Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 76
76 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
í dag er fímmtudagur 16. nóvem-
ber, 321, dagur ársins 2000. Orð
i dagsins: Eitt sinn voruð þér myrk-
ur, en nú eruð þér ljós í Drottni.
Hegðið yður eins og börn ljóssins.
(Efes.5,8.)
Skipin
Reykjavikurhöfn: Detti-
foss kemur og fer í dag.
Skafti SKkemur í dag.
Jóhanna ÁR, Sæbjörg
ST og Helgafell fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Cape Ice kom í gær.
Fréttir
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14-17.
Félag frfmerkjasafnara.
Opið hús laugardaga kl.
13.30-17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl. 10.20
boccia, kl. 13 vinnustofa
og myndmennt. Laugar-
daginn 25. nóvember
verður opið hús. Þar
* verður á vegum Reykja-
vikur - menningarborg-
ar 2000 sýndur afrakst-
ur samvinnu ungra og
eldri borgara afverkefn-
inu kynslóðirnar mæt-
ast. Húsið opnað kl. 14.
Árskógar 4. KI. 9-12
baðþjónusta og bók-
band, kl. 9-16.30 penna-
saumur og bútasaumur,
kl. 9.45 morgunstund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 opin smíða-
stofa, kl. 13 pútt, kl. 9
hár- og fótsnyrtistofur
opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30 böð-
un, kl. 9-9.45 leikfími, kl.
9-12 myndlist, kl. 9-16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 13 glerlist.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslustof-
an og handavinnustofan
opnar, kl. 13 opin handa-
vinnustofan, kl. 14.30
sögustund.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhh'ð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 fondur og
handavinna.
Félagsst. Furugerði 1.
Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður,
glerskurðamámskeið og
leirmunagerð, kl. 9.45
verslunarferð í Austur-
ver, kl. 13.30 boccia.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Ferð í Þjóð-
leikhúsið að sjá Kirsu-
berjagarðinn 18. nóv-
v ember, pantið miða í
Kirkjulundi s. 565-6622.
Spilakvöld verður 16.
nóv. kl. 19.30 í boði UMF
Stjörnunnar í Stjömu-
heimilinu. Rútuferðir
samkvæmt áætlun.
Félag eldri borgara í
Hafnarfírði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfing í Bæjar-
útgerðinni kl. 10-12. Op-
ið hús kl. 14. St. Georgs-
gildið (eldri skátar) sjá
^.(um skemmtidagskrá.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Asgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13 í
dag. Bláa lónið og Þing-
vallaleið bjóða eldri
borgurum að heimsækja
Bláa lónið á hálfvirði
(ferð og aðgangur).
Fyrsta ferð verður farin
í dag kl. 13.30. Náð verð-
ur í fólkið á tveim stöð-
um í Reykjavík við
íþróttahöllina i Laugar-
dal og við Hlemm. Síð-
asti fræðslufundurinn á
haustönn undir yfír-
skriftinni „Heilsa og
hamningja á efri árum“
verður laugard. 18. nóv.
kl. 13.30. Verður þá fjall-
að um nýjar leiðir í með-
ferð hjartasjúkdóma:
Davíð Arnar, sérfræð-
ingur um lyfjameðferð,
og Bjarni Torfason, yfir-
læknir í skurðaðgerðum
á hjarta. Fræðslufund-
irnir verða haldnir í As-
garði, Glæsibæ, félags-
heimili Félags eldri
borgara. Allir eru vel-
komnir. Silfurlínan opin
á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10-12.
Ath. skrifstofa FEB er
opin er frá kl. 10-16.
Uppl. í s. 588-2111.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug, kl. 9.30,
kl. 10.30 helgistund, um-
sjón Lilja G. Hall-
grímsdóttir djákni, frá
hádegi spilasalur og og
vinnustofur opin, veit-
ingar í kaffihúsi Gerðu-
bergs. Sunnud. 19. nóv.
syngur Gerðubergs-
kórinn við guðsþjónustu
í Kópavogskirkju kl. 14,
prestur sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um kl. 9-15, kl. 9.30 gler-
og postulínsmálun, leik-
fimi kl. 9.05, kl. 9.50 og
kl. 10.45, kl. 13 klippi-
myndir og taumálun.
Söngfuglarnir taka lagið
kl. 17, Guðrún Guð-
mundsd. mætir með
gítarinn.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið kl. 9-17. Matar-
þjónusta er á þriðju- og
föstudögum. Panta þarf
fyrir kl. 10 sömu daga.
