Morgunblaðið - 24.12.2000, Page 41

Morgunblaðið - 24.12.2000, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 B 41 Óskar er, að hann var á brjósti til 7 ára aldurs. Hann minnist þess tíma með sælubros á vör: „Þetta var svo notalegt. Mér þótti ákaflega vænt um móður mína og mér fannst hún fallegasta kona sem ég hafði séð. Ég er fæddur árið eftir frostaveturinn mikla sem tók sinn toll af fólkinu og mamma var alltof mögur þegar hún átti mig. Læknir- inn hafði ráðlagt pabba að gefa henni malt til að reyna að fá hold á hana. En maltið bætti ekki á hana holdum heldur jók svo mjólkina að þegar Jó- hannes bróðir minn fæddist þremur árum síðar var ég enn á brjósti. Og ég tók ekki í mál að hætta svo við bræðurnir deildum þessu með okkur enda nóg til. Ég man að við bræð- umir lágum hvor við sitt brjóstið og mörkuðum okkur línu á milli, eins og yfirráðasvæði. En svo vorum við báðir látnir hætta þegar ég var sjö ára.“ Þessi reynsla kom sér óvænt vel nokkrum árum síðar, þegar Óskar kom í hús til kunningjakonu móður sinnar. „Ég var orðinn níu ára gamall þeg- ar við mamma fórum í þessa heim- sókn. Vinkona hennar sem þarna bjó var nýbúin að eiga bam og var alveg í vandræðum því hún var svo fast- mjólka. Og mamma spyr hvort ég geti ekki hjálpað konunni. Ég hélt það nú, því þetta voru albestu trakt- eringar sem ég gat hugsað mér. Ég fór létt með að losa um mjólkina hjá aumingja konunni því ég hafði sjö ára reynslu í faginu!“ Gæfan ekki metin til fjár Hildur hefur mikinn áhuga á ætt- fræði og grúskar í þeim garði hve- nær sem færi gefst. Hún segir nán- ast alla Islendinga skylda þegar ættir era reknar aftur í sjöunda lið. Hún er sjálf af hinni vestfirsku Arn- ardalsætt og ber með sér sterkan og virðulegan svip þeirrar ættar. „Hann var nú ekki fallegur maður hann Brynjólfur biskup,“ segir hún með hárfínu sjálfsháði, en í móðurætt er Hildur komin að langfeðgatali frá Holti í Önundarfirði frá Sveini Sím- onarsyni prófasti. Óskar segir hún aftur á móti vera í „mörgum bútum" því hann er ættaður alls staðar af landinu. En saman hafa þau hjón myndað nýjan ættboga sem enn fer stækkandi. Afkomendumir era orðnir meira en tuttugu talsins. Ósk- ar verður 82 ára í janúar en Hildur varð 75 ára í sumar sem leið og þau halda bæði ágætri heilsu. Þau era þakklát forsjóninni fyrir hversu far- sæl þau hafa verið. Hildur segir ekki hægt að meta það til fjár: „Við eignuðumst þrjú heilbrigð börn og þeim og öllum afkomendum okkar hefur farnast vel. Og við höf- um verið svo heppin að stærsti hlut- inn af hópnum okkar hefur meira og minna búið hér í kringum okkur á torfunni. Við urðum vissulega fyrir þungu höggi þegar við misstum dótt- urdóttur okkar í bílslysi fyrir nokkr- um árum, hana Petra sem er móðir hans Bergþórs, smalans duglega. En það losnar víst enginn við áföll í líf- inu. Að öðra leyti hefur gæfan verið okkur hliðholl og Brekkan hefur far- ið vel með okkur í þau 54 ár sem við höfum búið hér.