Morgunblaðið - 16.11.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 16.11.2000, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Ofnæmisvaldar í hárlitunar- og aflitunarvökva DÖNSKU neytendasamtökin hyggjast beita sér fyrir því að sölubann verði sett á nokkrar teg- undir hárlitunar- og aflitunar- vöka. Tilefnið er heiftarleg of- næmisviðbrög og brunasár sem neytendur hafa orðið fyrir eftir notkun þessara efna. Þá ætla samtökin að reyna að fá danskri löggjöf breytt þannig að hættuleg efni verði bönnuð í hár- litunar- og afiitunarvökvum. í Berlingske Tidende er haft eftir Heidi Sösted hjá dönsku Neytendasamtökunum að það sé ekki viðunandi að neytendur eigi á hættu verulegan skaða af efnum sem fást keypt í matvörubúðum. Snyrtivörur eigi að vera þannig úr garði gerðar að engin hætta sé á miska. Og þá er sjálfsagt að banna notkun efna sem valda ofnæmi, segir hún. Ennfremur kemur fram að á umbúðum mai'gra hársnyrtivara eru ekki nægilegar upplýsignar um þau hættulegu efni sem eru í vörunum. Framleiðendur geta því ekki varið sig með því að neytend- ur eigi að vita um hættuna sem stafar af notkun þeirra. Þótt tekið sé fram að vörur séu ofnæmisprófaðar er það engin trygging. Hársvörðurinn getur skaðast af efni sem prófað hefur verið á handarkrika. „Framleiðendur nota stundum neytendur sem tilraunadýr fyrir vörur sínar“, segir lögfræðingur Dönsku neytendasamtakanna, Sonny Kristoffersen. Lögfræð- ingurinn mun stefna framleiðend- um hættulegra hársnyrtivara. Erfitt er að sanna fyrir rétti þann skaða sem neytendur hafa orðið fyrir vegna hættulegra efna í hársnyrtivörum en Kristoffersen telur að samtökin hafi nokkur ótvíræð dæmi sem muni sannfæra dómstóla. ,Á íslandi gildir reglugerð um snyrtivörur sem byggð er á ákvæðum tilskipana Evrópu- sambandsins,“ segir Elín G. Guð- mundsdóttir hjá eiturefnasviði Hollustuvemdar ríkisins. „Þar eru almenn ákvæði um takmarkanir á notkun ýmissa af- litunar- og hárlitunai'efna en frek- ari takmarkanir og bönn hafa ekki verið skoðuð hérlendis.“ Er ekki líklegt að umrædd efni í Danmörku fáist einnig hér á landi? „Við getum alls ekki útilokað slíkt og vitum reyndar að hér á landi er verið að nota efni sem eru þekkt að því að vera ofnmisvald- ar.“ Aldrei grunur um kúariðu hérlendis Kjötmjöl í fóðri jórturdýra bannað frá árinu 1978 FRAKKAR stöðvuðu í vikunni notkun fóðurs úr dýraafurðum fyrir allan búfénað auk þess að banna t-beinssteikur en þessar aðgerðir eru liður í að spoma við hugsanlegri útbreiðslu kúariðu. Sigurður Öm Hansson aðstoðar- yfirdýralæknir segir að hér á landi hafi bann við notkun kjötmjöls í fóð- ur fyrir jórturdýr verið í gildi frá árinu 1978. „Bannið hér á landi tók gildi löngu áður en nágrannalöndin bönn- uðu notkun kjötmjöls í fóður fyrir jórturdýr. Þetta var varúðarráðstöf- un yfirvalda til að tryggja að ekki bærist smit með þessum afurðum." Sigurður Öm segir að hér á landi hafi aldrei komið upp granur um kúariðu og að dýralæknar og aðrir sem málið varðar séu beðnir um að fylgjast náið með ef nautgripir sýna einkenni um sjúkdóma í miðtauga- kerfi. Ef minnsti granur hefur kom- ið upp um sjúkdóma hafa verið tek- in sýni sem fram til þessa hafa verið í lagi. Þegar Sigurður er spurður hvort eftirlit verði hert með vöram eins og