Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 31.12.2000, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Frá vinstri, Bessi, Magnús og Aðalsteinn. Morgunblaðið/Arni Sæberg Tölvustýrð lyfja- skömmtun er framtíðin mssapnmatmJF Á SUNIMUDEGI ►Þrír vinir, tengdir Qölskylduböndum, hafa innleitt ný vinnubrögð í lyfjaskömmtun hér á landi síðustu tvö árin og starfrækja fyrirtæki undir nafninu LyQaver. Þetta hefur valdið byltingu í þessum efnum og það er mikill hugur í þremenningunum sem segja verulega akra enn óplægða. Rr.9r. S a»il4' Cr.íw. i hUl\T vnvvm wzl rv Svona líta lyfjapokarair út. Eftir Guðmund Guðjónsson ramkvæmdastjóri Lyfja- vers er Aðalsteinn Steinþórsson, fæddur á Egilsstöðum 1961. Hann varð stúdent frá MA ár; ið 1981 og viðskiptafræðingur frá HÍ 1987. Nokkru síðar réð hann sig sem framkvæmdastjóra Blindravinnu- stofunnar þar sem hann starfaði til ársins 1994, þá var hann fram- kvæmdastjóri hjá ÍMÚR til ársins 1997 og því næst hjá Steinsteypu Hafnarfjarðar til þessa árs, er hann fór alfarið til Lyfjavers. Þó hafði hann starfað þar með starfi sínu hjá steinsteypunni síðustu misseri. Eig- inkona Aðalsteins er Bima Stefnis- dóttir. Bessi Gíslason er lyfjafræðingur hópsins, fæddur að Kýrholti í Skaga- firði árið 1949. Hann er stúdent frá MA 1970 og lyfjafræðingur frá Danska lyfjafræðiháskólanum árið 1979. Starfsferill hans er þannig að hann var um skeið yfirlyfjafræðing- ur Kópavogs- og Vesturbæjarapó- teka, framkvæmdastjóri heildsölu- sviðs Lyfjaverslunar ríkisins og íslands. Síðan stofnaði hann Lyfja- búðir ásamt fleirum og var lyfsölu- leyfishafi þar til ársins 1997, en þá var Lyfjaver að fæðast og hann fór þangað til starfa og er einn þeirra þriggja sem hafa starfað alfarið við fyrirtækið frá byrjun, en það var stofnað í september 1998. Eiginkona Bessa er Una Þóra Steinþórsdóttir og eiga þau fjögur böm. Tölvunarfræðingurinn í hópnum er Magnús Steinþórsson, fæddur á Egilsstöðum 1966. Hann er stúdent frá ME 1986 og útskrifaðist með BS- gráðu í tölvunarfræði árið 1992. Hann vann hjá Tryggingamiðstöð- inni frá 1990-97 og var síðan í er- lendum verkefnum fyrir EJS til árs- ins 1999 er hann gekk til liðs við Lyfjaver. Eiginkona Magnúsar er Elsa Hartmannsdóttir og eiga þau eitt barn. Lyfjaver var stofnað í september 1998 eins og áður sagði og starfsleyfi fékkst 12. ágúst 1999. Síðar í sama mánuði, eða 81. ágúst, var skammtað í fyrsta pokann og síðan hefur leiðin legið upp á við. Það var Bessi sem fyrstur kynntist tölvustýrðri lyfja- skömmtun eins og hér er til um- ræðu. Hann var þá staddur í Svíþjóð þar sem farið var að nota þessa tækni og varð honum þá hugsað til stofnana hér heima þar sem hjúkr- unarfræðingar sátu og tíndu lyf í poka, jafnvel oft á dag. „Þarna skaut rótum hugmynd um að innleiða tölvustýrða lyfjaskömmtun á Is- landi. Mikil undirbúningsvinna ligg- ur að baki þeim árangri sem náðst hefur. Fyrst þurfti að gera grein fyr- ir uppbyggingu fyrirtækisins, finna hentugt húsnæði, gera nýjan hug- búnað og markaðssetja hugmyndina meðal yfirmanna spítala og