Morgunblaðið - 24.12.2000, Side 10

Morgunblaðið - 24.12.2000, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Nú hefur Baldvin Egill ekki lengur gleraugu að þrífa í. Morgunblaðið/Ásdís SÚ TÍÐ er á enda að Hanna Man'a byrji daginn á því að þreifa eftir gleraugununi sfnum eða endi hann á því að taka þau af sér áður en hún leggst á koddann. Þvert á mrfti nýtur hún þess frelsis sem velflestir ganga að sem gefnu, að vakna með fulla sjón. „Það er svo mikil fotlun að sjá svona illa,“ segir hún og bætir við að þeir sem ekki þekki það af eigin raun eigi bágt með að setja sig í þessi spor. „Maður tekur því sem sjálfsögðum hlut að hafa sjón. Það var ekki fyrr cn eftir aðgerðina að ég fór að hugsa um hvernig það væri að vera blindur.“ Hanna María Skaftadóttir fékk gleraugu á ungiingsárum en var aldrei sátt við að nota þau. „Ég þráaðist við í mörg ár og fór í rauninni ekki að ganga með þau fyrr en ég var um 27 ára,“ segir hún. Fram að því setti hún þau upp þegar mest lá við, svo sem við akstur, en smeygði þeim þess á milli í vasa sinn eða jafn- vcl í vasa hjá manni sínum, Baldvin Birgissyni. Hann segir enda í gamni að öll fjölskyldan hafi meira og minna verið í því að leita að gleraug- unum. „Þegar við vorum t.d. á göngu var Bald- vin vanur að hnippa í mig og segja: „Þessi er að koma á móti okkur. Heilsa!“,“ segir hún og brosir við tilhugsunina. „Ef ég var gler- augnalaus gekk ég framhjá fólki sem ég þekkti án þess að sjá það. Fólk hélt ég væri svona góð með mig. Maður verður svo einangraður." Hanna Marfa fór f augnaðgerðina snemma í október. Hún segist hafa séð f sjónvarpinu að byrjað væri að framkvæma leysiaðgerðir á augum á íslandi og að ekki hafi verið laust við að hún fengi fíðring f magann. „Ég hætti fljótt að hugsa um þetta enda hef ég nóg að gera,“ segir hún en yngsta barn þeirra hjóna af þrem- ur var 4 mánaða gamalt þegar þetta var. „Einn daginn kom svo Baldvin heim og sagðist vera búinn að panta fyrir mig tíma.“ Fljótur að venjast því sem er betra Baldvin, sem er flugstjóri hjá Flugleiðum, hafði þá farið til Þórðar augnlæknis í reglu- bundið eftirlit og fengið þar að sjá með eigin augum hvernig sjón Hanna Marfa hafði. „Ég finn aðeins fyrir því eftir aðgerðina að ég er þurrari í augunum en áður,“ segir hún en bendir þó á að sonur hennar, Baldvin Egill, vakni oft á næturnar og að augnþurrkinn megi kannski rekja tíl þess að hún sé ekki vel sofin. „Ég finn ekki fyrir neinu á daginn og ég er al- veg búin að gleyma því hvemig það var að vera með gleraugu. Fyrstu vikuna var ég svolitið meðvituð um þetta en þegar ég fór í skoðunina viku eftir aðgerðina var þetta orðið mér cðli- legt. Staðreyndin er sú að maður er svo fyótur að venjast því sem er betra.“ Hanna María segir að aðgerðin sjálf hafi ver- ið lítið mál og að hún hafi verið tiltölulega ró- leg. „Þetta er ekki verra en að fara til tann- læknis. Maður pantar sér tfma hjá tannlækni og hugsar svo ekki meira um það þar til maður mætir. Það var eins með þetta. Ég leiddi ekki hugann að þessu á meðan ég beið eftir því að komast að.“ Hún segir að hún hafi ekki fundið fyrir nein- um verkjum þegar deyfingin fór að dofna, hún hafi frekar haft samskonar tilfinningu og þeg- ar maður fær sápu í augun. „Það kom mér á óvart að ég fann aldrei til. Sáputilfinningin er auðvitað óþægileg en mér finnst það ekki mik- ið. Ég á þijú böm og þekki sársauka. Ég fór f aðgerðina klukkan tvö og klukkan tíu um kvöldið fór þessi tilfinning að minnka. Ég var aðeins ljósfælin um kvöldið. Það var ótrúlegt að vakna morguninn eftir. Ég vaknaði, horfði í kringum mig og kveikti á sjónvarpinu. Það vantaði bara aðeins