Morgunblaðið - 16.11.2000, Síða 75
4
MORGUNBLAÐIÐ
I
I
FRETTIR
Lýsa yfir stuðningi við
framhaldsskólakennara
LÝST er stuðningi við samninga-
nefnd framhaldsskólakennara í
nokkrum ályktunum sem Morgun-
blaðinu hefur borist og skorað á full-
trúa ríkisins að koma til móts við
kröfur kennara.
Kennarafélag Menntaskólans við
Hamrahlíð gagnrýnir harðlega í
ályktun frá fundi 9. nóvember
„seinagang og úiræðaleysi ríkisins
við að koma til móts við eðlilegar
kröfur framhaldsskólakennara, að
þeir fylgi háskólamenntuðum og öðr-
um sérmenntuðum ríkisstarfsmönn-
um í kjörum“. Vakin er athygli á því
að framhaldsskólakennarar hafi set-
ið eftir í launum og að þeir geti ekki
með nokkru móti réttlætt veru sína í
því starfi, hvorki gagnvart sjálfum
sér né öðrum, og bent á að þeir fari
einfaldlega til annarra starfa ef ekki
verði gerði bragarbót á.
„Það er með öllu óþolandi að ríkið
skuli verðfella raungreinakennara
sem velja sér að starfa við kennslu.
Eða hvers vegna fær efnafræðingur
við kennslu 50.000 kr. lægri grunn-
laun heldur en ef hann ynni annars
staðar hjá ríkinu?“ segir m.a. í álykt-
Vilja fjárveit-
íngar til
heilsugæslu
EFTIRFARANDI ályktun frá bæj-
arráði Fjarðarbyggðar var sam-
þykkt á fundi bæjarráðs mánudag-
inn 13. nóvember sl.:
„Bæjarráð Fjarðai'byggðar skor-
ar á stjómvöld að tryggja að fjár-
veitingar til Heilbrigðisstofnunar
Austurlands á árinu 2001 verði með
þeim hætti að ekki þurfi að koma til
skerðingar á þeirri þjónustu sem
byggð hefur verið upp á starfssvæði
stofnunarinnar. í þessu sambandi
leggur bæjarráð áherslu á að ekki
komi aftur til tímabundinnar lokun-
ar fæðingadeildar Fjórðungssjúkra-
hússins í Neskaupstað og að úthlut-
un ferliverkaeininga til sjúkrahúss-
ins verði í samræmi við þjónustu
þörf svæðisins.
Þá vill bæjarráð hvetja stjórn
Heilbrigðisstofnunar Austurlands
og heilbrigðisyfirvöld til að vinna öt-
ullega að ráðningu lækna til starfa í
Eyjafjarðarlæknishéraði og að
stofnun endurhæfingardeildar við
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað. Óskar bæjarráð eftir góðu sam-
starfi um öll framfaramál sem þessi
á sviði heilbrigðismála í Fjarðar-
byggð og á öllu starfssvæði Heil-
brigðisstofnunar Austurlands."
un Félags raungreinakennara í
framhaldsskólum. Er þess krafist að
menntamálaráðherra komi í veg fyr-
ir frekari flótta kennara úr fram-
haldsskólum og gangi þegar fram og
tryggi gerð nýs kjarasamnings.
I ályktun Kennarafélags Kvenna-
skólans í Reykjavík segir að þær
launahækkanir sem fjármálaráð-
herra hefur boðið séu fráleitar og er
skorað á ráðherra að bjóða kennur-
um sömu laun og öðrum ríkisstarfs-
mönnum með sambærilega menntun
og ábyrgð svo skólastarf geti hafist
að nýju.
Framhaldsskólakennarar á Suð-
urnesjum hafa sent frá sér ályktun
þai' sem lýst er yfir fullum stuðningi
við samninganefnd Félags fram-
haldsskólakennara og því lýst yfir að
hún hafi fullt umboð til að semja fyr-
ir þeirra hönd. Þá hefur almennur
félagsfundur Menningar- og friðar-
samtaka íslenskra kvenna sent frá
sér ályktun þar sem m.a. er skorað á
stjórnvöld að koma til móts við kröf-
ur kennara, „því æska landsins á
heimtingu á því að virðing fyrir starfi
kennara verði endurreist".