“ H'5 1 4^ Fékkstu kartöflu # í skóinn? Snúðu þá vörn í sókn! Þú getur t.d. boðist til að sjá um uppstúfinn á jóladag, sett upp sölubás í nágrenni einhverrar flugelda- sölunnar og selt kartöfluflögur í stykkjatali eða einfaldlega borðað þærsjálfur. Þæreru hreinasta sælgæti; soðnar, steiktar, stappaðar, brúnaðar og bakaðar. Aðalatriðið er þetta; Það er ekki hvað hendir þig í lífinu sem skiptir öllu máli... heldur hvernig þú bregst við því... og vinnur úr því! Gleðileg jól, óþekktarormurinn þinn! | Þínirvinir í íslenskir kartöflubændur Óskar í faðmi afkomendanna sem komu að smölun daginn góða: Frá vinstri: Bergþór, Fríða, Olga, Óli, ættfaðirinn Óskar, Kristinn Páll, Hekla, Oddur og Addi. Fyrir framan þau eru þrjú af yngstu langafabörnunum. Frá vinstri: Jón Óskar, Brynhildur Hrönn og Finnur fyrir framan langafa sinn. grímur!“ Hildur skellihlær en Óskar ber af sér allar sakir: „Ég hafði eng- an áhuga á þessum myndum, þær fylgdu bara með kistunni þegar ég fékk hana. Það var Ameríkani sem gaf mér þessa kistu sem hann hafði haft dótið sitt í þegar hann kom til íslands á hemámsáranum. Hún var járnslegin á homunum og mjög fal- leg.“ Jóhannes Guðlaugsson, faðir Óskars, á brauðflutningahesti. ar stúlkur gætu eitthvað meira en að ganga í augun á Kananum. Svo komu þær í Rauðakrossbílnum að sækja mig og spurðu hvort ég þekkti ekki bílstjórann þeirra. Ég rétt leit til hans hornauga og hélt nú ekki, því hann var í amerískum einkennisbún- ingi. „En hann er fslendingur og heitir Askar," segja þær þá. Ég segi þeim að það nafn sé ekki til á ís- lensku og hélt þær væra að gantast við mig. En þær gáfu sig ekki og stöfuðu nafnið hans fyrir mig og þá komst ég að því að hann var ramm- íslenskur Óskar! Þetta vora okkar fyrstu kynni og upp úr því fórum við að vera saman.“ Lífsbarátta upp með Hlíðum Veturinn 1946 festa Óskar og Jó- hannes faðir hans kaup á jörðinni Brekku og þau flytjast þangað 8. júní sama ár, á sjálfum brúðkaupsdegi ungu hjónanna. En þótti ungri skvísu í Reykjavík ekki erfitt að flytjast langt upp í sveit? „Nei, í þá daga tók maður bara öllu eins og það var. Það var ekkert spek- úlerað meira í því. Þetta lá bara fyrir manni. Það kostulegasta við þetta er að þegar ég var lítil stelpa heima á ísafirði kom frændi minn stundum til okkar úr Önundarfirðinum og hann kallaði mig alltaf litlu sveita- konuna. Kannski hann hafi séð örlög mín fyrir,“ segir Hildur góðlátlega og er sátt við forlögin. Á fyrstu búskaparáram ungu hjónanna vora aðstæður um margt ólíkar því sem þekkist í dag. í sveit- inni var enginn vegur, engar brýr yf- ir ár og læki og enginn sími. En Hiíd- ur segir þau hafa haft rafmagnið fram yfir margan annan: „Það hafði verið sett upp rafstöð hér í læknum við bæinn árið 1929. Fólk af hinum bæjunum kom hingað til okkai- að hlaða rafmagni á út- varpsgeyma. Ef við vildum komast í síma sem var opinn um tvo til þrjá tíma á dag, þá þurftum við að fara austur að Múla sem er bær þó nokkra kílómetra héðan. Á veturna var þá skást að fara beint austur mýrarnar því gamla kóngsbrautin sem var eina vegmyndin hér um slóðir, hún var svo djúp og fylltist alltaf af snjó og varð alveg ófær. Þetta var í raun líkast því sem var á landnámsöld, því þetta voru nánast bara hestagötur sem við fórum. Við þurftum alltaf að hafa hest heima á jámum til að komast ferða okkar.