Morgunblaðið - 10.12.2000, Side 4
4 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 3/12-9/12
► STURLA Böðvarsson
samgönguráðherra segir
að samkomulag sem náðst
hefur milli stjómarflokk-
anna um sölu Landssimans
þýði að fyrirtækið verði
selt í heilu lagi og grunn-
net Landssimans verði því
ekki skilið frá við söluna.
► ÍSLANDSBANKI-FBA
fyrirhugar kaup á meiri-
hluta í' bankanum Rietumu
í Lettlandi. Áformin ganga
út á það að Islandsbanki-
FBA kaupi 56,2%.
► FORSVARSMENN
samninganefnda Félags
grunnskólakennara,
Skólastjórafélags Islands
og launanefndar sveitarfé-
laga stefna ákveðið að því
að ljúka gerð kjarasamn-
ings fyrir jól og hafa gefið
út stefnuyfirlýsingu sem
leggja á til grundvallar í
væntanlegum kjarasamn-
ingi.
► STJÓRN veitustofnana
hefur ákveðið að lækka
verð á raforku til almenn-
ings á svæði Orkuveitu
Reykjavíkur um 10% frá og
með 1. mars nk. Ástæða
þess er tilkoma raforku-
versins á Nesjavöllum.
► LÆKNASTÖÐVARí
Reykjavík hafa ákveðið að
stofna félag til að kanna
hagkvæmni þess að þær
sameinist um nýja miðstöð
fyrir sérhæfða heilbrigðis-
þjónustu.
► INGIBJÖRG Pálmadótt-
ir heilbrigðisráðherra hef-
ur brugðist hart við hug-
myndum um einkarekstur í
heilbrigðisþjónustu og seg-
ist ekki ætla að heimila
byggingu einkasjúkrahúss
í ráðherratíð sinni.
Banna ekki fiskimjöl í
svína- og alií'uglafóður
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRAR
Evrópusambandsins samþykktu á
fundi sínum í vikunni að undanskilja
fískimjöl frá allsherjarbanni við dýra-
mjöli í skepnufóðri. Verður áfram
heimilt að nota fiskimjöl í fóður fyrir
svín, alifugla og físk, en mestur hluti
þess fiskimjöls sem selt er héðan í
skepnufóður fer í svína- og alifugla-
fóður.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
lýsti ánægju sinni með ákvörðunina
og segir hana nánast fullan sigur fyr-
ir Islendinga. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra segir niðurstöðuna
viðunandi miðað við aðstæður. Slæmt
sé að fiskimjöli sé blandað í umræð-
una en komið hafi fram að það sé ein-
göngu vegna ótta við að öðrum mjöl-
tegundum sé blandað saman við það.
Dökkt útlit í deilu
kennara og ríkis
VERKFALL framhaldsskólakenn-
ara hefur staðið í meira en fjórar vik-
ur og ber enn mikið í milli. Samn-
ingafundir hafa engan árangur borið
og segir formaður samninganefndar
ríkisins að útlitið sé mjög dökkt.
Formaður félags framhaldsskóla-
kennara segir að í tilboði sem kenn-
arar lögðu fram á sunnudag felist
10% tilslökun frá fyrri kröfum, en að
gagntilboð samninganefndar ríkisins
beri vott um lítinn samningsvilja og
sé í raun verra en svartsýnustu
menn áttu von á.
Samninganefnd skólanefndar
Verzlunarskóla íslands hefur gert
kennurum við skólann tilboð sem fel-
ur í sér að meðalmánaðarlaun þeirra
verði komin upp í 263.000 krónur í
lok samningstímans árið 2003. Er þá
gert ráð fyrir að launaupphæðin inni-
haldi greiðslur til kennara fyrir alla
kennslu og tengd störf. Er þetta
103,3% hækkun á kauptaxta.
*
Ovissa í
Bandaríkjunum
MUNUR milli forsetaframbjóðend-
anna tveggja í Bandaríkjunum minnk-
aði í 154 atkvæði á föstudag eftir að
hæstiréttur Flórída komst að þeirri
niðurstöðu að 383 atkvæði sem A1
Gore, forsetaframbjóðandi demó-
krata, hreppti í endurtalningu í
Miami-Dade og Palm Beach skyldu
reiknuð honum. Einnig var fallist á að
verða við kröfu lögmanna Gores og
láta telja 9.000 vafaatkvæði í Miami-
Dade-sýslu.
George W. Bush, forsetaframbjóð-
andi repúblikana, áfrýjaði úrskurð-
inum til alríkishæstaréttar í Wash-
ington. Alríkishæstirétturinn ógilti
fyrr í vikunni úrskurð hæstaréttar
Flórída um að heimilt væri að endur-
telja atkvæði þegar komið væri fram
yfir settan tíma úrslita.
