Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 62
MORGUNBLAÐIÐ
Mán.-fös kl. 09-18
Laugardag kl. 12-17
GJi FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
Einnlg hjó umboðsmönnum um land allt
OPIO;
Líttu á verðið
Hert gler
Segullokun
76,5x60 kr. 9.602
120x60 kr. 12.251
181x60 kr. 18.227
Orion door
Baökershurö 165-170 cm
verð kr. 16.555
Gafl kr. 6.640
VATNSVIRKINN ehf
Canova
Rúnaöar hurðir
80 cm tilboösverö 21.619
90 cm tilboðsverð 22.005
Ketch
Baðkars hliðar
plast kr. 7.415
Gier kr. 10.346
Handkfæða-
ofnar
Adria
Sturtuhorn
70-80 cm
tilboðsverö kr. 14.706
80-90 cm
tilboösverð kr. 15.280
Zenith
76-112 cm rennihuröir
verðfrá kr. 14.752
68-90 cm hliðar
verð frá kr. 8.811
Ármúla 21
Sími 533 2020
108 Reykjavík
Bréfsími 533 2022
UMRÆÐAN
V élindabakflæði
o g brjóstverkir
BAKFLÆÐI frá maga upp í vél-
indað er einn algengasti sjúkdómur-
inn í meltingarvegi. Brjóstsviði, þ.e.
bruna- eða sviðatilfinning undir
bringubeini og/eða nábítur, þegar
súrt bragð leitar upp í munn, eru að-
aleinkenni vélindabakflæðis. Vél-
indabakflæði getur einnig orsakað
brjóstverki sem oft eru mjög sárir
og líkjast verkjum vegna kransæða-
sjúkdóms. Brjóstverkir geta líka
stafað af vöðvabólgu í millirifjavöðv-
um, tognun í liðamótum bringubeins
og rifja, eða taug í klemmu vegna
samfallinna hryggjarliða. Btjóst-
verkir af þessum orsökum versna
gjaman við hreyfíngu. Brjósthimnu-
bólgu og gollurshúsbólgu fylgja oft-
ast brjóstverkir, sem versna við
öndun. Lítið samband er milli þess
hve sár brjóstverkurinn er og
hversu alvarlegur sjúkdómurinn er
sem veldur honum. Alltaf skal hafa í
það til kransæða-
þrengsla. Staðsetning
og dreifing verksins
hjálpar lítið, þegar
verið er að leita að or-
sök hans.
Er munur
á einkennum?
Karl
Andersen
huga að brjóstverkur getur stafað af
kransæðasjúkdómi. Ef brjóstverkur
versnar við líkamlega eða andlega
áreynslu og lagast við hvfld, bendir
Lýsing á einkenn-
um hjálpar mest til að
greina á milli hugsa-
nlegra orsaka, en er
þó ekki fullnægjandi
til að greina með vissu
milli hjartakveisu og
vélindabakflæðis. Ef
brjóstsviði er aðalein-
kennið og verkir koma
ekki fram við áreynslu, er líklegra
að vélindabakflæði sé orsökin.
Brjóstverkur, sem stendur lengi,
truflar svefn, tengist máltíðum og
Trausti
Valdimarsson
Kyotoklípan
ENN eina ferðina setjast nú full-
trúar íslands að viðræðum við
gömlu iðnríkin um Kyoto-bókunina,
loftslagssamningana
svokölluðu, í þetta
skiptið í Evrópu, í
Haag. Það eru hin
svokölluðu „gróður-
húsaáhrif," sögð af
mannavöldum, sem er
verið að reyna að berj-
ast við með því að
setja takmarkanir á
útblástur koltvísýr-
ings. Ef íslendingar
yrðu „fullgildir" aðilar
að þessum samningum
óbreyttum myndi upp-
bygging orkuiðnaðar
stöðvast hérlendis, að
tilefnislausu, og þar
með yrði þróun byggð-
ar í landinu þröngar
skorður settar. Það eru því miklir
hagsmunir í húfi fyrir landsmenn.
þetta mál um Kyoto er orðið afar
lærdómsríkt og hefur sýnt mönn-
um fram á hver er máttur fjölmiðla
við að kynda undir öfgaáróðri og
hræðsluherferðum með fölskum og
einlituðum upplýsingum.
Falsáróður
Nýlega var sagt frá því að „lek-
ið“ hefði út bráðabirgðaniðurstaða
alþjóðlegrar nefndar um loftslags-
breytingar. Sagt var að hún spáði
miklu meiri hitaaukningu en fyrri
spár hefðu gert.
Þegar betur var að gáð var ekki
um að ræða neina nefndarskýrslu
heldur vel undirbúna áróðursher-
ferð með rangfærðum staðhæfing-
um og rangtúlkunum. Tilefnið var
forsetakosningarnar í Bandaríkjun-
um, ekki að neitt nýtt væri að
segja um gróðurhúsaáhrifin. Annar
frambjóðandinn er einn helsti
merkisberi áróðursherferðanna um
gróðurhúsaáhrifin. Fjölmiðlar um
allan heim gleyptu við falsáróðrin-
um. Meira að segja vandaðir ís-
lenskir fjölmiðlamenn sáu ekki í
gegnum þennan villandi frétta-
flutning og vissu ekki tilefnið. Jafn-
vel sæmilega virðuleg alþjóðleg
tímarit gripu „fréttalekann" á lofti,
vont veður hér eða
þar varð strax að ógn-
vænlegum afleiðing-
um gróðurhúsaáhrif-
anna.