Postulínsmálun kl. 9
jóga kl. 10, brids kl 13.
Handavinnustofan opin
kl. 13-16. Fótaaðgerða-
stofan opin kl. 10-16
miðviku-, fimmtu- og
föstudaga.
Hraunbær 105. Kl. 9-
16.30 bútasaumur, perlu-
saumur og kortagerð, kl.
9 fótaaðgerð, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Hæðargarður 31. Kl. 9-
16.30 opin vinnustofa,
glerskurður, kl. 9-17
hárgreiðsla og böðun, kl.
10 leikfimi, kl. 13.30
bókabíll, kl. 15.15 dans.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
opin handavinnustofa
búta- og brúðusaumur,
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofumar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið, kl.
13.30 stund við píanóið.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15-12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15-15.30
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13-14 leikfimi,
kl. 13-16 kóræfing. Kl.
10.30 er fyrirbænastund
í umsjón sr. Jakobs
Ágústs Hjálmarssonar
Dómkirkjuprests. Á
morgun kl. 14.30-16
spilar Ragnar Páll Ein-
arsson fyrir dansi.
Pönnukökur með rjóma í
kaffitímanum.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia og fótaaðgerðir,
kl. 13 handmennt, körfu-
gerð og frjálst spil.
Bridsdeild FEBK, Gull-
smára. Spilað mánu- og
fimmtudaga í vetur í
Gullsmára 13. Spila-
mennska hefst kl. 13,
mæting 15 mínútum
fyrr.
Kristniboðsfélag
Kvenna, Háaleitisbraut
58-60. Biblíulestur í dag
kl. 17 í umsjá Benedikts
Arnkelssonar.
GA-fundir spilafikla eru
kl. 18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtud. í fræðsludeild
SÁÁ, Síðumúla 3-5, og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Kvenfélag Kópavogs
fundur í kvöld fimmtu-
dag kl. 20.30 í Hamra-
borg 10, Vörukynning.
Neistinn. Styrktarfélag
hjartveikra barna, held-
ur félagsfund í Selja-
kirkju í kvöld kl. 20:30.
Kynnt verður fjáröflun-
arátak sem fara á í á
næsta ári, pistill um boð
til finnska systurfélags-
ins og jólakort og jóla-
merki afhent félags-
mönnum til sölu.
Kaffiveitingar.
Púttklúbbur Suðurnesja
heldur opið púttmót í
dag, fimmtudaginn 16.
nóv., í Röst, Reykja-
nesbæ, og hefst kl. 13.
Allir eldri borgarar vel-
komnir.
Laugvetningar. Munið
kirkjuferðina í Bústaða-
kirkju sunnudaginn 19.
nóv. kl. 14. Kaffi eftir
messu í safnaðarheimil-
inu. Látið vita um þátt-
töku hjá Þórólfi s. 565-
2068 Olöfu s. 553-6173
eða Gunnari 553-3299.
Húnvetningafélagið.
Félagsvist í Húnabúð,
Skeifunni 11, í kvöld ki.
20. Þriðja kvöld í fjög-
urra kvölda keppni.
Kaffiveitingar. Állir vel-
komnir.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborgar-
svæðinu, Hátúni 12.1
kvöld kl. 19.30 tafl.
Múlsveitungamót. Burt-
fluttir íbúar og aðrir vel-
unnarar Múlahrepps,
Austur-Barðastrandar-
sýslu, ætla að gera sér
glaðan dag í Þinghóli,
Hamraborg 11, Kópa-
vogi, laugardaginn 18.
nóvember kl. 20.30. M.a.
verða sýndar myndir úr
sveitinni og farið með
gamanmál.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SlMAR: Skiptiborð: 669 1100. Augiýaingar:
,669 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1166,
' ""‘^sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innaníands. í lausasölu 150 kr. eintakið.
VIIVAkWIII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Nýyrðið
innherji
NÚ blæs gegn því ágæta
nýyrði innherja. Með því
var átt við starfsmenn með
vitneskju um stöðu og horf-
ur sem áhrif hafa á verð-
mæti fyrirtækja. Því eru
innheijaviðskipti óheimil
eða ættu að vera það. Við-
spyrna laga og reglna er þó
ómarkviss eins og Jóhann
Pétur Harðarson segir í
góðri grein um lögfræðihlið
málsins í Viðskiptablaði
Mbl. 9. nóv.