“ Bústofninn sem þau byrjuðu með þykir ekki stór á nútímavísu, hann Hildur og Óskar á brúðkaups- daginn 8. júní 1946. samanstóð af 60 ám, tveimur kúm, einni kvígu og fjóram hrossum. Á þessum tíma grasseraði auk þess mæðiveikin og af þeim sökum settu þau ekki á nema 28 kindur haustið eftir. En Óskar segir nágrannana hafa verið hjálpsama: Við voram alveg undrandi á því hversu nágrannafólkið hérna með Hlíðinni tók vel á móti okkur ungum og óreyndum, þegar við fluttum hingað. Þetta var miklu eldra fólk en við og það vildi allt fyrir okkur gera. Þetta samfélag stóð saman í gegnum þykkt og þunnt. Ég ætla rétt að vona að þótt við hverfum af sjónarsviðinu haldi afkomendur okkar og annarra sem búa hér, þessu hugarfari við.“ Gaddfreðnar bleíur og dularfull kista Hildur rifjar upp kaldan vetur 1957, en þá var engin upphitun í hús- inu nema rafmagnið, og það dugði skammt. „Þá átti ég yngsta barnið mitt af þremur, hana Maríu, og ég þurfti að hafa hana með húfu í vöggunni allan veturinn. Fríða eldri dóttir mín, sem þá var 10 ára gömul, var dugleg að hjálpa mér og fór með bleiurnar út til að breiða þær til þerris, en þar gadd- frusu þær. Þegar hún kom með þær aftur inn dugði rafmagnið ekki meira en svo að ég þurfti að þurrka bleiurn- ar inn á mér. En það var með þetta eins og allt sem mætir manni í lífinu, maður verður bara að gjöra svo vel að leysa það.“ En smátt og smátt urðu aðstæður bærilegri og Hildur var ein af fyrstu konunum sem fékk þvottavél á Hlíð- arbæjunum, en það kom til af því að þau höfðu rafstöðina. „Þetta þótti svo mikill viðburður að nágrannakona mín hún Ella í Auðsturhlíð kom ríðandi á þeysireið hingað til mín til að fá að sjá vélina. En þessa vél urðum við að borga f er- lendri mynt og þá kom sér vel að Óskar lumaði á forláta kistu niðri í kjallara. Þangað sóttum við dollara og pund. En þegar hann opnaði lokið á kistunni blöstu við mér berar kon- ur! Þá fóra nú að renna á mig tvær Brjóstmylkingur til sjö ára Óskar og Hildur era samrýnd hjón þótt sumum finnist þau harla ólík. Hann hefur orð á sér fyrir að vera hæglætismaður og sumir segja Hildi skapmikla og stjómsama. Hildur gerir grín að sjálfri sér og öðrum í þessum málum og segist taka Óskar með sér hvert sem hún fari „því ég verð alltaf að hafa hann séra Filipus með mér, rétt eins og drottningin í Heljarslóðarorrastu. En Pusi henn- ar var ekki kóngur, heldur „bara“ maðurinn hennar. Það var oft tekið svona til orða ef konan þótti dálítið ráðrík að hún tók bara séra Filipus með sér.“ Ég gríp þetta á lofti og spyr Óskar að því hvort Hildur hafi verið ráðrík við hann í gegnum tíðina: „Því verður ekki á móti mælt að hún hefur verið ansi ákveðin,“ svarar hann og lítur á Hildi sem bætir við mildum rómi: „Honum verður ekki bragðið um það að hafa ekki leyft mér að ráða. Hann myndi aldrei beita nokkum mann þvingun, hvorki mig eða aðra. En það er í honum mikið af skaftfellsku þrjóskunni. Hann gefur sig ekki ef hann telur sig hafa rétt fyrir sér. En hann ætlar aldrei öðram það sem hann ekki myndi sjálfur gera.“ Nágranni Óskars í hálfa öld segist aldrei hafa heyrt hann hnjóða í nokk- urn mann. Og ef til vill á það sinn þátt í þvf hversu mikið ljúfmenni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.