Morgunblaðið - 21.11.2000, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Flugleiðir kynna tveggja ára áætlun til að bæta reksturinn og snúa tapi í hagnað
Oarðbæru innanlandsflugi
hætt og dregið úr vetrarflugi
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að
hefja aðgerðir til að draga úr tap-
rekstri félagsins, en níu mánaða
reikningsskil félagsins benda til að
tap verði af rekstrinum á þessu ári,
þrátt fyrir að greina megi ákveðin
batamerki í rekstrinum á tímabil-
inu júlí til september. Helstu
ástæður tapreksturs eru sagðar
miklar hækkanir á eldsneytisverði,
óhagstæð gengisþróun og innlend-
ar kostnaðarhækkanir.
Til þess að bregðast við tap-
rekstrinum hefur fyrirtækið sett
upp tveggja ára áætlun, þar sem
m.a. er gert er ráð fyrir að draga
úr vetrarflugi til Ameríku og
Evrópu og að gerðar verði tals-
verðar breytingar á starfsemi
Flugfélags Islands. Þá stendur til
að auka umsvif í hótelrekstri á
Reykjavíkursvæðinu, herða sókn á
alþjóða fragtmarkaðinn og árang-
urstengja launagreiðslur stjórn-
enda hjá samstæðunni.
Batamerki í rekstrinum
á þriðja ársfjórðungi
Það sem af er þessu ári hefur af-
koma Flugleiða verið talsvert lak-
ari en á sama tíma í fyrra. Fyrstu
níu mánuði ársins nam hagnaður af
reglulegri starfsemi Flugleiða fyrir
skatta, móður- og dótturfélaga, 507
milljónum króna en á sama tíma í
fyrra nam hagnaðurinn 1.492 millj-
ónum króna. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi eftir
skatta var 383 millj-
ónir króna, en var á
sama tímabili í fyrra
1.074 milljónir
króna. Heildarniður-
staða rekstrarreikn-
ings félagsins versn-
aði hins vegar meira
en sem þessu nam,
vegna þess að á fyrri
hluta ársins 1999
urðu tekjur félagsins
af söluhagnaði um 983 milljónir
króna, en í uppgjöri þessa árs er
söluhagnaður aðeins um 20 milljón-
ir króna. Hagnaður fyrstu níu
mánuði þessa árs er því 403 millj-
ónir króna en var 2.057 milljónir
króna á sama tímabili í fyrra.
Astæður fyrirsjáanlegs taprekst-
Morgunblaðiö/Baldur Sveinsson
—
.
Hafdís, ein af Boeing 757-200-þotum Flugleiða.
ÍCELANDAIR
ÖROSENGRENS
i9
co
CP
C9
BEDCO k M4THIESEN EHF
B.T j«uhr«nm 10 - Sími !k>5 1000
urs á þessu ári eru einkum miklar
hækkanir á eldsneytisverði, óhag-
stæð gengisþróun og innlendar
kostnaðarhækkanir, að sögn Sig-
urðar Helgasonar, forstjóra Flug-
leiða. Fyrstu níu mánuði ársins var
velta Flugleiða 27.632 milljónir, en
það er 16% aukning
á milli ára. Hins veg-
ar jókst beinn
rekstrarkostnaður
um 21% og þar
hækkaði kostnaður
vegna eldsneytis
mest. Sigurður segir
að eldsneytiskostn-
aður á fyrstu níu
mánuðum ársins hafi
verið um 1.493 millj-
ónum króna hærri en
á sama tímabili og í fyrra, sem er
96% hækkun, en þá er ekki tekið
tillit til eldsneytisvama sem koma
til hækkunar á tekjum og lækkun-
ar á rekstrargjöldum í rekstrar-
reikningi. Þegar tekið hefur verið
tillit til áhættuvama er hækkunin
56%, eða 877 milljónir samanborið
við 58 milljónir króna á sama tíma-
bili árið 1999. Sigurður segir að að-
gerðir félagsins til að sporna gegn
afleiðingum hækkandi eldsneytis-
verðs hafi þó gengið vel, og megi
líkja því við árangur flugfélaga
eins og Delta og Lufthansa.