upp á skerpuna. Mér finnst það æðislegt að þurfa ekki að hugsa um gleraugun." huganir hafa þó sýnt fram á að glerin leiðréttu hvorki nærsýni né fjarsýni heldur voru þau notuð í fegurðarskyni. Rómverski keisar- inn Neró, sem var upp á árunum 37-68, virðist aftur á móti hafa notast við smaragða til að sjá bet- ur niður á leiksvið hringleikahús- anna. Gleraugu í stíl við þau sem við nú þekkjum voru fyrst notuð í Flórens á Ítalíu seint á 13. öld og voru menn fijótir að tileinka sér nýjungamar. Gátan leyst með leysi í Predikaranum segir, „augað verður aldrei satt af að sjá“ og víst er maðurinn þyrstur í leit sinni að nýrri skynjun og þekkingu. Menn hafa lengi glímt við þá gátu hvern- ig hægt væri að breyta lögun aug- ans þannig að sjónin yrði skörp án hjálpartækja. I Japan voru gerðar skurðaðgerðir vegna sjónlags um aldamótin 1900. „Árangurinn var vægt sagt lítt glæsilegur en hug- myndin um að breyta hornhimn- unni til að leiðrétta sjónlagsgalla var engu að síður komin fram,“ segir Þórður. Grunnurinn að uppgötvun leysi- geisla var lagður með uppgötvun skammtakenningarinnar snemma á þessari öld, sem nú er að renna skeið sitt á enda. Það var þó ekki fyrr en upp úr 1960 að hagnýt notkun þeirra var fyrst reynd og þá í læknisfræði. Tæknin var síðan fyrst notuð með góðum læknis- fræðilegum árangri í augnlækn- ingum og er t.d. hornsteinn með- ferðar á augnskemmdum hjá sykursjúkum. Farið var að nota leysitækni til að meðhöndla sjónlagsgalla fyrir u.þ.b. 20 árum. I fyrstu var notuð aðferð sem á ensku er kölluð PRK. Hún gengur út á að hornhimnu augans er breytt með því að beita leysigeislum beint á hana eftir að ysta frumulagið hefur verið fjar- lægt. Margir íslendingar hafa gengist undir þessa aðgerð, þó ekki hér á landi heldur yfirleitt annast staðar á Norðurlöndum. Nýjasta aðferðin sem þróuð hefur verið er kölluð Lasik og er einmitt sú sem augnlæknarnir í Laser- sjón, þeir Eiríkur I. Þorgeirsson og Þórður, hafa tekið í sína þjón- ustu. Þessi aðferð nýtur vaxandi vinsælda og nú stefnir í að hátt í ein milljón Bandaríkjamanna hafi gengist undir lasik-aðgerð til að Sæta sjón sína á þessu herrans ári 2000. Verulegar fjárfestingar Eiríkur og Þórður hafa fylgst grannt með þróun og notkun leysi; geisla til að laga sjónlagsgalla. í fyrra þótti þeim tæknin og tækja- búnaðurinn orðin nógu fullkomin til að láta til skarar skríða. Fyr- irtækið var stofnað og rétti leysi- búnaðurinn valin að vandlega yf- irlögðu ráði enda verulegar fjárhæðir lagðar undir. „Síðan æfðum við okkur og æfð- um með því að skera svínaaugu - allt þar til við gátum ekki skorið eitt auga í viðbót,“ segir Þórður glettinn. Fyrstu aðgerðina framkvæmdu þeir félagarnir snemma í ágúst í sumar og hafa ríflega 200 manns nú farið gleraugnalausir frá þeim. Það er þó ekki þar með sagt að hver sem er geti gengist undir að- gerðina. Hornhimnan þarf t.d. að vera nógu þykk svo hana megi sníða til og laga. Þá verður sjónin að hafa verið stöðug í a.m.k. eitt ár. Hún hentar ekki fólki innan við tvítugt og sjaldan þeim sem eru orðnir eldri en 65 ára gamlir. Þeir félagar hafa mest glímt við nær- sýni upp á -12 en segja að það sé frekar þykkt hornhimnunnar sem takmarki það sem hægt er að laga en hversu mikil nærsýnin er. Fjar- sýni er erfiðari viðfangs en allt að +6 er hægt að laga. Þá hafa þeir leiðrétt sjónskekkju upp að 6. Gátlisti að hætti flugmanna Læknarnir skoða augu þeirra sem hafa hug á að fara í aðgerðina mjög ítarlega, útiloka hugsanlega augnsjúkdóma og meta sjónlags- galla þeirra. Þeir framkvæma að- gerðirnar ævinlega saman og með

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.