Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
Kristján Jóhannsson tekur upp plötu sína, Hamraborgina, í Salnum fyrr á þessu ári.
„Ég er rosalega ánægður með plötuna."
Að kniisa hjartað
Það er engín lognmolla í kringum Krístján
Jóhannsson tenórsöngvara - fremur en
------------------------------
endranær. A aðfangadag syngur hann í há-
degismessu í Vatíkaninu og hittir sjálfan
páfann og um aðra helgi heldur hann tón-
leika í Háskólabíói í tilefni útgáfu á nýrri
geislaplötu, Hamraborginni. Orri Páll Orm-
----------------------7-------
arsson hringdi í Kristján til Italíu.
Rílvi, borg og menning
Vonir um áfram-
haldandi samstarf
,J,RONTÓ,“ segir ítölsk kvenrödd í
símann. Ég spyr um Kristján Jó-
hannsson. Konan bunar einhverju úr
sér. Mig rekur í vörðumar. Slappur í
ítölskunni. Samt veit ég að tenórinn
er heima. Heyri í honum í bakgrunni.
Hann er að segja sögu og fer mikinn -
að vanda. „Mómentó,“ segir konan,
augljóslega búin að átta sig á því að ég
skil ekld bofs. Smástund h'ður. Krist-
ján kemur í súnann.
- Blessaður Kristján, þetta er Orri
Páll á Morgunblaflinu.
„Nei, blessaður."
- Sæki égilki að þér?
„Nei, nei, ég sat bara úti á svölum."
Uti á svölum. Það er ekki ofsögum
sagt að honum liggi hátt rómur, ten-
ómum.
- Hvað er títt?
„Heyrðu, það er bara stórbomba!"
-Nú?
„Þeir hringdu í mig frá Vatíkaninu í
gær og buðu mér að syngja í hádegis-
messunni á aðfangadag. Páfi prédikar
þar og ég hef fengið staðfest að ég fæ
að hitta hann sérstakiega. Það vom
víst þrír menn sem komu til greina,
Luciano [Pavarotti], Bocelli og Jó-
hannsson. Hinir em búnir að vera
þama áður, þannig að ég varð ofan á í
þetta skiptið. Ég er mjög ánægður
með það.“
- Það er ekkert annað. Þetta er
mikil upphefð.
„Heldur betur. Ég á að syngja
þama eitt eða tvö lög en er ekki búinn
að ákveða hvaða lög það verða. Við
vomm bara að ganga frá þessu í
morgun. RAI Intemational [ítalska
ríkissjónvarpið] sýnir beint frá þessu
um alla veröld og talað er um að tveir
og hálfur milljarður manna muni
fylgjast með messunni, sem stendur
frá klukkan ellefu til hálfeitt. Ég kem
fram einhvem tíma á því bili. Þetta
verður ömgglega rosagaman. Ég er
mjög stoltur."
Nær jólasteikinni
- En þú missir þá af jólasteikinni,
eða hvafl?
„Heyrðu, það sleppur. Ég næ steik-
inni. Mér leist raunar ekki á blikuna í
fyrstu því ég hélt að þeir væm að tala
um miðnæturmessuna. Fór þá kurr
um hópinn á heimilinu. Bömin vilja
hafa pabba gamla heima á aðfanga-
dagskvöld. Síðan kom í ljós að þetta
er hádegismessan, sem þýðir að ég
ætti að verða kominn heim milli
klukkan sjö og átta um kvöldið. Þeir
bíða bara eftir mér, grislingamir mín-
ir.“
- Svo skilst mér að þú sért að koma
heim.
„Hárrétt. Ég verð með konsert í
Háskólabíói laugardaginn 25. nóvem-
ber, á afmælisdegi sonar míns. Ég á
von á því að það verði mjög gaman.
Við ætlum að hafa sprell og alvöm
saman. Ég verð þama öðrum þræði í
hlutverki uppalanda, kynni til sög-
unnar ungan tenór sem lofar mjög
góðu, Jóhann Friðgeir Valdimarsson.