innfluttum nautakrafti segir hann að ekki hafi komið til álita að banna innflutning á slíkum vöram vegna þess að því sé treyst að í löndum þar sem nautariða hefur fundist séu hættulegir veftr sem innihalda riðu- smitefni fjarlægðir. Að sögn hans er ekkert um inn- flutning á nautakjöti núna. Fram til þessa hefur einungis verið flutt inn úrbeinað nautakjöt og það í litlum mæli. Ef sótt væri um leyfí til að flytja inn kjöt frá löndum þar sem nautariða hefur fundist verður það tekið með í mati á hvort eigi að leyfa innflutning. Rannsóknir styðja niðurstöður bresku neytendasamtakanna Handfrjáls búnaður eykur farsímageislun London. Morgunblaðið. NÝJAR rannsóknir bresku neyt- endasamtakanna staðfesta niður- stöður rannsókna sem gerðar voru í apríl og sýna að handfrjáls búnaður á farsíma dregur ekki úr örbylgju- geislun við höfuð notandans, heldur þvert á móti þrefaldar hana. Niður- stöður úr fyrri rannsókninni voru mjög umdeildar og drógu farsíma- framleiðendur þær í efa. Þeir sögðu þær stangast á við niðurstöður úr eigin rannsóknum sem þeir vildu samt sem áður ekki gera opinberar en samkvæmt því er þeir fullyrða, er geislun við höfuð merkjanlega minni þegar hand- frjáls búnaður er notaður. Bresku neytendasamtökin hafa nú eindregið ráðlagt farsímanot- endum að treysta ekki á handfrjáls- an búnað til þess að draga úr geisl- um. Farsímaframleiðendur hafa ítrekað neitað því að hafa markaðs- sett handfrjálsa búnaðinn undir því yfirskyni að hann dragi úr geislun heldur sé hann einungis seldur til Bresku neytendasamtökin ráð- leggja fólki eindregið að treysta ekki á handfijálsan búnað fyrir farsíma til að forðast geislun. þægindaauka fyrir neytendur. í kjölfar niðurstaðanna í apríl fyrirskipaði breska ríkisstjórnin nýja ran'nsókn, sem unnin var á vegum iðnaðar- og verslunarráðu- neytisins. Þær niðurstöður birtust í ágúst og voru í algjörri mótsögn við rannsóknir neytendasamtakanna. A sama tíma voru neytendasamtök- in komin vel á veg með nýja rann- sókn sem var enn ítarlegri en hin fyrri. I niðurstöðunum nú segir að enginn vafi leiki á því að handfrjáls búnaður auki geislun en mælingar iðnaðar- og verslunarráðsins í ágúst hafi verið gerðar með öðram og villandi hætti og séu því ekki marktækar. Þrátt fyrir að áhrif farsímageisl- unar á heilsu fólks séu mjög um- deild hafa rannsóknir í Bretlandi og Svíþjóð, auk fleiri landa, gefið til- efni þess að tengja farsímageislun við krabbameinsmyndun, hjarta- og nýrnasjúkdóma, MS og alzheimer. Bresku neytendasamtökin hafa lagt áherslu á að rannsókninni var ekki ætlað að leggja mat á áhrif farsíma- geislunar á heilsu fólks, einungis að mæla magn geislunar. Fyrirskipað að breyta gjaldskrá vegna netsímtala London. Morgunblaðið. KOSTNAÐUR netfýrirtækja við að bjóða viðskiptavinum upp á ókeypis innhringiþjónustu í Bretlandi mun lækka til mikilla muna eftir úrskurð breska fjarskiptaefth'litsins, Oftel. Það hefur fyrirskipað British Tele- com að taka upp nýja verðskrá á sím- tölum vegna netnotkunar frá og með 1. febrúar nk. og innheimta fast mán- aðargjald óháð notkun í stað mínútu- gjalds. Mikil samkeppni hefur staðið yfir meðal netfyrirtækja í Bretlandi frá því í vor þegar bandaríska fyiirtækið Alta Vista tilkynnti að það hyggðist bjóða notendum sínum ókeypis