Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 57
VÍFILSSTAÐASPÍTALI 90 ÁRA
Myndin er tekin á fyrsta starfsári Heilsuhælisins. Aftast stendur Sigurður Magnússon, fyrsti yfirlæknir spít-
alans, og hjúkrunarkonurnar fjórar. Hópurinn fyrir framan eru allir rólfærir sjúklingar Heilsuhælisins.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Viðamikil starfsemi er rekin á Vífilsstaðaspítala í dag þar sem tækni og
hugvit haldast í hendur.
í því að samvextirnir voru brenndir
með rafmagnsbrennslu. Höggning
var svo notuð þegar allar aðrar að-
ferðir þraut, þegar ekki var hægt að
nota blásningu, oftast vegna þess að
sjúklingar höfðu fengið brjósthimnu-
bólgu. Höggningin var mikil aðgerð
þar sem efstu rifbeinin voru fjarlægð
úr sjúklingnum - kannski sex, átta
rifbein, og þá féll brjóstkassinn. Til-
gangurinn og verkun höggningarinn-
ar var því sú sama og hinna aðferð-
anna, þ.e. að berklaholan lokaðist."
Guðmundur Thoroddsen og Hall-
dór Hansen sáu um þessar aðgerðir
sunnanlands en síðar voru þær ein-
göngu framkvæmdar á Akureyri.
„Enn þann dag í dag verður fólk á
vegi manns sem segir: „Ég var blás-
inn, brenndur og höggvinn" og það
er nauðsynlegt fyrir t.d. unga lækna-
nema að vita hvað þetta þýðir,“ segh-
Hrafnkell.
Dægrastytting sjúklinga
og kynlegir kvistir
Sjúklingar dvöldust oft lengi á
Heilsuhælinu á Vífilsstöðum. Þegar
berklasjúklingur kvaddi heimilisfólk
sitt var eins og um hinstu kveðju
væri að ræða - fáir litu svo á að þeir
ættu afturkvæmt heim af Hælinu.
Sjúkdómsgreining jafngilti dauða-
dómi.
Berklaveiki lagðist eins og áður
sagði þyngst á æskufólk og því var
meðalaldur sjúklinga á Vífilsstöðum
lágur og reyndi unga fólkið eftir
megni að stytta sér stundir til að
gera tilveruna ofurlítið skemmti-
legri. Menningarlíf var með miklum
ágætum, leikrit voru sett upp, spila-
og taflklúbbar starfræktir auk þess
sem hljóðfæraleikarar, söngfólk og
upplesarar komu í heimsókn og
skemmtu endurgjaldslaust. Vist-
menn ráku fyrsta einkareknu út-
varpsstöðina hér á landi og fengu
nýjustu hljómplötur til spilunar. Með
tilkomu Ríkisútvarpsins 1930 voru
sett útvarpstæki með heyrnartólum
við hvert rúm. Heilsuhælið átti kvik-
myndavél og voru myndir fengnar að
láni hjá bíóunum í Reykjavík og sýn-
ingar haldnar við og við. Tómstundir
voru notaðar til léttrar handavinnu
og bókakostur sjúklinga óspart not-
aður og mikið lesið. Þeir hraustari
lögðu stund á róður og siglingar á
vatninu. Sjúklingamir hlóðu líka
vörðu uppi í hlíðinni fyrir ofan Víf-
ilsstaði og var hún ætíð nefnd Gunn-
hildur. Skýringarnar á nafngiftinni
eru ekki einróma en var varðan not-
uð sem eins konar hreystipróf. Ef
sjúklingurinn gat gengið óstuddur að
Gunnhildi, var hann á batavegi.
Rómantíkinni var ekki heldur á
kot vísað og var grunnurinn að ófá-
um hjónaböndum lagður á Hælinu.
Ymsir skrifuðu bækur um vist sína
á Vífilsstöðum og er sú þekktasta ef-
laust skáldsaga Kristmanns Guð-
mundssonar „Armann og Vigdís".
Þegar fyrrum berklasjúklingar vildu
svo giftast eða kvænast voru brögð
að því að þeir þyrftu vottorð upp á að
þeir væru að fullu lausir við smit.
Meðal þekktra dvalargesta Víf-
ilsstaða var Haukur pressari sem
dvaldist á Heilsuhælinu árum saman
og flestir eldri Reykvíkingar kannast
við. Haukur fékk viðurnefnið þar
sem hann gekk alltaf um borgina
með straujárn undir handleggnum
og bauðst til að pressa buxur nokk-
urra útvalinna borgarbúa.
