Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 35

Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 35 Russell Athletic - Columbia - Convert - Jansport - Gilda Marx - Avia - Tyr - Schwinn - Slendertone - Polar - Weider - Metaform - ABB - EAS - Musdetech - Twinlab - Designer - Labrada - Natures Best - Leppin - MLO Stóra upplestrarkeppnin haldin í fímmta sinn Þriggja mánaða rækt lögð við flutn- ing lesmáls í skólum STÓRA upplestrarkeppnin í 7. bekk grunnskóla er nú haldin í fimmta sinn. Dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember, er formlegur upphafs- dagur keppninnar en henni lýkur með upplestrarhátíð í hverju 'byggð- arlagi í mars. Þá koma saman bestu upplesarar úr hverjum skóla og lesa fyrir gesti sögur og ljóð. Keppnin hefur breiðst smátt og smátt út um landið síðan hún hóf göngu sína í Hafnarfirði haustið 1996. I ár taka liðlega fjögur þúsund nemendur í 120 grunnskólum þátt í keppninni, allt frá Djúpavogi og þaðan suður og vestur um land til Vestfjarða og um Norðurland til Þórshafnar, segir í fréttatilkynningu. Markmið keppninnar er að stuðla að því að hlutur hins talaða máls, sjálfs framburðarins, verði meiri í skólum landsins og vitund þjóðar- innar en verið hefur. Aðalatriði keppninnar er ekki að velja þann hlutskarpasta heldur að fá sem flesta til þess að leggja rækt við lestur sinn, ekki síst þá sem hingað til hafa orðið útundan í lestri. Reynslan hefur sýnt að einmitt þeh- geta komið á óvart þegar þeir fá góða leiðsögn og tækifæri til þess að undirbúa sig. Dagur íslenskrar tungu markar upphaf þriggja mánaða tímabils þar sem gert er ráð fyrir að kennarar leggi meiri rækt en endranær við undirbúinn upplestur í skólastof- unni og listrænan flutning texta. Aðstandendur vonast til að keppnin verði kærkomið tilefni til þess að koma saman og njóta þess að hlýða á vandaðan flutning góðra bók- mennta, segir í tilkynningunni. Að keppninni standa Heimili og skóli, íslensk málnefnd, íslenska lestrarfélagið, Kennaraháskóli ís- lands, Kennarasamband Islands og Samtök móðurmálskennara. Styrkt- araðilar keppninnar í vetur eru eft- irtaldir: Sparisjóðirnir, Edda - miðl- un & útgáfa, Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar, Flugfélag íslands, Mjólkursamsalan og mennta- málaráðuneytið. Kistillinn sem geymir bréfin. Sendibréf til ársins 2050 Á DEGI íslenski'ar tungu, fimmtu- daginn 16. nóvember, munu nemend- m- grunnskóla Vestur-Barða- strandarsýslu skrifa bréf inn í framtíðina nánar tiltekið til ársins 2050 í samstarfi við skóla héraðsins mun byggðasafn héraðsbúa, Mirya- safn Egils Ólafssonar á Hnjóti í Ör- lygshöfn við Patreksfjörð, koma bréf- unum til skila. Bréfsefnið, sem aldamótahugleiðingarnar verðpa skráðar á, er komið frá forseta Is- lands Ólafi Ragnari Grímssyni. Rit- smíðarnar verða varðveittar í innsigl- uðum kistli á byggðasafninu sem verður ekki opnaður fyrr en árið 2050. Söngnemendur syngja lög Sigfúsar í TILEFNI af Degi íslenskrar tungu munu söngnemendur í Tón- listarskóla Garðabæjar flytja dag- skrá með lögum eftir Sigfús Hall- dórsson tónskáld á morgun, fimmtudag, kl. 20. Flutt verða mörg af fallegustu lög- um Sigfúsar við ljóð eftir hin ýmsu öndvegisskáld, en Jónas Jónasson útvarpsmaður og rithöfundur mun flytja nokkur orð um Sigfús. Nemendur í söngnámi eru á þriðja tug og munu flestir þeirra taka þátt í dagskránni. Kennarar við söngdeildina eru þær Margrét Óðinsdóttir og Snæbjörg Snæbjarnardótth' en píanóleikarar eru Agnes Löve og Richard Simm. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. „Vísa var það heillin“ KVÆÐAMANNA- og hagyrðinga- kvöld verður í Edinborgarhúsinu á ísafirði í kvöld kl. 20. Dagskrá þessi er haldin á degi íslenskrar tungu og er ætlunin að gera þetta að árvissum viðburði. Einvalalið kvæðamanna og hag- yrðinga kemur fram en stjórnandi er Kristján Hreinsson skáld. Þátttakendur verða Ása Ketils- dóttir, Steindór Andersen, Sigurð- ur Sigurðarson, Elís Kjaran, Gest- ur Kristinsson, Helga Guðný Kristjánsdóttir og Snorri Sturlu- son. ----------------- Menningar- vökur leik- skólakennara MENNINGARVÖKUR leikskóla- kennara verða haldnar á degi ís- lenskrar tungu annaðkvöld, fimmtu- dagskvöld, á Grettisgötu 89 í Reykjavík kl. 20, Fosshótelinu á Reyðai'firði kl. 20 og í Deiglunni á Akureyri kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá verður á öllum stöðunum, upplestur, ljóðaupplest- ur, kveðskapur, söngur, gamanmál o.fl. Markmið leikskólakennara með því að hittast á degi íslenskrar tungu er að eiga saman kvöldstund, minna sig á mikilvægi vandaðs máls í leik- skólastarfi og að skemmta sjálfum sér og öðrum. Styrkþegar og fulltrúar þeirra ásamt Guðmundi Haukssyni sparisjóðsstjóra. STYRKJUM úr Menningar- og styrktarsjóði SPRON fyrir árið 2000 hefur verið úthlutað. Eitt af mark- miðum SPRON er að láta sér annt um menningu og umhverfi á höfuð- borgarsvæðinu þar sem flestir við- skiptavina búa og starfa. Til að sýna markmið sitt í verki hefur Menning- ar- og styrktarsjóður SPRON á und- anförnum árum veitt fjöklann allan af styrkjum til þessara málaflokka, fyrir allt að 14 millj. kr. árlega. Að þessu sinni hlutu eftirtaldir að- ilar styrki: Leikhópurinn Á senunni vegna leiksýningarinnar Himi full- komni jafningi. Steinunn Birna Ragnarsdóttir pianóleikari vegna tónleikaferðar til Litháen, þar sem henni var boðið að leika á Alma Mat- er-tónlistarhátíðinni í Vinius. Kammersveit Reykjavflíur í tilefni 25 ára afmælis sveitarinnar. Skólalúðrasveit Vesturbæjar SPRON úthlutar styrkjum vegna tónleikaferðar til Monte Carlo í Portúgal. Hljómsveitin er skipuð 80 ungmennum á aldrinum 8-16 ára úr fjórum grunnskólum í vesturbæ Reykjavíkur. Sumartón- leikar í Skálholti í tiiefni af 25 ára afmælishátíð tónlistarhátíðarinnar. Leikfélagið Fljúgandi Fiskar vegna uppsetningar á Ieiki-itinu Madeu eft- ir Evrípídes. Sigurður Pálsson, til ýmissa sköp- unarstarfa. Sigríður K. Þorgrímsdóttir vegna útgáfu afmælisrits til heiðurs Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur vegna efnisöflunar í bók um Guðríði Símonardóttur. Jó- hann Sigurðsson leikari, til listsköp- unar. Sinfónfuhljómsveit áhugamanna, til kaupa á nýju íslensku tónverki í tilefni 10 ára afmælis sveitarinnar. Dansleikhús með Ekka, sem er ungt atvinnuleikhús skipað ungum leikurum og dönsurum. Art 2000 - alþjóðleg raf- og tölvu- tónlistarhátíð, til að halda fyrstu al- þjóðlegu raf- og tölvutónlistarhátfð sem haldin hefur verið á Islandi. Áskell Másson, til að semja fiðlu- konsert. Sjálfstæðu leikhúsin, til að halda listaþing IETM á Islandi. Frank Ponzi vegna útgáfu bókar með Ijósmyndum af Islandi á ár- unum 1890-1901. Risa 1 Hreysti opnar nýja og breytta verslun árið 2001 Verslunin hættir sölu á fatnaði Gríðarlegur afsláttur af t.d,: úlpum, buxum, snjóbrettafatnaði, skyrtum, stuttermabolum, peysum, íþróttaskóm, sandölum, stuttbuxum, rennilásabuxum, anorökkum, próteinum, orkudrykkjum, vítamínum, raförvunartækjum o.m.m.m.fl. NYTT KORTATIMABIL Allt á að seljast! Opið kL 9.00 -18.00 HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL --Skeifunni 19 - S. 568 1717- www.hreysti.is Allt á hvoifi...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.