Morgunblaðið - 10.12.2000, Side 40

Morgunblaðið - 10.12.2000, Side 40
40 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SVEINN SIGURÐSSON + Sveinn Sigurðs- son fæddist í Háagerði við Dalvík 9. ágúst 1919. Hann andaðist í Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík, 30. nóvember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Kristínar Gunnlaug- ar Jóhannsdóttur, f. 9. maí 1887, d. 20. september 1982, og Sigurðar Bjarnason- ar, f. 14. ágúst 1881, d. 10. janúar 1964. Systkini Sveins voru 1) Rósa, f. 18. apríl 1910, d. 26. október 1981, húsmóðir á Dalvík, maki Haraldur Ólafsson, mat- sveinn, f. 25. september 1900, d. 5. nóvember 1963. 2) Jóhann, f. 18. mars 1912, d. 11. júlí 1987, sjó- maður á Dalvík, maki Ester Lár- usdóttir húsmóðir, f. 9. júlí 1918, búsett á Akureyri. 3) Frið- leifúr, f. 30. desem- ber 1913, d. 20. aprfl 1996, smiður á Dal- vík, maki Aðalheiður Árnadóttir, húsmóð- ir, f. 23. nóvember 1921, nú á Dalbæ. Sveinn hafði vél- stjómar- og skip- stjórnarréttindi á minni báta. Hann vann alla ævi við sjó- mennsku og fisk- verkun á Dalvík. Sveinn var jarðsunginn frá Dal- víkurkirkju 9. desember. Rangt var farið með nafn Sveins og hann sagður heita Rún- ar Sveinn Sigurðsson. Hlutaðeig- endur era beðnir velvirðingar á mistökunum. Sveinn frændi er dáinn. Hann dó hægt og hljótt eins og hann lifði. Sveinn móðurbróðir okkar var yngstur systkinanna frá Háagerði, sem nú eru öll dáin. Hann var sam- ofinn iífi okkar frá upphafi. Hann -kvæntist aldrei, en bjó lengstan hluta ævi sinnar hjá foreldrum sín- um í Svalbarði, en þar bjuggu einn- ig foreldrar okkar og var sambýlið því mikið og líka gott. Sveinn bjó í litla herberginu uppi að vestan. Þar átti hann m.a. „hvítan hest“ sem hann notaði þó ekki mikið sjálfur, en hafði gaman af að skenkja gest- um. Sveinn stundaði lengst af sjó- mennsku, bæði á vetrarvertíðum fyrir sunnan og síldveiðum frá Dal- vík. Eftir að hann kom í land vann hann við fiskverkun. Hugur hans var því jafnan tengdur sjósókn og aflabrögðum. Síðustu árin hringdi hann oftast daglega til að fylgjast sem best með fiskiríinu. Sveinn hafði gaman af laxveiðum á meðan heilsan leyfði og nutum við systkin- in oft góðs af feng hans. Einnig naut hann ferðalaganna með vist- fólkinu á Dalbæ eftir að hann flutt- ist þangað. Sveinn var félagslyndur og hafði mikla ánægju af vistinni á Dalbæ og var einn af hinum lands- frægu veðurspekingum Dalbæjar. Síðasta ævidag sinn var Sveinn að undirbúa sig fyrir ferð með félög- um sínum í veðurklúbbnum á fund heilbrigðisráðherra til að taka við viðurkenningu. Hug sinn til Dal- bæjar sýndi Sveinn m.a. með pen- ingagjöf til kaupa á nuddpotti, á tuttugu ára afmæli Dalbæjar, 1. júlí 1999. Sveinn frændi skilur ekki eftir sig stóra minnisvarða, en hann skil- ur eftir sig minninguna um þægi- legan, góðviljaðan mann, sem fylgdist vel með sínu fólki, ekki síst unga fólkinu í ættinni. Sá sem læt- ur sér annt um ungt fólk vill að heimurinn batni. Þannig var Sveinn frændi. Systkinin frá Svalbarði. Skilafrestur minningar- greina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. ELIN SKULADOTTIR ELLEFSEN + Elín Skúladóttir Ellefsen fæddist 4. júlí 1908. