Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 65
SKOÐUN
sóknum í hugvísindum og krefjist
að jafnaði meiri einbeitingar, tíma
og dýpri könnunar heimilda en
önnur miðlun.
íslenskur prófessor, sem vill
einbeita sér að ritun fræðibóka að
fyrirmynd erlendra starfsbræðra,
þarf nú að rita 13-75 fræðibækur
á starfsævi sinni til að komast í
efsta launaflokk prófessora í Há-
skóla íslands. Sé gert ráð fyrir
því, að starfsaldur prófessora í
skólanum sé 32-35 ár og þeir hafi
gefið út doktorsritgerð og þrjár
fræðigreinar, þegar þeir hefja
störf, þurfa þeir nú að setja saman
fræðirit á u.þ.b. tveggja og hálfs
til þriggja ára fresti hið minnsta,
en rösklega tvær bækur á ári hið
mesta til að komast í efsta launa-
flokk meðfram fullri kennslu.
Óhætt er að fullyrða, að enginn
prófessor Háskóla íslands, lífs eða
liðinn, hefur náð því marki að
skrifa svo margar bækur þeirrar
gerðar, sem felst í skilgreiningu
kjaranefndar á fræðiriti. Ef litið er
á þann lágmarkstíma, sem tveir
virtir háskólar í Bandaríkjunum
áætla að prófessorar þurfi til að
rita meiriháttar sagnfræði- eða
bókmenntafræðiverk byggt á
frumheimildum, þyrftu íslenskir
starfsbræður þeirra að ná um 120
ára aldri til að uppfylla áðurnefnd-
ar lágmarkskröfur kjaranefndar.
Lífslíkur á íslandi þurfa því að
batna allnokkuð frá því, sem nú er,
og hámarksaldur embættismanna
að hækka að sama skapi, svo að
þessum kröfum verði fullnægt. Á
hinn bóginn geta háskólastarfs-
menn bætt sér upp í launastigum
skort á doktorsprófi (metið til 30
eininga), þökk sé Prófessorafélag-
inu og kjaranefnd, með því að
skrifa tvær greinar í erlend tíma-
rit eða þrjár í íslensk.
Eiga háskdlastarfsraenn
að hætta að rita bækur og
greinar á íslensku?
Allt hnígur þetta að einni niður-
stöðu: Öfugt við erlenda starfs-
bræður er háskólakennurum
„bókaþjóðarinnar" í raun gert
ókleift að fá eðlilegan framgang í
launakerfi Háskólans, ef þeir ein-
beita sér að því að rita bækur. Um
hver mánaðamót eru þeir prófess-
orar Háskólans, sem hafa einbeitt
sér að mestu að bókaritun, hýru-
dregnir í stórum stíl, einkum mið-
að við þá starfsfélaga, sem hafa
valið að miðla rannsóknum sínum
með greinum í tímarit, umfram allt
erlend tímarit. Ef hinir fyrrnefndu
eiga að draga einhvern lærdóm af
stigamatskerfinu - umgjörð rann-
sóknastarfsins - er hann sá, að
þeir eigi að hætta sem snarast að
rita bækur á íslensku og snúa sér
að greinaskrifum á ensku. En er
þetta raunverulega sá lærdómur,
sem Háskóli Islands, yfirvöld
menntamála, Alþingi og þjóðin,
sem greiðir kostnaðinn af háskóla-
starfinu, vilja, að starfsmenn Há-
skólans dragi af launakerfi sínu?
Það kemur væntanlega í ljós, þeg-
ar matsreglur kjaranefndar verða
loks endurskoðaðar á næstu miss-
erum í samráði við háskólayfir-
völd, sem sniðgengin voru að
mestu, þegar reglurnar voru sett-
ar fyrir tveimur áram.
MINI-KERZENUCHTERKEm
MINI CANDtEUGHTSrr
CATEMA A PICCOLE CANDElf
50 Ijósa jólasería
39?kf
Jolasý
2
Bastpottur fylgir.
Jólastjörnur
I. flokkur 999 kr.
II. flokkur 799 kr.
III. flokkur 599 kr.
olastemnin
- engu lík
C/f2*r
144 Ijósa útisería
5** l.99b“
5 metrar (díóöur)
Höfundur er rannsdknaprófessor í
sagnfræði íHáskóla íslands.
3.000 kr. verða 1.183.306 kr.
Með innleggi á Framtíðarreikning getur þú tryggt börnum gott fjárhagslegt veganesti.
Það er þér í sjálfsvald sett hve mikið þú leggur fyrir í hvert skipti og með hve löngu millibili.
Þannig verða 3.000 kr. mánaðarleg innlegg í 18 ár að 1.183.306 kr. , "
miðað við 6,35% raunávöxtun allan tímann auk verðbóta sem bætast við. ISLAN DSBAN Kl
ÍSLENSKA AUCIÝSINCASTOFAN EHF. / SÍA.IS