Morgunblaðið - 16.11.2000, Blaðsíða 41
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 41
LISTIR
Sá á kvölina...
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
íkonar Kristúiar Gunnlaugsdóttur.
Golgata, 1996-2000, eftir Sigurð Örlygsson.
Erla Axels við eitt verka sinna.
Erla sýnir
í Banda-
ríkjunum
ERLA Axels opnaði sýningu á
verkum sínum í Global Art Venue
í Seattle 1. nóvember sl.
Á sýningunni eru 16 olíumál-
verk og 21 pastelmynd.
I verkum sínum fjallar Erla um
íslenska náttúru: birtu, grósku og
kraft. Það má einnig greina ör-
smáar mannverur sem birtast
léttar og svífandi og vega létt í
sterku landslaginu.
Þetta er fyrsta einkasýning
Erlu í Bandaríkjunum en síðast
sýndi hún í Is-Kunst í Oslo í sept-
ember sl.
Áður hefur Erla haldið 12
einkasýningar hér á landi og tek-
ið þátt í fjölmörgum samsýning-
um bæði hérlendis og erlendis.
Sýningin í Global Art Venue,
314 lst. Avenue South, stendur til
27. nóvember 2000.
MYNDLIST
Menninjrarmiðstöðin
Gerðubergi
BLÖNDUÐ TÆKNI
Anna Jóelsdóttir; Guðrún Krist-
jánsdóttir; Hafsteinn Austmann;
Helgi Þorgils Friðjónsson; Jón Jó-
hannsson; Kristín Gunnlaugsdótt-
ir; Kristín Þorkelsdóttir; Rína Rut
Wilberg; Páll Guðmundsson; Ráð-
hildur Ingadóttir; Sigurður Ör-
lygsson; Soffía Sæmundsdóttir &
Þóra Sigurþórsdóttir.
Til 19. nóvember. Opið mánudaga
til Fimmtudaga frá kl. 9-21;
föstudaga 9-16:30 og laugar-
daga kl. 12-16:30.
SIGRÚN Hjálmtýsdóttir -
Diddú - hefur valið 13 íslenska
listamenn til að prýða Gerðuberg
undir rúbrikunni Þetta vil ég sjá.
Ég hef áður látið í ljós álit mitt á
þessari sýningaröð Gerðubergs
þar sem ég tel að reynt sé að
mæla upp snobbnáttúruna í gest-
um með því að fela nafnkunnum
mönnum af alls konar toga valið á
verkunum.
Það er nefnilega svo með nafn-
togað fólk að mér sýnist það ekki
hótinu læsara á myndlist en hver
óbreyttur maðurinn á förnum
vegi. Sé það rétt til getið þykir
mér absólútt kominn tími til að
hvfla þá frægu og leyfa hinum
óbreyttu að spreyta sig. Vandinn
við íslenskt þjóðfélag er að hér er
alltof mikil ásókn í fræga fólkið,
sem hefur ekki annað upp á sig
en brenna því - og raunveruleg-
um hæfileikum þess - út á ör-
skömmum tíma. Okkar litla sam-
félag þolir afar illa sömu andlitin
á öllum vígstöðvum, eins og
reyndin vill vera þegar öll glans-
tímaritin birtast í einu og allir
spjallþættimir gjalla samtímis á
öldum ljósvakans: Sjáið manninn!
En hvað varðar Diddú og sýn-
inguna hennar þá er margt prýði-
legt í vali hennar, þótt eitt megi
vissulega missa sín og annað sé í
besta falli slarkfært. Það sem
kemur mér þægilegast á óvart er
hve innilega divan okkar veifar
óskasprotanum. Val hennar er
einhvern veginn hafið yfir allan
augljósan smekk en tekur þess í
stað mið af ómældum tilfinning-
um og náinni viðkynningu við við-
komandi listamenn og verk
þeirra.
Fígúratíf myndlist virðist höfða
einkar sterkt til hennar þótt
vissulega séu óhlutbundin verk til
staðar hér og þar. Óbeisluð fanta-
sía með dramatískum og hátíðleg-
um yfirtónum - jafnvel ögn af
ragnarökkursstemningu - virðist
eiga einkar greiða leið að hjarta
Diddú. Hið skondna, skrýtna og
skemmtilega á sér einnig skjól á
veggjum söngkonunnar, sem og
landslagslist, íkonar og leirlist.
Ef til vill mætti - að öllu gamni
slepptu - kalla val hennar ópera-
tískt. Það er ekki svo fjarri lagi
þegar þess er gætt að flest verkin
eru skýrt planlögð, undanbragða-
laus og opin. Með því er átt við að
formbygging þeirra og litir eru
sjaldnast á reiki, og oftar en ekki
koma þau gestinum fyrir sjónir
sem sviðsræn og frásagnarleg
kraftbirting. Það væri vissulega
gaman að sjá Diddú sjálfa bregða
upp pensli eins og hún lætur að
liggja að hvarflað hafi að henni.
Víst er að ef útkoman líktist eitt-
hvað rödd hennar og náttúruleg-
um sjarma væru þau ekkert
minna en meistaraverk.
Halldór Björn Runólfsson
• " ’ÆV'.
Indriöa GaíÞöfsteir?
AöallifíjivibrH
i g urdu M (j ó n
I <íi|f,1jóri
Ágú4l Gíiömiirul
n.sælasta mynd sern sýnd hríínr veriö l#r á
ife^lkfeiáLk>óJahíói t£ö||É nove.ntM
Wfjji VÍWýÁ Wkw ú ■' r-:-v,.
'JákmMEífl* 'QKm
FILMUNDUR