Hann hefur mjög fallega rödd. Síðan
verður Kristján Jóhannsson innan
sviga þama líka, réttu nafni Öm
Ámason. Hann er alltaf að herma eft-
ir mér og við ætlum að sprella þarna
saman. Om ætlar að syngja með mér
eitt lag. Ég segi ekki hvaða lag það er
en það er ekki Hamraborgin.
Kvennakórinn syngur með okkur og
Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur
með á píanó. Þetta verður rosagam-
an!“
- Eru þetta ekki útgáfutónleikar
vegna geislaplötunnar Hamraborgin
sem er aðkoma út?
„Jú, ég er að kynna plötuna. Ég er
rosalega ánægður með hana og held
við séum með mjög fallegan hlut. Ég
lagði ofsalega hart að mér við upp-
tökumar og þurfti að gíra mig ansi
mikið niður á köflum enda er fullt af
ballöðum þama, hálfgerðar vögguvís-
ur. Ætli ég verði ekki bara hjarta-
knúsari þjóðarinnar upp frá þessu,“
segir tenórinn og hlær dátt, eins og
honum einum er lagið.
„Fílharmóníuhljómsveit Lundúna-
borgar og Sinfómuhljómsveit Islands
leika undir á plötunni og útsetning-
amar eru eftir nafnana Jón Þórarins-
son og Sigurðsson, bæði gamlar og
nýjar. Sumar alveg glænýjar. Hamra-
borgin og Gígjan em til dæmis alveg
sjóðheit. Þær útsetningar eru eftir
Jón Sigurðsson. Ég held að Hamra-
borgin eigi eftir að verða mikil
bomba, reyndar Gígjan líka.
Þetta em útsetningar sem klæða
mig betur án þess að verið sé að rýra
hlut tónskáldsins. Ég vona að þetta
mælist vel fyrir.“
Lög sem bera vel hljómsveit
- Eru þetta allt nýjar upptökur?
„Upptökumar með Fílharmón-
íunni era gamlar en allt með Sinfón-
íuhljómsveit íslands er glænýtt. Allt
með mér líka. Carsten Andersen
stjómaði Fílharmómunni og Bem-
harður Wilkinson Sinfóníunni."
- Hvemig völduð þið efni á plöt-
una?
„Við völdum ekkert endilega bestu
lögin enda er það alltaf afstætt. Það
sem við reyndum var að velja lög sem
bera vel hljómsveit. Kaldalóns er
þama í aðalhlutverid, einfaldlega
vegna þess að lögin hans era stór og
gefa mikla möguleika á að setja
hljómsveitina undir. Þama era líka
Iög eftir Jón Þórarinsson og Sigfús
Einarsson, sem ég held mikið upp á,
og fleiri. Það kemur að því að ég tek
Atla vin minn Heimi, Jón Asgeirsson
og þessa gaura en það verður að vera
með minni hljómsveit eða bara píanói.
Það er ekki alltaf stór hljómsveit sem
skiptir máli. Ég verð að skoða þetta
vel.“
- Verfla bara þessir einu tónleikar í
Háskólabíói?
„Já, því miður. Það var þuklað á því
að fara með þetta norður á sunnudeg-
inum en það gekk ekki upp. Ég verð
að vera kominn til Munchen á mánu-
deginum til að syngja í II trovatore,
annars verð ég hengdur upp eins og
skreið. Ég get ekki tekið áhættuna,
einkum á jjessum árstíma þegar lítið
má bregða út af svo maður tefjist. Það
verður bara seinna."
Brjálað að gera
- Hvað hefurðu verið að sýsla að
öðru leyti?
„Ég var að syngja í II trovatore
undir stjóm Zubins Mehta í Munchen
um síðustu helgi og á, eins og ég segi,
eftir tvær sýningar þar.
Síðan er ég með þrjár Aida-sýning-
ar í Munchen, 1., 6., og 9. desember.
Níunda kemur mikill hópur vina, lík-
lega ein tíu tólf pör, og við ætlum að
gera okkur glaðan dag í Munchen.
