Morgunblaðið - 10.12.2000, Side 10

Morgunblaðið - 10.12.2000, Side 10
10 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Fræðslufundur fyrir útlendinga um atvinnuleyfi, atvinnuleit, atvinnuleysisbætur og félagslega aðstoð Eftir innlegg Páls voru upplýsingamar þýddar á pólsku og síðan rússnesku. Leon Markus, 2 V4 árs, lék á als oddi á meðan Yelena þýddi inn- leggið á rússnesku. Einbeitingín skein úr hverju andlrti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fræöslufundir um íslenskt samfélag eru samstarfsverkefni Miöstöövar nýbúa, Rauöa krossins og Mannréttindaskrifstofu íslands og hafa meö styrk frá félagsmálaráðuneyt- inu verið haldnir í Miöstöö nýbúa viö Skelja- nes frá því í haust. Nánast hvert einasta sæti var skipað þegar Anna G. Ólafsdóttir sótti fræöslufund um atvinnuleyfi, atvinnu- leit, atvinnuleysisbætur ogfélagslega aö- stoö fyrirskömmu. MIÐSTÖÐ nýbúa við Skeljanes er uppljómuð og nánast hvert einasta sæti í kennslustofunni á annarri hæð er skipað. Annar fræðslufundurinn um atvinnuleit, atvinnuleyfi, at- vinnuleysisbætur og félagslega að- stoð er að hefjast. Fyrri fundurinn var túlkaður á ensku og taílensku. Nú á að túlka erindi Páls Ólafssonar, félagsráðgjafa í fjölskylduþjónust- unni Miðgarði í Grafarvogi, á pólsku og rússnesku. Pólskumælandi hafa komið sér fyrir gluggamegin. Rúss- neskumælandi sitja fjær og nokkrir hafa seilst í ilmandi kaffisopa í horn- inu. Freistingin er sterk enda níst- ingskuldi úti og augljóslega algengt að komið sé beint úr vinnu þó liðið sé fram á kvöld. Fundargestir halda áfram að streyma inn á fundinn eftir að Páll hefur hafið mál sitt. Einbeit- ingin skín úr hverju andliti þegar hann segir frá því að til séu fjórar leiðir fyrir útlendinga til að fá at- vinnuleyfi á íslandi, þ.e. óbundið at- vinnuleyfi, tímabundið atvinnuleyfi, sérstakt námsmannaatvinnuleyfi og atvinnurekstrarleyfi. Hann hikar og snýr sér að pólska túlkinum Stanisl- aw J. Bartoszek. Sá kinkar kolli, þýðir klausuna fumlaust yfir á pólsku og gefur rússneska túlkinum Yelenu Yershova orðið. Nú sperra hinir rússneskumælandi eyrun og nokkrir grípa til lítilla upptökutækja til að ná örugglega hverju einu ein- asta orði. Rautt og grænt kort „Hvernig er hægt að fá tímabund- ið atvinnuleyfi?" spyr Páll um leið og nokkrir Pólverjar birtast í dyragætt- inni og fá sér hljóðlega sætu í öftustu röðunni. „Fyrst verður atvinnurek- andi að auglýsa starfið hjá viðkom- andi vinnumiðlun. Hann fyllir út um- sókn fyrir útlendinginn og óskar eftir umsögn hlutaðeigandi stéttar- félags eða landsambands. Ef útlend- ingurinn á að starfa í löggiltri starfs- grein verða að fylgja með gögn um iðnréttindi, t.d. húsasmíði. Sam- kvæmt lögum verður að vera búið að veita umsögnina um umsóknina' inn- an 14 daga,“ segir Páll og bíður eftir því að túlkamir þýði klausuna hvor á sitt tungumálið. Fundurinn heldur áfram og Páll tekur fram að atvinnurekandi sæki um dvalarleyfi til útlendingaeftirlits- ins í Borgartúni 30. „Ef útlendinga- eftirlitið synjar útlendingnum um dvalarleyfi er umsóknin endursend til atvinnurekandans. Annars eru pappírarnir sendir til Vinnumála- stofnunar. Eftir að vinnumiðlun hef- ur staðfest að ekki hafi tekist að ráða íslending í starfið veitir Vinnumála- stofnun útlendingnum atvinnuleyfið. Tilkynning er send bæði til atvinnu- rekanda og útlendings og afrit til út- lendingaeftirlitsins.