Morgunblaðið - 24.12.2000, Síða 44

Morgunblaðið - 24.12.2000, Síða 44
A B SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ásgeir og Messiana í harmonikusafninu. Besta gestaherbergið hefur verið lagt undir safnið. Ásgeir ásamt Paolo Soprani fyrir utan harmonikusafnið. (Ásgeir er sá með gleraugun!) Norskir hvalfangarar báru með sér harmonik- una vestur á fírði á síð- ustu áratugum 19. aldar o g svo vill til að þar er að verða til fyrsta harm- onikusafn landsins. Pét- ur Bjarnason kom við hjá einum heittrúuðum aðdáanda harmonik- aHérhefuraa harmomkan unnar, Ásgeiri S. Sig- urðssyni á ísafírði, sem á ótrúlega skömmum tíma hefur komið sér upp álitlegu safni af þessum hljóðfærum. ASÍÐUSTU áratugum nítjándu aldarinnar var stóriðja á íslandi eink- um bundin athöfnum Norðmanna á Vest- fjörðum við hvalveiðar. Þeir reistu hveija hvalveiðistöðina af annarri og veiddu fyrst upp hvalinn sem fékkst fyrir vestan land en fluttu sig síðan austur fyrir og þaðan til Suðurhafa. Á Vestfjörðum voru mest sjö hval- veiðistöðvar Norðmanna og starf- ræksla þeirra breytti mörgu í dag- legu lífí íbúanna. Meðal nýjunga sem Norðmennirn- ir báru með sér til íslands og íslend- inga var harmonikan. Þetta undra- verkfæri var íslendingum sem opinberun og reyndar tiltölulega íýtt í sögunni, því það var fyrst i-amleitt um 1830. Norðmennimir komu á hvalveiðistöðvamar snemma sumars og voru til haustsins. Þeir comu með einfaldar og tvöfaldar aarmonikur og kenndu innfæddum að meðhöndla þessi galdratól. Það leiddi aftur á móti til þess að dansinn, þessi heillandi og að sumra mati sið- spillandi athöfn, komst aftur til vegs og virðingar í íslenskum sveitum eft- ir að kirkjan hafði bannfært hann um langt skeið sem hvert annað Satans verkfæri til spillingar landslýð. Á rúmri öld sem liðin er síðan Norðmennirnir komu hefur margt gerst á íslandi. Tími harmonikuball- anna hefur komið, farið og komið aft- ur. Fram um miðja öldina var harmonikan í hávegum höfð, hvort heldur var í sveit eða bæ sem hið ákjósanlegasta danshljóðfæri en þá tók við nokkurt tímabil þar sem hún féll í gleymsku og dá. Rafmögnuð tónlist hélt innreið sína með Bítlana, Rolling Stones og Shadows framar- lega í flokki að ógleymdum Flowers, Hljómum og Ragga Bjama. Ef til vill hefði verið eðlileg þróun að gleyma harmonikunni sem danshljóðfæri, rétt eins og ferðaorgelunum sem stundum var notast við, en svo fór þó ekki. Harmonikan hélt velli allan tímann og vegur hennar fór vaxandi að nýju á síðasta fjórðungi þessarar aldar. HJjóðfærið hefur tekið miklum breytingum til batnaðar og sérvitr- ingamir sem héldu tryggð við það hnöppuðust saman og tóku að mynda félög og klúbba um starfsemi fyrir um aldarfjórðungi. Þeim óx síð- an ásmegin og 1981 var stofnað Samband íslenskra harmoniku- unnenda sem varð vettvangur félag- anna sem nú eru 19 talsins og félags- mepn skipta þúsundum. Á ísafirði býr einn þessara furðu- fugla sem unna harmonikunni og töfrum hennar og spilar sér til sálu- bótar hvenær sem tóm gefst til. Samhent hjón Hann heith Ásgeir S. Sigurðsson, er Þingeyingur að uppruna og hefur verið formaður Harmonikufélags Vestfjarða nær óslitið frá stofnun þess 1986. Hann lét einungis af stjórn meðan hann var formaður Sambands íslenski'a haimoniku- unnenda 1993-1996, en hann hefur verið mjög virkur í Sambandinu síð- an. Eiginkona hans er Messíana MarzelLíusdóttir, sem var píanó- kennari við Tónlistarskóla ísafjarðar um árabil. Hún lét Ásgeir algjörlega um harmonikuspilið lengi vel en hreifst að lokum af áhuga hans á harmonikutónlistinni, fór að kynna sér hljóðfærið og hóf að kenna á það íyrir rúmum áratug. Árangurinn er sá að óvíða á íslandi er áhugi meiri á harmonikunámi en við Tónlistar- skóla ísafjarðar. Hátt á þriðja tug nemenda eru þar við nám og tveir þeirra unnu til viðurkenningar á hæfileikakeppni í harmonikuleik 1999 auk þess að leika á landsmóti SÍHU á Siglufirði í fyrrasumar við góðan orðstír. Messíana hefur einnig komið að gerð námskrár fyrir harm- onikuna og átt þátt í mótun hennar. Akveðið var að taka hús á þessum heiðurshjónum til þess að forvitnast meira um þetta ágæta hljóðfæri harmonikuna, en þó einkum til þess að berja augum harmonikusafn Ás- geirs, sem mér vitanlega er hið eina hérlendis. Ásgeir er tiltölulega ný- byrjaður að safna harmonikum og honum hefur orðið ótrúlega vel ágengt eins og meðíylgjandi myndir sýna. Ég byrjaði á því að hringja í Ásgeir til þess að boða komu mína og ljósmyndarans, Halldórs Svein- bjömssonar. Eftir þrjár hringingar án svars komu dillandi harmoniku- tónar í símann og