„Hann var ekki eins og fólk er
flest,“ segir Hrafnkell, brosir að
minningunni og segir kankvís: „Það
þótti mikill heiður ef Haukur press-
aði fyrir mann. Ég held meira að
segja að ég eigi ennþá buxur sem
hann setti þvílíkt þverbrot í að ég hef
aldrei getað farið í þær síðan, og svo
átti hann það líka til að gleyma
pressujáminu á buxunum í svolítinn
tíma með afdrifaríkum afleiðingum."
Breyttir tímar - nýtt hlutverk
Með markvissum aðgerðum
berklayfirlæknis ríkisins, starfsfólks
hans auk umfangsmikilla rannsókna
á heilsufari fólks minnkaði fjöldi
nýskráðra sjúklinga og berklasjúkl-
inga í heild. Sigurður Sigurðsson
ferðaðist um landið allt til að skoða
fólk og voru skoðunarferðir hans
með varðskipunum víðfrægar. Gegn-
umlýsingar, röntgenmyndir og
berklaprófun grunnskólabarna
sýndu berklaveiki á frumstigi sem
auðvelt var að lækna. Árangursrík
lyfjameðferð og bættur aðbúnaður
og húsakynni almennings leiddi
smám saman til þess að ekki var
lengur þörf á sérstöku berklasjúkra-
húsi og var Heilsuhælinu fundið nýtt
hlutverk og nýtt nafn - Vífilsstaða-
spítali.
Upp úr 1970 fór að bera mikið á
Iungnasjúkdómum af öðrum toga.
Áhrif stóraukinna reykinga þjóðar-
innar á liðnum áratugum fóru að
koma í Ijós með síhækkandi tíðni
lungnakrabbameins og annarra al-
varlegra lungnasjúkdóma.
I dag er starfsemi sjúkrahússins
þríþætt. Öflug lungnalækningadeild
er rekin við sjúkrahúsið þar sem
fengist er við langvinna lungnasjúk-
dóma, langvinna teppusjúkdóma eins
og lungnaþembu og berkjubólgu.
Greining ofnæmis og ofnæmis-
sjúkdóma á vel búinni göngudeild er
annar liður í starfinu. Loks má telja
deild sem hefur umsjón með sjúkl-
ingum sem eiga við öndunartruflanir
í svefni að stríða en rúmlega 700
sjúklingar eru með öndunarvélar
vegna kæfisvefns og 70 til viðbótar
með flóknari öndunarvélar vegna
minnkaðrar öndunargetu.
„Það er viðamikil starfsemi í
kringum þetta en einnig fáumst við
við astma og lungnabólgu og þess
lags sjúkdóma sem alltaf koma upp,“
segir Þórarinn en Vífilsstaðaspítali
er í dag hluti af Landspítala Islands -
háskólasjúkrahúsi.
„Ef berklar væru sami vágestur í
dag og þeir voru fyrirseinna stríð þá
væru um 400-500 íslendingar að
falla í valinn af völdum þeirra ár
hvert, megnið fólk í blóma lífsins,"
segir Þórarinn feginn því að raunin
er önnur og öllu betri. Island er í dag
í hópi landa með lægstu tíðni berkla-
smits.
Þórarinn segir níutíu ára starfsaf-
mælið vera verðugt tækifæri til að
geta þess mikla starfs sem unnið hef-
ur verið á Vífilsstöðum og allra
þeirra sem þar hafa dvalist eða starf-
að. „Spítalinn auglýsti fyrir nokkrum
vikum eftir myndum og munum frá
gamalli tíð og hefur margt skemmti-
legt komið til okkar. Við fengum
sendar myndir frá lífi þessa fólks
sem reyndi að lifa lífinu af gleði í
skugga erfiðs sjúkdóms og eru þær
ómetanleg heimild um þennan tíma í
íslensku þjóðlífi þegar hræðilegur
sjúkdómur snerti flestar íjölskyldur
landsins. Spítalinn verður opinn
gestum á föstudag á milli 14 og 18
þar sem gefst færi á að skoða þessar
minjar.“
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verð á 4 lítra dós
í verslunum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
DROPANUM, KEFLAVÍK.
Sími 421 4790
IYIÁLHINQARUERSLAIIIR