Eftir jólafrí byija ég í Frankfurt
með II trovatore 2. janúar. Ég er líka
með Trovatore í Berlín í janúar og Ót-
elló og Cavalleria Rusticana í Vín og
svo framvegis. Það er brjálað að
gera.“
- Ertu í góðu formi? Búinn að ná
þér að fullu eftir veikindin sem voru
að hrella þig síðasta vetur?
„Já. í fyrsta sinn á ferli mínum átti
ég við heilsuvandamál að stríða. Það
raddust yfir mig pestar og kjaftæði
um þriggja mánaða skeið. Um leið og
sólin hækkaði á lofti komst það í lag
og ég er búinn að vera í helvíti góðu
stuði síðan. Þú átt eftir að heyra það á
plötunni."
Þar með kveðjumst við, slítum sím-
talinu og Kristján kemst aftur út á
svalir - til að klára söguna.
ÞÓTT fjárhagslegri þátttöku ríkis
og borgar í verkefninu Reykjavík -
menningarborg Evrópu árið 2000
ljúki um áramót vonast menntamála-
ráðherra og borgarstjóri til þess að
þessir aðilar haldi áfram samstarfi á
sviði menningar í einhverri mynd.
Þetta kom fram á aðalfundi Banda-
lags íslenskra listamanna sem hald-
inn var á dögunum.
Björn Bjarnason og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir voru sérstakir gestir
fundarins. Ráðherra tók fram að
menningarborgarárið væri að sjálf-
sögðu alveg einstakt verkefni sem
tekið hefði mörg ár að undirbúa og
að enginn samningur væri um fram-
tíðarverkefni af því tagi. Hins vegar
hefði verkefnið heppnast svo vel að
einboðið væri að halda samstarfinu
áfram með einhverjum hætti. Sam-
starf ríkis og borgar væri að sjálf-
sögðu til að byggja á til framtíðar.
Bjöm sagði Listahátíð í Reykjavík
kjörinn samstarfsvettvang, þar væri
hægt að nýta þekkingu og reynslu
sem menningarborgarverkefnið
hefði haft í för með sér.
Þegar hefur verið ákveðið að auka
stuðning við hátíðina, meðal annars
með það fyrir augum að Listahátíð
geti haldið uppi starfsemi á áranum
milli hátíða.
Borgarstjóri sagði aukningu á
fjárveitingu til menningarmála hjá
borginni vera um sextíu milljónir
króna milli áranna 2000 og 2001. Þá
væri menningarborgarárinu haldið
fyrir utan. Að hennar áliti hefur tek-
ist að virkja fyrirtæki til stuðnings-
við menningu og þau vísast séð
ávinninginn af þeim stuðningi. Þar af
mætti ætla að menningarborgarárið
hefði skilað mun meira en menn
gerðu sér grein fyrir. Sagði hún
æskilegt að koma á fót samstarfs-
SIGURÐUR Flosason saxófónleik-
ari og Gunnar Gunnarsson orgelleik-
ari halda tónleika í Keflavíkukirkju í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30.
Þetta era fyrstu tónleikar Sigurð-
ar og Gunnars í Keflavík síðan að
geisladiskur þeirra „Sálmar lífsins“
kom út í apríl síðastliðnum, en þeir
hópi til að vega og meta hverju árið
muni færa þjóðinni til frambúðar.
Björn sagði að ríki og borg myndu
áfram vinna að því að koma listinni á
framfæri erlendis og úti á lands-
byggðinni. Hann ræddi um menn-
ingarsamskipti við önnur ríki og
sagði frá fundi sem nýlega var hald-
inn með menningarfulltrúum frá
Frakklandi þar sem kom til tals að
efna til íslenskrar menningarkynn-
ingar árið 2002 eða 2003.
Björn sagði jafnframt að nýja nor-
ræna sendiráðið í Berh'n og Norræna
húsið í New York ættu eftir að skipta
miklu máh fyrir íslenska menningu í
framtíðinni.
