Morgunblaðið - 24.12.2000, Side 35
I
:
SUNNÚ'ÖÁGUR k DESEMBER 2000
4 35
Sagan um „Heims um ból“
Morgunblaðið/Sverrir
ÁRIÐ 1943 var gefin út lítil bók um
„Heims um ból“, sögu lags og ljóðs.
Höfundur var Hertha Pauli, en þýð-
andi Freysteinn Gunnarsson, skóla-
stjóri Kennaraskóla íslands.
í formála að þessari bók segir
Freysteinn Gunnarsson, að liðin séu
125 ár frá því að sálmurinn og lagið
„Heims um ból“ hafi orðið til. Hins
vegar var íslenski sálmurinn eftir
Sveinbjöm Egilsson, rektor, ortur
árið 1849. Hann er ekki þýðing á
þýska sálminum, en í ljóðmælum
Sveinbjarnar Egilssonar er sálmur-
inn kallaður „Jólasöngurinn" og þar
stendur: „Lagið og hugsunin er tekin
eftir þýska kvæðinu: Stille Nacht.“
Þessi hugljúfa frásögn um sálminn
og lagið við hann er tæpar 90 blaðsíð-
ur. Hér er því stiklað á stóru og end-
ursögð helstu atriði.
Hverfum rúmlega 180 ár til baka -
til ársins 1818 - til ævagamals
sveitaþorps í dalverpi í austurrísku
Ölpunum. Eftir miðju þorpinu renn-
ur straumþung á. Skammt frá henni
stendur hvít kirkja, hrörleg og elli-
leg. Tum hennar er hár með rauðum
toppi. Allt í kring em lágreist
bændabýli, dreifð eins og litlir kjúk-
lingar í kring um stóra hvíta hænu
með rauðum kambi. Og sum býlin
standa hæira - uppi í fjallshlíðunum.
Þarna bjuggu bændur og fáeinir
handiðnamenn. I öllu þorpinu voru
aðeins 2 menntamenn, presturinn sr.
Jósep Mohr og kennarinn Franz
Xaver Gmber, sem einnig var org-
elleikari í kirkjunni. Ungir menn og
aðfluttir og góðir vinir, er hittust
hvem sunnudag og sungu saman.
Gmber söng bassa, sr. Mohr tenór
og hann lék undir á gítar. Orgel áttu
þeir ekki fremur en annan verald-
legan auð. Og börnin í þorpinu stóðu
í'yrir utan prestsetrið, hlustuðu,
kinkuðu kolli hvert til annars og
sögðu: Nú syngja þeir saman, prest-
urinn og kennarinn. Kirkjuorgelið
var í ólagi og orgelsmiðir, sem gerðu
við þessi dýrmætu hljóðfæri, vom fá-
ir, og leita þurfti langt til þess að fá
einn slíkan.
Á aðfangadag jóla árið 1818 var sr.
Mohr einn í skrifstofu sinni. Þá var
barið að dymrn. Bóndakona úr fjöll-
unum, með grófgert skjal yfir herð-
um, stóð úti fyrir. Kveðja hennar
var: Jesús Kristur sé lofaður. Hún
sagði sr. Mohr, að barn hefði fæðst í
húsi fátæks kolagerðarmanns og for-
eldrarnir vildu, að presturinn kæmi
og veitti því blessun sína svo að það
mætti lifa og dafna. Sr. Mohr fór
með konunni. Þau komu að hrörleg-
um kofa. Þar logaði dauft ljós, ung
kona lá þar inni, brosandi og sæl með
nýfætt barn í örmum sínum. Sr.
Mohr veitti móður og bami blessun,
gekk síðan heim á leið niður fjalls-
hlíðina. Þessi atburður á jólanótt
hafði mikil áhrif á hann. Honum
fannst dásemd jólanna hafa borið
fyrir augu sín í litla fjallakofanum,
og sál hans fylltist friði. Niðri í daln-
um blikuðu blys bændanna, sem
vom á leið í kirkju, þar sem sr. Mohr
hélt hátíðlega guðsþjónustu um mið-
nættið.
