Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 33
Bretland í aðdraganda mikilvægs leiðtogafundar Evrópusambandsins í Frakklandi
Tony Blair reynir
að einangra ESB-
andstæðinga
London. Reuters, The Daily Telegraph.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur hleypt af stað herferð
sem hefui’ það að markmiði að byggja
upp hagsmunabandalög við grann-
ríkin á meginlandi Evrópu í aðdrag-
anda mikilvægs leiðtogafundar
Evrópusambandsins (ESB) í Nice í
Frakklandi í desember.
Blair á í vændum harðai- samn-
ingaviðræður á Nice-fundinum, þar
sem til stendur að taka ákvarðanir
um breytingar á ESB sem nauðsyn-
legar þykja til að það verði í stakk
búið til að taka inn ný aðildarríki á
næstu árum, en Blair hefur verið
mikill talsmaður stækkunar sam-
bandsins til austurs.
Pólitískir andstæðingar Blairs
heima fyrir láta ekki á sér standa að
saka forsætisráðherrann um að vera
reiðubúinn að afsala brezkum full-
veldisréttindum í hendui- „Brussel“,
en leiðtogar annarra ESB-ríkja hafa
þegar varað hann við því að Bretland
sé á góðri leið með að festast á „hæg-
fara spori“ Evrópusamrunans með
því að standa utan Efnahags- og
myntbandalagsins.
Vilja hindra að
Bretland einangrist
Ónafngreindur heimildamaður
Reuters í brezka stjórnarráðinu
sagði að efst á dagskrá stjómarinnar
væri að sjá til þess að Bretland standi
ekki eitt og einangrað á Nice-fundin-
um 7.-8. desember, hvað varðar af-
stöðuna til samræmingar í skatt-
heimtu- og félagsmálum. Bæði stjórn
og stjómarandstöðu í Bretlandi er
mikið í mun að neitunarvald hvers að-
ildarríkis verði ekki afnumið í þess-
um málaflokkum.
Blair-stjórnin hefur staðið í
ströngu bak við tjöldin við að afla
stuðnings við eigin sjónarmið í hinum
ESB-löndunum. „Hagsmuna-
bandalög em mismunandi efth- mál-
efnum,“ hefur Reuters eftir heimilda-
manninum.
Blair átti viðræður við Paavo
Lipponen, forsætisráðherra Finn-
lands, í fyrradag og hann mun hitta
Gerhard Schröder, kanzlara Þýzka-
lands, í dag. Hann talaði við Jacques
Chirac Frakklandsforseta í gegnum
sjónvarpssímatengingu á mánudag,
og í síðasta mánuði ræddi hann við
hinn spænska starfsbróður sinn José
Maria Aznar á Spáni. Þá hefur Robin
Cook utanríkisráðherra verið nýlega
á ferðinni í Vín, Aþenu og Kaup-
mannahöfn, til viðræðna við þarlenda
ráðamenn.
Deilt um neitunarvald
í skattamálum
Heimildamaður Reuters segir að
nokkur árangur hafi náðst í að fá ír-
land, Lúxemborg, Svíþjóð og Dan-
mörku til að hafna einnig tillögu um
að teknar verði upp atkvæðagreiðsl-
ur með auknum meirihluta (QMV) er
ákvarðanir em teknar um skattamál í
ráðherraráði ESB.
Hann viðurkenndi að ágreiningur
væri við Þjóðverja. Þýzki utanríkis-
ráðherrann Joschka Fischer ítrekaði
í fyrradag stuðning þýzku stjórnar-
innar við að atkvæðagreiðslur með
auknum meirihluta yrðu færðar út til
skattamála.
Ráðamenn í Frakklandi, hinu
þungavigtarríkinu hvað varðar
stefnumótun í Evrópusambandinu,
vilja líka afnema neitunarvald í
Júgóslavar vilja inn í ESB
Hyggjast láta lausa
pólitíska fanga
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
pólitískir fangar eins og þeir síðar-
nefndu halda fram. Fangelsisvist
þeirra hefur verið eitt helsta barátt-
umálið í Kosovo frá stríðslokum í
héraðinu og tilefni ótal mótmæla-
gangna og pólitískra afskipta.
Þá kvaðst Kostunica hyggja á
lausn serbneskra og albanskra fanga
og er óljóst hvað það fyrmefnda þýð-
ir. Hafa fréttaskýrendur velt því fyr-
ir sér hvort það hafi í för með sér
lausn stríðsglæpamanna.