Tunga og siðferðisvitund
er undirstaða laga og
reglna.
Til ólukku tók Viðskipta-
blaðið upp á þeim skolla að
skrifa ritstjórnargreinar
undir dulnefninu innhetji.
Nú bættist grátt á svart
er getið var um ræðu Sig-
urðar í Kaupþingi þar sem
hann segir að innherjavið-
skipti séu eðUleg og æski-
leg. Innherjasvik væru
vandinn en „ruglingur með
þessi hugtök.“ Mbl. 11. nóv.
Spémæli segir: Ef ekki
er hægt að sannfæra má
reyna að rugla!
Eggert Ásgeirsson.
Einn í
friminútum
KENNARAR vilja hærra
kaup og allt gott um það að
segja. En sárt fannst mér
að vita af barnabarni mínu,
sem er á hækjum og kemst
ekki út, að vita af honum
einum inni í fríminútum. Er
þetta ekki liður í þeirra
starfi, að sex ára barn sé
ekki eitt inni í skólastofu? Á
þriðja degi var talað við
þriðja aðila og mig langar
að þakka fyrir skjót við-
brögð skólayfirvalda. Úr
þessu var bætt.
Amrna.
Skortur á skemmti-
stöðum fyrir fólk
á miðjum aldri
ÉG veit að ég tala fyrir
munn margra, þegar ég
vek athygli á skorti á
skemmtistöðum fyrir fólk á
miðjum aldri. Það er allt yf-
irfullt af krám og skemmti-
stöðum fyrir yngra fólkið
með ævarandi hávaða. Til
skamms tíma var Kringlu-
kráin góður valkostur, en
nú er þar boðið upp á
skemmtidagskrá með mat
og tilheyrandi. Það er til
dæmis mikil eftirsjá að
Morgunblaðið/Ásdís
Mímisbar. Það væri gleði-
legt ef einhver veitinga-
húsaeigandi sæi sér hag í
því að opna svipaðan stað.
G.S.
íslendingar
kaupi
víkingaskipið
AUÐVITAÐ eiga íslend-
ingar sjálfir að kaupa vík-
ingaskipið, frækna og
hugumstóra, Islending, og
varðveita það um ókomna
framtíð. Annað væri algjör
aulaháttur og ég hygg að
Islendingar kjósi flest
fremur en láta kalla sig
aula!
Vigfús Björnsson,
Snægili 10, Akureyri.
Star Trek þættirnir
áRUV
LESANDI hafði samband
við Velvakanda og vildi
benda aðdáendum Star
Trek þáttanna á, að nú
væru þeir sýndir á mánu-
dagskvöldum kl.18.10 í stað
sunnudaga, eins og verið
hefur til margra ára.
Tapað/fundid
Heyrnartæki
1 óskilum
HEYRNARTÆKI fannst
á göngustígnum fyrir neð-
an Hvassaleiti sunnudag-
inn 12. nóvember sl. Upp-
lýsingar í síma 568-4548.
Dýrahald
Kisa á þvælingi
í Hafnarfirði
GRÁBRÖNDÓTT læða
með gyllta, snjáða ól settist
upp hjá fólki í Fagra-
hvammi í Hafnarfirði sl.
fimmtudag. Hún er mjög
gæf og áreiðanlega heimil-
isköttur, en hefur líklega
verið á þvælingi einhvern
tíma því hún er mjög horuð.
Þótt húsráðendur vildu
hafa hana þá geta þeir það
ekki vegna ofnæmis og hví
er hér með lýst eftir eig-
endum hennar. Upplýsing-
ar um kisu fást í síma 555-
4492 eftir kl. 19.
Gulbröndóttur fress
hvarf að heiman
GULBRÖNDÓTTUR
fress, með hvítar loppur og
brúnan blett á trýni, hvarf
frá heimili sínu í Goðheim-
um hinn 9. nóvember sl.
Þeir sem hafa upplýsingar
um hann vinsamlegast haf-
ið samband í síma 899-3637.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 hörfar, 4 bolur, 7
hlaupi, 8 stormurinn, 9
útlim, 11 boli, 13 ástund-
unarsama,14 erfiður við-
fangs, 15 bijóst, 17 ljósk-
er, 20 mann, 22 sti'fla, 23
snákur, 24 tijágróður, 25
haldast.