dvalar- og hjúkrunarheimiia. Alls fór eitt og hálft ár í þennan grunnundirbún- ing,“ segir Bessi. Aðalsteinn bætir við að vélin sem vinnur verkin sé japönsk og hafi ein og sér ekki verið stærsta fjárfest- ingin, heldur kostnaður við gerð og hönnun hugbúnaðar og vinna við þróun gæðakerfis og vinnuferla. Og hann heldur áfram: „Við lögðum mikla vinnu í að kynna hugmyndina og yfirmenn Hrafnistu í Hafnarfirði sýndu hugmynd okkar áhuga. Vitað er að Islendingar eru afar opnir fyrir nýjungum og þeir hjá Hrafnistu voru tilbúnir að hlusta á okkur. Það var stór stund þegar þeir tóku ákvörðun um að gera við okkur til- rauna- og þróunarsamning. Þar gát- um við þróað hugmyndir okkar í samvinnu við hjúkrunarfræðinga og lækna, gert nauðsynlegar breyting- ar og séð hvemig hlutirnir gengu fyrir sig. í kjölfarið kom hver stofn- unin af annarri í viðskipti, næst Uppsalir á Fáskrúðsfirði, þá félags- svið Kópavogsbæjar, apótek Land- spítalans og síðan Sæborg á Skaga- strönd. Nú eru í viðskiptum við okkur 14 aðilar sem eru með drjúgan hluta íbúa á dvalar- og hjúkrunar- heimilum, eða samtals rúmlega 1.100 manns. Þetta hefur gengið framar vonum og því er í undirbún- ingi að bæta við vél til að auka fram- leiðslugetuna." Heildarlausnir Þeir Aðalsteinn og Bessi (Magnús var vant við látinn) röktu fyrir blaða- manni að þetta fyrirkomulag hefði marga góða kosti og væri rétt að reifa nokkra. „Til að byrja með,“ sögðu þeir, „er skortur á hjúkrunarfræðingum en lyfjatiltekt hefur yfirleitt verið á þeirra ábyrgð. Tölvustýrð lyfja- skömmtun sparar vinnu á stofnun- um og eykur öryggi í lyfjatiltekt og lyfjagjöf. Okkar starf byrjar í raun með því að við fundum með læknum, hjúkr- unarfræðingum og forstjórum, kom- um í heimsókn, skoðum aðstæður og gerum síðan tilboð. Tekin er ákvörð- un um hvenær skömmtun hefst. Útbúin eru lyfjakort íbúa eftir fyr- irmælum lækna. Skömmtunarvél tekur við fyrirmælunum, skammtar lyfin í poka, einn fyrir hverja inn- töku. Pokamir mynda lyfjarúllu, venjulega til tveggja vikna. Að lok- um eru lyfin afhent ásamt öðrum lyfjum, s.s. augndropum, smyrslum o.fl. sem eru, eins og lyfjarúllurnar, merkt hverjum einstaklingi. Þá má nefna, að lyfjalager er yfirfarinn og endurskipulagður. Þá aðstoðum við við öll vandamál sem upp kunna að koma. Þannig veitum við heildar- lausnir á öllum lyfjamálum fyrir við- skiptavini okkar.“ Margþættur ávinningur Hver er þá ávinningurinn fyrir stofnanir afað skipta við ykkur? „Hann er margs konar,“ segja Að- alsteinn og Bessi. „Þær geta minnk- að lager sinn verulega, það næst betri nýting á lyfjum, þau fymast síður en það ræðst af því að við af- hendum það magn sem þarf hveiju sinni. Regluleg vinna við skömmtun hættir. 80 til 85% lyfja em í merkt- um pokum. Meðferðarheldni batnar, til vitnis um það em m.a. sænskar athuganir, en Svíar em framarlega í lyfjaskömmtun gf þessu tagi. Þá er auðveldara að hafa eftirlit með lyfj- um íbúa, skömmtun og rekjanleiki verður ömggari þar sem hver lyfja- máltíð er í lokuðum merktum poka. Lyfjaverð lækkar þar sem keyptar em ódýmstu og stærstu fáanlegu pakkningar í miklu magni. Af þessari upptalningu má síðan glöggt sjá hver markmið okkar em. Þau era að skammta Iyf fyrir ein- staklinga eftir þörfum hvers og eins. Að bjóða hagkvæmar heildarlausnir í lyfjamálum og að tryggja öragga skömmtun, m.a. með sérhæfðum búnaði.