inn- hringiþjónustu með því að þeir hringi inn í gjaldfrjáls númer og greiði því ekkert fyrir símkostnað á meðan á nettengingu stendur. í kjölfarið íylgdi samhljóða yfirlýsing banda- ríska samskiptafyrirtækisins NTL og í framhaldi af því lýsti BT yfir því að gjaldskránni yrði breytt, en NTL býr yfir afar öflugu eigin samskiptanet- kerfi um Bretland og þarf því ekki að reiða sig á þjónustu BT. BT hefur tekist að fresta upptöku nýrrar gjaldskrár BT hefur hins vegar hingað til tek- ist að fresta því að taka upp hið fasta mánaðargjald og hafa netfyrirtæki tapað stórfé vegna þess að þau hafa vanmetið þann tíma sem tæki Oftel að þvinga BT til aðgerða. BT hafði heitið því að hin nýja gjaldskrá yrði tekin í notkun hið allra seinasta í desember. Netfyrirtækin buðu viðskiptavin- um sínum strax í vor upp á fast mán- aðargjald án mínútugjalds fyrir sím- töl og greiða þau sjálf þann aukakostnað sem hlýst þai' af því net- fyrirtækin greiða BT mínútugjald fyrir netnotkun hvers viðskiptavinar. Mörg gengu jafnvel svo langt að bjóða upp á algerlega ókeypis þjón- ustu en hafa svo þurft að draga tilboð sitt til baka vegna þess hve kostnað- urinn reyndist mikill. Nokkui- hafa neyðst til að lýsa sig gjaldþrota. Jákvæð þróun i þágu neytenda Talsmenn netfyrirtækja i Bret- landi hafa tekið þessum fregnum fagnandi og telja að hin nýja gjald- skrá BT muni gagnast neytendum jafnt sem netheiminum í heild. Gert er ráð fyrir að mánaðargjald verði um 1.200 ln'ónm’ en mörg netfyrirtæki koma til með að greiða það niður að fullu Sem dæmi um netfyrirtæki sem greiða nú þegar niður símkostnað notenda er bandan'ska netfyrirtækið AOL sem býður upp á fast mánaðar- gjald að andvirði um 2.000 krónur óháð notkun. Helstu rök BT hingað tii gegn því að taka upp fast mánaðargjald í stað mínútugjalds hafa verið þau að sím- kerfið þoli ekki álagið sem skapist vegna aukinnar netnotkunar. Oftel gaf út þá tilskipun að ef raunin yi'ði sú yi'ði að skapa aukið rými og yrði kostnaði sem af því hlytist skipt hlut- fallslega milli fjai'skiptafyrirækja þar að lútandi. Ríkisstjórnin telur þetta mikilvægt skref Tony Blaii', forsætisráðherra Bret- lands, skýrði frá því í sl. vor að lægri gjöld fyrir netþjónustu væra grand- völlur fyrir því að hin nýja tækni nýtt- ist ekki einungis fáum útvöldum. Hann sagðist vonast til að allir Bretar væra komnii' með nettengingu innan fimm ára og líkti þróuninni í netheim- inum við nýja iðnbyltingu. Nú era ein- ungis einn af hveijum fimm Bretum með nettengingu í samanburði við annan hvem Bandaríkjamann. Benda má á að í Bandan'kjunum era innan- bæjarsímtöl án endurgjalds og þurfa netnotendur því ekki að greiða sí- mreikninga fyrir notkun Netsins þar. rnm 'm, TiPViiSSpK Pcx sðtfulaðiWaíð kcx Scvcr up O.S llr. Tastc fercats pasta Nijtt w,ð:)39 Jj Vcrð 90 VírusiM Ue Þreps Zðíir: Níi: kr. 59 tcr- 1 Vcrð I/'. Ocrjtos Mnr tejtn’idjrZOOgr. Vcrð áðjr: Vv: •ojr : \ J: -v 4 kr. Z19 kr. Tðblerorte 100 <jr. I úðjr: \j: tm 5 kr. il9 tr. j Tiibeðír ^jida í 20 U p p^rip s ve r s i u r urn Oiís urr *iit iard Dagkjólar, heilir og tvískiptir Jersey kjólar Bouclé prjónakjólar og aðrir prjónakjólar Alltaf eitthvað nýtt Man SKÓLAVÖRÐUSTÍG 14 - SÍMI 551 2509 kvenfataverslun
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.