Fjölmargar ályktanir vora sam-
þykktar á fundinum. Meðal annars
skorar BIL á ríki og borg að stuðla
að því að Listahátíð verði haldin á
hverju ári. Þannig verði efnt til lista-
og menningarhátíða í ýmsum list-
greinum í samvinnu við Listahátíð í
Reykjavík og fagfélög í viðkomandi
listgreinum.
BÍL leggur líka til við stjórnvöld
að þeim Ustamönnum sem njóta
heiðurslauna Alþingis verði fjölgað
til muna á næstu áram.
Aðalfundur BIL lýsti einnig and-
stöðu sinni við þá fyrirhuguðu breyt-
ingu á stjórn Kvikmyndasjóðs Is-
lands að meirihluti fulltrúa verði
skipaður án tilnefninga fagfélaga. Þá
leggur BÍL til að stuðlað verði að
varðveislu leiklistarsögulegra minja
með því að koma á fót leiklistarsögu-
safni.
Ennfremur skorar bandalagið á
menntamálaráðherra að stuðla að
því að Listaháskóli íslands geti með
tímanum sinnt öllum Ustgreinum og
staðsetningu hans verði þannig hátt-
að að hann geti myndað sterk og góð
tengsl við listalífið.
félagar komu fram á kristnihátíð á
ÞinjgvöUum í sumar.
A tónleikunum í kvöld munu
Gunnar og Sigurður leika efni af
geisladiskinum „Sálmar lífsins" í
bland við nýn'a efni sem þeir hafa
unnið að undanförnu. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir.
Nýjar bækur
• ÚT er komin skáldsagan
Strengir eftir Rögnu Sigurðar-
dóttur.
I fréttatilkynningu segir: „Mar-
ía Myrká er einstæð móðir í þriðja
ættlið. Hún sver sig í ætt kvenna
sem hver á sinn
hátt hafa svalað
frelsisþrá sinni á
mismunandi
tímum. Allar
eiga þær sam-
eiginleg sterk
tengsl við nátt-
úrana sem vakir
yfir þeim á ein-
stakan hátt.
María kynnist
Boga í Reykjavík á níunda ára-
tugnum. Þau vita bæði að þau era
og verða stóra ástin í lífi hvort
annars, en þau era ung og börn
síns tíma og þeim reynist eríitt að
halda í hamingjuna. Þau eiga ekki
alltaf samleið þar sem gimdin er
annars vegar og það kemur að því
að þau halda hvort sína leið. Það
er komið að aldamótum þegar þau
hittast aftur og taka upp þráðinn.
Þess er skammt að bíða að jörðin
fari að titra undir þeim ...
Sálfræðilegt innsæi og næmi á
sívökula og alsjáandi náttúrana
einkenna þessa fallegu og viðburð-
Ragna
Signrðarddttir
aríku sögu. Áður hefur Ragna Sig-
urðardóttir m.a. sent frá sér skáld-
sögumar Borg (1993) sem tilnefnd
var til Islensku bókmenntaverð-
launanna og Skot (1997).“
Utgefandi er Mál ogmenning.
Strengir er206 bls., unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf. Kápuna
gerði Ráðhildur Ingadóttir. Verð:
3.990 krónur.
• ÚT er komin ljóðabókin
Sonnettur eftir John Keats í
þýðingu Sölva B. Sigurðarsonar.
I fréttatilkynningu segir:
„John Keats var eitt af höfuð-
skáldum Englendinga á 19. öld.
Hann átti erfiða ævi og skamma
og þykir undrum sæta hvílíkum
skáldþroska hann náði á örfáum
árum en hann lést úr berklum
aðeins 25 ára að aldri. Samtíðin
kunni ekki að meta hann enda
var hann hvorki glæsimenni né
af tignum ættum. Eftir dauða
Keats tóku menn hins vegar að
endurmeta skáldskap hans og nú
er nafn hans nefnt í sömu andrá
og nafn Shakespeares, Shelleys
og Byrons."
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er unnin í Prentsmiðjunni
Odda .f., 80 bls. Verð: 2.980
krónur.
Tónleikar
í Keflavíkurkirkju