Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 88

Morgunblaðið - 16.11.2000, Side 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/Rax Tekjur af áli gætu numið 100 milljörð- um árið 2010 TEKJUR íslendinga af útflutningi á áli verða 100 milljarðar króna árið 2010 verði af þeirri uppbyggingu álframleiðslu í landinu sem nú er stefnt að. Verði hins vegar ekki af frekari uppbyggingu munu útflutn- ingstekjur nema um 50 milljörðum á sama tíma. Þetta kemur fram í máli Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhags- stofnunar, í greinaflokknum ísland og álið í Morgunblaðinu í dag. ■ Þjóðarhagur/42 ------*.+_♦----- Kristján syngur í Vatíkaninu KRISTJÁNI Jóhannssyni tenór- söngvara hefur verið boðið að syngja í hádegismessu í Páfagai'ði á aðfangadag. Messunni verður sjónvarpað víða um heim og að sögn Kristjáns er talið að'um tveir og hálfur milljarð- ur manna muni fylgjast með út- sendingunni. Kristján mun syngja eitt eða tvö lög. Tenórsöngvarinn er væntanlegur til Islands í næstu viku en hann mun halda tónleika í Háskólabíói laugardaginn 25. október kl. 17. Þar kynnir hann nýja geislaplötu, Hamraborgina, þar sem hann syng- ur íslensk lög. ■ Að knúsa/36 -------------- Olíuflutninga- skip frá Kína SAMIÐ hefur verið við skipasmíða- stöð í Sjanghai í Kína um að smíða nýtt olíuskip fyrir Olíudreifíngu hf. Skipið mun kosta 9 milljónir Banda- ríkjadala eða sem nemur um 780 milljónum íslenskra króna. Mun ódýrara er að smíða skipið í Kína en Evrópu og munar þar 5rí>00 milljónum króna. ■ Fyrsta nýsmíði/C2 Dómari tekur af- stöðu til gæslu- r varðhalds í dag HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness tek- ur í dag afstöðu til gæsluvarðhalds- beiðni lögreglunnar í Kópavogi yfír rúmlega þrítugum karlmanni. Mað- urinn var handtekinn síðdegis á þriðjudag, grunaður um að eiga þátt í hvarfi Einars Amar Birgissonar, sem saknað hefur verið frá því á mið- vikudaginn í síðustu viku. Jafnframt var gerð húsleit á heimili mannsins og á vinnustað. Jónas Jóhannsson héraðsdómari tók sér frest til að kveða upp úrskurðinn til kl. 15 í dag. Lögreglan í Kópavogi verst að lU^iíestu fregna af rannsókn málsins. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að maðurinn hafi orðið tvísaga við yfirheyrslur lögreglu. Fjölskylda og unnusta Einars Amar sendu í gær frá sér yfirlýsingu um fjármál verslunarinnar „Gap Collection“ við Laugaveg, sem Einar á stærstan hlut í. Þar segir m.a.: „Það fór svo á endanum að sá aðili sem í dag er meðeigandi Einars Arnar að versluninni tók að sér að útvega fjár- magn til rekstursins. Það fjármagn ^■Blfur hins vegar ekki skilað sér. Það varð að samkomulagi þeirra á milli að eignaskipting félagsins yrði þannig að Einar Öm ætti 80% en meðeig- andinn 20%. Það samkomulag stend- ur óhaggað.“ Þá segir ennfremur að nákvæm athugun á fjármálum versl- unarinnar hafi staðfest að allt sem snýr að fjármálum fyrirtækisins sé með eðlilegum hætti. Leit við Grindavík hélt áfram í gær en bar ekki árangur I gærmorgun hófst leit rúmlega 80 félaga í Slysavamafélaginu Lands- björg að Einari Emi. Fimm leitar- hundar vom þeim til aðstoðar. Leitað var á sunnanverðu Reykjanesi vest- an Grindavíkur að Reykjanesvita. Lögreglumenn tóku einnig þátt í leit- inni ásamt köfumm. Vegna myrkurs var leit hætt skömmu fyrir kl. 18 en henni verður haldið áfram á svipuð- um slóðum í birtingu í dag. Ættingjar og vinir Einars, sem hafa leitað hans frá því hann hvarf, em hættir