Morgunblaðið - 24.12.2000, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
+
Aðgerðin veldur ekki sársauka vegna þess að sárið lokast strax.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
aldrei
tí!Ittt^ÍÍPpff
■
saff af að sjá
GLERAUGU hafa um langan ald-
ur verið notuð I bókmenntum og
öðrum miðlum til þess að skapa
persónur og andrúmsloft. Tilgang-
urinn hefur verið margskonar.
Karl setur t.d. upp gleraugu ef
hann þarf að líta gáfulega út. Það
kemur því ekki alveg á óvart að
nærsýni hefur verið tengd við góða
greind. Það er aftur á móti ekki
fyrr en á síðari árum að konur
fara að grípa til gleraugnanna í
sama tilgangi enda taldist það ekki
til kvenlegra dyggða á árum áður
að vera gáfaður. Bandaríski rithöf-
undurinn Dorothy Parker komst
líka svo að orði árið 1926 að karlar
stigu sjaldan í vænginn við konu
með gleraugu. í þá daga voru kon-
ur svo að segja upp á punt og
þeirra meginmarkmið í lífínu var
frekar að eignast góðan mann en
að eiga í vitrænum rökræðum.
Persónan sem Marilyn Monroe lék
í kvikmyndinni How to Murry a
Millionaire reyndi líka í lengstu
lög að leyna því að hún þurfti að
nota gleraugu, það var vissara ef
takmark hennar um auðugan eig-
inmann átti að nást.
En það eru fleiri en dömur í bíó-
myndum sem ekki geta sætt sig
við að vera háðir gleraugum og
vilja leggja ýmislegt á sig til að
vera án þeirra. Það hefur m.a.
komið í ljós á síðustu mánuðum
þar sem rösklega 200 íslendingar
hafa lagt leið sína í húsakynni ný-
stofnaðs fyrirtækis, Laser-sjón,
gengist þar undir aðgerð á augum
og nánast ekið á brott gleraugna-
lausir. Gildir þá einu hvort þeir
voru nærsýnir, fjarsýnir eða með
sjónskekkju.
Snilldarleg sköpun
og hæfíleiki
Augun eru makalaust snilldar-
verk. Milljónir frumna fléttast
saman af aðdáunarverðri ná-
kvæmni og gera okkur veröldina
sýnilega. Búnaður af ýmsu tagi,
svo sem augnhár, augnlok og
augnabrúnir, mynda umgjörð í
kringum augun og verja þau gegn
hnjaski og áföllum.
Oftast er sköpunin eins nálægt
því að vera gallalaus og framast er
mögulegt þegar lifandi efni á í hlut
og sjónin ágæt eftir því. Mynd af
því sem vel skapað auga horfir á
varpast á hvolfi á sjónhimnuna aft-
ast í auganu og þaðan fara upplýs-
ingarnar um það sem fyrir augu
ber í gegnum sjóntaug til heilans.
Sérstakar frumur, svokallaðar
keilur og stafir, eru í sjónhimn-
unni. Keilurnar gefa okkur litina
en stafirnir eru sérstaklega ljós-
næmir og það er með þeirra hjálp
Morgunblaöiö/Halldór Kolbeins
Auður Bjarnadóttir hjúkrunarfrœðingur gerir klárt fyrir aðgerð.
að við sjáum í rökkri. Fullkomn- ósvipað auganu. Ákveðnir vöðvar
asti fjarskiptabúnaður nútímans
fölnar í samanburði við sköpun og
hæfileika augans.
Myndavél vinnur í raun ekki
Nærsýni: Brennipunktur
lendir framan við sjónuna
Eðlileg sjón: Brennipunktur
lendir á sjónunni ——
Fjarsýni: Brennipunktur
lendir aftan við sjónuna —
hafa það hlutverk að minnka og
stækka sjáaldrið og stilla þannig
hversu mikil birta berst inn í aug-
að. Augasteininn breytir líka lögun
sinni eftir því hversu nálægt hlut-
urinn sem horft er á er.
Með aldrinum minnkar hæfni
augans til að breyta löguninni og
fólk fær aldursfjarsýni. „Þetta
kannast margir við, sem komnir
eru á virðulegan aldur og eiga erf-
itt með að lesa,“ segir Þórður
Sverrisson augnlæknir og annar af
læknunum í Laser-sjón. Aldurs-
fjarsýni er ekki hægt að laga með
skurðaðgerð, a.m.k. ekki enn sem
komið er vegna þess að breytingar
þessar verða í augasteini en skurð-
aðgerðir beinast að hornhimnu.