Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 34

Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Veerappan Rajkumar Indverska kvikmyndagoðið loksins frjálst Bangalore. AFP. INDVERSKI leikarinn Rajkumar var látinn laus í fyrrakvöld en þá hafði hann verið fangi mannræn- ingja í hálfan íjórða mánuð. Mikili fögnuður varð meðal aðdáenda hans er fréttin um frelsi hans barst út. Chadra Gowda, ráðherra í Karnataka, heimaríki Rajkumars, skýrði frá þessu í gær og sagði, að Rajkumar væri þá væntanlegur til Bangalore, höfuðstaðar Karnataka. Stjórnvöld skömmuð Alræmdasti glæpamaður á Ind- landi, Veerappan, rændi Rajkumar og þremur mönnum öðrum 30. júlí sl. í Tamil Nadu, nágrannaríki Karnataka. Tilheyrir Rajkumar kannadiga-fólkinu í Karnataka, hinni ráðandi stétt þar, en Veer- appan er tamíli. Hefur lengi verið grunnt á því góða með þessum flokkum og hefur oft slegið í brýnu milli þeirra eftir að Rajkumar var rænt. Ekki er talið líklegt, að orðið hafi verið við kröfum Veerappans en þær voru, að 51 félagi hans yrði lát- inn laus úr fangelsi og fallið frá ákærum gegn öðrum 70. Höfðu stjórnvöld í Karnataka og Tamil Nadu raunar fallist á þær en hæsti- réttur Indlands var á öðru máli og ávítaði þau harðlega fyrir aum- ingjaskap. Hefur þeim ekkert gengið í baráttunni við Veerappan en hann og glæpaflokkar hans hafa leikið lausum hala í 10 ár. Hefur Veerappan verið ákærður í meira en 100 morðmálum. Rajkumar, sem er 72 ára að aldri, er einn vinsælasti leikari Indveija, hefur leikið í meira en 200 kvik- myndum og verið sæmdur eftir- sóknarverðustu leikaraverðlaunum í Iandi sínu. Valdaránið á Fidjíeyjum Dómstóll úr- skurðar stjórn- ina ólöglega Suva. Reuters. DÓMARI undirréttar á Fídjíeyjum úrskurð- aði í gær að stjóm Mahendra Chaudrys, fyrrverandi forsætis- ráðherra, sem var steypt af stóli í valda- ráni, ætti að taka við völdunum að nýju. Bráðabirgðastjórn frumbyggja eyjanna kvaðst þó ekki ætla að víkja og áfrýjaði úr- skurðinum. Her eyjanna kvaðst virða úrskurð dómar- ans en ætla að bíða eftir niðurstöðu afrýjunar- innar. Dómarinn Anthony Gates komst að þeirri niðurstöðu að valdataka bráðabirgðastjómar undir forystu Laisenia Qarase bryti í bága við stjómarskrána. Hann mæltist til þess að Kamisese Mara, sem var steypt af stóli forseti, kallaði þingið saman til að setja Chaudry aftur í embætti forsætisráðherra. Qarase kvaðst hins vegar ætla að stjórna landinu áfram með það að markmiði að tryggja öryggi íbúanna, rétta efnahaginn við og undirbúa kosningar eftir eitt og hálft ár. Sérfræðingar í stjómmálum Fídjí segja að án stuðnings hersins sé úrskurður dómarans aðeins siðferði- legur sigur fyrir Chaudry, sem varð fyrsti forsætisráðherra landsins af indverskum ættum eftir að stjómar- skrá landsins var breytt árið 1997. Hon- um var steypt af stóli í valdaráni fmmbyggja í maí og George Speight, mis- heppnaður kaupsýslu- maður, og stuðnings- menn hans héldu honum í gíslingu í þing- húsinu í 56 daga. Speight er nú í fangelsi og hefur verið ákærður fyrir landráð. Ný stjórnarskrá boðuð Qarase kvaðst hafa fengið umboð til að stjórna landinu frá Josefa Iloila for- seta, sem nýtur stuðnings hersins, og höfðingjaráði frumbyggja lands- ins. Bráðabirgðastjórnin hefði ein- sett sér að setja nýja stjómarskrá sem ætti að „tryggja framtíð fram- byggjanna" eftir að höfðingjarnir drógu til baka stuðning sinn við stjómarskrána frá 1997 sem heimil- aði að stjórnmálamenn af indversk- um uppmna gegndu embætti for- sætisráðherra. Dómarinn komst að þeirri niður- stöðu að ógilding stjómarskrárinnar í valdaráninu hefði verið ólögmæt. Helen Clark, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, fagnaði úrskurðinum og kvaðst vona að hann yrði til þess að komið yrði á lýðræði að nýju sem fyrst. Mahendra Chaudhry Hátíðisdagur móðurmálsins DAGUR íslenskrar tungu er í dag, en 1995 samþykkti ríkisstjórnin tillögu Björns Bjarnasonar, menntamálaráðherra, um að fæð- ingardagur Jónasar Hallgrímsson- ar, 16. nóvember, verði ár hvert dagur íslenskrar tungu. I frétt frá menntamálaráðuneyt- inu segir, að ráðuneytið hafi beitt sér fyrir átaki í þágu móðurmáls- ins til að auka veg þess á allan hátt. Áhugi á móðurmálinu er mik- 01 í samfélaginu og því talið skynsamlegt að beina kröftum í einn farveg með samvinnu fjöl- miðla, skóla, félagasamtaka, fyrir- tækja og stofnana. í framkvæmdastjórn dags ís- lenskrar tungu, sem menntamála- ráðherra skipar, eiga sæti Ari Páll Kristinsspn, Guðni Olgeirsson, Þorgeir Ólafsson og Ingibjörg B. Frímannssdóttir, sem jafnframt er verkefnisstjóri. í ráðgjafarnefnd eiga sæti Kristján Árnason, Sig- mundur Ernir Rúnarsson og Guð- rún Nordal. Lögð er áhersla á að skólar og stofnanir minnist dagsins með við- eigandi hætti og hefur t.d. öllum