leit. Hjalti Ástbjömsson, sem hefur séð um skipulagningu leit- arinnar fyrir hönd aðstandenda, seg- ir að þar sem málið sé nú rannsakað sem sakamál sé vart verjandi að að- standendur og vinir haldi leitinni áfram. ■ Yfirlýsing/4 Framhaldsskólanemar í fjármálaráðuneytinu Milli 60 og 70 framhaldsskóla- nemar heimsóttu fjármálaráðu- neytið í gær og settust þar að um tíma. Vildu nemendur með þessu koma á framfæri óánægju með af- stöðu fjármálaráðherra til verk- falls kennara. Geir H. Haarde fjármálar- áðherra ræddi við nemendur um verkfallið. Viðvera nemenda rask- aði ekki vinnufriði starfsmanna og héldu þeir á braut þegar lokað var. Nemendur áforma að heim- sækja ráðuneytið aftur í dag. Áttatíu nemar hafa skráð sig hjá Atvinnumiðstöð stúdenta. ■ 80 nemar/6 Grétar Þorsteinsson var endurkiörinn forseti ASÍ með 66,5% atkvæða O vissa um kj ör vara- forseta og miðstjórnar GRÉTAR Þorsteinsson var endur- kjörinn forseti Alþýðusambands ís- lands til næstu tveggja ára á þingi ASÍ í gær. Grétar hlaut 325 at- kvæði eða 66,5% en Ari Skúlason hlaut 157 atkvæði eða 33,5%. Mikil óvissa og spenna er meðal þingfull- trúa vegna kjörs varaforseta og 15 manna miðstjórnar sem fram á að fara á þinginu í dag og er búist við átökum um framboð og uppstill- ingu kjörnefndar. Hópur fulltrúa félaga af lands- byggðinni stendur að framboði Signýjar Jóhannesdóttur, for- tlHBmns Vöku á Siglufirði, til vara- forseta í dag vegna óánægju meðal þessara félaga vegna tillagna sem ræddar hafa verið um uppstillingu í miðstjórn. Þá munu fulltrúar fé; laga sem eiga beina aðild að ASÍ Morgunblaðið/Jim Smart Grétar Þorsteinsson og Ari Skúlason eftir að úrslit forsetakosninganna lágu fyrir á þingi ASÍ síðdegis í gær. MITSUBISHI A MÍTSUBISHI - demantar í umferö HEKLA - /forystu á tiýrri öld ! koma með sérstakt framboð til miðstjórnar en óvissa er um hver verður tillaga kjörnefndar þings- Úrslit gengu þvert á tillögu kjörnefndar Niðurstaða forsetakosninganna er á öndverðum meiði við tillögu sem kjörnefnd lagði fyrir þingið í gær en sex kjörnefndarfulltrúar gerðu tillögu um Ara en þrír lögðu til að Grétar yrði kjörinn. Grétar sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði metið stöð- una þannig að kjörið yrði tvísýnt og því hefði niðurstaðan komið sér á óvart. Grétar sagði það ögrandi verkefni fyrir sig að fá að leiða Al- þýðusambandið áfram næstu tvö ár. Ari ávarpaði þingheim þegar úr- slit lágu fyrir og sagðist m.a. vona að þingfulltrúar kæmu heilir og sameinaðir frá þessu þingi. „Við höfum náð miklum árangri á þessu þingi, þetta er stefnumótandi þing. Ég vona að við höldum áfram að gera góða hluti og ná árangri," sagði hann. Ný Iög og ályktun í Evrópumálum samþykkt Samþykkt voru ný lög Alþýðu- sambandsins á þinginu í gær sem fela í sér miklar breytingar á skipulagi samtakanna. Fela þær m.a. í sér að haldnir verði árs- fundir í stað ASÍ-þinga og fækkað verði í miðstjórn úr 21 í 15 fulltrúa. Þá var samþykkt breytingartillaga sem fram kom við lagafrumvarpið sem veitir aðildarfélögunum m.a. heimild til að mynda með sér svæðasambönd. Einnig var samþykkt samhljóða tillaga sem miðstjórn lagði fyrir þingið um áherslur í alþjóðamálum, þar sem segir m.a. að verkefni ASI sé að taka frumkvæði í Evrópuum- ræðunni og stuðla að því að spurn- ingin um aðild að ESB og skil- greining á samningsmarkmiðum komist fyrir alvöru á dagskrá. ■ Grétar/44 ■ (Jndirbúa/2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.