Um nóttina varð hann andvaka -
og hann færði í búning það, sem
gerst hafði - hann orti sálminn: Stille
nacht, heilige nacht, sex erindi. Um
morguninn lor hann að hitta Gmber
vin sinn og bað hann að semja lag við
þetta litla ljóð. „Þetta er jólasálm-
urinn, sem okkur vantaði. Guð sé
lof,“ sagði Gmber og tók strax til við
að semja lagið. Skömmu síðar sungu
þeir vinirnir lag og ljóð, tvíraddað og
léku undir á gítarinn. Og bömin
stóðu fyrir utan og hlustuðu á nýja
lagið. Þau vom söngelsk eins og
austurríska þjóðin öll. Þarna höfðu
þau eignast nýtt lag, þótt þau vissu
ekki að þennan jóladag hafði orðið til
sálmur, er átti eftir að fara um
heimsbyggðina alla.
Nokkru síðar kom orgelsmiður til
þorpsins og gerði við gamla kirkju-
orgelið. vinirnir spiluðu og sungu
sálminn sinn. Orgelsmiðurinn, sem
var úr Zillerdal, hlustaði hugfanginn
á, lærði lag og ljóð og flutti með sér
heim í dalinn sinn. Þar söng hann
fyrir bömin í dalnum, en þar var
sönglistin mjög í hávegum höfð.
Stasserbömin sungu best og höfðu
fegurstu söngraddirnar. Karólína,
Jósef, Andrés og Amalía, litla hrokk-
inkollan. Strasserbörnin seldu
gemsuskinnhanska, sem foreldrar
þeirra bjuggu til. Þau sungu hvar
sem þau komu og þau hófu söng sinn
alltaf á laginu, sem þeim þótti svo
fallegt: Heims um ból. Þau sungu
fyrir viðskiptavinina og eitt sinn var
sönglistarstjóri konungsins af Sax-
landi áheyrandi þeirra. Hann fékk
þau til þess að syngja fyrir drottn-
inguna og kónginn af Saxlandi, er
hrifust af hinum fagra söng þeirra.
Söngurinn var kallaður: Söngurinn
himneski. Mörgum ámm síðar barst
hann til Prússakonungs, sem vildi
vita hver væri höfundur. Því höfðu
allir gleymt. Nú hófst mikil leit. Öt-
ulastur við þá leit var Ludwig Erk,
hinn konunglegi sönglistarstjóri
Prússakonungs. Að lokum bar einn
leitarmanna hans, söngstjórann í
Sankti Pétursklaustrinu, til þorps
þeirra sr. Mohr og Franc Gmbers.
Sr. Mohr var þá dáinn, en sonur
Grabers fræddi söngstjórann um,
hver samið hefði lagið. Hann gekk
þegar á fund Franz Grabers, sem þá
var orðinn aldurhniginn. Þannig
komust nöfn þeirra vinanna í sálma-
og helgibækur hins kristna heims.
Og mynd þeirra beggja, höggvin í
stein, prýðir nú einn vegginn í gömlu
þorpskirkjunni þeirra.
„Heims um ból“ á afmæli hvern
jóladag. Á næstu jólum verður lagið
og sálmur sr. Mohrs: „Hljóða nótt,
heilaga nótt 182 árs. Og á þessu ári -
2000 - verður sálmur Sveinbjarnar
Egilssonar, „Heims um ból“ , rétt
liðlega 150 ára.
FERSKT • FRAMANDI • FRUMLEGT
Italskar, spánskar
og franskar «gg
sælkeravörurWt
Suðurlandsbraut 6 • s.568 3333
Gleðfle^jól
15% jólaafsláttur af
símtölum til útlanda
á jólada^ oí> annan í jólum
KlHINW
Samfuíkínaína sendír tandsmðnnum ölfum Bestn óskír um
gtedíleg jót og farsœít komandí dr meó kœrum þðkt
fyrír dríó sem er aó tíóa.
iwn