Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 79
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
FÓLK í FRÉTTUM
Latínsk lyftutónlist
TONLIST
Geisladiskur
TIMBÚKTÚ OG TÓLF
ÖNNUR
Tirabúktú og tólf önnur, geisladisk-
ur Páls Torfa Önundarsonar. Páll
Ieikur á gítar en með honum eru
þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir
(píanó), Jóei Pálsson (sópran-
saxófónn, tenórsaxófónn og kontra-
bassaklarinett), Matthías M.D.
Hemstock (trommur og slagverk),
Olivier Manoury (bandoneon),
Snorri Sigurðarson (trompet),
Tómas R. Einarsson (bassi), Þórdís
Claessen (slagverk), Þórir Baldurs-
son (píanó og bakrödd), Egill Ólafs-
son (söngur), Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir (söngur og bakrödd) og
Kristjana Stefánsdóttir (söngur og
bakrödd). Lög og textar eru eftir
Pál fyrir utan textann við „Djákn-
inn og Guðrún (Zombie)“ sem er
þjóðvísa með innskotum eftir Pál
og textann við „Miðsumarnótt" á
Arinbjörn Vilhjálmsson. Upptökum
stýrði Þórir Baldursson. 49,08 mín.
Páll Torfi Önundarson gefur út.
PÁLL Torfi Önundarson er eins og
margir, forfallinn áhugamaður um
tónlist, og hefur „tekið vírusinn
ólæknandi", eins og segir skemmti-
lega í upplýsingabæklingi disksins.
Páll er læknir að mennt og starfar
sem slíkur þótt tónlistin
hafi aldrei vikið langt frá
honum. I eina tíð var hann
hluti tónlistarhópsins
Diabolus in Musica og
síðasta áratug hefur
hann sinnt áhugamálinu
af nokkurri elju; gaf til
að mynda út hljómdisk
á síðasta ári sem einn
af meðlimum latínsku
sveitarinnar Six pack latino.
Suðræn tónlist er Páli hugleikin
hér, formum eins og cha cha cha,
mambó, salsa og tangó bregður fyrir
en annars er farið um afar víðan völl,
m.a. snert vel á djassi, hér er vals á
kreiki og einnig það sem best færi á
að kalla hreint og beint popp. Hér eru
meira að segja gerðar tilraunir til
stílasplæsinga, í lögum eins og „Mam-
bo alla turca“, þar sem arabískir
hljómar mæta mambómenningunni á
miðri leið, og „Mexicubana", sem, eins
og nafnið gefur til kynna, er tilraun til
að sjóða mexíkanska tónlist saman við
kúbverska. Ég hef löngum verið tor-
trygginn á svona tilraunastarfsemi en
viðurkenni að það hefur slaknað á tor-
tryggninni í seinni tíð, og þykir mér
fyrra lagið sem ég nefndi t.d. vera ein
best heppnaða tónsmíð disksins.
Þessi fjölbreytileiki disksins er og
hans helsti styrkur.
Aðrar lagasmíðar sigla í liðugum
vindi ofangi-eindra strauma þótt
sjaldnast risti þær djúpt. Þótt Páll
virðist hafa dágóða þekkingu á formi
og uppbyggingu þessai-a suðrænu
stílbrigða nær hann hvorki að gæða
þær nægilegu lífi né persónulegum
Páll Torfi Önundarson, læknir
og tónlistarmaður, leitar víða
fanga á hljómdiski sinum Tim-
búktú og tólf önnur.
blæ - lögin eru bæði fulleinföld og íyr-
irsjáanleg og einhver meinleysisbrag-
ur er yfir öllu saman. Það er og sterk-
ur létthlustunarkeimur (e. easy
listening) á tónlistinni sem er henni
nokkuð til vansa. Létthlustunarform-
ið er vandmeðfarið og hér er eins og
flestar lagasmíðarnar séu andvana
fæddar og þær renna fremur auðveld-
lega inn um annað eyrað og út um
hitt.
Hljóðfæraleikaramir eru valin-
kunnir og færir í flestan sjó og ekki
hægt að kvarta undan þeim þættin-
um. En þeir hafa ekki mikið úr að
moða og því fellur spilamennskan oft
dulítið ílatt. Það vantar einfaldlega
hitann, ærslin og fjörið sem er eitt af
sterkari einkennum suðrænnar tón-
listar. Akkilesarhæll
leiguspilamennskunnar
(e. session playing) eins
og hún er stunduð á þess-
um diski, er sá að það er
ekki beint verið að spila út
frá sameiginlegri þörf.
Efalaust hefur það eitthvað
að segjalíka.
Endurunnu Diabolus in
Musica lögin, „Sautján stig
og sól (17°C)“ og „Pétur Jónatans-
son“ eru líka heldur kauðsleg. Söngur
Jóhönnu V. Þórhallsdóttur í fyrra lag-
inu svo og öðrum lögum er líka í
brokkgengara lagi, tilraunir hennar
til djasssöngs eru miður vel heppnað-
ar.
Það má segja að Páli takist best
upp í síðustu tveimur lögunum en þar
er hann aldrei þessu vant ekki að
gæla við suðræna strauma. „Mið-
sumamótt (Valse funebre)" er fallega
sorgbundin smíð og í „Djákninn og
Guðrún (Zombie)“ ber íyiir gotneska
snilldartakta. Einnig fer mannskap-
urinn á sæmilegasta flug í djassað-
asta laginu, „Timbúktú", hvar Egill
Ólafsson stendur sig með prýði.
Útþrá sköpunarinnar er af hinu
góða og þetta einherjaframtak Páls
er sannariega lofsvert. Það breytir
því þó ekki að þrátt fyrir einstaka
spretti hér og þar er lunginn af þess-
ari plötu einhvers konar latínsk lyftu-
tónlist sem h'ður fullauðveldlega
gegnum tóneyrað og sldlur fremm- lít-
ið eftir sig.
Arnar EggertThoroddsen
Allra síðustu dagar
lagerútsölunnar!
Mizuno/Errea/Uhlsport
Vandaðar vörur á frábæru verði, dæmi:
Úlpur frá.................. 990
Gallar frá................1.990
Toppar frá................. 500
Skór frá................... 500
Stuttbuxur frá............. 790
Bakpokar frá............... 790
Tökum debet- og kreditkort. Sendum í póstkröfu.
Opið laugardaginn 18. nóv. kl. 10—16 og virka daga kl. 10—17.
KJ. Kristjánsson hf.,
íþrótavörudeild
Skipholti 35 - 3. hæð - sama hús og
Gúmmívinnustofan, sími 581 1212.
Funai myndbandstæki frá þýskalandi
6 hausa Nicam Stereo
Long play
NTSC afspilun
Góð kyrrmynd, og m.fl.
Tilboð kr. 18.900,-
ON OFF
Smiðjuvegi 4, græn gata,
Kópavogi, Slmi: 577 3377
Nýtt kortatímabil
ÖTSHLfl
flilSil
Laugavegi 54,
sími 552 5201.
30/. afsláffur
í 3 daga fim.-lflu.
£