LÓÐRÉTT:
1 skækjan, 2 ræðustóls, 3
sleit, 4 brott, 5 fúskið, 6
aflaga, 10 ógöngur,
12 auð, 13 vond, 15 kæna,
16 niðurgangurinn, 18
mcrgð, 19 grassvarðar-
lengja, 20 karlfugl, 21
taugaáfall.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 vindhöggs, 8 unnar, 9 umber, 10 kál, 11 dorga,
13 leiða, 15 skerf, 18 gi-áða, 21 jór, 22 logna, 23 óviti, 24
villingur.
Lóðrétt: 2 iðnar, 3 dýrka, 4 ötull, 5 gubbi, 6 sund, 7
hráa, 12 gær, 14 eir, 15 sult, 16 eigri, 17 fjall, 18 gróin,
19 álitu, 20 akir.
Víkverji skrifar...
AÐ hefur verið með ólíkindum
að fylgjast með bandarísku
forsetakosningnum á síðustu dög-
um. Víkverji átti von á að á þessari
tölvuöld myndu úrslit liggja fyrir
nokkrum klukkutímum eftir að
kjörstöðum var lokað, en niðurstað-
an liggur ekki enn fyrir, nú einni og
hálfri viku eftir kjördag. Þetta er
líkt og var á 18. og 19. öld þegar
menn þurftu að bíða í marga daga
eftir að hestvagnar og lestir skiluðu
kjörgögnum áður en úrslit urðu ljós.
Annars hafa möguleikar manna á
að skoða úrslit í kosningnum aukist
mikið með tilkomu Netsins. Hægt
er að skoða á erlendum netmiðlum
úrslit í einstökum ríkjum og jafnvel
einstökum kjördæmum. Þarna má
sjá að ekki var alls staðar jafn mjótt
á munum og í Flórída þar sem ein-
ungis nokkur hundruð atkvæði
skildu Gore og Bush að. Gore fékk
t.d. 86% atkvæða í höfuðborg
Bandaríkjanna, Washington DC, en
Bush fékk einungis 9% atkvæða
þar. Bush gekk almennt betur í fá-
mennum ríkjum þar sem margt fólk
býr í strjálbýli. Þannig fékk hann
67% atkvæða í Utah, en Gore aðeins
26%. I einstökum kjördæmum í Ut-
ah fékk Bush um 80% fylgi.
Sagt hefur verið að hægt sé að
draga þann lærdóm af þessum
kosningum að hvert einasta atkvæði
skipti máli. Meðan kjörmannakerfið
er við lýði getur hins vegar orðið
erfitt að sannfæra repúlikana í
Washington DC og demókrata í Ut-
ah um að þeirra atkvæði skipti máli.
Flokkarnir eru einfaldlega í svo
miklum minnihluta í þessum ríkjum
að nánast vonlaust er fyrir þá að
vinna sigur á andstæðingnum í
þessum ríkjum enda hefur það ekki
gerst í síðustu forsetakosningum.
Á netmiðlunum er einnig hægt að
fá upplýsingar um úrslit í kjöri til
öldungadeildarinnar og fúlltrúa-
deildarinnar, svo og um kjör ríkis-
stjóra. Þar er einnig hægt að kynn-
ast stefnumálum frambjóðenda. Þá
er hægt að kynnast viðhorfum kjós-
enda miðað við svör í skoðanakönn-
un sem gerð var á kjördag. ítarleg-
ar upplýsingar er einnig hægt að
sækja á Netið um úrslit í forseta-
kjöri frá því að byrjað var að kjósa
forseta í Bandaríkjunum.
XXX
OLAFUR Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Islands, benti á það í umræðuþætti í
Ríkisútvarpinu sl. laugardag að
harkan í samskiptum demókrata og
repúblikana í Bandaríkjunum ætti
sér ýmsar skýringar. Repúblikanar
héldu því fram núna að Gore ætti að
viðurkenna ósigur sinn. Málarekst-
ur og lagaklækir væru hættulegir
lýðræðinu og það væri í þágu þjóð-
arhags að demókratar sættu sig við
niðurstöðu talningar. Ólafur benti á
að það væru ekki nema tvö ár síðan
repúblikanar hikuðu ekki við að
hefja málarekstur og beita ýtrustu
lagaklækjum til að reyna að hrekja
sitjandi forseta úr embætti fyrir litl-
ar sakir. Það þyrfti því kannski ekki
að koma á óvart að demókratar
væru ekki tilbúnir að gefast upp
strax í baráttunni um forsetaemb-
ættið.