Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mál HIY-smitaðs sjómanns gegn útgerð
Rúm milljón í bætur
fyrir brottvikningu
ÞROTABÚ Vesturskips ehf. á Bfldu-
dal var á mánudag dæmt 1 Héraðs-
dómi Vestfjarða til að greiða sjó-
manni tæpa 1,1 milljón króna í bætur
fyrir að hafa verið knúinn til að yfir-
gefa fiskiskipið Geysi þai- sem hann
var ráðinn vélavörður þar sem hann
hefði upplýst að hann væri með HIV-
smit. Einnig var þrotabúið dæmt til
að greiða stefnanda 250 þúsund krón-
ur í málskostnað og staðfestur var
sjóveðréttur hans í Geysi BA-25 fyrir
hinni dæmdu skuld.
Stefnandi var ráðinn símleiðis í
skipsrúm á Geysi í ágúst 1999 og hóf
störf 7. september við undirbúning
sjóferðar. Hann hefði þann 9. sept-
ember tjáð yfirvélstjóranum að hann
væri með HlV-smit en sá hafi þá neit-
að að starfa með honum. Skipstjóri
hafi síðan kallað sig upp í brú og
greint að hann yrði að yfirgefa skipið
vegna fyrirmæla útgerðarmannsins.
Komið hafi fram að stefnandi hafi
verið 75% öryrki vegna HIV-smits og
kransæðasjúkdóms og hann hafi ekki
minnst á veikindi sín við ráðninguna
og verið ráðinn til starfa á þeirri for-
sendu að hann væri vinnufær, heilsu-
hraustur og að sátt yrði um störf
hans um borð. Hann hefði vísvitandi
dulið heilsufar sitt og telur stefndi að
hefðu komið fram réttar upplýsingar
um heilsu sjómannsins hefði ráðning
ekki komið til greina.
Bréf frá lækni sjómannsins vai’
lagt fyrir dóminn þar sem kemur
fram að ekki sé talin hætta á HIV-
smiti við almenn störf og að það hljóti
að gilda um störf vélstjóra í skipi.
Einnig kom fram það álit læknisins
fyrir dómi að hann myndi hvetja
hann til að vinna ef honum liði vel og
vildi vinna.
Krafðist 1,6 milljóna króna
Stefndandi krafðist bóta miðað við
þriggja mánaða uppsagnarfrest, alls
rúmlega 1,6 milljóna króna, og miðaði
við meðallaun sem hann hefði mátt
búast við á skipinu á 90 daga tímabili.
Dómurinn taldi hins vegar rétt að
ákveða bætur með hliðsjón af aflahlut
vélavarðar í síðustu þremur veiði-
ferðum skipsins og voru honum
dæmdar 1.092.378 kr. 1 bætur. Einnig
250 þúsund krónur í málskostnað.
Dóminn kvað upp Erlingur Sigurðs-
son dómstjóri við Héraðsdóm Vest-
fjarða.
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil
nú þegar eða í síðasta íagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöld sem á voru lögð: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 16.
nóvember 2000, og virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga tii og með 5. nóvember 2000,
og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir, er fallið hafa í gjalddaga til og með
16. nóvember 2000, á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli,
áfengisgjaldi, launaskatti, aðstöðugjaldi, þróunarsjóðsgjaldi, kirkjugarðsgjaldi, bifreiðagjaldi,
slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, við-
bótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi,
virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum,
virmueftirlitsgjaldi, vömgjaldi af innlendri framleiðslu, vömgjaldi af ökutækjum, eftirlits-
gjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á
ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdóma-
gjaldi og jarðarafgjaldi.
Einnig áiögð opinber gjöld 2000 og fyrri ára sem í eindaga em fallin:
tekjuskattur, útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur,
slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, fasteignagjöld, tryggingagjald, íðnaðarmálagjald,
markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði,
búnaðargjald, iðgjald til lifeyrissjóðs bænda, ofgreiddar bamabætur, ofgreiddur bamabóta-
auki og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftir-
stöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar
kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjámám. Þinglýsingargjald er
1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Em
gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds,
vöragjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi
þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skráningamúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskoranar
þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. nóvember 2000.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgamesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
Fréttir á Netinu
^mbl.is
Borgarkirkja
á jólamerki
UMSB
JÓLAMERKIUMSB er komið út 14.
árið í röð. Að þessu sinni er það
Borgarkirkja sem prýöir merkið.
Guðmundur Sigurðsson teiknaði
myndina eins og aðrar kirkju á jdla-
merkjum undanfarinna ára.
Hægt er að kaupa merkin á skrif-
stofu UMSB og kostar örkin 300 kr.
Eldri upplög af merkjum eru einnig
til. AHari nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu UMSB.
Styrktarsýn-
ing á kvik-
myndinni
„Nurse Betty“
LIONSKLÚBBUR Mosfellsbæjar
og Sambíóin halda styrktarsýningu
á kvikmyndinni „Nurse Betty“ í
kvöld, fimmtudagskvöld 16. nóvem-
ber, kl. 22 í Kringlubíói.
Myndin er gamanmynd og íjallar
um illa gifta gengilbeinu sem er yfir
sig ástfangin af leikara í sápuóperu.
I aðalhlutverkum eru Morgan
Freeman, Renée Zekkweger, Chris
Rock og Greg Kinnear
Þetta samstarf Lionsklúbbsins
og Sambíóanna hefur á undanförn-
um árum gefið af sér margar og
góðar tækjagjafir til endurhæfing-
ardeilda Reykjalundar og svo mun
einnig verða í þetta sinn. Allur
ágóði rennur til tækjakaupa fjn'ir
Hlein sem er heimili fjölfatlaðra á
Reykjalundi.