síðan skilaboðin: tekur hér lagið á fyrsta safngripinn, Soprano-harmoniku. Hann lét gera hana upp svo hún er nú í spilahæfu standi. Innfellda myndin hér til hliðar sýnir vel hvílíkur kjörgripur hún er. „Þetta er hjá Ásgeiri og Messý, við erum ekki heima, en þú getur lesið inn skilaboð eftir að hljóðmerkið heyrist." Nú var haldið úti rann- sóknarstarfi sem leiddi til þess að áður en langt um leið vor- um við mættir á Urðarveginn og sest- ir yfir ijúkandi te- bolla. Mikið tónlistarlíf i Laxárdal Þessi áhugi á harmon- ikum. Hvernig stendur á honum? „Ja, það var nú þannig að föðurbróðir minn, Hall- grímur Hallgrímsson hálf- bróðir pabba, hann var harmonikuleikari og þegar ég man fyrst eftir mér þá spilaði hann oft heima á sunnudags- morgnum og við ýmis tækifæri. Ætli áhuginn hafi ekki byrjað við það. Það var tvíbýli þarna heima, eða raun- verulega þríbýli fyrst þegar ég man eftir mér og svo tvíbýli, þannig að hálfbræðurnir, pabbi og hann bjuggu sinn á hvorum jarðarhlutanum. Þessi fóðurbróðir minn, Hallgrímur, þótti mikill ballspilari og hann sagði mér, man ég, að það sem hann fékk fyrir böllin voru tvær krón- ur þegar hann var sem mest að spila. Innifalið í því var að labba kannske úr næstu sveit með harmon- ikirna á bakinu - og til baka aftur fyrir tvær krónur! Nú svo voru náttúrlega í Þingeyjarsýslu þegar ég var að alast upp þekktir harmoniku- leikarar, miklir og góðir ballspilarar víða í flestum sveitum og strax og maður fór að fara eitthvað, sérstak- harmonika kom frá Hnitbjörgum á Ströndum. Rúmantíkin hefur bldmstrað við tdna hennar á liðnum árum. lega á böll, þá heyrði maður í þessum snillingum. Ógleymanlegt var að fara á tónleika Toralfs Tollefsen og Johns Molinari upp úr 1950. Það jók á áhugann. Harmonikan kom í mína heima- sveit um eða upp úr 1870, það veit ég með vissu, því það eru til nótur að sálmalagi fyrir einfalda harmoniku frá þeim tíma, skrifaðar af þeim merka menningarfrömuði, Benedikt frá Auðnum og það er merkt á þessar nótur hvort draga á harmonikuna sundur eða ýta henni saman. Svo má náttúrlega segja frá því að það er tal- ið að Hjálmar afi minn frá Skútu- stöðum hafi heillað skólastjóradótt- urina, Áslaugu Torfadóttur, þegar hann var við nám í Ólafsdal hjá Torfa Bjarnasyni, laust fyrir 1890, með harmonikuleik. Hann lék svo vel á harmoniku fyrir hana að hún fór með honum norður í Þingeyjarsýslu og þau giftust þar. Þetta er að vísu munnmælasaga og hann var fyrst og fremst orgelleikari. Ég er ekki einu sinni viss um að hann hafi spilað á harmoniku þarna í Ólafsdal, en ég get samt vel trúað því!“ Hvenær byrjaðirðu að spila sjálf- ur? „Ég eignaðist mína fyi'stu harmoniku þegar ég var fimmtán ára, það var 80 bassa harmonika. Svo hafa þetta nú svona orðið vandaðri og dýrari harmonikur þegar tíma- rnir hafa liðið. Mín spilamennska var nú að mestu heima í Laxárdalnum. Það vöru svo góðir spilarar í sveiU unum í Jping að það var ekki algengt að ég væri fenginn til að spila. Það var þá hélst til að hvíla hina. Annars var tóhlistarlíf ótrúlega mikið 'í daln- um. Víða voru til orgel og fiðlur voru til á flestum bæjum og margir sem náðu góðum tökum á þeim. Þessi fiðlumenning var reyndar íyrir mína tíð, en fiðlurnar voru enn til, víðast hvar. Að mestu var þarna spilað á píanó- harmonikur. Það voru reyndar menn á Húsavík sem spiluðu á hnappaharmonikur en frammi í sveitunum held ég hafi verið lítið um það eftir að gömlu diatonisku harm- onikunum sleppti." Af Hauga-Laugu og fleiri góðum gripum Þetta safn, sem er orðið býsna verklegt. Hvenær vaknaði hugmynd- in að því? „Hugmyndin að safninu kom þeg- ar til mín kom kona sem heitir Soffía Ingimarsdóttir og gaf mér harmon- iku sem maðurinn hennar, Baldur Sigurlaugsson hafði átt, eða þeir bræðurnir, Baldur og Trausti Sigur- laugs. Hún gaf mér hana og það var fyrsti gripurinn og upphafið að þessu safni. Það er þessi hérna með bogna borðinu, Soprani," segir Ásgeir og klappar harmonikunni ástúðlega. „Svo kom næst þessi Seandalli harm- onika, sem Haukur heitinn Daníels- son gaf mér. Hún fannst á öskuhaug- unum á ísafirði og hefur gengið undir nafninu Hauga-Lauga og verið mikið notuð af harmonikufélögum sem rigningarharmonika. (Rigning- arharmonika er notuð þegar spila þarf utan dyra í óvissri veðráttu og menn þora ekki að hætta rándýrum harmonikum út undir bert loft). Þetta hefur sennilega verið rétt fyrir 1990, svo að það er kominn rúmur áratugur. Ég hef síðan fengið aðra harmoniku af ruslahaug annars stað- ar en ómögulegt er að segja til um

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.