Hluti af uppgjöri Flugleiðasam-
stæðunnar er uppgjör dótturfélaga,
en afkoma þeirra hefur versnað
verulega á milli ára. Fyrstu níu
mánuði ársins var 80 milljóna
króna tap af rekstri dótturfélaga
fyrir skatta, en á sama tímabili í
fyrra var 150 milljóna króna hagn-
aður af þeim rekstri. Astæðuna má
fyrst og fremst rekja til versnandi
afkomu Flugfélags íslands vegna
hækkandi eldsneytisverðs og geng-
isþróunar, auk þess sem að lögð
hafa verið ný 40 milljóna króna op-
inber útgjöld á rekstur félagsins,
að sögn Sigurðar.
Frá hugmynd
aö fullunnu verki
= HÉÐINN =
Stórás 6 • IS-210 Garðabæ
Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is
Morgunblaóiö/Þorkell
Sigurður Helgason, forsljóri Flugleiða, kynnti í gær tveggja ára áætlun
þar sem gert er ráð fyrir að snúa núverandi taprekstri félagsins í hagnað.
Ákveðin batamerki em í rekstri
Flugleiða á þriðja ársfjórðungi
þessa árs. Frá því að sex mánaða
uppgjör félagsins var kynnt hefur
þróun í rekstrinum breyst á þann
hátt að á tímabilinu júlí til septem-
ber var afkoma félagsins ámóta og
í fyrra; 2.295 milljóna króna hagn-
aður af rekstri fyrir skatta saman-
borið við 2.268 milljóna króna
hagnað á þriðja ársfjórðungi 1999,
en á þessu þriggja mánaða tímabili
falla til um 45% af veltunni það
sem af er þessu ári.
Dregið verður úr vetrarflugi
til Ameríku og Evrópu
Sigurður Helgason segir að þrátt
fyrir jákvæð merki í rekstrinum á
þriðja ársfjórðungi sé engu að síð-
ur ástæða til að hagræða og breyta
í rekstri Flugleiða, enda stæði af-
koman ekki undir væntingum og
markmiðum félagsins. Markmiðið
sé því að snúa tapinu í hagnað með
því að nýta þá miklu uppbyggingu
sem verið hafí í starfsemi félagsins
undanfarin ár, en Sigurður segir að
fyritækið hafí vaxið mjög ört und-
anfarin ár og ráðgert sé að hægja
nokkuð á þeim vexti. Hann segir að
félagið sé nú í góðri stöðu til að
takast á við þetta verkefni.
„í stuttu máli má segja að upp-
gjörið beri með sér það tap sem við
bárum fyrstu sex mánuðina. Það
sem við sjáum á þessum þriðja árs-
fjórðungi; júlí, ágúst og september,
er að það fer ekki versnandi, þann-
ig að níu mánuðirnir í heild eru
hlutfallslega betri en fyrstu sex
mánuðirnir. Við teljum samt sem
áður að tilefni sé til þess að gera
ákveðnar breytingar í rekstrinum.“
Til þess að bæta reksturinn og
snúa taprekstri í hagnað hafa
Flugleiðir sett sér tveggja ára
áætlun um breytingar á rekstri fé-
lagsins, sem snýr að ýmsum þátt-
um í starfseminni. Gert er ráð fyrir
að dregið verði úr vetrarflugi til
Ameríku um 8-15% og um 8-10%
til Evrópu. Þegar hefur verið dreg-
ið úr flugi til Minneapolis og verða
aðrir áfangastaðir teknir til endur-
skoðunar um áramótin í Ameríku-
fluginu. Jafnframt því hefur verið
dregið úr vetrarflugi til Kaup-
mannahafnar og Frankfurt, en að
sögn Sigurðar er sætanýting yfír
vetrarmánuðina jafnan mun lakari
en yfir sumartímann. Markmiðið
með því að draga úr sætaframboði
á völdum leiðum er því að auka
sætanýtinguna.
„Það er rétt að hafa í huga að af-
koma leiðakerfisins yfir sumar-
mánuðina er afar góð, en hagnaður
fyrirtækisins á tímabilinu júlí til
september er 2.300 milljónir króna.
Ef hægt er að draga úr taprekstri
yfir veturinn með því að draga úr
starfsemi á óarðbærum mörkuðum
hefur það mjög jákvæð áhrif á
heildararðsemi félagsins. Megin-
áherslur okkar í alþjóðaflugi eru
því eftir sem áður að byggja upp
arðbærasta huta rekstrarins, flug
til og frá Islandi, og jafnframt að
auka hlut okkar á viðskiptamanna-
markaðnum, sem er hlutfallslega
lítill í starfsemi Flugleiða en hefur
vaxið hratt,“ segir Sigurður.