Bæjarráð Grindavfkur
Ekki tekið á
vanda vegna
íþyngjandi
ráðstafana
BÆJARRÁÐ Grindavíkur hefur
sent ríkisstjórn eftirfarandi ályktun
um tillögur nefndai' sem fjallaði um
tekjustofna sveitarfélaga:
„Bæjarráð Grindavíkur mótmælir
harðlega að tillögur tekjustofna-
nefndar sveitarfélaga skuli ekki taka
á þeim mikla vanda sem skapast hef-
ur hjá sveitarfélögum vegna íþyngj-
andi ráðstafana stjórnvalda. Þetta
gerist þrátt fyrir að sýnt hefur verið
fram á þennan vanda með ítarlegum
skýrslum.
BæjaiTáð harmar að nefndin skuli
ekki gera tillögu að nýsköpun tekju-
stofna sveitarfélaga m.t.t. aukins
frjálsræðis sveitarfélaga til tekjuöfl-
unar og frekari hlutdeild í óbeinum
sköttum og bifreiðagjöldum.
Bæjan-áð skorar á Ríkisstjórn ís-
lands að beita sér fyrir því að leið-
rétting á útsvarsprósentu til sveitar-
félaganna leiði ekki til skattahækk-
ana á almenning í landinu.“
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 7^
Rúmteppi frá kr. 4.900.-
Kaffi- og Matardúkar frá Kr. 3.500.-
jóiadúkar, Gardínur, einstök tilboð
gö ð %
M
KRISTALL
Kringlunni - Faxafeni
Ryksugudagar í nóvember
MIKLU MEIRA
EN VENJULEG RYKSUGA!
EINNIG:
VATNSUGA
TEPPAHREINSIVÉL
SKÚRINGAVÉL
• Öflug ryksíun skilar útblæstri 99,9% hreinum
• Teppahreinsivél sem djúphreinsar teppi og áklæði
• Vatnssuga, í vatnsveðri og við önnur tækifæri
• Skúrar gólfdúka, fllsar og önnur hörð gólfefni
• Sex mismunandi aukahlutir til hreingeminga á
öliu heimilinu fylgja
• 4ra litra fata fyrir hreint vatn
• Tekur upp 8 lítra af vökva
• 11 lltra rykpoki
• Þyngd 7,3 kg.
Komum og kynnum
í fyrirtækjum og á heimilum
á höfuðborgarsvæðinu!
Verð
frá kr. 28.700
Alþjóða Verslunarfélagið ehf
Skipholt 5,105 Reykjavík S: 511 4100
SIGLINGASKÓLINN
Námskeið til 30 rúml. réttinda 1.—16. des
Kennsla daglega nema sunnudaga
frá kl. 9—16.
Kennt samkvæmt gildandi námskrá.
Ekki sleppa þessu tækifæri.
Upplýsingar í síma 898 0599 og 588 3092.
SIGLINGASKÓLINN
Vatnsholti 8
Kennsla Austurbugt 3
BRJALUÐ
ÚTSALA
C^25-40% afsláttur>
Opið mán.-fös. kl. 11-18
laugardaga frá kl. 11-16
JVttttkbúðm
Aðalstræti
r—t
JOLASTIMPLARNIR KOMNIR
Í^ÓÐINSGOTU 7
Gleðileg jól gott farsælt...
SÍMI 562 8448
BIODROGA
j urtasnyrtivör ur
Súrefnislínan-Oxygen Formula
fyrir þurra og viðkvæma húð
24 stunda dag- og næturkrem
24 stunda augnkrem
Glæsilegur kaupauki
Útsölustaðir: Stella, Bankasfræti.
Snyrtistofa Lilju Högnadóttur, Stillholfi, Akranesi.
Frihöfnin, Keflavík.
Lífrænar jurtasnyrfivörur frá heilsuræktarbænum Baden Baden.
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Q L‘J
/ f-T-1 ' *
ilums
Ferðaskrifstofa Vesturlands býður upp á 10 daga
golfferð til Túnis, þar sem ekkert er til sparað til
að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð.
Golf við kjöraðstæður í þægilegu loftslagi. Fyrsta
flokks strandhótel, góður matur og þjónusta.
Sérlega áhugaverður menningarheimur.
Brottfarir 16. febrúar og 27. apríl.
Fararstjóri Sigurður Pétursson golfkennari.
Verð kr. 116.800 í tvíbýii innifelur: Flug, fararstjórn,
akstur, gistingu, hálft fæði og 7 vallargjöld.
Ferðaskrifstofa Vesturlands, sími 437 2323.
FERDASKRIF5TOFA
VE5TURLAND5
VFSTURLANDS TOI'RIST BURfAU
Veður og færð á Netinu
^mbl.is
d