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði hinn 17. nóvember sfðastliðinn. Elúi giftist Vilhelra Ellefsen 1934 en hann lést hinn 10. maí 1970. þau eignuðust eina dóttur, Guðrúnu Vilhelmsdóttur. Elín var jarðsett frá Keflavíkurkirkju 24. nóvember. Eins og segir í ljóðinu: Það er svo margt að minnast á og margar glaðar stundir. Nú er elskuleg t Móðir okkar, HALLDÓRA GUÐBRANDSDÓTTIR, Brúartandi, Mýrum, lést á Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi fimmtudaginn 7. desember. Helga Brynjúlfsdóttir, Borge Jónsson, Ólöf Brynjúlfsdóttir, Páll Sigurbergsson, Ragnheiður H. Brynjúlfsdóttir, Haukur Arinbjarnarson, Halldór Brynjúlfsson, Ásta Sigurðardóttir, Brynjólfur Brynjúlfsson, Fanney Einarsdóttir, Guðbrandur Brynjúlfsson, Snjólaug Guðmundsdóttir, Guðmundur Þ. Brynjúlfsson, Ásdís Baldvinsdóttir og fjölskyldur. UTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, stmi 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa fslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Súni 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is móðir mín farin heim. Margar góðar minn- ingar á ég frá barn- æsku og margt kenndi hún mér sem ég hef varðveitt í gegnum lífið. Hún studdi mig í gegnum súrt og sætt og var alltaf tilbúin til að rétta hjálparhönd. Hún hugsaði ávallt um þarfir annarra áð- ur en hún hugsaði um sínar eigin þarfir og var mjög fórnfús. Hún var trúuð kona og las mikið Guðs orð og ýmis trúarleg rit. Hún hjálpaði mér mikið þegar ég var ung kona með þrjú börn sem ólust upp í húsi foreldra minna þangað til ég fluttist með manni mínum og börnum til Bandaríkjanna árið 1962. Foreldr- ar mínir heimsóttu okkur oft þang- að og eftir að faðir minn lést flutti hún til okkar og bjó hjá okkur í tvö ár. Síðar flutti ég aftur til ís- lands til að vera hjá móður minni síðustu æviárin hennar. Barna- börnin eiga margar góðar minn- ingar um ömmu sína, bæði héðan af íslandi og frá dvöl hennar í Bandaríkjunum. Þegar þau komu og heimsóttu hana hingað voru alltaf miklir fagnaðarfundir. Ég og börnin mín viljum kveðja móður mína með orðum Jesú: „Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.“ Jóh. 11:25. Guðrún Vilhelmsdóttir. Cacxv^s kom v/ Possvo0sUi»*kjt4gc»^ð Símii 554 0500 a Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta FRETTIR Umhverfis- verðlaun ISAL veitt í fjórða sinn ISAL, íslenska álfélagið, sem rekur álverið í Straumsvík, hefur auglýst lausa til umsóknar svonefnda um- hverflsstyrki til rannsókna á nátt- úru Islands fyrir árið 2001. Þetta er í fjórða sinn sem fyrirtækið veitir slíka styrki, að sögn Hrannars Pét- urssonar, upplýsingafulltrúa ISAL. „Umhverfismálin skipta æ meira máli og hingað hafa fjölmargir að- ilar leitað eftir stuðningi við rann- sóknir sínar í gegnum árin. Með umhverfisstyrknum var ákveðið að beina slíkum umsóknum í einn skýran farveg og laða um leið að metnaðarfullar og áhugaverðar rannsóknir," segir Hrannar. Hann bætir því við að íslenskir vísindamenn geti ekki leitað víða eftir styrkjum og fslenska álfélagið hafi orðið vart við mikla ánægju með þetta framtak. Sex rannsóknir hlotið styrk ISAL auglýsti fyrst umhverfís- styrki lausatii umsóknar árið 1998, en þá hlutu tvær rannsóknir styrk- inn; Ragnhildur Sigurðardóttir, jarð- og líffræðingur fyrir áhrif gróðurs á hraða og heildaruppsöfn- un kolefnis í íslenskum vistkerfúm og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, pró- fessor, fyrir rannsókn á æxlunar- líffræði og nýliðun íslensku hálend- isflórunnar. Síðan þá hafa Ijórar rannsóknir verið styrktar; Hafsteinn Helgason verkfræðingur fyrir rannsóknir á gleypnum leir (bentonite) sem bindiefni og skammtara áburðar f landgræðslu, Jóhanncs Sturlaugs- son fyrir göngur dvergbleikju í Straumsvík og Kaldá, Soffía Am- þórsdóttir og Ásta Þorleifsdóttir fyrir áhrif eðlis- og efnafræðilegra umhverfísþátta á lágplöntu- og lyngsamfélag í nágrenni stóriðju og Sigríður Baldursdóttir í félagi við Jónu Björk Jónsdóttur um teg- undafjölbreytni og útbreiðsla ætt- kvíslarinnar Micarea á Islandi. Frestur til að senda inn umsóknir vegna umhverfisstyrks ISAL fyrir árið 2001, rennur út 10. febrúar á næsta