“ Spurt er hvort átt sé við hið svo- kallað rautt kort. „Já,“ segir Páll. „Útlendingaeftirlitið gefur út skír- teini fyrir útlending til sönnunar á veittu tímabundnu atvinnu- og dval- arleyfi - svokallað rautt kort. At- vinnurekandinn fær skírteinið hjá útlendingaeftirlitinu gegn 500 kr. greiðslu,“ segir hann og vekur at- hygli á því að umsókn um atvinnu- leyfi fyrir útlending sem sé kominn til landsins án tilskilinna leyfa sé synjað. Læknisvottorðs sé krafist samkvæmt fyrirmælum Landlækn- isembættisins. „Hugsanlegt er að mökum og ætt- ingjum sé veitt dvalarleyfi og alveg sérstaklega ef um foreldra eða afkomendur er að ræða. Eins ef maka útlendingsins hefur verið veitt óbundið atvinnuleyfi. Ef slitnar upp úr ráðningarsamningum við útlend- inga með tímabundið atvinnuleyfi geta aðrir atvinnurekendur sótt um að ráða útlendinginn til starfa hjá sínu fyrirtæki. Almenna reglan er sú að Vinnumálastofnun krefjist skýr- inga hjá upphaflega atvinnurekand- anum. Hægt er að framlengja tíma- bundið atvinnuleyfí um allt að tvö ár ef fyrir liggur ráðningarsamningur," segir Páll og vekur sérstaka athygli á því að fundargestum sé óhætt að varpa fram spumingum. Einum fundargestanna leikur forvitni á að vita hver séu aldursmörkin varðandi veitingu atvinnuleyfa. Hann fær þau svör að neðri aldurstakmörkin séu 16 ár og efri aldursmörkin 70 ár. Páll varpar þeirri spurningu fram hvernig útlendingur öðlist óbundið atvinnuleyfi. Svarið fylgir í kjölfarið og felst í því að útlendingur verði að nálgast eyðublað um óbundið at- vinnuleyfi, fylla út og senda til út- lendingaeftirlitsins. „Ef útlending- urinn hefur óbundið dvalarleyfi er umsóknin send beint til Vinnumála- stofnunar. Ef Vinnumálastofnun synjar útlendingnum um óbundið at- vinnuleyfi er umsóknin endursend. Annars sendir Vinnumálastofnunum útlendingnum tilkynningu um að óbundið atvinnuleyfi hafi verið veitt og óskar eftir því að hann sendi út- lendingaeftirlitinu tvær andlits- myndir. Útlendingaeftirlitinu er gert viðvart um niðurstöðu Vinnu- málastofnunar. Útlendingurinn fær síðan skírteinið - svokallað grænt kort - hjá útlendingaeftirlitinu gegn 500 kr. greiðslu," segir Páll. Hann er spurður að því hvenær hægt sé að sækja um óbundið at- vinnuleyfi. „Ef þú hefur fengið tíma- bundið atvinnuleyfi getur þú sótt um óbundið atvinnuleyfi hefur þú átt heima á íslandi samfleytt í þijú ár enda hafa þá flestir áunnið sér ótímabundinn dvalarrétt." Páli berst spurning frá rússnesku- mælandi konu. „Ef erlend kona vill fara út á vinnumarkaðinn eftir að hafa verið heimavinnandi með ung börn á íslandi í þrjú ár getur hún þá fengið græna kortið?"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.