Flórídaþing samþykkti á föstudag
tilnefningar á kjörmönnum ríkisins
sem eru 25 talsins. Repúblikanar eru í
meirihluta á þinginu sem valdi kjör-
menn hliðholla Bush. Þingið sagði í yf-
irlýsingu að það myndi staðfesta val
kjörmannanna á miðvikudag, yrði ekki
komin niðurstaða í talningunni. Demó-
kratar mótmæltu þessu ákaft, en
repúblikanar sögðust vera að tryggja
að kjörmenn Flórída yrðu með er for-
seti Bandaríkjanna verður valinn 18.
desember af kjörmönnum ríkjanna.
Fréttaskýrendur telja nú ómögu-
legt að segja hver verði næsti forseti,
staðan sé svo óljós.
Leiðtogar funda í Nice
FUNDUR leiðtoga Evrópusambands-
ins, ESB, hófst á fimmtudag. Eitt
helsta markmið fundarins var að búa
sambandið undir mikla stækkun, en
allt að þrettán ríki verða tekin inn í það
á næstu árum. Áform um stofnsetn-
ingu sameiginlegra ESB-hersveita og
nýjar aðgerðir til vamar kúariðu voru
samþykktar á föstudag.
► MANNSKÆÐASTI dag-
ur átakanna milli ísraela
og Palestínumanna síðan
21. núvember var á föstu-
daginn. Þá létust tíu
manns. Dauðsfbllin drógu
heldur úr friðarvonum.
► RÉTTARHÖLD yfir Jos-
eph Estrada, forseta Fil-
ippseyja, hófust í vikunni.
Forsetinn er sakaður um
að hafa þegið mútur, um
spillingu, brot á stjórnar-
skrá og trúnaðarbrest við
almenning. Nægir að sak-
fella hann í einu af ákæru-
atriðunum til að honum
verði vikið úr embætti.
► WILLIAM Cohen, vam-
armálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði í ræðu
sinni á fundi varnar-
málaráðherra NATO-ríkja
að hann óttaðist að áform
ESB um öryggismál gætu
veikt NATO. Ummælin
ollu miklu fjaðrafoki í
Evrópulöndunum. Geoff
Hoon, varnarmálaráð-
herra Breta, sagði ekkert
nýtt í ummælunum en líta
mætti á þau sem viðvömn
til þeirra afla í Frakklandi
sem vildu stofna fastaher á
vegum ESB.
► RÁÐGJAFANEFND
Pútíns Rússlandsforseta
hvetur hann til að náða
bandaríska kaupsýslu-
manninn Edmond Pope,
sem í vikunni var dæmdur
í 20 ára fangelsi fyrir
njósnir.
► MORÐ á tíu ára níger-
iskum dreng í London síð-
ustu helgi vakti mikla um-
ræðu um slæman aðbúnað
innflytjenda í stórborgum
Bretlands.
Morgunblaðið/Sverrir
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra setur upp fyrsta merkið um
skilarétt í Gallery Sautján í Kringlunni. I baksýn eru Ásgeir Bolli Krist-
insson og Svava Johansen verslunareigendur.
Mjólkin hækkar
um tvær krónur
Nýtt
merki um
skilarétt í
verslunum
NÝTT merki um skilarétt var í
gær sett upp í einni af verslunum
Kringlunnar, en merkið geta þær
verslanir notað sem samþykkt hafa
nýjar verklagsreglur um skilarétt,
gjafabréf og inneignarnótur. Val-
gerður Sverrisdóttir viðskiptaráð-
herra afhenti forsvarsmönnum
Samtaka verslunarinnar nýja
merkið, en reglurnar eru árangur
af starfi nefndar sem ráðherra
skipaði 15. september sl. I verk-
lagsreglunum er bætt úr því ósam-
ræmi sem verið hefur víða varð-
andi skilarétt kaupenda, og settar
fram skýrari reglur um lágmarks-
viðmið sem teljast mega viðunandi
fyrir neytendur og seljendur.
Meginatriði þessara reglna eru
þau að réttur til að skila ógallaðri
vöru er a.m.k. 14 dagar frá af-
hendingu, vörur sem merktar eru
með gjafamerki gera kassakvittun
óþarfa við skil og inneignamótur
skulu miðast við upprunalegt verð
vörunnar. Gjafabréf og inneignar-
nótur eiga að gilda í allt að fjögur
ár frá útgáfudegi, en skilaréttur
tekur ekki til útsöluvöru. Verslanir
sem samþykkt hafa að starfa sam-
kvæmt reglunum fá til afnota sér-
stakt skilaréttarmerki.
VERÐLAGSNEFND búvara hefur
nýlokið við að gera nýjan verðlags-
grundvöll fyrir mjólk og miðað við
hann mun lítrinn af nýmjólk og létt-
mjólk í almennum umbúðum hækka
úr 79 krónum lítrinn í 81 krónu, mið-
að við óbreytt hlutfall smásöluálagn-
ingar. Er þetta 2,53% hækkun, en
aðrar mjólkurvörur hækka um 4,8 til
4,9%.