Stefnan að hætta óarðbæru
flugi innanlands
Vegna versnandi afkomu Flugfé-
lags Islands verða gerðar breyting-
ar á starfsemi félagsins. Flugfélag-
inu hefur með útboði verið falið að
þjóna á flugleiðum frá Akureyri
um Norðurland, en án þess hefði
starfsemin á Akureyri lagst niður.
Verið er að meta möguleika á að
snúa rekstri á öðrum tapleiðum í
hagnað. Þróun í sölu á Netinu ger-
ir félaginu fært að hætta þátttöku í
alþjóðlegum bókunar- og dreifi-
kerfum og byggja þess í stað á
tækni sem sérstaklega hefur verið
þróuð með innanlandsmarkaðinn í
huga. Það eitt mun leiða til um 50
milljóna króna sparnaðar. Þá er
gert ráð fyrir einhverjum almenn-
um verðhækkunum í innanlands-
flugi. Auk þess er verið að athuga
úrræði vegna tapreksturs á flugi til
Vestmannaeyja og óvíst er hvað
verður um flug til Hornafjarðar, en
að sögn Sigurðar er það stefna fé-
lagsins að draga-úr óarðbæru flugi
hér innanlands.
Að sögn Sigurðar hafa frakt-
flutningar Flugleiða aukist um 53%
á árinu á leiðum til og frá íslandi
og milli Ameríku og Evrópu, en
stofnun Flugleiða-fraktar ehf.,
dótturfyrirtækis Flugleiða, hefur
hleypt miklu lífi í þennan þátt
starfseminnar. Sigurður segir að
fraktflug vaxi hraðar en farþega-
flug og að til standi að leggja
aukna áherslu á frakílugið. Félagið
hefur nú næstum fullnýtt flutn-
ingsgetu tveggja fraktflugvéla og
er ætlunin að kanna frekar mögu-
leikana á að þjóna betur markaðin-
um á milli Islands og Evrópu og á
milli Evrópu og Ameríku.
Stækkun hótela á höfuðborgar-
svæðinu undirbúin
Að sögn Sigurðar er ráðgert að
gera breytingar á starfsemi Flug-
leiðahótela í ljósi þess að talsverð
umframeftirspurn er orðin eftir
gistingu á höfuðborgarsvæðinu
stærstan hluta ársins, á meðan hót-
elin á landsbyggðinni eiga í erfið-
leikum yfir vetrartímann. Sigurður
segir að öll hótel félagsins á höfuð-
borgarsvæðinu séu fullbókuð frá
mars fram í nóvember, og að ónógt
framboð á gistingu sé farið að há
starfseminni. Verið er að undirbúa
byggingu nýrrar álmu við Hótel
Esju fyrir sumarið 2003 og nú
stendur yfir athugun á möguleik-
um þess að auka gistirými á Hótel
Loftleiðum fyrir sumarið 2002.
Jafnframt þessu er stefnt að breyt-
ingum á rekstri hótela á lands-
byggðinni.
Um næstu áramót verður stofn-
að nýtt dótturfyrirtæki Flugleiða
sem hlotið hefur nafnið Flugþjón-
ustan á Keflavíkurflugvelli ehf., en
fyrirtækið mun sjá um alla starf-
semi Flugleiða þar utan tækni-
stöðvarinnar. Fyrirtækið mun ann-
ast alla flugafgreiðslu og -þjónustu,
framleiðslu og sölu á mat í flugvél-
ar, veitingasölu í flugstöðinni og
rekstur fraktmiðstöðvar. Um ára-
mótin verður einnig stofnað nýtt
tölvuþjónustufyrirtæki í samvinnu
við Eimskip og Tölvumyndir, sem
annast mun verulegan hluta þeirr-
ar tölvuþjónustu sem upplýsinga-
tæknideild Flugleiða hefur hingað
til annast.
Hafin er vinna við árangursteng-
ingu launa innan Flugleiða sam-
stæðunnar og verða laun stjóm-
enda fimm dótturfélaga tengd
árangri þeirra í rekstri frá næstu
áramótum. Síðan verður haldið
áfram með önnur dótturfélög og
móðurfélagið.