Engu að síður er litið á yfirlýsingu
Kostunica sem afar jákvætt skref og
til marks um að Júgóslövum sé al-
vara með að komast fyllilega í hóp
Evrópuríkja. Skammt er þó síðan
hann var varkár í slíkum yfirlýsing-
um þar sem hann vildi ekki styggja
AP
Vojislav Kostunica, forseti Júgó-
slavíu, ávarpar þing ESB.
þá sem telja að Júgóslavía eigi að
halda tryggð við bandamenn sína í
austri.
Með öllu er óljóst hver framtíð for-
vera Kostunicas í embætti, Slobod-
ans Milosevic, er. Kostunica segir
Júgóslava reiðubúna til samstarfs
við stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna í Haag, sem hefur krafist
framsals Milosevic sem stríðsglæpa-
manns, en forsetinn segir þó of
snemmt að segja til um hvernig það
samstarf gæti orðið. Framsal nýtur
enda takmarkaðs stuðnings í Serbíu
en samkvæmt nýrri skoðanakönnun
eru aðeins 8% því fylgjandi.
skattamálum. í viðræðum Chiracs og
Blairs á mánudag staðfesti talsmaður
Blairs að leiðtogana hafi greint á um
þessi mál.
En Bretar eru ekki einir um að
hafa hagsmuna að gæta í því að halda
í neitunai’vald á ákveðnum sviðum.
Þjóðveijar eru staðráðnir í að halda
neitunarvaldi sínu í innflytjenda- og
flóttamannamálum, en Frakkar í
varnarmálum. Bretar eru einnig
áfram um að halda valdi yfir varnar-
og landamæramálum.
Einn ráðgjafa Blairs hefur sagt að
forsætisráðherrann sé til viðræðu um
að heimila meirihlutaákvarðanir á
sviði umhverfis- og samgöngumála.
Francis Maude, talsmaður utan-
ríkismála í skuggaráðuneyti brezka
Ihaldsflokksins, segir að Blair sé að
selja sífellt meiri völd sém tilheyra
þjóðríkinu í hendur hinna yfirþjóð-
legu stofhana ESB.
Ótti við „ofurríkið"
„A meðan leiðtogar ESB tala um
að gera ESB að ofurríki heldur Blair
sig við kjörorðið „ekki hafa áhyggjur,
það er ekkert að gerast, verið ham-
ingjusöm“,“ sagði Maude. „Væri rík-
isstjórnin sjúklingur væri sá sagður
vera í dúpri afneitun (meina sinna).“
Blair vill að ESB sé pólitískt og
efnahagslegt stórveldi án þess að
AP
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, heilsar Paavo Lipponen, for-
sætisráðherra Finnlands, fyrir fund þeirra í London í fyrradag.
breytast í „ofurríki". Þýzki utanríkis-
ráðherrann Fischer segir að ESB
muni aldrei verða bandaríki í líkingu
við Bandaríki Norður-Ameríku.
Blair og Cook hófu í vikunni her-
ferð, sem hefur það að markmiði að
sannfæra brezkan almenning um að
það sé í þágu brezkra hagsmuna að
vera í sem nánustum tengslum við
Evrópu.
Þó er sneitt hjá því að fullyrða neitt
meira um hver framtíð Bretlands eigi
að verða gagnvart evrópska mynd-
bandalaginu en að endurtaka fyrri yf-
Mýsingar um að gert skuli út um það
eftir næstu þingkosningar, sem búizt
er við að boðaðar verði á næsta ári.
Samkvæmt skoðanakönnunum er nú
mikill meirihluti Breta mótfallinn því
að taka upp evruna.
,Að skera okkur frá mikilvægasta
ríkjabandalaginu við dyragætt okkar
væri ekkert annað en hrein
heimska," sagði Blair í ávarpi til
kaupsýslumanna í Lundúnum á
mánudag.
Blair lét engan vafa leika á því að
hann myndi standa vörð um neitun-
arvald Bretlands gegn samræmingu
skattamála í ESB. „Á sviðum þar
sem við teljum að aðrir hafi rangt fyr-
ir sér, svo sem í skattamamálum, hik-
um við ekki við að segja nei,“ sagði
hann.
En hann hefur gefið í skyn að hann
muni ekki beita sér gegn „efldu sam-
starfi“ ríkja sem vilja fara hraðar og
lengra í samrunaátt en aðrir, svo
lengi sem það skaðaði ekki brezka
hagsmuni.
Meiriháttar uliarkápur
á góðu verðí
Vetrartilboð:
Ullarkápur 14.900
Flíspeysur 3.900
Mikið úrval af nýjum
peysum og pilsum
InWear
Kringlunni, sími 588 0079
Nýtt kortatímabil
Opið alla fimmtudaga til kl. 21.00