil mikilla fram- kvæmda í skólamálum Ásgeir Magnússon, formaður bæj- arráðs, sagði erfitt að finna tímabil þar sem jafnmiklum peningum hefði verið varið til skólamála á á síðustu misseram, eða eftir að ákveðið var að þeir yrðu einsetnir og heildstæð- ir. Við blasti að fleiri þúsund fer- metra skorti af skólahúsnæði og kennslust ofurnar hefðu þar haft forgang. Það breytti hins vegar ekki því að bygging íþróttahúss og samkomu- sals við Síðuskóla væri verkefni „sem við þurfum að haska okkur í“, eins og hann orðaði það. Hann von- aði að fjárveiting fengist á fjárlögum næsta árs sem myndi duga til að koma málinu af stað. Jakob Björnsson bæjarfulltrúi sagði almennan stuðning í bæjar- stjórn við þetta verkefni og vilji væri til þess að Ijúka skólabyggingunni. Vel á annað hundrað manns sótti fundinn og virtust fundarmenn al- mennt ánægðir með þau svör sem þar fengust og höfðu litlu við að bæta, en í umræðum um stærð vænt- anlegs íþróttahúss kom fram að í sjálfu sér myndi 3-400 fermetra hús duga, en hús af þeirri stærð þjónaði hins vegar hagsmunum íþróttafélag- anna ekki nægilega vel, þannig að skoða þyrfti málið gaumgæfilega áð- ur en ákvörðun yrði tekin. Fyrsta Qárhúsbyggingin í aldar- fjórðung rís á Barðaströnd Morgunblaðið/Helgi Bjamason Nanna Jónsdóttir og Gísli Gislason, sem eru bændur í Rauðsdal, eru ánægð með nýju fjárhúsin sem þau eru að byggja. Annaðhvort að byg-gja eða hætta Bændurnir í Efrí-Rauðsdal á Barða- strönd eru að byggja ný fjárhús en þar er fjár- og kúabú. Helgi Bjamason ræddi við ábúendur í ljósi þess að ekki hefur verið ráðist í slíka framkvæmd á þessum slóðum í aldarfjórðung. GÍSLI Gíslason og Nanna Jóns- dóttir búa í Efri-Rauðsdal. Þau eiga raunar einnig Neðri-Rauðs- dal og hafa sameinað jarðirnar. Þau eru með rúmlega 200 kind- ur á vetrarfóðrum og 18 kýr, auk þess sem þau reka ferða- þjónustu. „Gömlu fjárhúsinu eru orðin fimmtíu ára gömul og ónýt að hluta. Annaðhvort var að hætta með sauðfé eða byggja yfir það, fyrst við erum í þessu á annað borð,“ segir Nanna. Fjölnota hlaða Fjárhúsabyggingin er innflutt stálgrindarhús sem er keypt í heilu lagi. Telur Gísli að þetta sé tiltölulega hagkvæm bygging. Þau hjónin vinna sjálf mikið við framkvæmdina og komast þann- ig dável frá kostnaðinum. Fjár- húsin rúma tæplega 300 kindur og reikna þau með að fjölga fénu smám saman til að fylla þau. Stór hlaða er byggð við húsin. Rúllubaggaheyskapur er stund- aður í Rauðsdal og því ekki brýn þörf á hlöðu, að öðru jöfnu. Gísli segir að þau hafi viljað byggja hlöðuna strax, ekki síst í ljósi þess að stundum komi harðir vetur á þessum slóðum og þá veiti ekki af því að hafa heyið inni. „Það er lítil hætta á að hlaðan verði ekki notuð, nauðsynlegt er að hafa aðstöðu til að skera hey og vinnuaðstöðu við sauðburð- inn og svo er alltaf þörf á geymslum," segir Gísli. Gjafagrindur spara vinnu Um þessar mundir er verið að leggja grindur á gólfið í fjárhús- unum en undir þeim er kjallari sem taðið safnast í. Þau hjónin eru ákveðin í að fá sér gjafa- grindur frá Vírneti hf. í fjárhús- in en það er nýjung á Barða- strönd og jafnvel á Vestfjörðum í heild enda nýbyggingar fjár- húsa afar fátíðar og erfitt að breyta gömlum húsum þannig að hægt sé að setja upp gjafa- búnað af þessu tagi. Sjötíu kindur eru um hverja gjafagrind og á ein heyrúlla að duga þeim í þrjá daga. í þessu felst mikill vinnusparnaður og hagræðing. Dráttarvél er notuð til að aka rúllunni úr hlöðunni í gjafagrindina og aðeins þarf að líta eftir grindinni og kannski að stilla hana á milli gjafa. Engar jötur verða í fjárhúsunum en þær hafa sem kunnugt er fylgt sauðfjárbúskap ansi lengi. „Þetta er mesta hagræðingin sem er á döfinni í fjárbúskapn- um og er einkar þægilegt fyrir þá sem vinna utan bús,“ segir Gísli. „Þetta slampast á meðan ástandið versnar ekki. Og mað- ur vonar að það fari að lagast úr þessu,“ segir Nanna þegar þau hjónin eru spurð að því hvort ekki sé erfitt að ráðast í fjár- festingar við þær erfiðu aðstæð- ur sem eru í sauðfjárræktinni. Ungt fólk á mörgum bæjum Búskapur virðist vera í ágætu jafnvægi á Barðaströnd. Aðeins einn sauðfjárbóndi seldi ríkinu greiðslumark sitt í haust, eftir því sem þau Gísli og Nanna hafa fregnað. Og það er ungt fólk á mörgum bæjum. Nokkrir bænd- ur hafa hætt mjólkurframleiðslu á undanförnum árum en það hefur ekki orðið til þess að kvót- inn í heild hafi minnkað að ráði því þeir sem eftir eru hafa bætt við sig. „Þetta gengur á meðan mjólk- in er sótt hingað og það verður vafalaust gert á meðan hér eru stór bú,“ segir Gísli en mjólkin er lögð inn í Mjólkursamlagið í Búðardal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.