Morgunblaðið - 24.12.2000, Side 42
42 B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Fluga, veitt og
sleppt í Litluá
PÁLMI Gunnars-
son tónlistarmaður
og Erling Ingvason
tannlæknir á Akur-
syri hafa tekið
Litluá í Keldu-
hverfi á leigu til
næstu tíu ára. Fyrirkomulagi veiða
ánni verður gerbylt. Framvegis
verður einungis leyfð fluguveiði og
'iski skal sleppt aftur.
„Þetta fyrirkomulag verður
neginreglan, ef menn draga ein
hvern einstakan fisk sem þeir vilja
láta atoppa upp þá er það í lagi og
eins yrði
aldrei amast
við því að
menn hirtu
einn fisk í
pottinn. En
að öðru leyti
ætlumst við til þess að menn
sleppi fiskum sínum. Áin hefur
verið í dálitlum öldudal síðustu ár-
in og við teljum að það verði að
stíga þetta skref,“ sagði Pálmi í
samtali við Morgunblaðið.
Litlaá í Kelduhverfi er að mörgu
leyti einstök á íslandi. Aðalfiskur
Morgunblaðið/Einar Guðmann
Veiðistaðir ofarlega í Litluá. Myndin er úr loftmyndasafni Einars Guðmanns á Akureyri.
, _ r nálgast jól og áramót og af því tilefni senda Samtök áhugafóLks um áfengis - og
U' vímuefnavandann öllum skjólstæðingum, félagsmönnum, starfsmönnum, vinumog
velunnurum samtakanna bestu óskir um gleðilega jólahátið og gott ogfarsælt komandi ár
og gifturílca tíma.
Við hlökkum til jólahátíðarinnar ogvonumað starf samtáka okkarþetta ársemerað líða hafi
stuðlað aðþví að sönn jólagleðifái að ríkja á semflestum heimilum í landinu.
Við þökkum íslensku þjóðinnifyrírþannfráhæra stuðning sem hún hefur veitt okkur áþessu árí
sem er að líða. Með ykkar stuðningi hefur okkur tekist að lyfta Grettistaki og með ykkar stuðningi
munum við halda áfram baráttu okkar og setja takmarkið sífellt hærra.
Við þökkum Alþingi Islendinga og Ríkisstjóm fyrír skilning ogleiðveislu við hugsjónamál okkar í
baráttunni við áfengis- ogvímuefnavandann.
Við óskum Islendingum öllum gleðilegra jóla og Guðs blessunar.
Stjórn Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann
Við byggjum
upp starf
sem byggir
upp fóik
#*
hennar er sjóbirtingur sem hefur
verið veiddur á vorin og snemma
sumars er hann gengur til sjávar
og síðan aftur síðsumars og um
haustið. Aftur á móti hefur veiðum
verið hætt í ágústlok til þessa, ein-
mitt er göngur hafa verið að
hressast. Um hásumarið hafa
menn verið að kroppa upp bleikju
og hefur þá oft verið dræmt. Þessu
ætla nýju leigutakarnir að breyta.
„Við færum opnunina líklega
fram í miðjan maí. Það eru engir
horgemlingar á vorin í þessari á
eins og austur á Klaustri. Það er
svo mikil framleiðsla í Litluá að
vorfiskurinn er feitur og pattara-
legur. Síðan verður ánni meira og
minna lokað um hásumarið nema
við verðum kannski með eitthvert
fjölskylduvænt fyrirkomulag sem
á eftir að útfæra nánar, en síðan
verður veitt fram á haustið eins og
annars staðar þar sem sjóbirtingur
gengur í ár. Með því að sleppa
fiski gerum við okkur vonir um að
ná upp sterkum stofni af stórum
fiski. Litlaá er þekkt fyrir mjög
stóra sjóbirtinga, 15 til 20 punda
ófreskjur og þetta er fiskur sem
verður mjög gamall, 15 til 25 ára.
Menn hafa beitt veiða-sleppa að-
ferðinni til að ná upp sjóbirtings-
stofnum, t.d. í frægum ám í Arg-
entínu sem voru komnar að fótum
fram. Þær eru nú heimsfrægar
fyrir veiðisæld og stóra fiska. Það
væri ekki leiðinlegt að geta komið
Litluá í þann gæðaflokk, en til
þess hefur hún alla burði,“ segir
Pálmi.
Lax í þorskamaga
Miklar vangaveltur eru ævinlega
um hvað verður löxum að fjörtjóni
í úthafinu. Ein kenning af mörgum
er að þorskstofninn sé að ganga af
laxinum dauðum. Fyrir skemmstu
veiddist gríðarstór þorskur á línu
suður af landinu. Var hann ristur
upp á dekkinu og meðal þess sem
vall út úr honum var 5 punda lax.
Þorskurinn er mikið matargat sem
kunnugt er og vílar ekki fyrir sér
að éta næsta þorsk ef hungrið
sverfur að. Ekki er því ólíklegt að
eitthvað af laxi endi daga sína á
þennan hátt þótt mönnum þyki ef
til vill með ólíkindum að tiltölulega
hægsyndur fiskur á borð við þorsk
geti náð jafn spretthörðum fiski og
laxi. En máltækið segir að það haf-
ist með hægðinni og laxinn er oft-
ast sjálfur upptekinn af því að éta
í sjónum og því á vissan hátt ber-
skjaldaður.
:0
>
ra
ro
-i
cn
ro
cn
<D
(/>
ftí
lK Nýtt - nýtt
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-16