“ Þetta hljómar eins og eitt ailsherj- ar ævintýri. Hafa alls engin vand- kvæði mættykkur? „Við gátum þess nú í byrjun að þetta var þrotlaus og flókin vinna í upphafi, einkum sú vinna sem sneri að því að sannfæra fólk um að þetta væri góð hugmynd. Það var tímabil sem við höfðum lagt í mikla vinnu en vissum ekkert hvernig þessu myndi reiða af. En læknar og hjúkmnar- fræðingamir hafa tekið okkur vel og ekki síst íbúarnir sjálfir. Þegar við kynntumst þessu voram við mest undrandi á því að þessi tækni væri ekki löngu komin á hérlendis miðað við hve Islendingar em fljótir að til- einka sér nýjungar." En hvernig má búast við að þjón- usta Lyfjavers þróist á næstu miss- erum? „Við höfum þegar hafið samstarf með öldrunarlæknum á Hrafnistu og munum í samvinnu við þá til dæmis standa fyrir athugunum á milliverk- un lyfja, gæta þess að einstaklingar fái ekki lyf sem þeir hafa ofnæmi fyrir og hafa eftirlit með reglulegum lyfjamælingum. Við emm enn frem- ur að búa okkur undir að auka af- kastagetuna með tilkomu nýrrar vélar. Það er stærri og öflugri vél sem von er á í upphafi næsta árs. Þegar við tölum um framtíðina kemur upp brandari frá tölvunar- fræðingnum okkar um að þróunin hljóti að enda með því að fólk þurfi ekki einu sinni að opna lyfjapoka sína, heldur éti þá bara líka.“ Þið töluðuð áðan um „drjúgan hluta sjúkrarúma" sem þið þjónustið nú þegar. Hver er hlutdeildin íraun ? „í opinberam skýrslum er talað um að í heild séu 3.800 rúm á öldr- unar- og sjúkrastofnunum hér á landi. Þar af sinnum við nú rúmlega 1.100. Við þjónum því hartnær þriðj- ungi, en það er stutt í að við getum sinnt öllum og setjum að sjálfsögðu stefnuna á það. Sem stendur emm við einir á þessu sviði, hvað svo sem síðar verður, og þar með höfum við visst forskot á þá aðila sem kynnu að vilja veita samkeppni. Samkeppni er alltaf af hinu góða og við myndum mæta henni óhræddir ef til þess kæmi.“ Ef þið ætlið í nýja markaðssókn með aukinni afkastagetu, þurfíð þið þá ekki að fjölga stöðugildum og stækka, ef þannig mætti að orði komast? „Það er alveg rétt, við emm ungt fyrirtæki. Auk okkar þriggja stofn- enda og eigenda em hér þrír starfs- menn og allir ganga í flest störf. Það er alltaf einhver á vakt og bakvaktir um kvöld og helgar. Þetta kostar mikla yfirlegu, en það er eðli þess að bjóða og standa við heildarlausnir. Jú, við þurfum að fjölga starfsfólki samhliða stækkun. En við þurfum ekki að bæta við okkur húsnæði. Það var valið í byrjun til að þola umsvif- in.“ Ogþað eru sóknarfæri? „Ný sóknarfæri em ávallt fyrir hendi á markaðnum því að tölvu- stýrð lyfjaskömmtun hentar flestum þeim sem þurfa að taka nokkur lyf að staðaldri. Auk þess er enn óplægður akur á dvalar- og hjúkr- unarheimilum.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.