Morgunblaðið - 10.12.2000, Síða 48

Morgunblaðið - 10.12.2000, Síða 48
SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 2000 DAGBOK MORGUNBLAÐIÐ e í dag er sunnudagur 10. desember, 345. dagur ársins 2000. Orð dagsins; Jfkærleika sínum ákvað hann fyrir- fram að veita oss sonarrétt í Jesú Kristi. Sá var vilji hans og náð, sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni. (Ef. 1,5.-7.) Skipin Rcykjavfkurhöfn: Mánafoss, Selfoss og Tornator koma í dag. Selfoss fer á morgun, Ýrina Articac kemur á morgun. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss kemur á morg- un. Fréttir Bókatíðindi 2000. Núm- er sunnudagsins 10. des. er 39846 og mánu- dagsins 11. des. er 78775. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 8.45 leikfími, kl. 9 vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 13 vinnustofa, kl. 14 iglagsvist, kl. 15 kaffí. Árskdgar 4. Á morgun kl. 9 pennasaumur og harðangur, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30 féiagsvist, kl. 13 opin smíðastofan, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9-16 handa- vinna, ki. 9-12 búta- saumur, kl. 10 sam- verustund, kl. 13 Áiútasaumur. Dansað í kringum jólatréð við undirieik Ragnars Leví, fostud. 15. des. ki. 14. Félagsþjónustukórinn syngur jólalög og jóla- sveinninn kemur í heim- sókn. Súkkulaði og kök- ur. Ömmu- og afabörnin velkomin. Skráning á skrifstofu og í s. 568- 5052 fyrir kl. 16 á fimmtud. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á ^orgun kl. 16.30-18 s. Ö54-1226 Félagsstarf aldraðra Lönguhiíð 3. Á morgun kl. 9 myndlist, kl. 10 verslunin opin, kl. 11.20 leikfimi, kl. 13 handa- vinna og föndur, kl. 13.30 enska framhald. Félagsstarf, Furugerði 1. Aðventuskemmtunin verður haldin þriðjud. 12. des. kl. 20. Veislu- stjóri er sr. Hjálmar Jónsson, tónlistaflutn- ingur frá Tónskóla Björgvins, einsöngur: ^rafnhildur Ólafsdóttir, undirleikari Kolbrún Sæmundsdóttir. Anna Þrúður Þorkelsdóttir les jólasögu og Furu- gerðiskórinn syngur við undirleik Ingunnar Guðmundsdóttur. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18-20. Á morgun kl. 9.45 leikfimi, kl. 13 spilað (brids). Félag eldri borgara í Íafnarfirði, Hraunseli, eykjavíkurvegi 50. Púttæfing í Bæjar- útgerðinni í fyrramálið kl. 10-12. Tréútskurður í Flensborg kl. 13. Fé- lagsvist í Hraunseli kl. 13:30. Á miðvikudag býður lögreglan í skoð- unarferð í Nesstofu og kaffi í Kaplakrika. Rút- ur frá Hraunseli, Höfn og Hjallabraut 33 kl. 13. Á fimmtudag verður opið hús, jólafundur. Gaflarakórinn, jóla- saga: Hjördís Guð- björnsdóttir, happ- drætti, einsöngur: Anna Pálína Árnadótt- ir, jólahugvekja: Stefán Már Gunnarsson, jóla- kaffi. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Félagsvist fellur niður hefst aftur eftir áramót, nánar auglýst síðar. Dansleik- ur kl. 20 Caprí-Tríó leikur fyrir dansi, síð- asti dansleikur fyrir jól. Mánudagur: Brids kl. 13. Danskennsla Sig- valda kl. 19. fyrir fram- hald og byrjendur kl. 20.30. Jólaferð á Suður- nesin laugardaginn 16. desember. Upplýst Bergið í Keflavík skoð- að. Ekið um Keflavik, Sandgerði og Garð. Súkkulaði og meðlæti á Ránni í Keflavík. Brott- för frá Ásgarði, Glæsi- bæ kl. 15. Æskilegt að fólk skrái sig sem fyrst. Upplýsingar í síma 588- 2111. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, m.a. fjölbreytt handavinna, kl. 9.25 sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug, spilasalur opinn frá hádegi, kl. 15.30 danskennsla hjá Sigvalda. Miðvikud. 