Heljartök umhverf-
isöfgahreyfinganna í
gömlu iðnríkjunum
eru orðin svo römm
að furðu vekur. Það
verður hrein heppni ef
einn af merkisberum
umhverfisöfgahreyf-
inganna ekki kemst í
forsetastól mesta
stórveldis jarðar.
Menn gætu farið að
halda að De Gaulle
hafi haft rétt fyrir sér
þegar hann sagði að
hver sem er gæti orðið forseti
Bandaríkjanna.
Umhverfi
Ríkisstjórn íslands hef-
ur sýnt bæði kjark og
stefnufestu í Kyoto-
málinu, segir Friðrik
Daníelsson, og staðið
-------------------7---
vörð um hagsmuni Is-
lendinga
Blekkingavefur
Blekkingavefurinn um gróður-
húsaáhrifin af mannavöldum er
orðinn svo þéttriðinn að almenn-
ingur hefur ekki nokkra möguleika
að sjá í gegnum hann. Fjölmiðlar
senda út flóð af hlutdrægum áróðri
án nokkurrar hlutlausrar umfjöll-
unar. Kyoto-bókunin og loftslags-
samningarnir byggja á rangtúlkun-
um um koltvísýringshringrásina á
jörðinni og vanþekkingu og vísvit-
andi blekkingum um áhrif mann-
anna á þessa hringrás. það eru
komnir fram miklir hagsmunir sem
reyna að viðhalda þessum blekk-
ingum. Bæði eru umhverfisöfga-
samtökin, sem eru orðin stóriðja í
gömlu iðnríkjunum, og auk þeirra
ýmsir sem sjá sér leik á borði ef
sett verður kvótakerfi á koltvísýr-
ingslosun. Og fleiri og torræðari
hagsmunir og veruleikafirrtar hug-
sjónir eru með í spilinu.
Hagsmunir hverra?
Það eru gömlu iðnríkin sem
mögulega gætu haft hag af lofts-
lagssamningunum, þar eru fyrir-
tæki sem gætu selt nýja (og fok-
dýra) framleiðslutækni og keypt
upp losunarkvótann. Eins og eg
lýsi í bókinni „2000 árum eftir Vínl-
andsfund" er Kyoto-bókunin ekki
aðeins andstæð hagsmunum ís-
lendinga heldur jarðarbúa flestra.
Hún er í andstöðu við atvinnuupp-
byggingu margra þjóða og þá ekki
síst þróunarlandaþjóða sem þyrftu
á endanum að fara krjúpandi til yf-
irþjóðlegra kvótastofnana eða
kaupa losunarkvóta hjá stórfyrir-
tækjunum í gömlu iðnríkjunum,
verði samningnum líka þröngvað
upp á þróunarlöndin. Loftslags-
samningarnir beinast gegn þeim
sem eru að byggja upp iðnað. Ung-
ir alþingismenn á Islandi gætu ver-
ið minnugir þess að það voru sum
þessara svokölluðu þróunarríkja
sem stóðu einna best með Islend-
ingum _ gegn gömlu iðnríkjunum
þegar íslendingar færðu út land-
helgina forðum.
Aðeins vissar
fréttir áhugaverðar
Fyrir stuttu sendi hópur vísinda-
manna frá sér álit þar sem sagt var
að gróðurhúsaáhrifin gætu haft já-
kvæð áhrif fyrir Norður-Evrópu-
lönd. Þessari frétt var ekki gert
hátt undir höfði í fjölmiðlum, þó
með undantekningu, Morgunblaðið
birti fréttina á forsíðu. Fjölmiðl-
arnir segja ekki mikið frá því að
þúsundir virtra vísindamanna úr
ýmsum greinum hafa skrifað undir
mótmæli gegn Kyoto-bókuninni.
Enn fæi-ri segja frá því að „gróður-
húsaáhrifin" hafa ekki enn fundist
svo óyggjandi sé.
Virðing íslands
Ríkisstjórn Islands hefur sýnt
bæði kjark og stefnufestu í Kyoto-
málinu og staðið vörð um hagsmuni
íslendinga (sumir alþingismenn
þurfa kannske að spyrja sjálfa sig
hverra hagsmuna þeir eigi að
gæta). Þetta hefur vakið athygli
um allan heim og þeir sem best
þekkja málið bera virðingu fyrir af-
stöðu íslendinga. Margir vita að
orkuiðnaður á íslandi kemur til
með að valda lækkun á kol-
tvísýringsútblæstri á heimsvísu
vegna þess að orkuverin hér blása
ekki út koltvísýring og léttmálm-
arnir, sem framleiddir eru með
orkunni, gefa léttari farartæki sem
blása út minni koltvísýringi. En
það eru líka margir ábyrgir aðilar
sem vita orðið að áróðurinn um
„góðurhúsaáhrifin" er hræðslu-
áróður, ættaður frá umhverfisöfga-
iðnaðinum í gömlu iðnríkjunum og
þeim sem sjá sína hagsmuni í að fá
kvótakerfi á koltvísýringslosunina.
Sannleikurinn er sá að ísland er
eitt af fáum þróuðum ríkjum sem
er komið í aðstöðu til að stuðla að
því að komið verði einhverjum
skynsemisböndum á umhverfis-
grýluna um gróðurhúsaáhrifin. Það
verður kannske ríkisstjórn Islands
sem verður til þess að þjóðir heims
losna úr Kyoto-klípunni.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Friðrik
Daníelsson