Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐTÐ
tír Devil’s Advocate, einni nýjustu mynd Hackfords með
Keanu Reeves, A1 Pacino og Charlize Theron í hlutverkum.
Það hefur gengið á ýmsu í hjónabandi Dennis Quaid
og Meg Ryan, ekki síst eftir myndina Proof of Life.
Taylor Hackford (í miðið) að leikstýra pólitfska tryllinum Proof
ofLife, með þeim Russell Crowe og Meg Ryan í aðalhlutverkum.
TAYLOR Hackford er kannski kunnastur
fyrir það sem kvikmyndaleikstjóri að leiða
saman karla og konur úr leikarastétt og láta
neista á milli þeirra. Þannig stýrði hann
Richard Gere og Debra Winger í Foringja
og fyrirmenni eða An Officer and a Gentle-
man. Þannig leiddi hann saman Jeff Bridges
og Rachel Ward í Against All Odds. Einnig
Dennis Quaid og Jessica Lange í Every-
body’s All American og loks Keanu Reeves
og Charlize Theron í The Devil’s Advocate.
Enn er hann við sama heygarðshornið í nýj-
ustu mynd sinni, pólitíska tryllinum Proof of
Life, sem frumsýndur er núna um jólaleytið
í Bandaríkjunum. Þar leika saman Russell
Crowe og Meg Ryan og efnasambandið milli
þeirra var slíkt að Ryan skildi við manninn
sinn til margra ára, Dennis Quaid, á meðan
á tökum stóð. Þau munu vera tekin saman á
ný.
Crowe fyrir Gibson
Proof of Life er mynd sem Hackford legg-
ur allt í sölumar fyrir. Hún er byggð á
greinaskrifum í Vanity Fair og segir frá
sambandi á milli samningamanns við gísla-
töku og eiginkonu manns, sem er gísl mann-
ræningja en myndin gerist í Suður-Ameríku.
Mel Gibson átti upphaflega að leika á móti
Ryan, sem Hackford var alltaf með í huga
fyrir aðalkvenhlutverkið, en Gibson tók þá
ákvörðun á síðustu stundu að myndin væri
ekki fyrir sig og Hackford leitaði til landa
hans, Crowe, sem sló til.
„Ég hreifst af leik hans í L.A. Confidential
og mér fannst hann mjög áhugaverður leik-
ari,“ lætur Hackford hafa eftir sér í banda-
ríska kvikmyndatímaritinu Movieline. „Ég
frétti að hann hefði klárað tvær bíómyndir í
beit og talaði við leikstjórana hans, Michael
Mann og Ridley Scott, og fékk að skoða
grófklipp af myndunum þeirra, The Insider
og Gladiator. Hann hafði mikil áhrif á mig.
Mér fannst það stórkostlegt hvernig hann
gat leikið jafnólíkar persónur og eru í þess-
um myndum af sömu köldu róseminni."
Tvennum sögum fer af því hvernig er að
vinna með Crowe en Hackford var mjög
ánægður með samstarfið. „Hann er frábær
leikari sem hefur mikið næmi fyrir smáat-
riðum og hefur gríðarlega sterka nærveru.
Hann lék sjálfur í áhættuatriðunum en not-
aðist ekki við áhættuleikara og stundum við
mjög erfiðar aðstæður. Ég lét hann hanga
neðan úr þyrlu í vetrarkuldunum í Póllandi
þar sem við tókum nokkur atriði og sendi
hann svo inn í frumskóginn í Suður-Am-
eríku. Margar stjörnur láta ekki bjóða sér
annað eins. Hann kvartaði aldrei. Hann er
svolítið skapmikill og lætur mann heyra það
ef hann hefur athugasemdir fram að færa og
hann er uppfullur af hugmyndum, sumum
mjög góðum.“
Hackford segir sömuleiðis að samstarfið
við Meg Ryan hafi verið hið ánægjulegasta.
Það kom engin önnur en hún til álita í að-
alkvenhlutverkið og hún fékk litlar 15 millj-
ónir dollara fyrir að leika í myndinni, sem
gerir hana að einni launahæstu leikkonu
draumaverksmiðjunnar. Hún er kunnust
fyrir leik í gamanmyndum og því er Proof of
Life talsvert ólík þeim myndum sem hún
hefur leikið í áður. „Henni er mikið í mun að
sanna sig í dramatískum myndum á borð við
þessa,“ segir Haekford.
Byrjaði í heimildamyndum
Taylor Hackford er fæddur í Santa Barb-
ara í Kaliforníu árið 1944 og er kvæntur
bresku leikkonunni Helen Mirren, sem hann
kynntist við gerð myndar sinnar, White
Nights. Hann byrjaði kvikmyndaferilinn
sem heimildamyndagerðarmaður en fyrstu
leiknu myndina sendi hann frá sér árið 1978.
Það var stuttmynd sem hét Unglingapabbi
og hreppti Hackford Óskarinn fyrir hana.
