Morgunblaðið - 16.11.2000, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 69'
FRÉTTIR
Islensk stjórnvöld standi
vörð um Kyotobókunina
LANDVERND hefur sent frá sér
eftirfarandi ályktun:
„Aðildarríkjaþing Rammasamn-
ings Sameinuðu þjóðanna um lofts-
lagsbreytingai' hófst 13. nóvember í
Haag. A fundinum er stefnt að því að
leiða til lykta ýmis útfærsluatriði er
varða framkvæmd Kyotobókunarinn-
ar sem samþykkt var í árslok 1997.
Loftslagsbreytingar af mannavöld-
um eru eitt mikilvægasta og erfiðasta
viðfangsefni sem samfélag þjóðanna
tekst á við um þessar mundir. Kyoto-
bókunin er skref í átt að lausn á þessu
viðfangsefni.
Landvemd beinir þeirri eindregnu
áskorun til ríkisstjómarinnar að
vinna markvisst að aðild íslands að
Kyotóbókuninni. I þessu sambandi
vísar Landvemd í nýlega skýrslu ráð-
gjafanefndar þar sem segir m.a. að að
því gefnu að ekki verði ráðist í stór-
Námskeið
um alþjoðleg-
an fjármagns-
markað
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla íslands heldur námskeið
um alþjóðlegan fjármagnsmark-
að síðdegis dagana 27. og 28. nóv-
ember. Fyrirlesari er dr. Daniel
Levin, sem er ráðgjafi ýmissa rík-
isstjóma við laga- og reglugerð-
arsmíð um verðbréfaviðskipti.
Fjallað verður um framvindu á
alþjóðlegum fjármagnsmarkaði
og þróun í fjármagnseftirliti og
rafrænum viðskiptum. Itarlega
verður greint frá þróun öryggis-
laga og reglugerða, notkun fjár-
magnstælqa og rætt um við-
skiptaflæði og svokallaða skjal-
festingu með samanburðargrein-
ingu á íslenskum fjármagns-
markaði og stjómarreglugerð-
um. Einnig um stefnur og
strauma í alþjóðlegum fjármála-
viðskiptum og ný viðfangsefni
fjármálasérfræðinga.
Námskeiðið er ætlað sérfræð-
ingum á öllum sviðum í íjármál-
astofnunum, fjárfestingarsjóð-
um, tryggingafélögum og ráðu-
neytum.
Unnu vikuferð
til Portúgals
NÝLEGA var dregið úr ferðapotti
Úrvals-Útsýnar og Sjóvár-Al-
mennra trygginga hf. en allir þeir
sem höfðu keypt ferða- eða forfalla-
tryggingu frá áramótum vora með í
úrdrættinum. Það var Elín Karol
Guðmundsdóttir íbúi í Breiðholti
sem var sú heppna að þessu sinni en
að launum fékk hún vikuferð fyrir
tvo til Portúgals. Ferðapotturinn er
samstarf íyrirtækjanna til að minna
á gildi góðrar ferðatryggingar en
það vora markaðsstjórarnir Ómar
Svavarsson hjá Sjóvá-Almennum og
Páll Þór Armannsson hjá Úrvali-Út-
sýn sem afhentu Elínu Karol gjafa-
bréf á ferðavinninginn.
iðju, umfram þau verkefni sem þegar
era ákveðin, bendi niðurstöður til
þess að hægt verði að mæta skilyrð-
um Kyótobókunarinnar án þess að
það verði mjög íþyngjandi íyrir ís-
lenskt efnahagslíf. Fylgja þarf eftir
framkvæmdaáætlun ríkisstjómarinn-
ar um aðgerðir til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Landvemd varar stjómvöld við því
að semja um umfangsmeiri rekstur
stóriðju hér á landi ef ekki liggur Ijóst
fyrir hvemig verður hægt að mæta
þeirri miklu aukningu í losun gróður-
húsalofttegunda sem honum kann að
fylgja.
Þá bendir Landvemd á að tækifæri
era til að auka bindingu kolefnis á ís-
landi til mikilla muna og beinir því til
stjórnvalda að efla áætlanir sem miða
að því að auka bindingu kolefnis í
gróðri og jarðvegi."