skólastofnunum landsins verið sent bréf og veggspjöld til að minna á hann. Þá hafa íslan- dspóstur og framkvæmdastjórn dags íslenskrar tungu sent öllum landsmönnum póstkort til að minna á daginn. Á degi íslenskrar tungu stendur menntamálaráðuneytið fyrir sam- komu í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu sem hefst kl. 17 og er öllum opin. Við það tækifæri mun Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, m.a. veita Verðlaun Jónasar Hall- grímssonar og sérstakar viður- kenningar fyrir störf í þágu ís- lenskrar tungu. Áður hafa Vilborg Dagbjartsdóttir, rithöfundur og kennari, Gísli Jónsson, mennta- skólakennari, Þórarinn Eldjárn, rithöfundur, og Matthías Johann- essen, skáld og ritstjóri, hlotið Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Verðlaunahafinn hlýtur 500 þús- und krónur og Ritsafn Jónasar Hallgrímssonar í hátíðarbandi. ís- landsbanki-FBA hf. leggur til verðlaunin. I reglum menntamálaráðuneyt- isins um heiti og skilgreiningu verðlaunanna segir m.a.: „Verð- launin heita Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. Þau skulu veitt á degi íslenskrar tungu, 16. nóvem- ber, ár hvert. Þau ber að veita ein- staklingum er hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðl- að að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar. Auk þess er heimilt að veita stofn- unum og fyrirtækjum sérstaka við- urkenningu fyrir stuðning við ís- lenska tungu.“ Ennfremur verða í tilefni dagsins m.a. dagskrár í flestum leik- og grannskólum landsins og samkomur í tilefni dagsins. Ráðstefnan Frá huga til huga verður sett í Þjóðarbókhlöð- unni kl. 16 og hátíðarsýning á Stúlkunni í vitanum er í Islensku óperanni kl. 20. Einnig er hátíðar- sýning á verki Hallgríms Helga- sonar, Skáldanótt, á Stóra sviði Borgarleikhússins og hefst hún einnig kl. 20. Auk þess stendur Kvikmyndafélagið Filmundur fyrir sýningum á Landi og sonum í til- efni dags íslenskrar tungu dagana 16.-20. nóvember og smásagna- samkeppni 8.-10. bekkjar í grunn- skólum Hafnarfjarðar hefst í þriðja sinn. Loks verður málstefna í Menntaskólanum á Akureyri, laugardaginn 18. nóvember, og ber heitið Staða íslenskrar tungu í lok aldar. Líkt og undanfarin ár hefst Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk á degi íslenskrar tungu og munu vinningshafar síðustu ára m.a lesa upp á hátíðardagskrá í Þjóðmenn- ingarhúsinu. I frétt menntamálaráðuneytisins segir m.a: „Það er höfuðatriði að dagur íslenskrar tungu sé álitinn hátíðisdagur móðurmálsins, dagur sem Islendingar nota til að minn- ast og íhuga þá sérstöðu sem end- urspeglast í tungunni. í tengslum við þetta markmið hvetur menntamálaráðuneytið til þess að flaggað verði hinn 16. nóvember í tilefni dagsins." Sett hefur verið upp heimasíða á vef ráðuneytisins með upplýsing- um um verkefnið, hugmyndabanka og fleira. Slóðin er: http:// mrn.stjr.is/mrn/dit/ Prentarar við iðju sfna í Þýskalandi um 1500. Frá huga til hugar SÝNING í Þjóðarbókhlöðunni sem ber yfirskriftina Frá huga til hugar verður opnuð á degi ís- lenskrar tungu, í dag, fimmtudag, kl. 16. Með þessari yfirskrift er verið að vísa til lestrar almennt. Bækur miðla hugsun, boðun og trú til þess sem les þær frá þeim sem ritar. En á milli þess sem miðlar og þess sem tekur við á sér stað heilmikið ferli. Á sýningunni verður saga prents og bókaútgáfu á íslandi í sviðsljósinu með sér- stakri áherslu á útgáfu Biblíunn- ar. Þetta er löng og fjölbreytileg saga sem snert hefur alla þætti íslensks samfélags og mótað það. Þessi saga verður dregin fram með margvíslegum hætti. Gamlar Bibliuútgáfur verða til sýnis og gerð grein fyrir þeim. Munir sem varðveist hafa úr sögu prentiðn- aðarins í gegnum tfðina verða til sýnis og notkun þeirra skýrð. í máli og myndum verður tvinnuð saman útgáfusaga Biblíunnar og þróun prentiðnaðarins á fslandi og hún rakin frá fyrstu tíð og allt til dagsins í dag. Samhliða opnun sýningarinnar fjalla þau Jón G. Friðjónsson prófessor, Kristín Bragadóttir forstöðumaður, Loftur Guttorms- son prófessor og Sigurður Páls- son sóknarprestur um prentsögu íslendinga og hvernig lestrar- kunnátta fslensku þjóðarinnar hefur þróast frá fyrstu tíð. Einnig hver áhrif þýðing Biblfunnar á ís- lensku hafði á varðveislu tung- unnar. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra ávarpar gesti og biskup fslands, herra Karl Sigurbjörns- son, opnar sýninguna. Sýningin og dagskráin í dag eru á vegum Félags bókagerðar- manna, Hins fslenska Biblíufé- lags, Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns og Samtaka iðnaðarins. Sýningin er styrkt af Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000 og kristnihátíðarnefnd. Sýningin stendur út janúar árið 2001.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.