ári. Styrkupphæðin nemur 1.200 þúsund krónum. Þjónustusvæði Tals stdreflist Nær til 97% landsmanna fyrir jól TAL HF. er þessa dagana að taka í notkun 23 nýja senda á höfuðborg- arsvæðinu og á Snæfellsnesi. Jafn- framt styttist í að viðskiptavinir Tals geti nýtt sér reikisamband við GSM-kerfi Símans á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og á landinu austanverðu. Tal og Síminn gengu fyrir nokkru frá reikisamningi. Starfsmenn Tals og Símans hafa verið að undirbúa og prófa reikisambandið að undan- förnu og er stefnt að því að sam- bandið verði virkt í vikunni fyrir jól. Með uppbyggingu Tals og reiki- samningnum við Símann mun þjón- usta Tals ná til allra bæja á landinu með fleiri en 200 íbúa. Á höfuðborgarsvæðinu eru nú fimmtán nýir GSM-sendar í upp- setningu og munu þeir auka afköst GSM-kerfis Tals verulega og mæta vaxandi notkun í farsímakerfinu en viðskiptavinum Tals hefur fjölgað ört að undanfömu, segir í fréttatil- kynningu. Þá er uppsetningu á nýjum GSM- sendum Tals á Snæfellsnesi að ljúka. Tengingar við sendana eru að hefjast og er gert ráð fyrir að þeir verði allir komnir í loftið fyrir jól. Nýju sendamir eru í Búðardal, Stykkishólmi, Grundarfirði og Ólafsvík, svo og á Hellissandi og Rifi. í Vík í Mýrdal er einnig hafin uppsetning á GSM-sendi Tals og er vonast til að hann komist í þjónustu fyrirjól. Stjórnvöld hvött til að gefa sér tíma BÆNDASAMTÖK Islands, Lands- samband stangaveiðifélaga, Lands- samband veiðifélaga, Landvemd og NASF, Vemdarsjóður villtra laxa telja „alls ekki tímabært að landbún- aðarráðherra heimili eldi á norskum laxi í sjókvíum hér við land“, eins og segir í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu frá hópunum, en talsmenn þeirra áttu fund með landbúnaðarráðherra síðastliðinn miðvikudag þar sem rætt var um áform um að endurvekja sjó- kvíaeldi á laxi hér við land. I kjölfar fundarins tóku samtökin saman yfirlýsingu um málið, en í henni segir m.a., „margt er óunnið áð- ur en unnt er að taka afstöðu til þess hvort veita eigi leyfi til eldis á norsk- um laxi í sjókvíum við ísland. í fyrsta lagi verður að marka skýra stefnu um vemdun íslenska laxins, bæði vegna mikilvægis hans í lífríkinu og í efna- hagslífi á landsbyggðinni. í öðm lagi þarf að kanna hvemig sjókvíar yrðu staðsettar með tilliti til farleiða villtra laxa og hvemig lax af norskum upp- mna hagar sér þegar hann sleppur út í íslenskt lífríki. I þriðja lagi þarf að ætla sér tíma til að endurskoða fisk- eldiskafla í núgildandi lögum um lax- og silungsveiði og setja sjókvíaeldi skýran lagaramma sem myndi skapa atvinnugreininni eðlilegt rekstrarum- hverfi og tæki jafnframt fullt tillit til náttúravemdarsjónarmiða. í fjórða lagi þarf að þjálfa starfsmenn og skipuleggja eftirlit með starfseminni og völtun lífríkis sem hún kann að ógna. Svo miklir hagsmunir em í húfi, að stjómvöld verða að ætla sér nægan tíma til undirbúnings og ákvörðunar- töku. Kalla ber til hæfústu sérfræð- inga á heimsvísu til ráðgjafar við mat á áhættu og til að meta hvaða rann- sóknir em nauðsynlegar til að afla fúllnægjandi vitneskju um áhrif sjó- kvíaeldis á norskum laxi.“ Lýst eftir vitnum LÖGREGLAN í Reykjavík lýs- ir eftir vitnum að umferðar- óhappi sem varð á Breiðholts- braut við gatnamót Skógarsels, föstudaginn 8. desember um kl. 17.55. Þama mun grárri bifreið af gerðinni Toyota Camry hafa verið ekið utan í bifreið af gerð- inni Honda Civic, rauða að Iit, sem ekið var austur Breiðholts- braut og síðan ekið af vettvangi. Þefr sem upplýsingar kynnu að geta veitt um mál þetta em vinsamlega beðnir að hafa sam- band við lögregluna í Reykja- vík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.