Félagar klúbbsins hafa að undan-
förnu verið að selja aðgöngumiða
og eru enn að, en miðar verða einn-
ig seldir við innganginn. I fréttatil-
kynningu þakka Lionsfélagar Sam-
bíóunum og áhorfendum fyrir
veittan stuðning við þetta verðuga
verkefni.
Málþing um mat og
þróunarstarf í skólum
UPPELDIS- og menntunarfræði-
skor við félagsvísindadeild Háskóla
íslands stendur að málþingi um mat
og þróunarstarf í skólum 24. nóvem-
ber næstkomandi í Odda, Háskóla
íslands, stofu 101, kl. 14-16.30.
Sérstakt tilefni málþingsins er
dvöl dr. Penelope Lisi prófessors hér
á landi sem Fulbright-kennari við
uppeldis- og menntunarfræðiskor
haustmissserið 2000, en hún hefur
sérhæft sig á sviði mats í skólastarfi.
Tilefnið er einnig breytingar á
námi um „Mat og þróunstarf í skóla-
starfi," sem skorin stendur að.
Næsta háskólaár verður 45 ein-
inga mastersnám í boði sem hægt er
að taka á einu ári. Þá verður einnig í
boði 15 eininga námsbraut með
áherslu á mat og þróunarstarf.
Sigrún Aðalbjarnardóttir prófess-
or, formaður uppeldis- og menntun-
arfræðiskorar, setur fundinn og að
því loknu ílytur Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra, ávarp. Því
næst taka til máls: Jón Torfi Jónas-
son, prófessor, deildarforseti félags-
vísindadeildar. Penelope Lisi, pró-
fessors: „Þankar um mat og þróun í
skólastarfi: Beggja skauta byr.“
Umræður og fyrirspurnir, María
Gunnlaugsdóttir, deildarsérfræðing-
ur við menntamálaráðuneytið:
„Markmið og tilgangur mats á skóla-
Sorgin og
fjölskyldan
NY dögun, samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð, efna til fyrirlesturs í
kvöld, 16. nóvember kl. 20, í safnað-
arheimili Háteigskirkju.
I fyrirlestrinum, Sorgin og fjöl-
skyldan, mun Nanna K. Sigurðar-
dóttir félagsráðgjafi koma inná
hvernig sorgin snertir hvem ein-
stakan fjölskyldumeðlim og hvaða
áhrif hún getur haft á samskipti íjöl-
skyldunnar í heild. Þegar fjölskyld-
umeðlimur er kvaddur geta orðið
töluverðar breytingar á samskiptum
innan fjölskyldunnar og þau orðið
mjög viðkvæm og sársaukafull.
Félagsskapur við sína nánustu er
mikill styrkur í sorg og mikilvægt að
þar ríki gagnkvæm virðing og skiln-
ingur fyrir stöðu og tilfinningum
hvers og eins.
Sorgin hefur margbreytileg birt-
ingarform og sorgarferlið er langt
frá því að vera það sama hjá öllum,
innan fjölskyldunnar. Hvernig
syrgjandi vinnur úr sinni sorg er líka
mjög einstaklingbundið og enginn
einn sannleikur til um hvernig unnið
skuli úr slíkri reynslu sem sorgin er.
starfi,“ Sigurður Sigursveinsson,
skólameistari við Fjölbrautaskólann
á Selfossi: „Getur mat verið ögrun
við samstarfsanda skólans?" Birgir
Einarsson, MA í uppeldis- og mennt-
unarfræði og grunnskólakennari,
núverandi skólafullti'úi í Mosfellsbæ:
„Hverjir meta hvaða þörf er á sér-
fræðingum í mati á skólastarfi?"
Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslust-
jóri Reykjavíkur: „Mat á skólastarfi
- gæðamat - ái'angursmælingar11 og
Sigurlína Davíðsdóttir, lektor í upp-
eldis- og menntunarfræði: „Er eftir-
spum eftir sérfræðingum í mati á
skólastarfi?“
Fundarstjóri er Sigrún Aðalbjarn-
ardóttir, prófessor í uppeldis- og
menntunarfræði.
-----------------
*
Arétting
Villandi
fyrirsögn
FYRIRSÖGN fréttar á bls. 14 í
Morgunblaðinu í gær gaf ekki alls
kostar rétta mynd af þeim ummæl-
um sem vísað var til.
Fjallað var um viðbrögð Einars
Odds Kristjánssonar og Ögmundar
Jónassonar við frásögn í ævisögu
Steingríms Hermannssonar af að-
draganda útgáfu bráðabirgðalaga
árið 1989. Fyrirsögnin var svohljóð-
andi: Rangt að VSI hafi krafist laga í
nafni verkalýðshreyfingar.
Við lestur fréttarinnar kemm' í
ljós að í fyrirsögninni var ályktað út
frá orðum viðmælendanna en ekki
byggt á ummælum þeima. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þeim mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
Jólakort Landssamtaka
hjartasjúklinga kosta 350 kr.
í tilkynningu í blaðinu í gær var
sagt frá jólakortasölu Landssam-
bands hjartasjúklinga. Þar kom
fram að pakkinn með fimm kortum
kostaði 500 kr. en hið rétta er að
hann kostar 350 kr.
Rangur myndatexti
í blaðinu í gær var sagt frá Dans-
hátíð Jóns Péturs og Köru. Á einni
myndinni var rangt farið með nöfn á
danspari og voru þau sögð heita Atli
Björn og Lovísa Ósk en átti að vera
Jón E. Gottskálksson og Elín H.
Jónsdóttir. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.