Morgunblaðið - 16.11.2000, Qupperneq 80
,<§0 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
LJósmyncl/Þóra Þórisdóttir
Frá opnun sýningarinnar Opið/lokað: I forgrunni eru Guðrún Vera og
Sðla að skoða möppur frá listamönnum.
Gallerí
af guðs náð
Um síðustu helgi var opnuð sýningin
Opið/lokað í gallerí@hlemmur.is sem
er gallerí rekið af tveimur myndlistar-
mönnum, þeim Þóru Þórisdóttur og
Valgerði Guðlaugsdóttur. Unnar
Jónasson kom við og spurði Valgerði
út í sýninguna og rekstur gallerísins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valgerður, annar af eigendum gallerísins, lætur fara vel
um sig á sýningunni Opið/lokað
SÝNINGIN Opið/lokað er nokkurs
konar uppgjör gallerísins við for-
tíðina svo að auðveldara sé að
skipuleggja framtíðina og er sýn-
ingunni stillt upp sem kaffistofu,
skrifstofu og sýningarrými, allt í
sömu andrá. Einnig verður leitast
við að opna umræðu um stöðu
myndlistar á breiðum grundvelli
út sýningartímabilið. A opnunar-
tíma gallerísins er opin málstofa,
þar sem listamenn og annað
áhugafólk um myndlist er hvatt til
að koma og viðra skoðanir sýnar
Straumur
á síðasta
snúningi
LLM síðustu helgi var opnuð sýn-
ing tvíeykisins Libiu Perez de
Siles de Castro og Ólafs Árna Ól-
afssonar „The Last Minute Show“
í listamiðstöðinni Straumi í Hafn-
arfirði. Síðustu tvo mánuði hafa
þau verið gestalistamenn í vinnu-
stofunni í Straumi og er sýningin
afrakstur vinnu þeirra á þvf tíma-
bíli. Þau eru búsett í Hollandi og
hafa haldið fjöldann allan af sýn-
og hugmyndir um stöðu þessara
mála. Galleríið hóf starfsemi sína í
september 1999 og eru því tæpir
13 mánuðir síðan það var opnað
sem er svona meðganga fílsunga.
A þessu ári hafa um 20 lista-
menn sýnt hér í galleríinu og eru
þeir allirmeð verk hér á sýning-
unni.
Gallerí í naflaskoðun
„Við skipulögðum sýninguna
með stuttum fyrirvara af því að
það losnaði tímabil og þá ákváðum
ingum bæði hér á Iandi sem er-
lendis.
Sýningin er opin alla daga frá
við Þóra að nota tímann í þágu
gallerísins og þeirra listamanna
sem hafa sýnt þar síðasta árið,“
svarar Valgerður um tilurð sýn-
ingarinnar sem nú stendur yfir.
„Þetta er bæði upprifjun á því sem
er liðið og svo erum við líka að
reyna að horfa fram á veginn og
gefa tóninn um framhaldið. Flest
verkin á sýningunni eru tengd
fyrri sýningum listamannanna á
staðnum og eruverkin til sölu. Gef-
ur þetta því listáhugafólki og al-
menningi annaðtækifæri til að
14 til 19 og er síðasti sýningar-
dagur sunnudagurinn næstkom-
andi.
fjárfesta í þessari myndlist. Það
hefur alltaf verið markmið hjá
okkur að verkin ásýningunum
væru til sölu en það gengur svona
upp og niður að seljamyndlistina
hér. Það þarf líka að beita ákveð-
inni tækni til að seljamyndlist,
eitthvað sem við erum að læra
smátt og smátt. Við ákváðum að
setja sýninguna upp eins og heim-
ili eða búðarglugga séð frá götunni
þannig að fólk geti komið inn og
sest niður og spjallað og svo líka
til að sýna fram á að nútímamynd-
list eigi sinn stað inni á heimilinu."