13. des. árleg ferð með lög- reglunni, Olíufélagið hf. ESSO býður akstur, m.a. Laugarneskirkja heimsótt, umsjón sr. Bjarni Karlsson, öku- ferð um Sundahöfn og nýja bryggjuhverfið í Grafarvogi. Kaffi í boði Islandsbanka í Lóuhól- um í Ásgarði í Glæsibæ. Mæting í Gerðubergi kl. 12.30 skráning í haf- in. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gullsmári, Gullsmára 13. Matarþjónusta er á þriðju- og föstudögum, panta þarf fyrir kl. 10 sömu daga. Á vegum bridsdeildar FEBK spila eldri borgarar brids mánudaga og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefjast stundvíslega kl. 13. Leikfimi á mánud. kl. 9 og 10, vefnaður kl. 9. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handa- vinnustofan opin, leir kl. 9-17, kl. 9.30 keramik, kl. 13.30 lomber og skák. Hraunbær 105. Á morgun kl. 9 postulíns- málun og perlusaumur og kortagerð, kl. 10.30 bænastund, kl. 14 sögu- stund og spjall. Hvassaleiti 56-58. Á morgun kl. 9 keramik, tau- og silkimálun og klippimyndir, kl. 10 boccia, kl. 13 spilað. Hæðargarður 31. Á morgun kl. 9-16.30 opin vinnustofa, handavinna og föndur, kl. 14 félags- vist. Norðurbrún 1. Á morg- un, bókasafnið opið frá kl. 12-15, kl. 10 ganga. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 12.15 danskennsla framhald, kl. 13.30 danskennsla byrjendur, kl. 13 kóræf- ing. ___________ Vitatorg. Á morgun kl. 9 smiðjan kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir, kl. 13 handmennt, kl. 13. leik- fimi, kl. 13 spilað. Iláteigskirkja. Á morg- un, opið hús fyrir 60 ára og eldri, stund með Þór- dísi kl. 10-12. Gengið inn Viðeyjarmegin. Félagsstarf SÁÁ. Fé- lagsvist í Hreyfilshús- inu (3. hæð) á laugar- dagskvöldum kl 20. Brids fellur niður í kvöld. GA-fundir spilafikla, eru kl. 18.15 á mánu- dögum í Seltjarnar- neskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðsludeild SÁA, Síðu- múla 3-5,og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laugar- dögum kl. 10.30. Kirkjustarf aldraðra, Digraneskirkju. Sein- asta opið hús verður þiðjudaginn 12. des. Op- ið hús á þriðjud. frá kl. 11 leikfimi, helgistund og fleira. Jólagleðin verður 28. des. í Hjalla- kirkju kl. 14. Kvenfélag Bústaða- sóknar heldur jólafund sinn í Safnaðarheimilinu 11. desember kl. 19.15. Jólamatur, upplestur, happdrætti og helgi- stund. Heimaeyjarkonur mun- ið jólafundinn 11. des. í Ársal Hótel Sögu, húsið opnað kl. 19. Slysavarnadeildin Hraunprýði. 70 ára af- mælis og jólafundur verður haldinn í Skút- unni þriðjud. 12. des. og hefsþ með borðhaldi kl. 19. Álftagerðisbræður syngja, happdrætti, jólahugvekja. Aðgöngu- miðar seldir í Verslunni Gjafakort, Strandgötu 29, milli kl. 14 og 18 frá 4. des. Kvenfélag Grensás- sóknar. Jólafundur verður 11. des. kl. 20 í safnaðarheimilinu. Góð dagskrá og góðar veit- ingar. Slysavarnadeild kvenna á Seltjarnarnesi og Kvenfélagið Seltjörn verða með sameiginleg- an jólafund mánud.ll. dese. kl. 20 í sal Sjálf- stæðisfélags Seltirninga að Austurströnd 3,3. hæð. Gestur fundarins er Miriam Óskarsson. Félagskonur, vinsam- lega tilkynnið þátttöku til formanna. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavfk. SÍMAR: Skiptiborð: 669 1100. Auglýsingar: £69 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 669 1181, íþróttir 669 1156, Cfblöð 669 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1116. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innaníands. í lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Flest orkar tvímælis, þá gert er... MÁLVERND og virðing fyrir íslenskri tungu er lofsverð og það átak ráðu- neytis-mennta að velja nú fæðingardag Jónasar Hall- grímssonar dag málræktar er fagnaðarefni. Sem og að verðlauna á þeim degi þann mann, sem þriggja manna nefnd hinna hæfustu manna sameinast um að telja mestu hafa áorkað í ræðu eða riti íslenskunni til verndar og prýði. Starf nefndarinnar er erfitt, úr svo mörgu er að velja t.d. ritstjórann Matt- hías, skáldin æði mörg, ég nefni Hannes Pétursson og Gunnar Dal, að ógleymdum Gísla Jónssyni, sem hefur ritað af snilli um íslenskt mál til margra ára, margir eru þarna verðugir sem betur fer. Magnús Þór Jónsson var valinn, hinn mætasti mað- ur, ríkur af húmor og syng- ur á lægri nótunum. Ég hef hvorki séð né heyrt texta eftir hann sem geisla svo af íslensku að það réttlæti verðlaunaveitinguna, hún virkar á mig sem biturt háð. Nefndin hlýtur að hafa byggt niðurstöðu sína á nýlegum verkum Magnús- ar og ég óska eftir að hún fái þessi verk birt í MB. Ég set traust mitt á son- ardóttur hins virta ís- lenskumanns Sigurðar Nordals og treysti henni til að láta alþjóð fá að lesa snilldina, þá kann svo að fara að þeir efagjörnu verði trúaðir og númer eitt að verkin nýtist íslenskri tungu til eflingar. Pálmi Jónsson, Sauðárkróki. Þakklæti ÉG var ein af þeim sem handleggsbrotnaði mánu- daginn 27. nóvember sl. Það keyrði bfll fram á mig; þar sem ég lá í götunni. I bflnum voru þrjár konur, tvær úr Kópavogi og ein úr Garðabæ. Þær hjálpuðu mér á fætur og keyrðu mig niður á slysavarðstofu. Þar er tekið á móti háum sem lágum af læknum, lækna- nemum og hjúkrunarfólki og öðru starfsfólki af mikilli alúð. Ég lenti í því að vera eina nótt á gjörgæsludeild og ekki var fólkið síðra þar. Á þönum alla nóttina að sinna veiku fólki. Það á þakklæti mitt skilið. Ég óska ykkur góðrar framtíðar og gleði- legra jóla. 230826-2859. Tapað/fundid Grænn poki tapaðist GRÆNN poki með sund- dóti tapaðist frá Háaleitis- hverfi og niður í Laugardal í síðustu viku. Skilvís finn- andi er vinsamlegast beð- inn að hafa samband í síma 553-8971. Ljósblá snyrtitaska tapaðist LÍTIL ljósblá snyrtitaska tapaðist miðvikudaginn 6. desember sl. Hún hefur sennilega tapast í Fjarðar- kaupum í Hafnarfirði. Þetta er mikill missir fyrir eigandann. Upplýsingar í síma 861-3136. Dýrahald Snúlii Snúlli er týndur SNÚLLI okkar er týndur. Hans er sárt saknað. Snúlli er hvítur persneskur högni, mjög gæfur. Hann er eymamerktur inni kisi, mikið loðinn. Ef einhver hefur orðið hans var, þá bú- um við í Hlíðunum og sím- inn okkar er 552-2805 eða 695-8528. Krossgáta LÁRÉTT: 1 blíða, 8 smákvikindi, 9 mannsnafn, 10 skartgrip- ur, 11 hendi, 13 tarfs, 15 kuldastraum, 18 hrópa, 21 búinn, 22 víkka, 23 raunveruleiki, 24 log- andi. LÓÐRÉTT: 2 einn postulanna, 3 upp- hefð, 4 hitann, 5 skútu, 6 fita, 7 öruggur, 12 álít, 14 fæða, 15 spendýr, 16 snákur, 17 þreytuna, 18 ker, 19 launung, 20 bára. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 ámóta, 4 hægur, 7 japla, 8 rósum, 9 ráf, 11 nom, 13 þrír, 14 æskir, 15 fjör, 17 ásar, 20 fló, 22 vakur, 23 ljóri, 24 sárið, 25 neita. Lóðrétt: 1 áþján, 2 óspar, 3 afar, 4 horf, 5 gusar, 6 róm- ur, 10 Áskel, 12 nær, 13 þrá, 15 fávís, 16 öskur, 18 skóli, 19 reisa, 20 frið, 21 óíán. Víkverji skrifar... UNGUR sonur Víkverja, sem er nýorðinn læs, varð glaður í bragði þegar hann sótti póst heimil- ins að útidyrunum fyrr í vikunni. Það er ekki á hverjum degi sem eitt bréfanna er handa honum sjálfum. Af og til hefur hann fengið bréf frá Umferðarskólanum og nokkrum sinnum kort frá vinum og vanda- mönnum erlendis en aldrei stórt bréf með nafninu hans