Fyrsta mynd hans í fullri lengd var The
Idolmaker frá árinu 1980, sem fjallaði um
tónlistarframleiðanda á sjötta áratugnum en
Hackford
stýrir Crowe
og Ryan
Bandaríski leikstjórinn Taylor Hackford stýrir
Russell Crowe og Meg Ryan í myndinni Proof of Life
sem fjallar um gíslatöku í Suður-Ameríku. Arnaldur
Indriðason fjallar um Hackford og myndina hans.
Atriði úr myndinni Proof of Life.
Hackford hefur alltaf haft mikinn áhuga á
rokkmúsík. Tveimur árum síðar gerði hann
An Officer and a Gentleman. Hún var í
sjálfu sér gamaldags ástarmynd og ösku-
buskusaga en naut gríðarlegrar hylli um
heim allan, kannski ekki síst vegna tónlistar-
innar í henni, og gerði stjörnur úr Richard
Gere og Debra Winger.
Hackford fylgdi henni eftir með spennu-
mynd og endurgerð Out of the Past frá
árinu 1947. Robert Mitchum, Kirk Douglas
og Jane Greer fóru með aðalhlutverkin í
frummyndinni en Hackford setti Jeff Bridg-
es, James Woods og Rachel Ward í myndina
sína og kallaði Against All Odds. Hún fékk
miðlungsgóðar móttökur gagnrýnenda en
naut vinsælda.
White Nights gerðist í Rússlandi þegar
enn var kommúnistastjórn í landinu og sagði
frá útlaga, ballettdansara, sem flúið hafði til
Bandaríkjanna en örlögin höguðu því svo til
að hann lenti aftur í heimalandi sínu. Mikh-
ail Barisníkoff og Gregory Hines ásamt Hel-
en Mirren fóru með aðalhlutverkin í þessu
kaldastríðs drama.
Eftir hana sneri leikstjórinn sér aftur að
heimildamyndagerð og bjó til hreint frábæra
mynd um rokkgoðið Chuck Berry og kallaði
hana Chuck Berry Hail! Hail! Rock ’n’ Roll.
Þetta var árið 1987 og myndin var sett í
dreifingu í kvikmyndahús um allan heim og
var m.a. sýnd hér á landi sem er óvenjulegt
þegar heimildarmyndir eiga í hlut. Síðari
myndir Hackfords hafa ekki notið jafnmik-
illa vinsælda og hinar fyrri: Everybody’s All
American var amerísk íþrótta- og fjölskyldu-
saga með Jessica Lange og Dennis Quaid;
Blood In, Blood Out var blóðug saga um
glæpagengi og Dolores Clayborne var ágæt-
is kvikmyndaútgáfa af sögu Stephen Kings.
Síðasta mynd Hackfords var svo Devil’s
Advocate, undarlega merkingarlaus sam-
suða um Satan í líki A1 Pacinos.
Leikaraleikstj óri
Hackford lítur sjálfur á sig sem leikara-
leikstjóra og má taka undir það með honum.
Hann vinnur vel með leikurunum sínum og
nær oft fram góðum leik í myndum sínum.
„Ég þekki vel til tæknihliðarinnar og ég veit
hvað ég er að gera,“ segir hann, „en ég hef
miklu mun meiri áhuga á leikurunum en að
sýna hvað ég kann tæknilega. Ég vinn alltaf
með áhugaverðum leikurum og þá er ég ekki
aðeins að tala um aðalhlutverkin heldur
aukahlutverkin líka. James Woods hafði að-
eins leikið í The Onion Field þegar ég réð
hann í Agains All Odds og leikur hans í
myndinni minni var mjög mikilvægur.
Christopher Plummer og Judith Parfitt er
jafn mikilvæg fyrir Dolores Clayborne og
Kathy Bates og Jennifer Jason Leigh. I
Proof of Life eru Meg Ryan og Russell
Crowe ákaflega góð en það eru líka frábærir
leikarar allt í kringum þau. Einn af þeim er
David Morse sem leikstjórar eins og Robert
Zemeckis, Terry Gilliam og Frank Dara-
bount nota í myndir sínar til þess að gefa
þeim aukna vikt og virkt."
Hackford segist fyrst og fremst vera leik-
stjóri sem reyni að ná til fólksins sem mynd-
um sínum, alls almennings, og hann er glað-
ur og ánægður ef myndir hans fá góða
aðsókn og eru vinsælar. Hann reynir að
höfða til áhorfenda með myndum sínum og
búa til vandað skemmtiefni. „Ég hef gert
myndir sem hafa orðið mjög vinsælar," segir
hann, „og það er auðvitað það sem maður
vill að gerist. En myndirnar sem ekkert
gengu eru mér ekkert síður mikilvægar eða
kærar. Auk þess eiga myndir sér framhalds-
líf á myndbandamarkaðinum og ég hef kom-
ist að því með myndir eins og Dolores Clay-
borne og Blood In, Blood Out, að þær hafa
notið vinsælda á myndbandi og í sjónvarpi."
Proof of Life virðist vera dæmigerð mynd
frá Taylor Hackford með góðum leikarahópi
og athyglisverðu sögusviði. „Ég hef reynt að
gera mjög metnaðarfulla mynd,“ segir hann.