Opið og lokað á sama tíma
Valgerður segir að á sýningunni
vilji þær Þóra líka opna inn á sig -
að minnsta kosti í hálfa gátt:
„Okkur fannst titillinn líka
skemmtilegur af því að það er
hægt að hugsa sér myndlist sem
opna og lokaða og þótt myndlist sé
opin er hún oftlokuð fyiir mörg-
um. Galleríið hér má kannski sjá
sem eins konar og leiksvið, glugg-
arnir eru mjög stórir og snúa
beint út á Hlemm og allir geta
horft inn.“
Og Valgerður heldur áfram:
„Fljótlega skiptum við galleríinu í
tvennt, skrifstofu og sýningarsal
og oft þegar fólk kemur inn verður
það svolítið skrítið því að það labb-
ar beint inn á skrifstofuna og
kannski upplifir það stíft andrúms-
loft, svona lokaðskrifstofuumhverfi
og þótt að hægt sé að sjá flestar
sýningarnar inn um gluggann
kemur samt oft fólk inn og spyr
hvort það kosti eitthvað að sjá list-
ina en hjá okkur er það frítt. Öðr-
um finnast allir þessir gluggar
vera merki um hvað við erum opin
og kallandi út á götuna. Það hafa
líka listamenn nýtt sér, en á einni
sýningu hér voru mjög lítið áber-
andi verk og þá var fólk á glugg-
anum að leita að verkunum og
kom svo kannski inn og spurði
hvort það væri engin sýning. Þá sá
fólkið fyrst verkin en í því tilviki
var listamaðurinn kannski að
vinna með gluggana og nýta sér
það hvað fólk sér þegar það geng-
ur fram hjá, ekki með því að reyna
að tæla það inn heldur meira að
vekja forvitni þess.“
Valgerður segir að mjög margar
einkasýningar hafi verið í galler-
íinu en í framtíðinni langi þær að
hafa meira af samvinnuverkefnum
á milli listamanna þó að hlutfallið
af einkasýningum verði örugglega
hæiTa. Þær eru líka farnar að
setja upp næsta ár og er það smátt
og smátt að fyllast en allir geta
sótt um að sýna og þær fá mikið af
tölvupósti frá fólki sem er að
spyrja um galleríið en netfangið er
galleri@hlemmur.is. Einnig getur
fólk sent þeim eða komið með
möppu með verkunum sínum og
sýnt þeim ef það hefur áhuga.
„Við tókum ákvörðun núna í
haust að halda rekstrinum áfram
því þá fengum við leigusammning
til lengri tíma og fengum því tæki-
færi til að skipuleggja meira en
eitt ár í einu, sem er miklu betra
og gefur okkur meiri tækifæri til
að fá fjármagn inn í reksturinn.
Þegar við byrjuðum var opið hjá
okkur 6 daga vikunnar en fljótleg
breyttum við því og núna er opið
fimmtudaga til sunnudaga frá 14
til 18.“ Yfirsetukvöð er á lista-
mönnum sem sýna í galleríinu en
Valgerður segir það fyrst og
fremst vera vegna þess að þeim
finnist nauðsynlegt að fólk geti
farið á sýningar þar sem það hafi
tækifæri til að hitta listamanninn
en einnig séu margir listamenn
sem að vilji fylgjast með viðbrögð-
um fólks við sýningum sínum.
Galleríið er skóli
„Alveg frá því að við byrjuðum
að reka þetta gallerí hef ég hugsað
að þetta væri eins konar skóli og
þótt við borgum leiguna úr eigin
vasa þá getum við litið á það sem
eins konar skólagjöld." útskýrir
Valgerður. „Maður lærir líka ótrú-
lega mikið og allt annað en en
kennt er í myndlistarskólum. Mað-
ur lærir alltaf eitthvað með því að
fylgjast með þeim myndlistar-
mönnum sem eru að sýna hér og
lærir líka að vinna með ólíku fólki.
Það er líka mjög mikill skóli að sjá
hvernig myndlistarmenn standa á
ólíkan hátt með verkunum sínum,
hvað þeir segja um sín verk og
hvernig þeir vinna, bæði í sam-
skiptum sínum við áhorfandann og
við fjölmiðla en þetta eru allt hlut-
ir sem að maður lærir þegar mað-
ur rekur gallerí eins og þetta.“
Manni var aldrei kennt í skóla
að gera möppu og samskipti við
fjölmiðla en ég veit að núna eru
þessi atriði komin inn í kennslu í
Listaháskólanum. Við viljum líka
nota þennan tíma á meðan sýning-
in stendur, til 3. desember, til þess
að opna á umræðu um myndlist.
Sem dæmi ætlum við að bjóða hópi
af myndlistarkonum sem hittist
reglulega að koma hingað og ræða
við okkur. Eins langar okkur til að
bjóða því fólki sem að hefur rekið
gallerí hér á Islandi til að kynna
galleríin og rekstur þeirra, hvaða
hugmyndir lágu að baki og hvern-
ig reksturinn gekk. Vonandi opn-
ast þá einhver umræða um stöðu
íslenskra gallería en þessi dagskrá
verður auglýst sérstaklega," segir
Valgerður að lokum.
Sýningargestir virða fyrir sér verkin á opnuninni.