prentað utan á, svona bréf eins og pabbi og mamma eru alltaf að fá. Eftirvænt- ingin var því mikil þegar ungi mað- urinn opnaði bréfið og honum fannst innihaldið eiga við sig sérstakt er- indi. Bréfið góða var frá Afa, sem sér um barnatíma Stöðvar 2. Hann var að láta bömin vita hvaða barnadagskráin á Stöð 2 væri skemmtileg á aðventu og jólum og bjóða þeim að taka þátt í verðlauna- samkeppni. Með fylgdi veggspjald um jólasveinana, Afa og Stöð 2. Víkverji tók þátt í gleði unga mannsins en undir kraumaði í hon- um reiði í garð fyrirtækisins sem hafði gert bamið að fórnarlambi nýjustu markaðsherferðar sinnar. Óll 3-8 ára börn á heimilum áskrifenda Stöðvar 2 fengu sams konar bréf og það sem syni Víkverja barst. Auðvitað er það engin tilvilj- un að bréfið barst inn á heimilin degi áður en nýtt áskriftartímabil hófst. Þessar fjölskyldur greiða Stöð 2 um það bil 5000 krónur í áskriftar- gjöld mánaðarlega. Á tímum harðn- andi samkeppni á innlendum sjón- varpsmarkaði er augljóst að Stöð 2 stendur illa að vígi gagnvart því að selja dýrum dómum erlent efni sem nýjasti aðilinn á markaðnum, Skjár 1, kostar með auglýsingatekjunum eingöngu. Það ber örvæntingu Stöðvar 2 órækt vitni að ætla að standa vörð um markaðshlutdeild sína með því að senda saklausum börnum ísmeygilegan áróður sinn. Nú er Víkverji ekki sérfræðingur í beinni markaðssetningu af þessu tagi en hann hefur staðið í þeirri trú að stofnanir á borð við Tölvunefnd (Persónuvernd) og Samkeppnisráð hefðu eitthvað um það að segja hvernig fyrirtæki stæðu að því að velja einstaklinga í markhópa sína. Víkverji trúir því ekki að óreyndu að viðkomandi eftirlitsstofnanir leggi blessun sína yfir þessi vinnubrögð. XXX VÍKVERJA hefur borist bréf frá Ágústi Tómassyni, sem hefur umsjón með Textavarpi Ríkisút- varpsins, í kjölfar þess að hann velti upp ástæðum breytinga á Texta- varpinu eftir flutning Sjónvarpsins upp í Efstaleiti. Er Víkverja bæði ljúft og skylt að birta hér bréfið: „Ágæti Víkverji. I framhaldi af skrifum þínum um Textavarpið á sunnudaginn langar mig til þess að leiðrétta útbreiddan misskilning sem þar kemur fram. Þú telur að biðtími eftir síðum Textavarpsins hafi lengst, þessu er öfugt farið, bið- tímjnn hefur styst. Útsendingu Textavarpsins hefur að sönnu verið breytt. Breytingin kemur m.a. fram í því að „teljarinn" er hættur að rúlla á sama hátt og áð- ur. Þegar teljarinn hættir að rúlla og verður grænn er það merki um að hann „rúlli“ áfram, bara í öðru síðuhundraði en því sem valið var. Textavarpið er sent þannig út að ein síða er send út á eftir annarri, þetta getum við kallað útsendingar- hring til hægðarauka. Áður voru all- ar síðurnar sendar út í einum hring, nú eru þær sendar út í tveimur hringjum. Síður sem byrja á 1, 3 og 4 eru sendar út saman, í hinum hringnum eru síður sem byrja á 2,5, 6 og 7. Tilgangur breytingarinnar er sá að stytta biðtímann eftir síðum sem byrja á 1, 3 og 4, en aðgangstími þeirra hefur styst um helming frá því sem áður var. Aðgangstími ann- arra síðna er óbreyttur því stærri hluti sjónvarpsmerkisins er nú not- aður undir Textavarpið en áður var. Þessu til viðbótar má svo geta þess að sumar síður eru sendar út með enn styttri biðtíma, t.d. dag- skrársíður Sjónvarpsins og yfirlit innlendra og erlendra frétta og helstu veður- og íþróttasíður." Víkverji þakkar Ágústi fyrir skýr- ingarnar, en endurtekur þá skoðun sína að notendaviðmót Textavarps- ins hafi verið vingjarnlegra fyrir breytingar en eftir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.