Mun verð til bænda hækka um
3,38 krónur á hvem lítra, eða um
4,99%, frá því verði sem tók gildi 1.
janúar á þessu ári. Verðhækkun til
iðnaðarins er áætluð 46 aurar á
hvern lítra, sem nemur um 2,8%
hækkun á vinnslu- og dreifingar-
kostnaði mjólkur. Meginatriði nýja
verðlagsgrundvallarins eru þau að
miðað er við 40 kúa bú með fram-
leiðslu sem nemur 188 þúsundum
lítra mjólkur, en í eldri grundvellin-
um er miðað við 22 kúa bú með
79.443 lítra framleiðslu.
Stækkun búsins er að mestu
byggð á tækninýjungum við heyöfl-
un, mjaltir og hirðingu og auknum
afurðum eftir hvern grip.
LOGI Einarsson,
fyrrverandi hæsta-
réttardómari, lést á
heimili sínu í Reykja-
vík 29. nóvember.
Logi fæddist í
Reykjavík 16. október
1917.
Logi lauk prófi frá
Verslunarskóla Is-
lands 1936, varð stúd-
ent frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1939
og cand. juris frá Há-
skóla íslands 1944.
Hann stundaði fram-
haldsnám í Svíþjóð
1946-1947, hdl. 1949. Hann var
fulltrúi hjá sakadómaranum í
Reykjavík frá 1944 til 1951,
fulltrúi í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu frá 1951 til 1961 og
fékkst jafnframt nokkuð við mál-
flutning. Á árunum 1944 til 1964
kenndi hann verslunarrétt við
Verslunarskóla íslands. Árið 1961
var hann skipaður
yfirsakadómari í
Reykjavík.
Hann var skipaður
hæstaréttardómari
árið 1964 og gegndi
því embætti þar til
honum var veitt lausn
fyrir aldurs sakir í
janúar 1983. Hann
gegndi jafnframt
starfi vararíkissátta-
semjara í vinnudeilum
frá 1962 til 1978.
Logi var virkur í
skátahreyfingunni á
sínum yngri árum auk
þess sem hann var mikill sund-
maður og synti um árabil með
Sundfélaginu Ægi. Hann var í
keppnisliði Islendinga á Olympíu-
leikunum í Berlín árið 1936.
Logi lætur eftir sig eiginkonu og
þrjár uppkomnar dætur. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Ferju-
aðstaða
við Bakka-
fjöru verði
rannsökuð
ALÞINGI samþykkti ályktun þess
efnis í vikunni að samgönguráðherra
verði falið að hlutast til um við Sigl-
ingastofnun Islands að hún hefji sem
fyrst rannsóknir á ferjuaðstöðu við
Bakkafjöru í tengslum við ferjuleið
frá Vestmannaeyjum að Bakkafjöru.
Fyrsti flutningsmaður tillögunnar
var Árni Johnsen, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, en í greinargerð
hans með tillögunni segir m.a. að
möguleiki sé á að stytta verulega
ferjusiglingu milli lands og Eyja með
feijuaðstöðu á Bakkafjöru, eða alls
niður í 20 mínútna siglingartíma.
„Um 150 þúsund manns ferðast
árlega til Vestmannaeyja, en þær
eru meðal þriggja fjölsóttustu ferða-
mannastaða á Islandi," segir enn-
fremur í greinargerð.
„Hugmyndin að ferjusiglingu
stystu leið milli lands og Eyja miðast
við að flytja fólk, bíla og gáma. Slík
framkvæmd mundi gjörbylta sam-
göngum milli lands og Eyja og að-
stöðu allri á Suðurlandsundirlendinu
því þá yrðu farnar ferðir á 30-60
mínútna fresti og siglingartími yrði
ekki fjarri þeim tíma sem tæki að
aka göng til Eyja.“
----------------
Uppsagnir
í rækjuvinnslu
á Eskifirði
SEX manna áhöfn rækjutogarans
Hólmaness, sem Hraðfrystihús Eski-
fjarðar gerir út, hefur verið sagt upp
störfum. Þá hefur 17 starfsmönnum í
rækjuverksmiðju fyrirtækisins verið
tilkynnt að vinna muni leggjast niður
í allt að tvo mánuði eftir áramót. Emil
Thorarensen útgerðarstjóri segir
ástæðuna vera niðurskurð í rækjuút-
hlutun og olíuverðshækkanir síðustu
tólf mánuði. Að sögn Emils verður
reynt að koma fólkinu í önnur störf
hjá Hraðfrystihúsinu, og hugsanlega
við frystingu á loðnu eftir áramót.
BQKM
3.490.-
Ríkulega myndskreytt
bók sem inniheldur
skemmtilegan fróðleik
um algengustu krydd-
jurtirnar, uppruna og
notkun. Falleg, fróðleg
og hagnýt bók fyrir
almenning og fagmenn.
Mál og mennfng
malogmonning.is
tt
Laugavegl 18 • Slml 515 2500 • Slðumúla 7 • Síml 510 2500
Andlát
LOGI
EINARSSON