Kvikmyndin
Tsjaíkovskí í
biösal MÍR
RÚSSNESKA kvikmyndin Tsja-
íkovskí frá árinu 1970 verður sýnd í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, laugardag-
inn 19. nóvember kl. 15. Leikstjóri
myndarinnar er Igor Talankin er tit-
ilhlutverkið leikur Innókentí Smokt-
únovskí og aðrir helstu leikendur era
Antonína Shúranova, Alla Demid-
ova, Vladislav Strselik og Jevgení
Evstignejev.
Kvikmynd þessi hlaut á sínum
tíma verðlaun og viðurkenningar á
alþjóðlegum kvikmyndahátíðum.
I fréttatilkynningu segir: „í kvik-
myndinn era raktir ýmsir þættir úr
ævisögu rússneska tónskáldsins
Pjotrs Tsjaíkovskís, sagt er frá
bernsku hans, æsku og fullorðinsár-
um. Talsverður hluti myndarinnar
fjallar um vináttu tónskáldsins og
barónessunnar von Meeh, sem var
mikill aðdáandi Tsjaíkovskís og góð-
ur vinur í raun. Rússneskt landslag
þykir njóta sín vel í myndinni, skóg-
ar, birkitré og víðáttumiklar sléttur
og engi. Sýnd era atriði úr óperam
og ballettum tónskáldsins, flutt af
ýmsum fremstu söngvuram og döns-
uram sem uppi vora í Sovétríkjunum
um og eftir miðja öldina."
Myndin er talsett á ensku. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Lýst eftir vitnum
ÁREKSTUR varð á Kringlumýrar-
braut mánudaginn 13. nóvember sl.
kl. 17.47 á milli þriggja bifreiða sem
ekið var í suður í átt að Kópavogi á
móts við Nesti í Fossvogi. Um var að
ræða Skoda bifreið, Hyundai Pony
og Toyota Land Craiser jeppa, þ.e.
þrjár bifreiðir.
Fremsta bifreiðin,, þ.e. sú fjórða,
er talin vera hvít að lit, en vélarhlíf
þeirrar bifreiðar hafði fokið upp og
byrgt ökumanni sýn. Ökumaður
þessarar bifreiðar er beðinn um að
gefa sig fram við lögregluna í
Reykjavík og einnig þeir sem hafa
orðið vitni að óhappinu og geta gefið
upplýsingar um þessa bifreið.
Hvað viltu fá að vita um tónlistina á Topp 20?
Sendu póst til Sðleyjar á mbl.is.
Taktu þátt í vali Topp 20 á mbl.is!
Vinnur þú geisladisk frá Skífunni?
Vikan 15.1 1. - 22.11
1. My Generation Limp Bizkit
ggg | s. Again Lenny Kravitz
-► 3. The Way 1 Am Eminem
4. 1 Disappear Metallica
t) 5. Music Madonna
(® ' G. Gould 1 Have This Kiss Forever Whitney & Enrique
t) 7. Dont Mess With My Man Lucy Pearl
t) B. Take a Look Around Limp Bizkit
G. Beautiful Day U2
10. Dadada Ding Dong & Naglbítarnir
4 11. Come On Over Christina Aguilera
>4 1E. Spanish Guitar Toni Braxton
. ® I O. Carmen Queasy Maxim
® 14. Testify Rage Against the Machine
V 15. 1 Have Seen It All Björk
l ^ J 1G. BHH Who Let The Dogs Out Baha Men
s 17. Lucky Britney Spears
4 1B. Change Deftones
®) 19. Most Girls Pink
V SD. Groovejet Spiller & Sophie Ellis
©
SKJAREINN
Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
Nú er líka hægt að kjósa á
mbl.is
AVIS
Sími: 533 1090
Fax:533 1091
E-mail: avis@avis.is
Dugguvogur10
Þrír dagar á aðeins
kr. 9.999,-
Innifalið: 200 km akstur, tryggingar og skattur.
Glaðningur frá McDonald’s fylgir hverjum leigðum bíl